Morgunblaðið - 19.02.2022, Qupperneq 34
34 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ
Herrablað
Morgunblaðsins kemur út 18. mars
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Jón Kristinn Jónsson
jonkr@mbl.is - S.615-8080
Viðar Ingi Pétursson
vip@mbl.is - S.569-1109
– meira fyrir lesendur
Herratíska
Hár, húðvörur og skegg
Hvað einkennir vel
klædda herra.
Hvað þarftu að eiga
í fataskápnum.
Viðtöl við töff herramenn
SÉRBLAÐ
40 ÁRA Hjörtur ólst upp ólst
upp í Reykholtsdal í Borgarfirði
en býr í Reykjavík. Hann er vél-
fræðingur og rafvirki að mennt. Í
dag starfar Hjörtur sem þjón-
ustustjóri hjá Þorbirni hf. í
Grindavík. Áhugamál hans eru
reiðhjól, ferðalög og stangveiði.
Svo er hann mikill Þróttari og
Liverpool-maður.
FJÖLSKYLDA Eiginkona
Hjartar er Erla Baldvinsdóttir, f.
1973, kennari og deildarstjóri í
Laugarnesskóla. Börn þeirra eru
Halla María, f. 1997, sambýlis-
maður: Flosi Hrannar, f. 1997, Sara Hlín, f. 2001, unnusti: Jakob Óli, f. 2000,
Sóldís Erla, f. 2007, og Baldvin Rökkvi, f. 2011. Foreldrar Hjartar eru Eirík-
ur Jónsson, f. 1951, fv. formaður Kennarasambandsins, búsettur í Mos-
fellsbæ, og María Ingadóttir, f. 1953, skrifstofumaður, búsett á Akureyri.
Hjörtur Ingi Eiríksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það gæti komið sér vel fyrir þig að
ræða málin við vini þína í dag. Ef þér mis-
tekst eitthvað þá gengur bara betur næst.
20. apríl - 20. maí +
Naut Erfiðir einstaklingar og stormasöm
sambönd eru tækifæri til þroska. Notaðu
tækifærið á meðan lognið varir og skipu-
leggðu fram í tímann.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þér er nauðsynlegt að finna tíma
fyrir þig eina/n. Farðu þér hægt í að segja
skoðun þína. Stundum er best að bíta á
jaxlinn og halda sinni stefnu áfram.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Óvænt tækifæri berst upp í hend-
urnar á þér og nú hefur þú enga afsökun
fyrir því að nýta þér það ekki. Hringdu í
gamla vini og hóaðu þeim saman.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er nauðsynlegt að hafa eitthvað
til að hlakka til. Hvernig væri að skipuleggja
næstu vikur? Stórfjölskyldan hittist óvænt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú átt að geta glaðst yfir velgengni
annarra. Sú hindrun sem hefur gert þér
gramt í geði tilheyrir nú fortíðinni.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Tilraunir þínar til að fá aðra vinnu hafa
ekki borið mikinn árangur en brátt verður
breyting þar á. Þú ert spennt/ur fyrir nýju
ástarsambandi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Því fylgir mikil ábyrgð að aðrir
skuli leita til þín um ráð. Tíminn vinnur með
þér á svo margan hátt. Ekki sópa vanda-
málum þínum undir teppið.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú gerir miklar kröfur til þín og
annarra, kannski væri ráð að minna þær
aðeins. Það þarf ekki að kosta mikið að
breyta til heima.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Óvenjulegar persónur gætu
komið róti á hug þinn í dag og vinir þínir
sýna á sér nýja hlið. Losaðu þig bara við
það sem er fyrir þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hefur mikið að gera og skalt
ekki fara út í stórar framkvæmdir á heim-
ilinu nema hafa tíma til þess. Fréttir af ætt-
ingja koma skemmtilega á óvart.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Reyndu að fá útrás fyrir tilfinningar
þínar. Þú ert eitthvað utan við þig þessa
dagana. Hugsaðu þig ekki um tvisvar ef þú
færð tilboð í hlut sem þú hefur ekki þörf
fyrir lengur.
