Morgunblaðið - 19.02.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.02.2022, Qupperneq 26
Skipulag samgöngukerfis Íslands Ekki fer á milli mála að samgöngukerfi hvers lands er mikil- vægasta þjónustu- kerfið fyrir það fólk sem þar býr. Hvernig það er byggt upp skipt- ir líka sköpum fyrir vel- ferð íbúanna. Skipulag og hönnun samgöngu- kerfis getur ráðið úr- slitum um framtíð og möguleika bæði fólks og fyrirtækja á viðkom- andi svæði. Á herðum fulltrúa okkar Íslend- inga í sveitarstjórnum og á Alþingi hvílir sú ábyrgð að fara vel og skyn- samlega með þá takmörkuðu fjár- muni sem fólk og fyrirtæki skapa og þeim er trúað fyrir. Með ráðstöfun þessa fjár og ekki síst í samgöngu- kerfi landsins ræðst að verulegu leyti sú velferð sem þjóðin getur notið enda er hér oft um flókna ráðstöfun fjár að ræða sem oft nemur mörg hundruð milljörðum bæði í byggingu og rekstri. Þessu gerðu þeir forfeður okkar, sem sömdu fyrstu skipulags- lög Íslands fyrir réttum 100 árum, sér fulla grein fyrir. Þeir töldu þá réttilega að þekking landsmanna í einstökum sveitarfélögum á þessu sviði dygði ekki til að fara forsvar- anlega með þann mikla vanda, flækjustig, vald og ábyrgð sem fólgin er í skipulagi svona mikilvægs kerfis og því væri ríkisvaldinu einu treyst- andi í þeim efnum. Þetta breyttist samt allt með nýj- um skipulagslögum árið 1995, en þá var allt skipulagsvald flutt frá ríkinu til sveitarfélaga á Íslandi. Í dag ber sveitarfélögum þannig að vinna skipulagsáætlanir þar sem m.a. er sýnd fyrirhuguð landnotkun og helstu vegir. Þá er undir hælinn lagt hvort gætt sé nauðsynlegrar heildar- sýnar við skipulag, ekki síst þegar mörg sveitarfélög eiga hlut að máli. Samgönguáætlanir eru hins vegar unnar af samgöngustofnunum rík- isins og staðfestar af Alþingi. Þegar ágreiningur kemur upp milli aðila getur það leitt til óhóflegs dráttar á nauðsynlegum framkvæmdum eða framkvæmda sem eru beinlínis skað- legar eða óþarflega dýrar fyrir við- komandi svæði. Sama máli gegnir um nauðsynlega samræmingu á skipulagi sveitarfé- laganna við stefnu ríkisins viðvíkj- andi æskilegri uppbyggingu á sam- göngukerfi þjóðarinnar. Hér nægir að benda á skipulag flugvallar í Reykjavík og Sundabraut sem hafa verið að velkjast í kerfinu um ára- tuga skeið. Aðrar þjóðir sem hafa gert sér fulla grein fyrir mikilvægi þessara mála hafa tekið þau mun fastari tökum og gerðum við rétt í að horfa til þeirra við skipulag þjóðvega hér á landi. Þýskaland Þjóðverjar áttuðu sig snemma á mikilvægi vel skipulagðs vegakerfis og þar kviknuðu hugmyndir um að byggja upp samræmt þjóðvegakerfi fyrir allt landið um 1925. Ein hug- mynd einkaaðila var þá að leggja þjóðveg frá Hamborg, gegnum Frankfurt, til Basel í Sviss. Fyrsti leggurinn af þessu kerfi, milli Kölnar og Bonn, var tekinn í notkun árið 1932, með tvær akreinar í hvora átt. Strax og Hitler komst til valda, árið 1933, var lögð mikil áhersla á bygg- ingu þessa þjóðhagslega mikilvæga þjóðveganets, sem þó var ekki að- allega í hernaðartilgangi því þeir flutningar fóru yfirleitt fram með járnbrautum til þess að spara olíu. Þessar stofnbrautir (þ. Autobahn) voru fyrstu háhraða þjóðvegir í heimi, með takmörkuðum teng- ingum. Fyrsti hlutinn frá Frankfurt am Main til Darmstadt var opnaður árið 1935. Í heild er þetta þjóðvega- kerfi nú um 13.200 km