Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
Undirrituð hefur verið viljayfirlýs-
ing á milli sveitarfélagsins Langa-
nesbyggðar, Slökkviliðs Langanes-
byggðar, Neyðarlínunnar,
Björgunarsveitarinnar Hafliða á
Þórshöfn og Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands um að koma á lagg-
irnar björgunarmiðstöð á Þórs-
höfn.
Miðstöðin hýsi tæki, búnað og bif-
reiðar slökkviliðsins, björgunar-
sveitarinnar og sjúkrabifreiðar auk
aðstöðu fyrir starfsmenn og ann-
arra rýma sem tilheyra.
Starfshópi er ætlað að vinna
þarfagreiningu um stærð rýmis,
kostnað o.fl. og ber að skila til-
lögum fyrir 1. apríl.
Áforma björgunarmiðstöð
Þórshöfn Þórarinn J. Þórisson slökkviliðsstjóri, Jónas Egilsson sveitar-
stjóri og Þorsteinn Ægir Egilsson, formaður Hafliða, skrifuðu undir.
um Sturlunga sögu og Eyrbyggju
og hvort þær eigi eitthvað sameig-
inlegt. Áhugavert umfjöllunarefni.
- - -
Skrifstofu- og frumkvöðlasetrið
Árnasetur var stofnað á síðasta ári.
Þar er í boði góð starfsaðstaða með
aðgang að ljósleiðaratengingu og
góðri fundar- og kaffiaðstöðu. Setrið
hefur ákveðið að nota styrk frá
Sóknaráætlun Vesturlands til að
greiða húsaleigu fyrir frumkvöðla
sem eru að hefja eigin rekstur í alls
20 mánuði. Hver og einn getur feng-
ið endurgjaldslausa leigu í allt að 6
mánuði.
- - -
Stærsta byggingaverkefnið í
Hólminum á þessu ári er end-
urbygging og breytingar á sjúkra-
húsinu. Framkvæmdir ganga vel en
eitthvað hefur verið um Covid-smit
hjá framkvæmdaraðilum eins og
gengur. Byrjað er að setja upp milli-
veggi á 2. hæð í eldri hluta bygging-
arinnar og pússning útveggja er
langt komin á báðum hæðum.
Lagnavinna stofnlagna stendur nú
yfir á 3. hæð í eldri hlutanum. Þegar
ráðist er í breytingar á gömlu hús-
næði getur ýmislegt komið upp á.
Komið hefur í ljós að gluggar í eldri
byggingunni eru illa farnir og þarf
að skipta um þá og sama er með
klæðningu á útveggjum. Það verður
til þess að verkið tefst, en verklok
áttu að vera 1. júní.
- - -
Trésmiðjuna Þ.B. Borg stofnaði
Þorbergur Bæringsson fyrir 20 ár-
um. Með tímanum hefur verkefnum
fjölgað og stærri verkum. Þ.B. Borg
er að færa út kvíarnar. Fyrirtækið
hefur keypt húsnæði við Nesveg
sem fyrr á tímum var Trésmiðja
Stykkishólms. Með því færist starf-
semin úr 100 fermetra húsnæði í 700
fermetra. Með tilkomu nýja hús-
næðisins batnar verkstæðisvinna og
lagerhald. Auk þess breytist aðstaða
fyrir starfsmenn til mikilla bóta. Nú
hefur Páll Vignir, sonur Þorbergs,
tekið við stjórnun, en Þorbergur
mætir enn daglega í vinnuna þótt
hann sé orðinn 78 ára. Að sögn Páls
er verkefnastaðan mjög góð á þessu
ári. Stækkun á leikskólanum um
eina deild lýkur brátt. Eftir það taka
við húsbyggingar í Miklaholtsseli og
í Grundarfirði auk smærri verka.
Starfmenn fyrirtækisins eru 12.
- - -
Þórsnes ehf. starfrækir nú einu
bolfisksvinnsluna í bænum. Allur
afli fer í saltvinnslu. Að sögn Egg-
erts Halldórssonar framkvæmda-
stjóra er bjart fram undan hjá Þórs-
nesi. Aflabrögð hafa verið góð og
sama á við með söluhorfur. Stöðug
vinna hefur verið frá áramótum og
er unnið sex daga vikunnar. Á síð-
asta ári tók fyrirtækið á móti 4.000
tonnum af fiski í salt. Þórsnesið ger-
ir út samnefndan bát sem leggur
vinnslunni til hráefni. Frá áramót-
um hefur Þórsnesið fiskað um 700
tonn og er þeim afla landað í Hólm-
inum. Starfsmenn í vinnslu eru 27
og á sjó er 21 sjómaður.
- - -
Skipavík hf. er að hefja bygg-
ingu 720 fermetra skemmu. Skemm-
unni verður skipt í 12 bil sem hvert
um sig er 60 fermetrar að stærð.
Bilin verða auglýst til sölu og þegar
hafa borist beiðnir um kaup.
Verkefnastaðan hjá Skipavík er
góð og ná verkefni langt fram í tím-
ann. Frá fornu fari hefur fyrirtækið
séð um viðgerðir og viðhald á skip-
um og svo er enn. Hjá Skipavík
starfa um 70 manns og þar af 26
sem hafa fasta vinnu á Grundar-
tanga.
