Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 18

Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hnúðlax er framandi í íslenskum ám og er síður en svo aufúsugestur alls staðar. Talað hefur verið um hann sem flæking, en síðustu ár hefur hnúðlöxum fjölgað mjög þannig að hæpið er að tala um flækinga lengur. Hrygning hefur verið staðfest hér, en óvissa er um hvort klak hefur tekist þar sem seiði hafa ekki fundist enn. Yfir- gnæfandi líkur eru þó taldar á að það hafi tekist og reynt verður að fylgjast með þeirri framvindu í vor. Ljóst þykir að honum muni fjölga á komandi árum eins og ann- ars staðar við norðanvert Atlantshaf. Spurður um stöðuna segir Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri á fersk- vatns- og eldissviði Hafrannsókna- stofnunar, að þegar rigni sé hægt að fara í skjól eða setja upp regnhlíf. Það sé hins vegar ekki hægt að skrúfa fyrir og líkir þannig auknum göngum hnúðlax við rigninguna. Þróun hnúðlaxastofns sé meðal ann- ars til umræðu á vettvangi sérfræð- inga við Norður-Atlantshafið. Vökt- un og auknar rannsóknir séu nauð- synlegar á lífsferli og hegðun hnúð- laxa og hvaða vistfræðileg áhrif þessi nýja tegund kunni að hafa á laxfiska í íslenskum ám og afkomu þeirra. Ekki skilgreindur í lögum Guðni segir að ekki sé seinna vænna en að fara að skoða hvað menn vilji gera við hnúðlax, sem einnig er nefndur bleiklax, og setja honum ramma í umhverfi laga og reglugerða í stjórnkerfinu. Þannig hafi veiðiréttarhafar rekist á hindr- anir í kerfinu á síðasta sumri þegar þeir hugðust draga fyrir og veiða hnúðlax til að gera tilraun til að stemma stigu við mögulegum áhrif- um hans. Komið hafi í ljós að hnúðlax er ekki tilgreindur í lögum um lax- og silungsveiði og að ekki hafi verið lögfræðilega heimilt að draga fyrir til að drepa hnúðlaxa. Ekki hafi held- ur verið ljóst hvort slíkt hafi verið ólöglegt. Hnúðlax tilheyrir ættkvísl kyrra- hafslaxa og eru náttúruleg heim- kynni við Kyrrahafið frá Asíu til N- Ameríku. Stofnar hnúðlaxa eru þeir stærstu af tegundum kyrrahafslaxa. Útbreiðsla hnúðlaxa í Evrópu hófst er Rússar fluttu frjóvguð laxa- hrogn til Rússlands á sjötta áratug síðustu aldar og hófu að sleppa hnúðlaxaseiðum í ár sem hafa af- rennsli til Hvítahafsins. Fyrstu lax- arnir úr þessari ræktun veiddust 1960, en sleppingum í árnar var hætt 1979. Þær hófust á ný 1985 með stofnum hnúðlaxa sem voru fluttir frá Norður-Kyrrahafi og héldu þessar sleppingar áfram til ársins 1999. Allir hnúðlaxar sem veiðst hafa í Norður-Atlantshafi eru því árangur náttúrulegra hrygn- ingar eftir 2001, segir meðal annars í grein um hnúðlax á vef Hafrann- sóknastofnunar. Ekki fikta í vistkerfinu Náttúrulegir hnúðlaxastofnar hafa nú myndast í ám í Norðvestur- Rússlandi og einnig í fjölmörgum norskum ám. Hérlendis hefur hnúð- lax fundist í mörgum ám, jafnvel flestum vatnakerfum, og líkur eru á að bæði fjöldi og dreifing hnúðlaxa muni aukast á næstu árum. Guðni segir að þessar staðreyndir um út- breiðsluna segi mönnum fyrst og fremst að þeir eigi ekki að flytja fisk á milli heimshafa og fikta þannig í vistkerfum. Fyrsti hnúðlaxinn veiddist hér- lendis í Hítará á Mýrum 1960, en slíkur afli varð þó ekki algengur fyrr en 2015 og á oddatöluárum síðan, en þau ár eru stofnanirnir mun stærri bæði í Atlantshafi og Kyrrahafi. Ár- ið 2015 voru skráðir níu hnúðlaxar hér, 54 árið 2017, 232 árið 2019 og í fyrra gætu þeir hafa verið á 4-500. Kynjahlutfallið hafi verið ólíkt því alltaf hafi verið meira af hængum. Talningin byggir einkum á upplýs- ingum úr veiðiskýrslum, en endan- legra talna fyrir síðasta ár er ekki að vænta fyrr en líður á vorið. Margar spurningar En hver er framtíðarsýnin? Hvernig á að bregðast við öllum þessum hnúðlaxi? Spillir hann ánum og lífríkinu þar og er yfirleitt hægt að sporna við þróuninni? Er hægt að losna við hann standi vilji til þess? Til þess að svara þessum spurn- ingum er brýnt að auka þekkingu á hnúðlaxi og þeim áhrifum sem hann kann að hafa á annað lífríki og þar með talið fiskstofna. Greinilegt er að Guðni hefur velt þessu fyrir sér, en ekkert eitt svar er við þessum spurningum. Hann telur þó ólíklegt að hægt sé að stemma stigu við fjölguninni a.m.k. í einhverjum ám eða árhlutum. Guðni bendir á að Rússar veiði 2- 300 þúsund tonn af hnúðlaxi árlega og nýti hann á margvíslegan hátt. Nýgenginn hnúðlax þyki ágætur matfiskur sem mætti veiða til dæmis með því