Morgunblaðið - 19.02.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is
Nýtt frá
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Ný sending
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Lögreglu bárust tilkynningar um
220 nauðganir á árinu 2021 og sam-
svarar það 37% fjölgun frá árinu áð-
ur. Þetta segir í tilkynningu frá rík-
islögreglustjóra en ný skýrsla
embættisins um kynferðisbrot hefur
verið birt þar sem finna má tölfræði
frá árinu 2010 fram til ársins 2021.
Þar segir að nær línulegur vöxtur
hafi verið í tilkynntum nauðgunum
frá árinu 2010 en þá var tilkynnt um
98. Nú sé að meðaltali tilkynnt um 18
nauðganir á mánuði.
Sömu sögu sé að segja um tilkynn-
ingar um kynferðislega áreitni og
brot gegn kynferðislegri friðhelgi.
Alls hafi 104 slík brot verið tilkynnt á
síðasta ári en meðtaltalið síðustu
þrjú ár á undan hafi verið 57.
Að mati ríkislögreglustjóra má
leiða líkur að því að vitundarvakning
og samfélagsleg umræða hafi orðið
til þess að fleiri brot séu tilkynnt til
lögreglu. Þar að auki gæti verið að
samkomutakmanir hafi haft áhrif á
brot og tilkynningar síðastliðin tvö
ár.
Brotið gegn börnum
Í tilkynningunni segir að hlutfall
barna í tilkynntum kynferðisbrotum
árið 2021 hafi ekki verið hærra frá
árinu 2017, eða 61 prósent. Hlutfallið
hækki upp í 70 prósent sé horft til
kynferðislegrar áreitni, brota gegn
kynferðislegri friðhelgi auk blygðun-
arsemisbrota.
Þá séu karlar í miklum meirihluta
þeirra sem grunaðir eru um kynferð-
isbrot og langflestir brotaþolar
kvenkyns.
„Á síðasta ári voru 420 einstak-
lingar grunaðir um kynferðisbrot og
af þeim voru 94% karlar. Meðalaldur
grunaðra karla er 35 ár og grunaðra
kvenna er 30 ár. Þegar kemur að
brotaþolum voru þeir í 84% tilvika
kvenkyns,“ segir í tilkynningunni.
Tilkynntum brotum gegn körlum
hafi þó farið fjölgandi frá árinu 2017.
Þegar komi að nauðgunarbrotum
hækki hlutfalli karlkyns grunaðra í
99%. Brotaþolar hafi í 93% tilvika
verið konur.
Tilkynningum um
nauðgun fjölgar
- Línulegur vöxtur frá árinu 2010
Morgunblaðið/Eggert
Brot Tilkynningum um kynferðis-
brot hefur fjölgað mikið.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Eftir magra daga á tímum kórónu-
veirunnar er nú að færast líf í kvik-
myndabransann á ný. Það sést vel á
því að um þessar mundir fara fram
tökur á fjórum stórum erlendum
kvikmyndaverkefnum hér á landi,
tveimur kvikmyndum og tveimur
sjónvarpsþáttaröðum. Umfang þess-
ara kvikmyndataka er slíkt að ekki
er til nóg af innlendu vinnuafli til að
sinna þeim öllum á sama tíma og því
eru tökuliðin að stórum hluta skipuð
erlendu kvikmyndagerðarfólki.
Stærsta verkefnið eru tökur á
vegum risans Marvel sem voru við
Mývatn á dögunum. Mikil leynd hef-
ur hvílt yfir þessu verkefni sem ber
vinnuheitið „Safari“ meðal fólks í
kvikmyndabransanum. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er tal-
að um svokallað „Marvel offshoot“
sem ku vísa til að um hliðarsögu í
Marvel-heiminum sé að ræða. Einn
heimildarmanna blaðsins sagði að
sagan tengdist sjálfum Spiderman
en það hefur ekki fengist staðfest.
Það fór ekki fram hjá heimamönn-
um í Mývatnssveit að kvikmynda-
tökulið var í sveitinni enda lagði það
undir sig þrjú hótel, þar á meðal hið
glæsilega Icelandair-hótel. Heimild-
armönnum blaðsins ber ekki saman
um hversu margir voru í tökuliðinu.
Hefur verið giskað á að starfsmenn
hafi verið einhvers staðar á bilinu 2-
300 þegar mest lét.