og flytur um þriðjung af bílaumferð í Þýskalandi. Þetta kerfi háhraða þjóðvega á stór- an þátt í þróun og velmegun Þýska- lands. Danmörk Í Danmörku sjá Vegagerðin og ráðherra um skipulag þjóðvega og hafa ásamt þinginu æðsta valdið í skipulagi þeirra. Að vísu eru þar í lögum ákvæði um samráð við sveitar- félög, en ekkert fer á milli mála hvar úrskurðarvaldið liggur, ef upp kem- ur ágreiningur milli aðila. Gott dæmi um það er fyrirhugaður mótorvegur, Motorring V(5), meðfram vesturjaðri Kaupmannahafnarsvæðisins, 70 km að lengd. Hönnun vegarins er skammt á veg komin og því hefur ríkisvaldið tekið frá um 1 km breitt belti, þ.e. 70 km2, til þess að tryggja hagstæðustu legu vegarins. Nýbygg- ingar hafa verið bannaðar á þessu svæði í áratugi. England Stofnunin Highways England sér um skipulag þjóðvega á Englandi. Skipulagsferlið fyrir mikilvæga (e. strategic) þjóðvegi (e. motorway, trunk road) er hluti af „The Nation- ally Significant Infrastructure Pro- ject planning process“. Þessi stofnun er að öllu leyti í eigu ríkisins og þann- ig þarf hún einungis að biðja um samþykki ríkisins, þótt nauðsynlegt sé að kynna sveitarfélögum og al- menningi viðkomandi framkvæmd og vinna umhverfismat. Samgöngu- ráðherra getur einnig veitt High- ways England leyfi til að stjórna uppbyggingu innan veghelgunar- svæðis, þ.e. 67 m frá miðlínu. Í ofangreindum löndum má sjá að samgönguyfirvöld gera sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að skipu- leggja og byggja upp samræmt og hagkvæmt þjóðvegakerfi og ríkis- valdið gegnir þar leiðandi hlutverki. Þótt valddreifing geti verið af hinu góða þarf samt að tryggja nauðsyn- lega heildarsýn og skýra ábyrgð við skipulag og uppbyggingu samgöngu- kerfis okkar Íslendinga. Í ljósi þessa virðist full ástæða til þess að skerpa betur á skipulagi og ábyrgð á þessum málum hér á landi. Ekki er allt unnið með fjölda þeirra sem koma að við- komandi ákvarðanatöku. Eftir Gest Ólafsson og Þórarin Hjaltason »Nægir að benda á skipulag flugvallar í Reykjavík og Sunda- braut sem hafa verið að velkjast í kerfinu. Gestur Ólafsson Gestur er skipulagsfræðingur. Þór- arinn er samgönguverkfræðingur Þórarinn Hjaltason 26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Það sem hún Anna er heppin … Eða hvað? Skoðum málið og byrj- um á að kynnast Önnu Beinteinsdóttur aðeins betur. Hún er 45 ára, langskólagengin og sér- fræðingur á sínu sviði. Hún hefur dvalið er- lendis við nám og störf flest sín fullorðinsár og haft góðar tekjur. Svo virtist sem lífið og lánið léki við hana. En Anna Beinteinsdóttir var ekki alltaf með lukkuna í sínu liði. Hún lenti í alvarlegu slysi þegar hún var 40 ára og fékk þá 75% örorkumat hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR). Hún var nokkuð lengi að jafna sig eftir slysið og varð eftir það að treysta á almannatryggingar. Fljótlega fór hún að hafa áhyggjur af fjárhag sín- um og lífsstíl. Það blés ekki byrlega í seglin ef miðað var við upphæð ör- orkulífeyrisins. Anna hafði ekki jafn- miklar áhyggjur af afkomu íslenskra lífeyrissjóða, enda hafði hún greitt stopult í þá og átti lítil sem engin rétt- indi þar. Anna hafði hug á því að komast aft- ur út á vinnumarkaðinn til að auka tekjur sínar. Lukkan snerist henni í vil þegar hún fékk vinnu þar sem hún gat nýtt menntun sína. Anna sveif um