Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 28
28 MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
S
tundum
er fólk
spurt að
því í um-
ræðu-
þáttum hvort það sé
trúað. Oft er svarað
á þann veg, að það
sé andlega þenkj-
andi eða andlega
leitandi og hafi
lesið ýmsar bæk-
ur sem hjálpi til á
þeirri vegferð.
Sjaldan heyrir
maður fólk svara á
þann veg, að það
sé trúað og iðki
trú sína með ein-
hverjum hætti.
Kannski hefur
það áhrif að í hug-
um margra hafa
trú og trúarbrögð
fengið fremur nei-
kvæða merkingu, en andlegt líf
aftur á móti skilið sem jákvæð,
innihaldsrík og einstaklings-
bundin vegferð. Engu að síður
viðurkenna flestir að hið andlega
líf þarf að næra og hvort sem við
tölum um trú eða andlega iðkan,
þá erum við að tala um tengsl
fólks við einhvern æðri mátt.
Þessi æðri máttur ber heiti
samkvæmt kristinni trú. Er Guð
þríeinn, en ekki bara einhver
guð?
Hver er Guð?
Í Fræðunum meiri spyr Mar-
teinn Lúther: „Hvað er það að
hafa Guð og hver er Guð? Svar:
Guð er sá sem alls góðs er vænst
af og sem leitað er til í hverri
neyð. Að hafa Guð felst ekki í
öðru en því að treysta á hann af
öllu hjarta og að trúa á hann. Það
sem hjarta þitt bindur sig við og
reiðir sig á, segi ég, er í raun og
veru guð þinn.“
Þó að langt sé liðið síðan þessi
orð voru rituð, þá eru þau enn í
fullu gildi. Ég tel að sú guðs-
mynd sem hér er dregin upp sé
algeng í hugum fólks. Að Guð sé
kærleiksríkur, miskunnsamur og
umhyggjusamur. Guð sem styð-
ur fólk í áföllum, huggar í sorg
og verndar fyrir öllu illu.
Þessi guðsmynd er einnig í
samræmi við þá mynd sem Jesús
Kristur boðar og vitnar um með
lífi sínu og kærleiksverkum.
Sjálfsagt hefur sú mynd orðið til
í hugum þeirra sem lásu bibl-
íusögurnar á sínum tíma, þegar
þær voru kenndar í skólum
landsins.
Því miður hefur þekkingu
fólks á biblíusögunum hrakað
mikið hin síðari ár.
Það hefur einnig í för
með sér að menning-
arlegt læsi skerðist á
sviðum lista og bók-
mennta sem eiga ræt-
ur sínar í sögum Bibl-
íunnar, eða vísa til
þeirra. Kirkjunni hef-
ur heldur ekki tekist
nægjanlega vel að
fylla upp í það tóma-
rúm sem myndaðist
þegar kristinfræði-
kennslunni var hætt í
skólum landsins.
Biblían heldur samt
áfram að vera það
grundvallarrit sem
kristin trú byggir á. Sá
vegvísir sem kristið
fólk notar í sinni and-
legu vegferð og and-
lega lífi, boðskapur og
næring sem einnig á að
sjást í daglegu lífi og í
framkomu við aðra.
Barnabiblían í appi
Hinn árlegi biblíu-
dagur er á morgun og þá er
gjarnan lesin í kirkjum landsins
dæmisaga Jesú um sáðmanninn
sem gekk út að sá og fékk mis-
jafna uppskeru. Fór það eftir
gæðum jarðvegsins og fleiru í
umhverfinu. Sumt féll í grýtta
jörð sem engu skilaði, en annað í
góða jörð og bar margfaldan
ávöxt. Sæðið í dæmisögunni er
Guðs orð, en við erum jarðveg-
urinn.
Á heimasíðu Biblíufélagsins,
www.biblian.is, er hægt að lesa
Biblíuna og þar er einnig hægt
að hlusta á hana. Hægt er að
hlaða henni niður í símann og
hafa hana þannig ávallt við hönd-
ina. Þar er einnig hægt að nálg-
ast nýlegt biblíuapp fyrir börnin,
í þeirri von að sem flest börn fái
að kynnast söguheimi Biblíunn-
ar. Má segja að það séu biblíu-
sögurnar góðu í nýstárlegi út-
gáfu.
