Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Eitt af aðal-
einkennum Garðabæjar
hefur í gegnum tíðina
verið festa í fjármálum.
Það er lykilatriði að
haldið verði áfram á
þeirri braut í framtíð-
inni. Eyðum ekki um
efni fram, forgangs-
röðum verkefnum eftir
mikilvægi og búum
þannig til umhverfi sem
gefur okkur möguleika
á að halda skuldahlutfalli bæjarins
ásættanlegu og það sem mestu máli
skiptir; álögum lágum á Garðbæinga.
Fasteignaskattur hækkar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur beitt
sér fyrir því að lækka fasteignaskatt-
sprósentu á íbúðaeigendur í Garða-
bæ. Það hefur flokkurinn gert árlega
síðustu átta ár og er skatturinn meðal
þeirra lægstu á Íslandi, 0,179% af
fasteignamati íbúðarhúsnæðis.
Vandinn hefur verið að fast-
eignamat hækkar töluvert með
hverju árinu í Garðabæ. Það hefur
það í för með sér að fasteignaskattur
sem leggst á íbúa hefur hækkað í
krónutölu – þrátt fyrir skattalækk-
anir Garðabæjar.
Ég kannaði raunverulega stöðu
íbúðarhúsnæðis í rótgrónu hverfi í
bænum og hvernig hún hafði breyst
milli áranna 2021 og 2022. Þar sá ég
að krónutöluhækkun á kostnaði
heimilisins vegna fasteignaskattsins
var 10%. Hækkun á
öðrum gjöldum, s.s. lóð-
arleigu, holræsa-,
vatns- og sorpgjaldi,
var enn meiri. Þannig
var krónutöluhækkunin
á öllum fasteignagjöld-
um þessa húsnæðis
13,2% á milli ára.
Verðbólga var í fyrra
5,1% sem þýðir að raun-
hækkun á fast-
eignagjöldum milli ára á
þessu tiltekna húsi í
Garðabæ er 8,1%.
Erfitt fyrir ungt fólk
Hækkanir af þessu tagi koma niður
á ungu fólki sem er að hefja búsetu.
Ungt fólk er oft í námi eða nýkomið
út á vinnumarkað og hefur því lægri
tekjur en þeir sem eldri eru. Síhækk-
andi fasteignagjöld umfram verðlags-
og launahækkanir valda því að erfitt
getur verið fyrir ungt fólk að koma
sér upp eigin húsnæði og hefja bú-
setu.
Kemur sér illa fyrir eldra fólk
Ég er einnig hugsi yfir stöðu eldra
fólks sem e.t.v. er flutt í þá íbúð sem
það hefur hugsað sér að eyða ævi-
kvöldinu í. Hækkun á fasteignamati
íbúðarinnar skilar litlu fyrir þau og á
meðan krónutöluhækkun er umfram
verðlags- og launahækkanir leiðir það
líka til skerðingar á ráðstöf-
unartekjum.
Setjum þrýsting á löggjafann
Fasteignamat og hækkun á því hef-
ur auðvitað mestu áhrifin. Huga þarf
sérstaklega að því að lækka álagning-
arprósentu hjá Garðabæ á móti
hækkun fasteignamats, þannig að
álagður fasteignaskattur hækki að
jafnaði ekki meira en sem nemur
hækkun á neysluvísitölu eða launa-
vísitölu.
Mikill meirihluti fólks tekur ekki
þátt í kaupum og sölum á fast-
eignamarkaði og býr í íbúðum sínum
til lengri tíma. Samt hefur hækkandi
húsnæðisverð umtalsverð áhrif á
álögur þess, ekki eingöngu gagnvart
fasteignaskatti heldur einnig gagn-
vart ýmsum öðrum greiðslum til rík-
isins, sem ákvarðast sömuleiðis af
fasteignamati, s.s. ofanflóðasjóðsgjald
og nattúruhamfaratrygging.
