Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 40

Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 15. mars 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ Franska kvikmyndahátíðin var sett í Bíó Paradís í fyrradag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hátíðarstund Pétur Hrafn Sigurðsson og Sigrún Jónsdóttir. Bíóunnendur Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri í Bíó Paradís, með Adeline D’Hondt, framkvæmdastjóra Alliance francaise, og Patrick Le- Menes, sendiráðunaut og staðgengli sendiherra Frakklands á Íslandi. Kátar Silja Aðalsteinsdóttir og Ingibjörg Helgadóttir. Feðgin Myndlistarmaðurinn Sergei Comte með dóttur sinni Fanneyju. Bíó Adeleine D’Hondt með Sólveigu Simha, leikkonu og frönskukennara. » Hinn árvissi menningarviðburður Frönsk kvik- myndahátíð hófst í fyrradag í Bíó Paradís með sýningu á opnunarmynd hátíðarinnar, Les Olym- piades, eða París, 13. hverfi eins og hún heitir í ís- lenskri þýðingu, eftir leikstjórann Jacques Audi- ard. Ellefu kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni sem nú er haldin í 22. sinn og lýkur 27. febrúar. Dagskrá hennar má finna á bioparadis.is. Á tónleikum Kammermúsíkklúbbs- ins á morgun, sunnudag, flytja hljóðfæraleikarar úr tónlistar- hópnum Camerarctica tvö píanó- tríó úr opus 1 eftir Ludwig van Beethoven. Verkin eru í tilkynn- ingu sögð þróttmikil dæmi um snilli hins unga Beethovens. Tónleikarn- ir verða í Norðurljósasal Hörpu og hefjast kl. 16. Camerarctica-hópurinn hefur átt fastan sess í tónlistarlífi Íslendinga um þriggja áratuga skeið og kemur reglulega fram á vegum Kammer- músíkklúbbsins. Hljóðfæraleik- ararnir sem stíga á svið að þessu sinni eru systkinin Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari og Sig- urður Halldórsson sellóleikari, sem eru íslenskum tónlistarvinum að góðu kunn. Með þeim leikur hinn fjölhæfi norski píanóleikari Mathi- as Halvorsen, sem hefur verið bú- settur í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Hann er iðinn við tónleika- hald af ýmsum toga víða og hefur starfað með listafólki eins og Peac- hes og Jan Martin Gismervik. Flytjendurnir Þrír liðsmenn Camerarctica-hópsins koma fram, þau Hildi- gunnur Halldórsdóttir, Mathias Halvorsen og Sigurður Halldórsson. Flytja tvö þróttmikil píanótríó Beethovens - Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins Sýningin Í öðru húsi verður opn- uð í dag, laugar- daginn 19. febr- úar, kl. 15, í Ásmundarsal. Má þar sjá verk eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dís Whitehead og Steinunni Önnu- dóttur og segir í tilkynningu að form sýningarinnar sé híbýli og að höfundarnir dragi upp vistarverur, ytri mörk og innri rými, en birti bara afmörkuð svæði. „Verk höf- undanna mætast í þessum senum og mynda framandlegan efnisheim sem formgerist í kunnuglegum sviðsetningum,“ segir þar og að verkum þeirra Hönnu Dísar, Guð- laugar Míu og Steinunnar megi finna sameiginlega strengi. Þær vinni gjarnan á mörkum myndlistar og hönnunar en í þessu verkefni mætist þær á landamærum þessara heima. Í öðru húsi í Ásmundarsal Guðlaug Mía Eyþórsdóttir „Marga hildi háð“ er heiti sýningar sem Hildur Ása Henrýsdóttir myndlistarmaður opnar í Gallery Port að Laugavegi 32 í dag, laugar- dag, kl. 16. Á sýningunni setur Hildur fram í málverkum „vand- ræðalega einhliða ástarsögu. Með því að leita persónulegrar sam- þykktar á öllum röngu stöðunum – með einnar nætur kynnum, skelfi- legum stefnumótum og vonlausri rómantík – þá opnast gáttir fyrir sársaukafulla vegi sjálfsfyrirlitn- ingar, kvíða og þarfar fyrir ut- anaðkomandi samþykki.“ Sögur Úr myndheimi Hildar Ásu. Einhliða ástarsög- ur á sýningu Hildar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.