Við Íslendingar erum búnir að
eiga Biblíuna lengi á okkar
móðurmáli en Guðbrandsbiblía
var prentuð á Hólum í Hjaltadal
árið 1584. Það var Guðbrandur
Þorlákssons Hólabiskup sem sá
um útgáfuna og þýddi mörg ritin.
Það var mikið þrekvirki. Öldum
síðar sá sr. Matthías Jochums-
son Guðbrand biskup fyrir sér
horfandi yfir farinn veg og lagði
honum þessi orð í munn:
„Eitt stórverk gafstu mér, Guð,
af náð,
að gjöra með kröftunum ungu:
Nú geymir að eilífu Ísaláð
þitt orð á lifandi tungu.“
Kirkjan til fólksins
Biblíuapp Hægt er að hlaða Biblíunni í síma og hafa ávallt við höndina.
Orð á lifandi
tungumáli
Gísli
Gunnarsson
Höfundur er sóknarprestur í
Glaumbæ.
Gísli Gunnarsson
„Það sem hjarta
þitt bindur sig
við og reiðir sig
á, segi ég, er í
raun og veru
guð þinn.“ Þessi
orð Marteins
Lúthers eru enn
í fullu gildi.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Stefanía Steinsdóttir. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Um-
sjón Sonja Kro og Hólmfríður Hermannsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari. María H. Krist-
insdóttir formaður Kvenfélags Árbæjarsóknar
flytur ræðu dagsins. Kvenfélagskonur lesa ritn-
ingatexta og bænir. Kirkjukórinn undir stjórn
Hrafnkels Karlssonar leiða almennan safnaðar-
söng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
ÁSKIRKJA | Lesmessa og barnastarf kl. 13. Jó-
hanna María Eyjólfsdóttir djákni og Viktoría Ás-
geirsdóttir annast samverustund sunnudaga-
skólans. Séra Sigurður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kaffisopi í Ási að guðsþjón-
ustu lokinni.
BESSASTAÐAKIRKJA | Batamessa kl. 17. Sr.
Hans Guðberg og Vilborg Ólöf djákni þjóna
ásamt vinum í bata. Ástvaldur Traustason org-
anisti og sérstakur gestur Ellen Kristjánsdóttir
söngkona. Að messu lokinni bjóða Vinir í bata í
Garðaprestakalli upp á létta hressingu í Safn-
aðarheimilinu að Brekkuskógum 1 á Álftanesi
þar sem sporastarfið fer fram.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli Í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Þórarinn og Guðmundur Jens.
BLÖNDUÓSKIRKJA | Guðsþjónusta á konu-
daginn kl. 13. Tónlist og sálmar eftir konur. Kór
Blönduóskirkju syngur undir stjórn Eyþórs Franz-
sonar Wechner. Elvar Logi Friðriksson syngur
einsöng. Kirkjan gefur konum blóm. Sunnudaga-
skóli verður á sama tíma. Sr. Bryndís Valbjarnar-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Biblíudagurinn. Prestur er Magnús Björn
Björnsson. Organistinn Örn Magnússon
stjórnar Kór Breiðholtskirkju. Léttar veitingar
eftir messu. Við vekjum athygli á að sunnu-
dagaskólinn færist upp í Fella- og Hólakirkju
fram á vor. Alþjóðlegi söfnuðurinn ICB: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestar Toshiki Toma og Ása
Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er Örn
Magnússon. Barnagæsla.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Danni, Sóley, Katrín og Jónas Þórir. Söngur,
gleði og gaman.
Rósamessa kl. 13 á konudaginn. Séra Þorvald-
ur Víðisson þjónar fyrir altari ásamt hópi messu-
þjóna. Sálmar og tónlist eftir konur verða á dag-
skrá. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju
syngja undir stjórn Jónasar Þóris. Allar konur fá
afhenta rós við útganginn.
Miðvikudagar í Bústaðakirkju: Eldri borgarastarf
kl. 13.30-16.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11 í umsjá sr.
Karenar. Sísa organisti sér um tónlist ásamt
Bryndísi Guðjónsdóttur. Kaffi og meðlæti í safn-
aðarsal á 500 kr. Sunnudagaskóli í kapellu á
neðri hæð kirkjunnar kl. 11 í umsjón Söru Lindar
og leiðtoga barnastarfs. Hjallakirkja. Messa kl.
