Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Vandræða- gangur Háskóla Íslands vegna spilakassa heldur áfram. Happ- drætti Háskóla Íslands aflar fjár fyrir Háskólann með rekstri spilakassa. Í fyrrasumar skilaði starfs- hópur á vegum rektors HÍ skýrslu sem loks nú kemur fram. Þar segir að Háskóli Íslands geti ekki staðið að rekstrinum öðruvísi en að gera allt sem hægt er til að stuðla að ábyrgri spilun og lágmarka neikvæðar afleið- ingar fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. „Út frá fyrirliggjandi gögnum er ljóst að tekjur frá HHÍ eru mikilvægar fyr- ir uppbyggingu innviða HÍ,“ segir í skýrslunni. „Hins vegar er einnig ljóst að við- horf almennings til spila- kassa er neikvætt og ætla má að gagnrýnisraddir verði sífellt háværari. Niður- stöður innlendra og er- lendra rannsókna sýna einn- ig fram á skýr tengsl milli spilavanda og notkunar spilakassa.“ Það er án efa rétt mat að rekstur spilakassa er illa þokkaður meðal almenn- ings. Í könnun hjá Gallup fyrir tæpum tveimur árum sögðust 85,5% svarenda þeirrar hyggju að loka ætti fyrir starfsemi spilakassa til frambúðar hér á landi. Skýrsla starfshópsins ein- kennist af varkárni. Gengist er við því að erfitt sé að verja fjáröflun, sem hefur slíka skaðsemi í för með sér. Síðan er áhersla lögð á að leita leiða til að takmarka skaðann. Lykilatriðið er auðvitað að Háskólinn getur illa án teknanna af spila- kössunum verið. Í skýrslunni er fjallað um að rannsóknir hafi sýnt skýr tengsl á milli spilakassanna og spilafíknar. Þar er hins vegar ekki nefnt að spila- kassar séu notaðir til að þvo peninga. Í áhættumati ríkis- lögreglustjóra um þvott á peningum er sérstaklega talað um vísbendingar um að spilakassar séu þegar not- aðir til að þvo peninga. Til að gæta sannmælis var sagt þegar matið kom út að HHÍ myndi grípa til ráðstafana til að draga úr þessari hættu. Eftir stendur þó að hættan er fyrir hendi á meðan spilakass- arnir eru í notk- un. Ögmundur Jónasson skar upp herör gegn spilakössunum þegar hann var á þingi og fylgdi því eftir þeg- ar hann varð ráðherra. Hann hefur ítrekað vakið at- hygli á málstaðnum og ör- lögum þeirra, sem misst hafa allt, bæði eigur sínar og fjölskyldu, vegna spilafíkn- ar. Samtök áhugafólks um spilafíkn reiknuðu út fyrir nokkru að spilafíklar töpuðu um 400 þúsund krónum á klukkustund í spilakössum og á ári töpuðu þeir fjórum milljörðum króna. Happdrætti Háskólans hefur reynst skólanum drjúgt við að afla peninga til að reisa byggingar, en það er mikill munur á því að selja happdrættismiða og reka spilakassa. Þeir sem kaupa happdrættismiðana gera það gagngert til að styrkja Háskólann, en finnst ekki verra að hljóta vinning. Fæstir þeirra, sem spila í spilakössum, hugsa með sér að nú ætli þeir að styðja góð- an málstað. Svo virðist líka sem örfáir einstaklingar standi undir rekstri kass- anna. Í áðurnefndri könnun Gallup, sem gerð var fyrir Samtök áhugafólks um spilafíkn, kvaðst aðeins eitt prósent svarenda hafa spilað oftar en einu sinni í spila- kössum á undanförnum 12 mánuðum. Svo er vert að halda því til haga að grátlega lítið af veltu spilakassanna skilar sér til Háskólans. Flest góð- gerðarfélög kappkosta að láta sem mest af söfnunarfé renna til málstaðarins. Fari hlutfall rekstrarkostnaðar mikið yfir 20% getur það skapað óánægju með hvern- ig fénu er ráðstafað og tor- tryggni þeirra, sem gefa fé. Komið hefur fram að að- eins um 15% af peningunum, sem stungið er í kassana, renna til þeirrar starfsemi, sem kössunum er ætlað að styrkja. Bróðurparturinn af peningunum fer í að reka kassana og borga leyfis- höfum. Á mörgum bæjum yrði þetta lága hlutfall ekki látið viðgangast. Aðeins 15% af