að koma fyrir búnaði í árós- um til að taka á móti honum. Hnúð- laxinn gangi yfirleitt seint í árnar til að hrygna og hrygni einkum í neðri hlutum þeirra. Hann sé því á ferð- inni neðarlega í þeim þegar hefð- bundinn atlantshafslax sé oft geng- inn ofar á hrygningarsvæði sín. Horn í síðu hnúðlaxins Í Noregi hafi menn horn í síðu hnúðlaxins því hann trufli lax sem fyrir sé í ánum, hafi truflandi áhrif á veiðar og breyti ásýnd. Taka megi dæmi af perlum meðal íslenskra stangveiðiáa og erfitt sé að hugsa sér þær með þúsundir hnúðlaxa. Guðni segir að Norðmenn hafi sett á laggirnar verkefni í smærri ám og gildrur hafi verið settar í ár- ósa til að drepa hnúðlax sem var að ganga. Þannig hafi þeir viljað fá samanburð milli áa með og án þess- arar tegundar. Eðlilegt sé fyrir Ís- lendinga að fylgjast með því sem Norðmenn eru að gera og sækja þekkingu þangað. Þar sé þróunin einfaldlega komin nokkrum árum lengra heldur en hér í fjölda fiska talið. Hérlendis séu vatnasvæðin ólík. Sums staðar hindri fossar og flúðir neðarlega í ánum göngu hnúðlaxins upp í árnar, en annars staðar sé að- gangurinn greiðari. Hnúðlax eigi í raun ekkert erindi langt upp í árnar ef skilyrði séu til hrygningar á neðstu svæðum. Svo séu líka spurn- ingar um hvernig hnúðlax muni haga sér þegar fjöldinn sé orðinn mikill og hann þurfi að ganga lengra til að finna svæði til hrygningar. Framandi en ekki flækingur - Hnúðlax úr Kyrrahafi orðinn algengur við Norður-Atlantshaf - Ekki seinna vænna að setja honum ramma í umhverfi laga og reglugerða - Þörf á vöktun og rannsóknum til að auka þekkingu Lífsferill hnúð- laxa er tvö ár frá hrogni upp í kynþroska lax. Hnúðlax hrygn- ir á haustin og drepst að lok- inni hrygningu. Hrognin klekj- ast næsta vor og ganga seið- in nær umsvifalaust til sjávar og taka því lítið til sín í viðkomandi vatna- kerfi. Laxarnir dvelja síðan um átján mánuði í sjó og taka út mestan vöxt sinn. Eftir sjávardvöl ganga þeir aftur til hrygningar í ferskvatn. Stofnar með jöfnu ártali og frá oddaárum eru ekki á sama tíma í ánum. Hnúðlax og hefðbundinn lax í íslenskum ám blandast ekki og lítil skörun er á hrygningarsvæðum. Drepst eftir hrygningu LÍFSFERILLINN SPANNAR TVÖ ÁR Ljósmynd/KF Stöðugt algengari Pattaralegur hængur nýgenginn í Hofsá í fyrrasumar, en þeir verða dekkri og með rauðari lit þegar nær dregur hrygningu. Hnúðurinn er að byrja að myndast og skolturinn að lengjast. Á hrygningartíma koma síðan áberandi tennur. Við hrygningu eru hnúðlaxar oft um tvö kíló að þyngd. Guðni Guðbergsson Ljósmynd/Wikipedia 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Valgerður Sig- urðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri í Reykjavík í næsta mánuði. Á líðandi kjör- tímabil hefur hún m.a. lagt sig eftir málefnum í úthverfum. Vill lækka skatta í borginni og bæta þjónustu við börn, aldraða og fjöl- skyldur sem þurfa stuðning. Þá sé mikilvægt að efla fjölbreyttar sam- göngur og tryggja framboð lóða. Slá þannig á hátt fasteignaverð. Valgerður á bakgrunn sinn í upp- lýsingatæknigeiranum og hefur bú- ið í Grafarvogi í tæplega tvo ára- tugi. Valgerður vill 3. sætið í Reykjavík Valgerður Sigurðardóttir Jón Björn Há- konarson sækist eftir forystu á lista Framsókn- arflokks í Fjarðabyggð við bæjarstjórnar- kosningar í vor. Því sæti hefur hann haldið frá 2010, var forseti bæjarstjórnar og varaformaður bæjarráðs 2010 – 2020 þegar hann tók við starfi bæj- arstjóra. Fram undan segir Jón Björn að séu spennandi verkefni í grænum fjárfestingum. Þar vilji hann leggja sitt af mörkum til að rennar sterkari stoðum undir at- vinnulífið – jafnhliða því sem Fjarðabyggð sé styrkt í sessi sem fjölskylduvænt samfélag og góður búsetukostur. Vill halda forystu- sæti í Fjarðabyggð Jón Björn Hákonarson Ómar Stefánsson gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Óm- ar var bæjar- fulltrúi Fram- sóknar í Kópavogi 2002- 2014 og sinnti þá meðal annars formennsku í bæjarráði og átti sæti í ýmsum nefndum og ráðum á miklum upp- byggingartíma í bænum. Í tilkynn- ingu segist Ómar vilja varkárni í fjármálum bæjarins. Vill ljúka Vatnsendamálinu, hugnast ekki nú- verandi útfærsla borgarlínu og vill auka þjónustu við barnafjölskyldur, m.a. með byggingu leikskóla. Jafn- framt þurfi að leita sátta við þétt- ingu byggðar í grónum hverfum. Ómar stefnir á 4. sætið í Kópavogi Ómar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.