H
örður Ægisson er
fæddur 19.2. 1982 á
Akranesi og bjó þar
fram til tvítugsald-
urs. „Ég ólst upp á
Sunnubrautinni frá tveggja ára
aldri. Æskan snerist um fótbolta
frá a til ö og ég æfði með ÍA þar
til ég varð 17 ára.“ Hörður gekk í
Brekkubæjarskóla, Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi
(FVA) og þaðan lá leiðin til
Reykjavíkur í BA-nám í stjórn-
málafræði og heimspeki í Háskóla
Íslands.
„Skömmu eftir námið hóf ég
störf á Viðskiptablaðinu árið 2007,
fyrir tilstilli góðs vinar, en fram að
því hafði ég aldrei leitt hugann að
því að reyna fyrir mér á vettvangi
fjölmiðla. Það má segja að þar hafi
ég fengið fjölmiðlabakteríuna – og
eftir það varð ekki aftur snúið.“
Eftir að hafa verið á Viðskipta-
blaðinu í vel á annað ár fór Hörður
í framhaldsnám í hagfræði og al-
þjóðastjórnmálum við bandaríska
háskólann Johns Hopkins School
of Advanced International Studies
haustið 2008. Fyrra árið stundaði
hann námið í Bologna á Ítalíu, þar
sem skólinn starfrækir útibú, og
hið seinna var í Washington DC í
Bandaríkjunum. „Þetta var frábær
tími og mikil upplifun að dvelja í
þessum skemmtilegu – en afar
ólíku – borgum. Hugurinn stóð
hins vegar alltaf til þess að snúa
aftur heim til Íslands þegar ég
lauk MA-náminu árið 2010.“
Hörður hefur eftir það unnið
sem viðskiptablaðamaður allan
sinn starfsferil á flestum af helstu
fjölmiðlum landsins. Fyrst á Morg-
unblaðinu, síðan viðskiptaritstjóri
DV áður en hann var ráðinn rit-
stjóri Markaðarins á Fréttablaðinu
þar sem hann starfaði á árunum
2017 til 2021.
„Núna er ég hins vegar að vinna
að því skemmtilega verkefni að
byggja upp nýjan áskriftarvef-
miðil, sem heitir Innherji og er
undir hatti Vísis, ásamt frábærum
samstarfsfélögum en hann sérhæf-
ir sig einkum í umfjöllun um ís-
lenskt viðskiptalíf og efnahagsmál.
Áhugamálin og vinnan – við-
skipti, efnahagsmál og pólitík –
eru í raun eitt og hið sama í öllu
daglegu lífi hjá mér. Og sem betur
fer. Það er mikil gæfa og forrétt-
indi að starfa við það sem manni
þykir skemmtilegt og blaða-
mennskan hefur gefið mér mjög
mikið.
Önnur helstu áhugamál eru fót-
bolti – lesist: Liverpool – en ég
ásamt hópi vina hef farið að lág-
marki einu sinni á ári til Liverpool
til að horfa á besta fótboltalið
heims spila. Á síðustu árum hef ég
tekið upp á því að reyna að fara
Hörður Ægisson, ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja á Vísi – 40 ára
Á Ísafirði Ægir (faðir), Hörður, Guðbjörg (systir) og Ragnheiður Gunnars (stjúpmóðir) fyrir utan Tjöruhúsið.
Að lágmarki einu sinni á ári í
Liverpool til að horfa á besta liðið
Veiðar Hörður staddur í Haffjarðará
þar sem hann hefur veitt síðustu ár.
Í Flatey Hildur og Hörður, en þau
ferðuðust víða um landið í fyrra.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Jóhanna María
Ottósdóttir fæddist 29. júní
2021. Hún vó 3.294 g og var
49,5 cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Ottó Aage Þórjónsson
og Guðrún Ósk Leifsdóttir.
Nýr borgari