Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 29

Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Móðir mín. Leið- ir okkar eru sam- tvinnaðar um alla eilífð. Þú fæddir mig og nærðir og söngst mig inn í svefninn með þinni fögru rödd. Þú kenndir mér að tónar töfra fram him- neskar tilfinningar. Þú söngst við heimilisverkin meðan ilmur af nýbökuðum kökum fyllti heimilið af hlýju og yl. Allt sem þú gerðir var fallegt, hver einasti hlutur átti sinn stað. Aldrei var lagt á borð án þess að það væri vel gert. Töfrandi fegurð flæddi um allt sem gaf öryggi og festu. Þú kenndir mér að taka eftir því stóra og smáa. Mikilvægi þess að lifa í feg- urð og tignarleika. Þú elskaðir ungbörn og þegar frumburðurinn minn, Joel Ólaf- ur Gísli, fæddist þá varðstu eftir hjá mér í Barcelona því ég var viðkvæm eftir keisaraskurð. Þú kenndir mér að baða hann á hverjum morgni og naust þess að umvefja hann. Við heimkomu til Íslands eft- ir sautján ára fjarveru opnaðir þú heimilið fyrir okkur Joel. Við eigum góðar minningar frá þeim tíma. Mamma mín, þú varst sú sem vaknaðir fyrst og ræstir húsið. Ólöf Alda Ólafs ✝ Ólöf Alda Ólafs fæddist 17. nóvember 1940. Hún lést 4. febrúar 2022. Útför Ólafar fór fram 11. febrúar 2022. Hugsaðir fyrir öllu svo ekki vantaði neitt. Heimilið var alltaf öruggt skjól og við vissum að við vorum elskuð. Þakklæti er mér efst í huga er ég hugsa til þess. Þú fylgdist með veður- fréttum og hringdir í mig til að láta mig vita ef von var á vondu veðri því móðurhjartað var stórt. Nú kveð ég þig að sinni en þú lifir í mér. Ég finn fyrir hreyf- ingum þínum í líkama mínum og hef heitið því að varðveita hann vel og heiðra þig með geislandi heilsu og söng því ég hlaut röddina þína í vöggugjöf. Ég mun syngja og fagna lífinu sem þú fæddir mig inn í. Ég mun gráta heilsuleysið þitt og þján- ingu og þvo það burt með tárum mínum. Því samtvinnaðar við erum, þú ert ég og ég er þú, og saman sköpum við bjarta fram- tíð fyrir komandi kynslóðir. Ég elska þig mamma. Frumburðurinn þinn, Fríða Freyja Kristín Gísladóttir. Elsku mamma, Ólöf Alda Ólafsdóttir, hefur nú lagt af stað í sína hinstu för ásamt systur sinni Sigrúnu Helgu Ólafsdóttur sem lést í vikunni áður. Það er erfitt að lýsa þeim til- finningarússíbana sem fer af stað við fráfall móður en það sem oftast kemur upp í hugann er endalaust þakklæti og ást en líka söknuður yfir að fá ekki að faðma hana einu sinni enn. Þegar við vorum börn fegraði hún lífi okkar og tilveru með sinni fallegu rödd sem hljómaði um húsið meðan hún þreif, eld- aði og bakaði dýrindiskökur sem eru okkur öllum minnis- stæðar. Hún vann vinnuna sína alltaf af kostgæfni, var fyrst á fætur á morgnana og síðust til að sofna á kvöldin. Einnig var hún afburðalistamaður, það sást í öllu sem hún gerði, hugsað var um hvert og eitt einasta smáat- riði í heimilishaldinu og klæða- burði sem alla tíð bar vott af hennar einstaka hæfileika. Allt var unnið frá grunni og ekkert til sparað þegar halda átti veisl- ur. Komandi kynslóðir munu svo sannarlega halda áfram að njóta um aldur og ævi allra upp- skriftanna og brellibragðanna sem hún kenndi okkur. Það var henni alla tíð hjart- ans mál að við hlytum góða menntun svo við gætum upp- fyllt drauma okkar og studdi, ásamt pabba, við bakið á okkur þegar við uxum úr grasi og ákváðum að leggja af stað á vit ævintýranna. Við ferðuðumst mikið með foreldrum okkar og voru þau dugleg við að heim- sækja hvert og eitt okkar. Minnist ég sérstaklega þegar hún hún ásamt pabba kom til mín þegar ég bjó í París. Við keyrðum þaðan til Chateuax de la Loire og heimsóttum Versali. Við mamma dustuðum svo rykið af frönskum kokkabókum og flamberuðum steikur undir ber- um himni, skellihlæjandi og dauðhræddar um að kveikja í hárinu á okkur. Minnisstæðust er þó síðasta ferð okkar til Danmerkur þegar við ásamt Fríðu heimsóttum Önnu systur. Hvernig hún ljóm- aði af gleði í flugvélinni, svo eft- ir var tekið, yfir að hafa tekist að fara, þrátt fyrir erfið veik- indi, í þessa langþráðu ferð. Við systurnar munum ylja okkur við myndbandið þar sem við syngj- um saman „You are my suns- hine“ á göngu inn í sólsetrið og allar góðu minningarnar sem við eigum sameiginlegar frá þessari ferð. Þótt síðustu æviárin hafi lit- ast af erfiðum veikindum var alltaf stutt í hláturinn hjá mömmu, við gátum svo sannar- lega fíflast yfir öllu, sama hversu alvarleg staðan var og allt þar til yfir lauk. Endalausar þakkir, elsku mamma, fyrir allar samveru- stundirnar. Þú ert og munt allt- af verða mín fyrirmynd, hetja, besta vinkona og sálufélagi. Djúpin hafa þagnað, Alda mín fagra og allt umlykjandi, sofðu rótt þar til við hittumst á ný. Þín elskandi dóttir, Bryndís Marsibil. Amma tók á móti okkur opn- um örmum þegar við komum aftur heim til Íslands. Hún var ljúf kona, með hjartað á réttum stað en náði af og til að spilla mér með sælgæti og kökum þegar mamma leit frá. Hún náði alltaf að heilla fólk við matarborðið með sögum sín- um og hló síðan að þeim sjálf á undan okkur öllum. Nýlega gaf hún mér hvatn- ingu til að gera betur og bæta mig því hún náði að sanna að það er hægt að kenna gömlum hundi að sitja. Ég mun sakna hennar en hún er á betri stað og megi hún hvíla í friði. Joel Ólafur Gísli Martinez. Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Hinrik Norðfjörð Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HARÐAR VIKTORS JÓHANNSSONAR, Kastalagerði 8, Kópavogi. Kristín Ágústa Viggósdóttir Hörður Björn Harðarson Svetlana Harðarson Katrín Ágústa Harðardóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, ÁSDÍSAR INGVARSDÓTTUR, Bankavegi 2, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fossheima fyrir kærleiksríka umönnun og hlýtt viðmót. Guðmundur Kristinsson Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og systir, KRISTJANA SIF BJARNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 13. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. febrúar klukkan 13. Steingrímur Sævarr Ólafsson Gunnhildur Sif Oddsdóttir Fróði Guðmundur Jónsson Þórir Oddsson Steinunn Edda Steingrímsd. Jónas Elvar Halldórsson Gréta Gunnarsdóttir Matthías Bragason Birna Bjarnadóttir Hólmgeir Baldursson Arnar Bjarnason Sóley Bæringsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.