Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
Skíðaferð í Bláfjöll Um þessar mundir er vetrarfrí í flestum grunnskólum og voru því margir sem nýttu tækifærið, sem snjókoma síðustu daga gaf, til að fara í fjölskylduskíðaferð í Bláfjöll.
Kristinn Magnússon
Þau sem eldri eru en
tvævetur eru kannski
hætt að hlusta á loforð
um Sundabraut, nýja
leið út úr Reykjavík
sem eykur bæði að-
gengi að borginni og út
úr henni. Í hjarta mínu
trúi ég því að tekin hafi
verið stór skref í átt að
Sundabrautinni með
nýrri félagshag-
fræðigreiningu sem
sýnir hversu hagkvæmt verkefni
Sundabraut er, hvort sem farið verð-
ur í brú eða göng.
Göng eða brú?
Hlutverk Reykjavíkurborgar í því
verkefni er að verja hagsmuni borg-
arbúa, ekki síst þeirra sem verða fyrir
áhrifum af Sundabrautinni
með aukinni umferð í nær-
umhverfinu. Og fá skipu-
lag um Sundabraut sam-
þykkt sem allir hagaðilar
fá tækifæri til að hafa áhrif
á. Skipulagið þarf auðvitað
að taka tillit til þeirrar
byggðar sem er í Reykja-
vík, bæði hvað varðar Vog-
ana en ekki síður Graf-
arvog, þannig að
Grafarvogsbúar hafi áfram
gott aðgengi að útivist-
arsvæði sínu við ströndina.
Göng eða brú hafa hvor
um sig kosti og galla. Falleg brú gæti
orðið eitt helsta einkenni borgarlands-
ins, sem yrði líka hægt að hjóla eða
ganga yfir, en göng trufla síður um-
hverfi þeirra sem búa nálægt Sunda-
braut. Þá þarf að meta áhrif brúar eða
ganga á Sundahöfn og notkun hennar
sem stórskipahafnar.
Tengir Reykjavík
betur saman
Einn helsti kostur Sundabrautar
yrði að tengja hverfi Reykjavíkur
betur saman á sama tíma og hún get-
ur styrkt þéttingu byggðar. Grafar-
vogur og Kjalarnes myndu með
Sundabraut færast töluvert nær mið-
borginni. Umferðarálag myndi dreif-
ast meira á einhverjum stöðum, þótt
Sundabraut hefði lítil áhrif á öðrum.
Miklar breytingar eru að verða á
Ártúnshöfðanum, þar sem atvinnu-
húsnæði er að víkja fyrir íbúðar-
húsnæði. Þetta er mjög eðlileg þróun
í vaxandi borg; að landfrekt atvinnu-
húsnæði flytjist þangað sem land-
svæðið er rýmra og ódýrara á meðan
verðmætara land er byggt upp sem
ný hverfi. Þetta sjáum við, auk Ár-
túnshöfðans, á Kársnesinu í Kópa-
vogi og í Hraununum í Hafnarfirði.
Styrkir verulega nýtt
iðnarsvæði á Esjumelum
Lítill og meðalstór iðnaður á samt
að eiga sér stað innan borgarmark-
anna og gott svæði er fyrir hendi á
Esjumelum. Samkeppnishæfni Esju-
melanna myndi styrkjast verulega
við að fá Sundabraut og tengjast
þannig Reykjavík betur. Með þægi-
legri fjarlægð getur Reykjavík stutt
við fjölgun fyrirtækja sem annars
gætu fundið sér stað í nágrannasveit-
arfélögunum.
Ein stærsta breytingin yrði svo á
umferð þungaflutninga, sem myndu í
mun minna mæli skríða upp Ártúns-
brekkuna og í gegnum Mosfellsbæ á
leið vestur og norður um land. Í
greinargerð Mannvits og Cowi kem-
ur fram að sendiferðabílar og þunga-
flutningar myndu spara um 30 þús-
und km í akstri á ári, miðað við að
ferðum fjölgaði ekki, með því að fara
beinni leið upp á Kjalarnes.
En við viljum ekki bara færa
mengunina og umferðarvandann úr
Mosfellsbæ og í Vogana eða Graf-
arvog. Því þarf að undirbúa Sunda-
braut vel og gera hana þannig úr
garði að umhverfisáhrifin verði sem
minnst. Því er næsta skref að vinna
umhverfismat og fara í víðtækt sam-
ráð við íbúa í nærumhverfinu og aðra
hagaðila.
