Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 44
Nýtt Bragð bannaðfullorðnum LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 50. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Konudagurinn er á morgun og þá er jafnan mikið að gera í blómabúðum. Eydís Ósk Ásgeirsdóttir, sem jafnan er kölluð Dísa, hefur starfað við blómaskreytingar í um tvo áratugi og segir að blóm veiti fólki alltaf gleði. „Litríkir og fjölbreyttir blóm- vendir gleðja alltaf, sérstaklega á þessum árstíma,“ segir hún. Dísa segir að hún heyri gjarnan frá fólki að það vilji ekki gefa blóm á fyrirframákveðnum dögum eins og konudeginum. „En ég heyri það líka að fólk vill láta gefa sér blóm. Það er öðruvísi þegar einhver hefur fyrir því að fara og velja handa þér blóm. Og það þarf ekkert endilega að vera mikið. Blóm gleðja alltaf.“ Þá segir hún að margir séu stress- aðir og hafi áhyggjur af því að þeir kunni ekki að meðhöndla plöntur. „Það er annað með afskornu blómin. Við vitum hver endirinn verður, þetta snýst bara um að njóta þeirra í kannski eina viku eða tvær.“ Færir fólki blóm í áskrift Dísa rekur Luna studio og veitir þar persónulega þjónustu á sviði blómaskreytinga. Hún segir að blómaskreytingar geti verið stór þáttur á eftirminnilegum stundum í lífi fólks. „Mér fannst vera gat á markaðinum og hef fundið fyrir mik- illi eftirspurn. Blómin koma við sögu á mikilvægustu stundum í lífi okkar; við skírnir, fermingar, giftingar og útskriftir. Það eina sem við vitum fyrir víst í lífinu er að það byrjar og það endar og þess vegna eru blóm líka mikilvæg þegar við erum að kveðja ástvini okkar,“ segir hún og getur þess að sú þjónusta sem hún býður henti fólki greinilega vel. „Blómaskreytirinn getur komið til þín og veitt ráðgjöf fyrir mikilvæga atburði. Þá hefurðu alla mína at- hygli, ég er ekki að afgreiða aðra á meðan.“ Auk þess að sjá um skreytingar fyrir veislur býður Dísa upp á blómaáskriftir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þá getur fólk fengið falleg blóm til sín vikulega eða mánaðar- lega eftir hentugleika. Eins hefur hún boðist til að sjá fyrirtækjum fyr- ir plöntum og tekur auk þess að sér að hlúa að þeim. Sól, sumar og tilbreyting Hún segir að þótt sér leiðist að tala um kórónuveirutímabilið hafi þó komið vel í ljós undanfarið að fólk er nú betur meðvitað um það en áður hvað blóm gera mikið fyrir það. „Fólk hefur augljóslega kunnað vel að meta það að fá sumar og sól og einhverja tilbreytingu með blómum og plöntum,“ segir Dísa að endingu. Hægt er að kynna sér verk hennar og þjónustu á Facebook og á heima- síðunni luna-studio.net. Morgunblaðið/Eggert Gleðigjafi Dísa blómaskreytir segir að blóm lífgi upp á tilveruna og mælir með að hafa þau nógu litrík. Litríkir og fjölbreyttir blómvendir gleðja alltaf - Dísa blómaskreytir býður upp á persónulega þjónustu ÍÞRÓTTIR Hallbera Guðný Gísladóttir er orðin þriðja leikjahæsta landsliðskona Íslands í knattspyrnu frá upphafi eftir sigurleik Íslands gegn Nýja-Sjálandi í Carson í Kali- forníu í fyrrinótt. Dagný Brynjarsdóttir skoraði sigur- markið og íslenska landsliðið hefur nú leikið fimm leiki í röð án þess að fá á sig mark. »36 Orðin þriðja leikjahæst frá upphafi Bíótekið hefur göngu sína Kvikmyndasafn Íslands og Bíó Paradís standa í sam- einingu að kvikmyndasýn- ingum og viðburðaröð í Bíó Paradís með yfirskrift- inni Bíótekið. Fyrsta sýn- ing Bíóteksins fer fram á morgun, sunnudag, á At- ómstöðinni og tveimur sænskum kvikmyndaperl- um, Jag är Nyfiken (en film i gult) og Fucking Åmål. Fyrsta sunnudag hvers mánaðar verða klassískar íslenskar kvik- myndir sýndar ásamt vel völdum erlendum kvikmynd- um í samstarfi við Kvikmyndasöfn Norðurlanda og verður auk þess boðið upp á sérstaka viðburði. Á þeim fyrsta mun Þorsteinn Jónsson leikstjóri ræða við Hall- dór Guðmundsson rithöfund um Atómstöðina. Nánari upplýsingar verður að finna á samfélagsmiðlum og heimasíðunum bioparadis.is og kvikmyndasafn.is. MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.