17 í umsjá sr. Helgu Kolbeinsdóttur. Sálmarar
sjá um tónlist.
DÓMKIRKJAN | Séra Sveinn Valgeirsson pré-
dikar við guðþjónustu kl. 11. Dómkórinn og Pét-
ur Nói Stefánsson spilar á orgelið. Æðruleys-
ismessa klukkan 20. Sr. Sveinn Valgeirsson, sr.
Diana Ósk Óskarsdóttir og sr. Fritz Már Bernd-
sen þjóna. Kristján Hrannar Pálsson leikur á
flygilinn.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
10.30. Konudagsmessa kl. 20. Sr. Brynhildur
Óla Elínardóttir og Dóra Sólrún Kristinsdóttir
djákni þjóna og íhuga konurnar í Biblíunni. Kór
Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde organisti. Hér-
aðsdætur og Drífa Sigurðardóttir taka einnig
virkan þátt í tilefni dagsins.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Konudagsmessa.
Þórey Sigþórsdóttir leikkona flytur hugvekju um
mikilvægi þess að konur hafi rödd sem heyrist.
Kór kirkjunnar flytur fjölbreytta og líflega tónlist.
allar konur fá afhenta rós í tilefni dagsins. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson og Kristín Kristjáns-
dóttir djákni þjóna. Arnhildur Valgarðsdóttir org-
anisti sér um tónlistina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Konudagurinn. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson
leiðir stundina. Hljómsveitinni Mantra og söng-
hópurinn við Tjörnina leiða sönginn undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar organista. Fjölskyldur
fermingarbarna eru hvattar til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Grafar-
vogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifs-
son. Sunnudagaskóli er á neðri hæð kirkjunnar
á sama tíma. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harð-
ardóttir og Valbjörn Snær Lilliendahl. Undirleikari
er Stefán Birkisson. Selmessa er í Kirkjuseli í
Spöng kl. 13.
GRENSÁSKIRKJA | Biblíudagurinn. Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir
altari ásamt hópi messuþjóna. Kór Grensás-
kirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur,
kantors. Þriðjudagar í Grensáskirkju kl. 12. Há-
degisbæn og kyrrðarstund. Einnig í streymi á Fa-
cebook síðu Grensáskirkju. Fimmtudagar í
Grensáskirkju kl. 18.15. Núvitundarstund. Einn-
ig í streymi á Facebook síðu Grensáskirkju.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Konudags-
messa og sunnudagaskóli á konudaginn kl. 11.
Hafdís Huld og Alisdair flytja nokkur lög og
kvennakór kirkjunnar syngur. Sr. Bolli Pétur
Bollason predikar og þjónar fyrir altari. Blóm,
kaffi og konfekt í boði eftir messu. Sunnudaga-
skólinn í safnaðarheimilinu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Konudags-
messa kl. 11. Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri talar. Kvenna-
kór Barbörukórsins syngja undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar organista. Makkarónur og
freyðite á eftir.
Nánar: www.hafnarfjardarkirkja.is.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Messuhópur aðstoðar. Organisti er Steinar Logi
Helgason. Kór Hallgrímskirkju leiðir söng.
Barnastarf er í umsjón Kristnýjar Rósar Gúst-
afsdóttur.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Org-
anisti er Arngerður María Árnadóttir. Þriðjudag-
inn 22. febrúar verður Gæðastund í Kefafnaðar-
heimilinu kl. 13.30-15.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl.
17 í umsjá sr. Helgu Kolbeinsdóttur. Tónlist í
umsjá hljómsveitarinnar Sálmari. Sunnudaga-
skóli og messa er sama dag kl. 11 í Digra-
neskirkju.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókna syngur, organisti er
Miklós Dalmay. Sunnudagaskóli kl. 12.30, sam-
verustund fyrir alla fjölskylduna. Umsjón hafa sr.
Ninna Sif og Unnur Birna.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.
Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Kvöldmessa á konu-
og Biblíudegi kl. 20. Guðný Kristjánsdóttir hefur
veitt samfélaginu þjónustu með þátttöku í marg-
víslegu menningarstarfi í allmarga áratugi. Hún
mun flytja hugleiðingu í tilefni konudagsins. Kór-
félagar syngja við undirleik Arnórs Vilbergsson-
ar, organista. Messuþjónar eru Helga Jakobs-
dóttir og Þórey Eyþórsdóttir. Heiða Björg
Gústafsdóttir djákni og sr. Erla Guðmundsdóttir
þjóna við stundina.
KIRKJUSELIÐ í Spöng | Selmessan kl. 13. Sr.
Magnús Erlingsson þjónar. Vox Populi leiðir
söng. Undirleikari er Hákon Leifsson.
KOTSTRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Sr.
Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókna syngur, organisti er
Miklós Dalmay.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta á konu-
degi kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Konur lesa ritningarlestra. Fé-
lagar úr kór Kópavogskirkju syngja. Organisti er
Bjartur Logi Guðnason. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Sigurður Már Hannesson þjónar
og Fílharmónían syngur undir stjórn Magnúsar
Ragnarssonar. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ili kirkjunnar. Léttur hádegisverður eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Elísabet
Þórðardóttir organisti og Hólmfríður Friðjónsdótt-
ir sópran annast tónlistarflutning. Sr. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan. Kaffi og
samvera á eftir.
Miðvikudagur 23. febrúar. Foreldrasamvera á
milli kl. 10 og 12.
Helgistund í Félagsmiðstöðinni Dalbraut 18 - 20
kl. 14.
Fimmtudagur 24. febrúar. Opið hús í Áskirkju kl.
12. Helgistund, máltíð og samvera á eftir.
Helgistund í Hásalnum Hátúni 10 kl. 16.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leið-
ir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Dís Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Presur er Skúli S.
Ólafson. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Söngu, gleði
og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón hafa
Hrafnhildur og Kristrún Guðmundsdætur og Ari
Agnarsson. Kaffisopi eftir messu.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Brúðu-
leikhús, söngur og leikir, ávaxtahressing í lokin.
Guðsþjónusta kl. 13, prestur er Bryndís Malla
Elídóttir, lesari er Aðalheiður Jónsdóttir, með-
hjálpari er Matthildur Sverrisdóttir, kór kirkjunn-
ar sem skipaður er konum syngur undir stjórn
organista kirkjunnar, konudagskaffi í lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn
kl. 10. Ósýnilegar konur eftir Caroline Criado Pe-
rez. Þýðandi bókarinnar, Sæunn Gísladóttir, hag-
fræðingur og blaðamaður, kemur í heimsókn og
segir frá innihaldi hennar.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Ása
Laufey Sæmundsdóttir þjónar. Svana Helen
Björnsdóttir, rafmagnsverkfræðingur, flytur hug-
leiðingu. Kristján Hrannar Pálsson er organisti.
Konur í Kvenfélaginu Seltjörn taka þátt. Kaffi-
veitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20. Vox Felix,
sem er ungmennakór sóknanna á Suðurnesj-
um, syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvist.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta í til-
efni konudags kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir,
sr. Matthildur Bjarnadóttir og Vilborg Ólöf Sigurð-
ardóttir djákni þjóna. Svandís Svavarsdóttir flyt-
ur ávarp. Sigríður Thorlacius syngur einsöng.
Gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Dav-
íðs Sigurgeirssonar og Ingvar Alfreðsson leikur á
flygil. Léttar veitingar á eftir. Bein útsending á
Rás 1. Streymi á facebook.com/vidalinskirkja
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10 og kl.
11 í Vídalínskirkju.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 10. Fjölbreytt stund í umsjá Benna
og Helgu. Guðsþjónusta kl. 11 á Konudaginn.
Konur úr Kór Víðistaðasóknar syngja undir stjórn
Sveins Arnars Sæmundssonar organista. Alrún
María Skarphéðinsdóttir, nemandi í Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar, leikur einleik á píanó. Sr.
Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar
með aðstoð messuþjóna.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta í kl. 20.
Sr. Brynja Vigdís þjónar fyrir altari og félagar úr
kirkjukórnum leiða söng undir stjórn Stefáns H.
Kristinssonar.
Morgunblaðið/Arnór
Keflavíkurkirkja