peningunum sem stungið er í spilakassa fara í starfsemina sem á að styrkja} Fíkn og fjáröflun Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ U m tvo milljarða króna mun upp- stokkun stjórnarráðsins og fjölgun ráðherra kosta ríkis- sjóð. Eftir metmeðgöngu stjórnarmyndunarviðræðna flokkanna sem voru að koma úr fjögurra ára ríkisstjórnar- samstarfi varð það niðurstaðan. Til að hægt yrði að halda samvinnunni áfram yrði að gera breytingar. Aðspurð orðaði Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra það einhvern veginn svo að eftir fjögurra ára farsælt samstarf vissi forsvarsfólks stjórnarflokkanna vel hverju þyrfti að breyta og hvar þyrfti að gera betur. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með um 170 milljarða kr. halla í ár. Heimili og fyrirtæki í landinu herða nú sultarólina vegna vaxandi verðbólgu og hækkandi vaxta. Kjarasamningsviðræður munu að öll- um líkindum taka mið af þeim veruleika. Í hvaða veruleika býr þá ríkisstjórn sem skutlar 2 milljörðum í óundirbúna illa skipulagða uppstokkun ráðuneyta og fjölgun ráð- herra? Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar forystufólks ríkis- stjórnarinnar um að þau þori að vera breytingarafl fram- tíðar þá er birtingarmyndin sem blasir við öllum almenn- ingi sú að þessar breytingar hafi átt sér stað með hraði á lokametrum stjórnarmyndunarviðræðnanna. Til að leysa innanbúðarágreining stjórnarflokkanna um hver fengi hvað og hver réði hverju. Og líklega líka um hver fengi ekki að ráða sumu. Upp að vissu marki er þetta auðvitað bara hluti af því að skipta með sér völdum. En þessi vinnubrögð sýna enn og aftur að þrátt fyrir tal um mikilvægi ábyrgs ríkisrekstrar þá vinnur ríkisstjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar einfaldlega eftir allt annarri hug- myndafræði. Það svíður hvað forgangsröðunin sem þarna birtist í áherslum ríkisstjórnarinnar er í hróp- legu ósamræmi við hin raunverulegu viðfangs- efni sem blasa við í samfélaginu. Samkvæmt nýrri samantekt umboðsmanns barna bíða nú sautján hundruð börn á biðlistum eftir þjónustu í heilbrigðiskerfinu og hjá félagsmála- stofnunum. Eitt þúsund og sjö hundruð börn. Meðalbiðtíminn er frá einu og upp í tvö ár eftir þeirri þjónustu sem um ræðir. Þetta eru skelfi- legar tölur. Fullorðið fólk, margt orðið ófært um helstu verkefni daglegs lífs vegna verkja, bíður svo mánuðum og jafnvel árum skiptir eftir bót meina sinna. Hvar er áhersla ríkis- stjórnarinnar á lausn þessa mála? Á tímasetta áætlun um styttingu biðlista? Á að ná samningum við sérfræðilækna? Við sjúkraþjálfara, talmeinafræðinga og sálfræðinga? Á að tryggja jafnt aðgengi íbúa landsins að mikilvægri þjón- ustu? Á að tryggja að þúsundir barna eyði ekki stórum hluta æskunnar á biðlistum? Af hverju var ekki dreginn sá lærdómur af stjórnarsamstarfinu á síðasta kjörtímabili að þetta yrði í forgangi núna? hannakatrin@althingi.is Hanna Katrín Friðriksson Pistill Bákn og biðlistar Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is O rka náttúrunnar (ON) hyggst ráðast í lagfær- ingar og endurbætur á stíflu og inntakslóni Anda- kílsárvirkjunar. Þarf að fjarlægja 50 til 115 þúsund rúmmetra af efni úr lóninu. Vegna umhverfisslyss sem varð vorið 2017, þegar fara átti í þess- ar framkvæmdir, vill fyrirtækið vanda undirbúninginn og hefur óskað eftir áliti Skipulagsstofnunar á því hvort gera þurfi fullt umhverfismat. Takmarkað gagn er nú af inn- takslóni Andakílsárvirkjunar vegna þess að framburður úr ánum sem renna í lónið hefur sest til. Nauðsyn- legt er talið að fjarlægja þetta efni til þess að tryggja framtíð virkjunar- innar. Það verður ekki gert í einum áfanga og ekki er ljóst hversu mikið verður