Framleiðslufyrirtækið TrueNorth
fékk leyfi til kvikmyndatöku á Mý-
vatni fyrr í mánuðinum. Leyfið fól í
sér að búnaður yrði fluttur út á ísi-
lagt vatnið og vélsleðar yrðu notaðir
til að knýja vindvélar. Reykvélar
yrðu hins vegar rafstýrðar. „Ekki
verður sett upp leikmynd en við tök-
urnar verður mögulega notast við
gervisnjó sem er ekki skaðlegur um-
hverfinu. Með umsókn fylgdu efna-
fræðilegar upplýsingar um gervi-
snjóinn. Við tökurnar verður notast
við fimm sleðahunda. Loftmynda-
tökur fara fram með dróna eða
þyrlu,“ sagði í lýsingu á Marvel-
verkefninu. Þar kom jafnframt fram
að 80 manns kæmu að tökunum á
vatninu sem standa áttu í tvo daga.
Vinnubúðir yrðu settar upp á túni í
nágrenninu.
Tökur á Deplum og Vök Baths
Tökum á kvikmyndinni Luther
með breska leikaranum Idris Elba
lauk hér á landi í vikunni en þær
fóru meðal annars fram á Svínafells-
jökli. Netflix framleiðir myndina í
samstarfi við BBC. Það var RVK
Studios, fyrirtæki Baltasars Kor-
máks, sem var tökuliðinu innan
handar hér á landi og naut liðsinnis
framleiðslufyrirtækisins Frostfilm
við það.
Um þessar myndir standa yfir
tökur á sjónvarpsþáttunum Wash-
ington Black sem framleiddir eru
fyrir efnisveituna Hulu. Tökur hafa
farið fram á Austurlandi og í mynd-
veri í Reykjavík. Um er að ræða níu
þátta seríu sem byggð er á sam-
nefndri bók eftir kanadíska rithöf-
undinn Esi Edugyan sem meðal
annars var tilnefnd til Booker-
verðlaunanna þegar hún kom út árið
2018. Velski leikarinn Thomas John
Ellis fer með eitt aðalhlutverkanna
en hann er þekktur fyrir hlutverk
sitt í sjónvarpsþáttunum Lucifer
sem sýndir hafa verið á Netflix.
Í næsta mánuði hefjast svo tökur
hér á landi á sjónvarpsþáttunum
Retreat sem skarta þeim Clive
Owen og Emmu Corrin í aðal-
hlutverki. Corrin fór nýlega með
hlutverk Díönu prinsessu í sjón-
varpsþáttunum The Crown. Fram-
leiðslufyrirtækið FX gerir þættina
en það heyrir undir Fox. Um stórt
verkefni er að ræða, alls um 16 töku-
daga hér á landi. Einn heimildar-
manna blaðsins taldi að kostnaður
við tökurnar hér væri um 800-900
milljónir króna. Tökur fara m.a.
fram á baðstaðnum Vök við Egils-
staði, á lúxushótelinu Deplum í
Fljótum og í tónlistarhúsinu Hörpu.
Kvikmyndastjörnur um allt land í tökum
- Fjögur stór erlend kvikmyndaverkefni í tökum hér á landi um þessar mundir - Idris Elba á Svína-
fellsjökli - Marvel með hundasleða á Mývatni - Sjónvarpsþættir teknir á lúxushótelinu á Deplum
Marvel-mynd sem
tekin er að hluta á
Mývatni
Kvikmyndin Luther
með leikaranum Idris
Elba í aðalhlutverki
Stór kvikmyndaverkefni í tökum á Íslandi
Sjónvarpsþættirnir
Washington Black sem
gerðir eru fyrir Hulu
Thomas John Ellis
Idris Elba
Sjónvarpsþættirnir Retreat
sem teknir verða í Vök
Baths, Hörpu og víðar
Emma Corrin Clive Owen
Á sama tíma og tökur fyrir Marvel-mynd fóru fram á
Mývatni var leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
þar á ferð með fjölþjóðlegan her við gerð næstu mynd-
ar sinnar, Northern Comfort. Tökuliðið dvaldi á Foss-
hóteli þar í sveit í tvær vikur en flutti sig svo suður yfir
heiðar og hélt verkinu áfram.
Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu fer enski
stórleikarinn Timothy Spall með eitt aðalhlutverkanna
í myndinni ásamt Sverri Guðnasyni, ensku leikkonunni
Lydiu Leonard og hinni þýsku Ellu Rumpf. Þá fer Björn
Hlynur Haraldsson einnig með hlutverk í myndinni
ásamt fleiri löndum sínum.
Handritið skrifaði Hafsteinn með þeim Halldóri Lax-
ness Halldórssyni, betur þekktum sem Dóra DNA, og
Tobias Munthe. Sögusvið myndarinnar er bæði Ísland
og London.
Fjölþjóðlegur her Hafsteins Gunnars á Mývatni
ÍSLENSK KVIKMYND Í TÖKUM Á SAMA TÍMA OG RISAVERKEFNI MARVEL