Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
H
ilmir Freyr Heimisson
vann góðan sigur á al-
þjóðlegu móti í Serbíu
sem lauk um síðustu
helgi. Hann fékk 7 vinninga af 9
mögulegum og varð jafn Rússanum
Averin að vinningum en hærri að
stigum og er því sigurvegari móts-
ins. Með því náði hann þriðja og síð-
asta áfanga sínum að alþjóðlegum
meistaratitli en hann hefur uppfyllt
skilyrði til að hljóta þennan titil, m.a.
það ákvæði sem kveður á um að
menn skuli hafa komist yfir 2400 elo-
stig á einhverjum tímapunkti. Hilm-
ir Freyr, Vignir Vatnar og Alexand-
er Oliver Mai skráðu sig á þrjú
alþjóðleg mót í Arendljelovac í Serb-
íu og verkefnið var að sækja titil-
áfanga sem tókst í fyrstu atrennu
hjá Hilmi. Það verður teljast gott hjá
Vigni og Hilmi að hafa náð að landa
titli alþjóðlegs meistara því síðustu
tvö ár hafa ekki verið auðveld í skák-
inni frekar en annars staðar og alls-
kyns takmarkanir vegna Covid sett
mönnum stólinn fyrir dyrnar.
Vignir hafði náð alþjóðlega titl-
inum fyrir mótasyrpuna og gat sett
sér það markmið að ná áfanga að
stórmeistaratitli. Bólusetningarbras
á landamærum Ítalíu setti þátttöku
hans í hættu um skeið og hann varð
að sleppa fyrsta mótinu en komst í
tæka tíð til að tefla á móti nr. 2.
Hann byrjaði með fjórum jafn-
teflum, fékk síðan vinning án tafl-
mennsku í 5. umferð og vann í sjöttu
umferð. Hann er með 4 vinninga af
sex mögulegum og er í 1.-3. sæti og
þarf góðan endasprett til að eiga
möguleika á fyrsta stórmeistara-
áfanganum. Hvað Hilmi varðar þá er
það ekki óalgengt að spennufall
verði þegar langþráðum áfanga er
náð. Hann hefur ekki náð sér á strik
og hlotið 2½ vinning úr fyrstu sex
umferðunum af níu.
Alexander byrjaði hinsvegar af
krafti og vann fyrstu tvær skákir
sínar. Sigur hans í margþvældu
„eitraða peðs afbrigði“ Sikileyjar-
varnar var athyglisverður:
Arandjelovac 2022; 1. umferð:
Alexander Oliver Mai – Timur
Yonal (Rússland)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4
h6 8. Bh4 Db6 9. Dd2 Dxb2 10. Hb1
Da3 11. e5 dxe5 12. fxe5 Rfd7 13.
Re4 Dxa2 14. Hd1 Dd5 15. De3
Dxe5 16. Be2
Alþekkt staða og meistarar á borð
við Anand og Nepomniachtchi hafa
leikið 16. … Bc5. En þekking Rúss-
an virðist hafa þrotið og hann valdi:
16. … Rc6? 17. Rxc6 bxc6 18. O-O
Bb4 19. Db6!
Þrumuleikur sem byggist á ein-
faldri hugmynd, 19. … Rxb6 20. Hd8
mát!
19. … O-O
Nú er eftirleikurinn auðveldur.
En eftir 19. … Be7 20. Dxc6 Hb8 21.
Bxe7 Kxe7 22. Rd6! er svartur
varnarlaus.
20. Dxb4 a5 21. Dd4 Dxd4 22.
Hxd4 Re5 23. Be7 He8 24. Bd6 Rg6
25. Rc5 e5 26. Ha4 Be6 27. g3 Had8
28. Hd1 Bd5 29. Bc7 Ha8 30. c4 Be6
31. Bf3 Hec8 32. Rxe6 fxe6 33. Bxc6
Ha7
Það er furðulegt að svartur skuli
ekki hafa gefist upp. Staðan er gjör-
samlega vonlaus.
34. Bb6 He7 35. Bd7 Hb8 36. Bc5
Hf7 37. Bxe6 Hbb7 38. Hf1 Hbc7 39.
Hxa5 Rh8 40. Bd6 Hc6 41. Bxf7+
Rxf7 42. Ha8+ Kh7 43. Hxf7 Hxd6
44. Haa7
– og svartur gafst upp.
Hjörvar Steinn með fullt hús
Hjörvar Steinn Grétarsson er nær
öruggur með sigur á Skákþingi
Reykjavíkur en mótinu lýkur á
morgun. Hjörvar hafði unnið allar
sjö skákir sínar og átti að tefla við
Lenku Ptacnikovu í 8. umferð í gær-
kvöldi. Í 2. sæti var Davíð Kjartans-
son með 5½ vinning og í 3.-4. sæti
Lenka Ptacnikova og Benedikt
Briem með 5 vinninga.
Hilmir Freyr al-
þjóðlegur meistari
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Alþjóðlegur meistari Hilmir Freyr við taflið á Reykjavíkurskákmótinu 2018.
Páll Ásgeir Tryggvason
fæddist 19. febrúar 1922 í
Reykjavík. Foreldrar hans
voru hjónin Herdís Ásgeirs-
dóttir, f. 1895, d. 1982, félags-
málafrömuður, og Tryggvi
Ófeigsson, f. 1896, d. 1987, út-
gerðarmaður.