fjarlægt í sumar, ef á annað borð tekst að hefja framkvæmdir. Umhverfisslys vorið 2017 Málið er viðkvæmt vegna þess að starfsmenn Andakílsárvirkjunar hleyptu úr lóninu með því að opna botnrás hennar með þeim afleið- ingum að mikill aur barst niður í Andakílsá og eyðilagði marga helstu uppeldsstaði seiða og veiðistaði árinn- ar. Hefur Orka náttúrunnar kostað lagfæringar sem unnið hefur verið að í ánni. Meðal annars hefur verið sleppt seiðum og hefur veiðin náð sér vel á strik. Ragnhildur Helga Jóns- dóttir, bóndi og umhverfisfræðingur í Ausu, formaður Veiðifélags Andakíls- ár, segir þó, að mikið set sé á neðsta veiðisvæði árinnar og svæðinu þar fyrir neðan. Þá sé ekki orðið ljóst með seiðaframleiðslu árinnar. Orka náttúrunnar hyggst nú nota aðrar aðferðir við að fjarlægja setið úr lóninu og láta þær hafa sem minnst áhrif á lífríki árinnar, að því er fram kemur í greinargerð með fyr- irspurn um matsskyldu. Meðan á framkvæmdum stendur verður Andakílsá veitt um yfirfall virkjunar- innar. Það verður gert með því að reisa varnarstíflu sunnarlega í virkj- unarlóni sem leiðir rennslið að yf- irfalli samhliða því að verja nyrðri hluta lónsins fyrir ánni. Setinu verður mokað á vörubíla og flutt á haug- svæði sem eru í nágrenni lónsins. Meðal annars hefur fengist samþykki eigenda Efri-Hrepps, sem er sunnan við ána, um að koma hluta efnisins fyrir þar. Aka þarf með það efni yfir ána. Jafnframt verður ráðist í viðhald og endurnýjun á stíflumannvirkjum. Að því búnu verður norðurhluti lóns- ins tæmdur til þess að hægt sé að fjarlægja set þaðan. Gáfulegri aðferð „Mér líst þokkalega á. Þetta er mun gáfulegri aðferð en þær sem rætt hefur verið um, meðal annars að dæla upp úr lóninu, og meira í takti við það sem veiðifélagið hefur ráðlagt frá upphafi,“ segir Ragnhildur Helga Jónsdóttir. Hún segir þó að ýmsir óvissuþættir séu í málinu, meðal ann- ars um það hversu mikið efni á að taka og hvar það verður haugsett. Hún segir að búast megi við að eitt- hvað gruggist í ánni þegar varn- argarðinum verður ýtt upp en það verði væntanlega ekki meira en í flóðum og ekkert í líkingu við meng- unarslysið 2017. Orka náttúrunnar hefur stefnt að því að fara í þessar framkvæmdir í sumar. Varnargarðinum verði ýtt upp áður en veiðitímabilið hefst. Ragnhildur segir að ON hafi kynnt veiðifélaginu áform sín nú í janúar. Bendir hún á að eftir sé að afla marg- víslegra leyfa og efast um að hægt verði að hefja framkvæmdir í vor, jafnvel þótt Skipulagsstofnun teldi að ekki þurfi að fara í umhverfismat. Inntakslónið tæmt með betri aðferð Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Andakílsá Ýmsar aðferðir voru prófaðar til að hreinsa aur úr ánni eftir mengunarslysið vorið 2017. Lífríkið virðist nokkuð vera að taka við sér. Umhverfisstofnun telur í um- sögn um matsskylduspurningu Orku náttúrunnar að leggja eigi mikla áherslu á að þegar grófara efni úr lóninu verður haugsett í námum eigi að flokka nýtanlegt efni frá þannig að það verði að- gengilegt til nota síðar. Umhverfisstofnun er meðal þeirra stofnana sem Skipulags- stofnun leitar til þegar fjallað er um matsskyldu. Veiðifélag Anda- kílsár er ekki lögbundinn um- sagnaraðili en ON hefur þó kynnt verkefnið fyrir stjórn þess. Telur Umhverfisstofnun að gæta verði þess að ekki verði fok frá þeim svæðum þar sem fín- asta setinu verður komið fyrir, þar til gróður nær að binda það. Bendir Umhverfisstofnun á að ON hafi á sínum snærum hæfa starfsmenn við frágang lands og uppgræðslu þannig að ekki sé ástæða til að ætla annað en að landmótun og uppgræðsla verði eins og til er ætlast. Fína setefnið verði bundið UMHVERFISSTOFNUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.