á hjólastólnum, sem hún fór allra sinna ferða á, eftir að henni bárust gleðitíðindin um vinnuna. Hún kaus nú frekar að kalla hann sjálfsbjargar- stól, en bæði var aðgengi á nýja vinnustaðnum með ágætum auk þess sem starfið bauð upp á nauðsynlegan sveigjanleika fyrir hana. Um fjárhagslega hamingju Flóknar skerðingarreglur al- mannatrygginga vöfðust hins vegar fyrir Önnu og stundum hvarflaði að henni að þær væru sérstaklega smíð- aðar til þess að refsa henni fyrir gjörðir, sem annars hefðu átt að bæta hag hennar og fjárhagslega ham- ingju, sem meðal annars fælust í rýmri ráðstöfunartekjum. Anna mun hefja störf í maí á þessu ári og fær þá útborguð laun mánuði seinna. Áhrif þess að hún breytir tekjuáætlun sinni og setur inn launin sín fyrir skatt þá mánuði sem eftir eru af árinu eru þessi: Áður en Anna fór að vinna fékk hún frá TR lífeyri upp á rúm 364 þús. fyrir skatt eða tæpar 304 þús. eftir skatt. Við atvinnutekjurnar lækkar örorkulífeyririnn um tæp 222 þús. svo að í vasann fær hún rúm 142 þús. eftir skatt. En það var nú bara eins og að vera stödd í Lukkulandi miðað við það sem á eftir kom. Laun Önnu í nýju vinnunni fyrir 50% hlutastarf voru 400 þús. fyrir skatt. Hér skulum við staldra við og fara í dálitlar reikn- ingskúnstir því ekki var allt sem sýndist. Raun- ar græðir Anna lítið á þessari nýfengnu vinnu. Verður óvænt skuldari við TR Mánuði eftir að hún byrjar að vinna fær hún tilkynningu um áætlaða skuld hjá TR sem á að innheimta á næsta ári. Skuldin hjá TR er upp á tæpar 650 þús. kr. Hún handlék bréf- ið og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðr- ið, en það var hvasst! Þetta var víst lífeyrir sem hún hafði fengið of- greiddan frá og með janúar til og með apríl. Heppin? Hún var farin að efast um það. Það var eitthvað sem ekki var í lukkunnar góða standi. Varðandi skuldina. Mögulega kæmi betur út fyrir Önnu að reikna tekjuskerðingarnar út frá nýlegri út- reikningsreglu þar sem atvinnu- tekjur teljast einungis til tekna í þeim mánuði sem þeirra er aflað í stað þess að miða við 1/12 af atvinnutekjum ársins fyrir hvern mánuð. Samkvæmt þeirri reglu hefðu atvinnutekjur hennar ekki áhrif við útreikning ör- orkulífeyris fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins. Í bréfi TR eru engar upplýs- ingar um seinni útreikningsregluna og að TR beri að beita þeirri reglu sem leiðir til hærri greiðslna. Reikni- vél TR býður auk þess einungis upp á útreikning miðað við eldri útreikn- ingsreglu. Þetta þarf TR að laga! Með 400.000 kr. atvinnutekjur hækka heildarráðstöfunartekjur hennar úr 303 þús. í 404 þús. kr. á mánuði eða um 101 þús. á mánuði. Heldur fannst Önnu Beinteinsdóttur hún bera lítið úr býtum miðað við það sem hún lagði á sig, þegar litið var til orkutaps hennar, verkja og almennr- ar vanlíðunar sem voru afleiðingar slyssins. En hún var nú aldeilis hepp- in að fá vinnu eða hvað? Dæmi nú hver fyrir sig. Það sem hún Anna er heppin … Eftir Unni H. Jóhannsdóttur »En það var nú bara eins og að vera stödd í Lukkulandi miðað við það sem á eftir kom. Skuldin hjá TR var upp á tæpar 650 þús. kr. vegna launanna. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. uhj@simnet.is Mikilvægi forvarna verður aldrei ofmetið. Eftir því sem aldurinn færist yfir því mikil- vægara er að einstak- lingar hugi að lífsstíl og forvörnum til að bæta heilsu og auka þar með lífsgæði. Það er hverju sam- félagi dýrmætt að hugsað sé vel um eldra fólkið og því gefið tækifæri til að stunda líkamsrækt hvers konar og tryggja aðgengi að fjölbreyttu fé- lagsstarfi. Með markvissu forvarna- starfi og virkni eldri borgara er einn- ig hægt að lækka útgjöld í félagslegum og heilbrigðistengdum verkefnum hjá bæði sveitarfélögum og ríkinu. Hafnarfjarðarbær hefur lagt áherslu á fjölbreyttar forvarnir og hefur tekið ákveðna forystu á því sviði fyrir eldri borgara. „Fjölþætt heilsuefling 65 plús – leið að farsæl- um efri árum“ undir handleiðslu Ja- nusar heilsueflingar hefur verið í boði fyrir eldri borgara í bænum frá árinu 2016 og er liður í heilsustefnu Hafnarfjarðar. Hjá Janusi heilsuefl- ingu stunda einstaklingar styrktar- þjálfun með þjálfara, fylgst er með árangri af æfingunum með reglu- legum mælingum og einnig eru ýmis fræðsluerindi um al- mennt heilbrigði. Hafnarfjarðarbær er eina sveitarfélagið sem býður upp á frístunda- styrk fyrir 67 ára og eldri. 7,5 milljarða sparnaður Ítrekað hefur verið sýnt fram á að heilsu- efling eldri borgara eykur ekki aðeins lífs- gæði heldur gerir þeim kleift að halda sjálf- stæðri búsetu lengur en ella. Kostn- aður ríkisins við rekstur á einu hjúkrunarrými er 15 milljónir á ári. Um 500 einstaklingar hafa farið í gegnum heilsueflingarverkefnið í Hafnarfirði. Ef við gefum okkur að við höfum náð að lengja tíma þeirra allra um eitt ár heima þá hefur Hafnarfjarðarbær sparað 7,5 millj- arða fyrir ríkið sem hefði annars farið í rekstur hjúkrunarrýma. Mikil ánægja hefur verið meðal eldri Hafnfirðinga með þetta verk- efni og það hefur líka haft félagslegt gildi og aukið virkni þeirra. Flestir þeirra sem hafa notið handleiðslu Janusar halda áfram að stunda reglulega hreyfingu, eftir að nám- skeiði lýkur. Einstaklingar á Íslandi eldri en 65 ára eru 54 þúsund og hefur fjölg- að um 40% á síðustu tíu árum. Heil- brigðiskerfið getur ekki staðið undir þessari þróun og því er mikilvægara sem aldrei fyrr að setja aukið fjár- magn í heilsueflingu eldri borgara. Fjárhagslegi ávinningurinn er aug- ljós en bætt heilsa og aukin lífsgæði, samhliða virkri þátttöku í samfélag- inu, verða ekki metin til fjár. Í Hafn- arfirði er einnig gott félagsstarf í Hraunseli og Félag eldri borgara miðlar reglulega til fjölskylduráðs hvað betur mætti fara í þjónustunni. Meiri lífsgæði og bætt heilsa Við eigum stöðugt að leita leiða til að auka lífsgæði og bæta heilsu bæj- arbúa. Þannig drögum við úr fé- lagslegum og heilsufarstengdum vandamálum. Við viljum öll að amma og afi eigi langt og gott ævikvöld. Í því felst sannur auður fyrir fjöl- skyldur og samfélagið allt. Þessi mikilvægi hópur hefur með ást sinni, umhyggju, lífsreynslu og visku leitt okkur í gegnum lífið, rutt leið fyrir okkur til bættra lífskjara. Horfum til framtíðar með auknum forvörnum, aukum þannig lífsgæði og spörum um leið fjármuni. Heilsuefling fyrir ömmu og afa Eftir Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur » Það er hverju sam- félagi dýrmætt að hugsa vel um eldra fólkið. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Höfundur er varabæjarfulltrúi og sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. gudbjorgjo@hafnarfjordur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.