Páll Ásgeir lauk cand.juris-
prófi frá HÍ 1942 og var starfs-
ferill hans í utanríkisráðuneyt-
inu frá 1948 til 1992. Hann
gegndi embættum sendiherra í
Ósló, Moskvu og Bonn. Hann
var í varnarmálanefnd í 17 ár
og þar af formaður 1968-1978.
Páll var einn stofnenda
Lionsklúbbs Reykjavíkur og
gegndi embættum í Frímúr-
arareglunni. Hann var formað-
ur Golfsambands Íslands 1970-
1980 og stofnandi og fyrsti for-
maður Einherja. Einnig var
hann formaður stjórnar út-
gerðarfélaganna Júpiters hf.
og Marz hf. Páll Ásgeir hlaut
fjölmargar viðurkenningar fyr-
ir störf sín en vænst þótti hon-
um um hetjuverðlaun Carne-
gies fyrir að bjarga tveimur
drengjum frá drukknun og
stórriddarakross íslensku
fálkaorðunnar.
Eiginkona Páls var Björg
Ásgeirsdóttir Ásgeirssonar
forseta, f. 22.2. 1925, d. 7.8.
1996, húsfreyja. Páll og Björg
eignuðust fimm börn.
Páll lést 1. september 2011.
Merkir Íslendingar
Páll Ásgeir
Tryggvason
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott, hollt
og næringarríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær
Ég hef mikið verið
að velta fyrir mér orð-
inu „ráðdeild“ en þessa
dagana sér maður
þetta orð víða í
tengslum við prófkjör
flokkanna sem nú
standa yfir. Þar gera
þó nokkrir frambjóð-
endur það að áherslu-
máli að sýna ráðdeild í
rekstri.
Fyrir mér er orðið
ráðdeild nokkuð gamalt, kannski
rómantískt orð sem vísar til skamms
tíma og nær yfir heimilisbókhald þar
sem passað er upp á að gjöld heim-
ilisins fari ekki fram úr tekjum þess.
Vissulega er mikilvægt í öllum
rekstri að tekjur séu hærri en gjöld-
in en þegar eingöngu er horft til
þess, eitt fjárhagsár í senn, kunna að
tapast tækifæri til aukinnar skil-
virkni.
Ég get ekki annað en velt fyrir
mér hvort orðið ráðdeild sé almennt
rétta orðið til að nota í rekstri sveit-
arfélags, t.d. í rekstri sveitarfélags
sem árlega veltir 36 þúsund millj-
ónum af almannafé. Hvort eingöngu
dugi til að passa að gjöldin séu lægri
en tekjurnar.
Orðin hagkvæmni og skilvirkni
eiga í mínum huga miklu frekar við í
rekstri af slíkri stærð. Skilvirkni
snýst fyrst og fremst um að búa til
virði og þegar við horfum á rekstur
sveitarfélags er virðið innviðir og
þjónusta við íbúana. Við verðum því
að skoða með gagnrýnum hætti hvað
við erum að fá fyrir það fjármagn
sem varið er til rekstrarins. Hvert er
þjónustustigið, þ.e virðið sem kemur
úr rekstrinum, og hvernig getum við
aukið þjónustustigið fyrir sama eða
minna fjármagn.
Ég hef rekið mig á það að margir
telja orðið skilvirkni neikvætt og
tengja það við aukið álag á starfs-
menn. En það er misskilningur og
alls ekki það sem skilvirkni snýst
um. Ég tel að allir hafi mjög gott af
því að staldra aðeins við og gefa sér
tíma til að huga aðeins að skilvirkni.
Sá sem er mættur
fyrstur, fer síðastur,
með stöðugt áreiti og
alltaf á fundum, er hann
skilvirkasti maðurinn á
svæðinu? Það er alveg
örugglega mjög gott að
staldra aðeins við og
spyrja sig hvaða virði er
þetta raunverulega að
skila.
Ráðdeild og skil-
virkni geta tekist á. Ef
einblínt er um of á ráð-
deild til skamms tíma
kann það að leiða til þess að farið er á
mis við tækifæri til að auka skilvirkni
í rekstrinum til lengri tíma litið. Ráð-
deildin getur þannig hamlað nauð-
synlegri fjárfestingu í nýjungum og
tækni sem getur aukið skilvirkni og
um leið skapað svigrúm í rekstrinum
til frekari fjárfestinga eða aukinnar
þjónustu við íbúa bæjarins. Eða á
góðri íslensku hætt er við því að ver-
ið væri að spara aurinn en henda
krónunni.
Ég er á þeirri skoðun að gera þurfi
ríkari kröfur til kjörinna fulltrúa sem
fara með almannafé. Það er einfald-
lega ekki nóg að sýna ráðdeild í
rekstri, það er ekki nóg að tekjurnar
séu hærri en útgjöldin. Við þurfum
að skoða hvað við erum raunverulega
að fá fyrir það fjármagn sem er í
rekstrinum, hvaða þjónustustig er-
um við að veita, er það ásættanlegt
og hvernig getum við aukið það.
Kjörnir fulltrúar eiga stöðugt að
vera að leita leiða til að auka skil-
virkni í rekstrinum og spyrja sig
hvernig megi bæta þjónustu við íbúa
fyrir sama fjármagn eða halda sömu
þjónustu fyrir minna fjármagn.
Skilvirkni vinnur
ráðdeild
Eftir Sigvalda Egil
Lárusson
Sigvaldi Egill
Lárusson
» Gera þarf ríkari
kröfur til kjörinna
fulltrúa sem fara með
almannafé.
Höfundur er fjármála- og rekstrar-
stjóri og býður sig fram í 2.-3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi.
sigvaldi.egill@gmail.com