- - -
Dauft hefur verið yfir ferða-
þjónustunni síðustu mánuði. Fáir
erlendir gestir hafa látið sjá sig hér
eins og annars staðar á landsbyggð-
inni. Margir í ferðaþjónustu, bæði í
gistingu og veitingum hafa brugðist
við með því að loka yfir háveturinn.
Nú þegar daginn tekur að lengja og
sólin lætur sjá sig, fer ferðaþjón-
ustan að lifna við og rekstraraðilar
fyllast bjartsýni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur A. Árnason
Stykkishólmshöfn Spegilsléttur sjórinn á fallegum vetrardegi, nú þegar góa er fram undan og þorrinn að baki.
Enn er kosið
um sameiningu
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmi
Kosið verður um sameiningu
Helgafellssveitar og Stykkishólms-
bæjar 26. mars nk. Þetta er ekki
fyrsta tilraun til sameiningar, en
vonandi sú síðasta. Í Stykkishólmi
búa 1.210 manns og 66 í Helgafells-
veit. Samstarfsnefnd um samein-
ingu sveitarfélaganna hefur skilað
niðurstöðu og telur hún að samein-
ing hafi fleiri kosti í för með sér en
galla. Fjárhagur sameiginlegs sveit-
arfélags mun styrkjast sem og fjár-
festingageta. Þá munar um 600
milljóna króna framlag úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga vegna sam-
einingar. Sveitarfélögin hafa nú
þegar náið samstarf í mörgum mál-
efnum svo breyting verður ekki
mikil. Jákvæður hugur um tillöguna
virðist vera hjá íbúum.
- - -
Eyrbyggja- sögufélag var stofn-
að í fyrra í Helgafellssveit. Til-
gangur félagsins er að gera Eyr-
byggju betri skil á heimaslóðum.
Stefnt er á að nota félagsheimilið að
Skildi til sýninga- og fyrirlestra-
halds. Laugardaginn 26. febrúar kl.
14 verður söguskemmtun á Skildi
þar sem sögumennirnir Einar Kára-
son og Óttar Guðmundsson ræða
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
drög að dagskrá
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram
ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða
rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög
að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum
fyrir fund, það er fyrir kl. 16:00 þann 7. mars 2022. Nánari
upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins:
www.eimskip.com/investors
Stjórn félagsins hefur ákveðið í samræmi við grein 4.4 í samþykk-
tum félagsins að aðalfundur verði haldinn rafrænt og boðið verður
upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum án þess að hluthafar
séu viðstaddir á fundarstað í gegnum Lumi AGM tæknibúnaðinn.
Mælt er með því að notast við Lumi appið eða tölvu og að nýjasta
útgáfa af vafra sé uppsett (Chrome, Safari, Edge eða Firefox).
Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til
þátttöku í honum að öðru leyti. Hluthöfum er einnig velkomið að
mæta til fundarins í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2,
104 Reykjavík.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum
Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins í
höfuðstöðvum félagsins eða taka þátt með rafrænum hætti, eru
hvattir til að hlaða niður appi Lumi AGM í eigin snjalltæki, en
jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM.
Leiðbeiningar um Lumi og skráningu á fundinn verða settar á
heimasíðu fundarins.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að
sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir
um að skrá sig á vefsíðu Lumi eigi síðar en kl. 12.00 þann 16.
mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja
mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Skráning er skilyrði fyrir
þátttöku í fundarstörfum og miðast mæting við hana hvort sem
hluthafar eru á staðnum eða taka þátt með Lumi.
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2021
4. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum skv. gr. 11.2 í
samþykktum félagsins
5. Tillaga stjórnar um lækkunar hlutafjár að fjárhæð kr.
2.150.000 að nafnverði með greiðslu til hluthafa
6. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
7. Kosning stjórnar félagsins
8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og
undirnefnda stjórnar
9. Kosning endurskoðenda
10.Önnur mál, löglega upp borin
reglur um þátttöku og
atkvæðagreiðslu á fundinum
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu sem er að nafnverði ein
króna.
Hluthöfum stendur jafnframt til boða að kjósa um dagskrármál
með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má
finna viðeigandi eyðublöð. Eigi síðar en fimm dögum fyrir
aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti
að berast félaginu.
aðrar upplýsingar
Athygli hluthafa er vakin á því að tilhögun fundarhalda verður í
samræmi við gildandi sóttvarnarreglur á aðalfundardegi og ákvæði
hlutafélagalaga um hluthafafundi. Ef breyta þarf tilhögun
fundarhalda verður tilkynnt um það í fréttakerfi Nasdaq Iceland
fyrir aðalfund.
Fundurinn fer fram á íslensku. Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund
er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík, virka
dagamilli kl. 9:00 og 16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur vikum
fyrir fundinn á vefsíðu félasins og liggja jafnframt frami á skrifsto-
fu félagsins. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k.
þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá.
Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna um
framboð til stjórnar skriflegaminnst tíu dögum fyrir aðalfund, eða
fyrir kl. 16:00 þann 7. mars 2022. Framboðstilkynningumá nálgast
á fjárfestasíðu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 17. febrúar 2022
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
Sundabakki 2 | 104 Reykjavík | +354 525 7000 | eimskip.com
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 17. mars 2022
kl. 16:30 með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta til
fundarins í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík.
Aðalfundur
Eimskipafélags Íslands hf.