Eftir Þórdísi Lóu
Þórhallsdóttur »Einn helsti kostur
Sundabrautar yrði
að tengja hverfi
Reykjavíkur betur
saman á sama tíma
og hún getur styrkt
þéttingu byggðar.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Höfundur er formaður borgarráðs
og oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Sundabraut vinnur með þéttingu byggðar
Pólitískir andstæð-
ingar Sjálfstæðis-
flokksins óska sér
einskis fremur en að
frambjóðendur
flokkksins gangi ekki
samhentir til komandi
borgarstjórnarkosn-
inga. Þeir óska sér
þess að klofningur
verði í hópi nýrra borg-
arfulltrúa varðandi
áætlaðar framkvæmdir
við Borgarlínu, sem stefnir í að öllu
óbreyttu að verða stærsta og kostn-
aðarsamasta viðfangsefni borgar-
yfirvalda fyrr og síðar. Núverandi
meirihluti hefur haldið fast við þá
stefnu að Borgarlínan verði hrað-
vagnakerfi í hæsta gæðaflokki
(*BRT Gold) á sama tíma sem fær-
ustu skipulagsfræð-
ingar og verkfræðingar
þjóðarinnar hafa kynnt
ítarlega tillögu um svo-
kallaða létta Borg-
arlínu (BRT-Lite), sem
gerir svipað gagn og
veldur miklu minna
umróti á vegakerfi
borgarinnar. Tillaga
þeirra gerir ráð fyrir
sömu aukningu á ferða-
tíðni sem er veigamesti
þátturinn í bættri þjón-
ustu almenningsvagna.
Algjör óvissa um fjármögnun
Á þessa aðila er hlustað, en ekkert
gert með þeirra tillögu. Fram-
kvæmdakostnaður við Borgarlínu í
gæðaflokki BRT-Gold er um 100
milljarðar króna en mikil óvissa ríkir
um fjármögnun við þær fram-
kvæmdir sem nú eru í undirbúningi.
Ennfremur er ljóst að ríkisvaldið
hefur lítinn sem engan áhuga á því
að veita sérstöku fjármagni til þess-
arar framkvæmdar. Einungis bent á
að kostnaður við þessa rándýru
framkvæmd verði fjármagnaður
með veggjöldum og einhverjum öðr-
um hætti, án þess að það sé tilgreint
frekar. Áætlaður kostnaður við léttu
Borgarlínuna er um 20 milljarðar
króna.
Kaup á húsnæði fyrir
460 milljónir til niðurrifs
Í borgarráði þann 10. febrúar sl.
fékk almenningur sýnishorn af þeim
gríðarlega kostnaði sem framundan
er vegna borgarlínuframkvæmda, ef
ekki tekst að stöðva þá fyrirhuguðu
framkvæmd. Þar samþykkti meiri-
hlutinn að kaupa húsnæði fyrir 460
milljónir króna til að skapa rými fyr-
ir lítinn hluta af legu Borgarlínu.
Þessi vinnubrögð eru aðeins for-
smekkurinn af þeirri óráðsíu sem
fylgja mun borgarlínufram-
kvæmdum á næstu árum, þ.e.a.s. ef
núverandi borgarlínutillögum verð-
ur þröngvað áfram.
Lóðamál í ólestri
Annað stórmál er staðan á íbúða-
markaðnum. Í dag eru nánast ein-
ungis byggðir háreistir íbúðaturnar
á svokölluðum þéttingarsvæðum,
fyrst og fremst vestan Elliðaáa.
Íbúðaverð í þessum turnum er svim-
andi hátt og ljóst að ungt fólk ræður
á engan hátt við kaup á því húsnæði.
Á árunum 1982-1994 voru árlega
byggðar fleiri íbúðir i Reykjavík
m.v. íbúafjölda en nú er gert og hlut-
fall íbúða var u.þ.b. 60% í fjölbýli og
40% í sérbýli. Hagkvæmar og ódýr-
ar íbúðir í fjölbýli eru ekki á boð-
stólum í Reykjavík í dag. Tugþús-
undir íbúa hafa flutt úr borginni,
ekki síst vegna þessa ófremdar-
ástands.
Prófkjör framundan
Framundan er prófkjör hjá Sjálf-
stæðisflokknum Reykjavík vegna
komandi borgarstjórnarkosninga.
Það er afar mikilvægt að frambjóð-
endur í þessu prófkjöri upplýsi
væntanlega þátttakendur með skýr-
um hætti hvaða afstöðu þeir hafa til
fyrrgreindra stórmála. Ekki er hægt
að bjóða upp á klofinn borgarstjórn-
arflokk Sjálfstæðisflokksins í þess-
um stórmálum allt næsta kjör-
tímabil.
Eftir Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson » „Hagkvæmar og
ódýrar íbúðir í fjöl-
býli eru ekki á boðstólum
í Reykjavík í dag“
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Höfundur er fv. borgarstjóri.
Borgarstjórnarkosningar nálgast