Eðlilegt er að bæjaryfirvöld beiti
sér fyrir því að Alþingi taki til endur-
skoðunar skattstofn fasteignaskatts,
þannig að tryggt verði að árlegur
fasteignaskattur á húsnæði sem ekki
er á sölumarkaði hækki ekki sjálf-
krafa langt umfram almennar verð-
lags- og launabreytingar.
Garðabær verður að vera hér í for-
ystu sem annars staðar.
Eftir Hrannar
Braga Eyjólfsson
»Vandinn hefur verið
að fasteignamat
hækkar töluvert með
hverju árinu í Garðabæ.
Hrannar Bragi
Eyjólfsson
Höfundur er lögfræðingur og
sækist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
hrannar1000@gmail.com
Alþingi taki til endurskoðun-
ar skattstofn fasteignaskatts
Á Íslandi er beint
framlag íþrótta til
landsframleiðslu (fram-
lag til lífskjara) í kring-
um 2,5% en séu óbeint
áhrif tekin með er hlut-
fallið 4% en þetta er
skv. rannsóknum dr.
Ágústs Einarssonar
sem gerðar voru á síð-
asta ári og birtust í bók
hans Íþróttir hérlendis
í alþjóðlegu samhengi. Þetta er um-
talsvert hærra hlutfall en í nágranna-
löndunum og langtum hærra hlutfall
en fólk kannski áttar sig almennt á,
enda er hlutfall ferðaþjónustu í kring-
um 10% og sjávarútvegs í kringum
25%. Þetta sýnir svart á hvítu mik-
ilvægi íþrótta í efnahagslegu sam-
hengi og þetta er þrátt fyrir að
íþróttahreyfingin sem er fjölmenn-
asta fjöldahreyfing landsins er drifin
áfram af sjálfboðaliðum en það eru í
kringum 30.000 sjálfboðaliðar innan
hreyfingarinnar.
Í kringum árið 1970 var meðal-
aldur Íslendinga umtalsvert lægri en
nú er og innan örfárra ára er áætlað
að meðalaldur Íslendinga verði allt að
10 árum hærri en hann var í kringum
1990, sem eru einhverjar örustu
breytingar á samfélagsgerð sem við
höfum séð. Þegar við bætum við auk-
inni tækni og getu nútímasamfélags-
ins í heilbrigðismálum, þ.e.a.s. að
kljást við veikindi og afleiðingar
þeirra, þá má búast við því að kostn-
aður málaflokksins muni sliga flest
ríki heimsins. Þegar við horfum á
þetta frá mjög þröngu sjónarhorni þá
má áætla að við verðum fleiri, eldri,
heilbrigðið verði minna, hvort heldur
andlegt eða líkamlegt, og við munum
illa ráða við þann kostnað sem fylgir
því að takast á við þessar breytingar
sem aftur getur leitt af sér sam-
félagslegar hindranir sem við þekkj-
um í raun ekki á Íslandi. Kostnaður
samfélagsins (heilbrigðisyfirvalda) á
íbúa 65 ára og eldri er í kringum 4 til
5 sinnum hærri en á þá sem yngri
eru, og ef miðað er við 85 ára og eldri
er þessi kostnaður í kringum 9 sinn-
um hærri og því er ljóst að það þarf
verulega að skoða nýjar leiðir til að
bæta heilbrigðismálin.
Ég hef áður skrifað um forvarnir
og íþróttir og þá hvernig við getum
nýtt bæði forvarnastarf og íþrótta- og
tómstundastarf til að bæta lífsgæði
en í leiðinni haft afgerandi áhrif á
hvernig við forgangsröðum þeim fjár-
munum sem við setjum í málaflokk-
inn. Ég er sannfærð um að það góða
starf sem unnið er á vegum íþrótta-
félaganna í landinu mun gegna lyk-
ilhlutverki til framtíðar. Ég er reynd-
ar einnig á þeirri skoðun að það þurfi
alvarlega að skoða að útvíkka hlut-
verk þessara félaga og
fjárfesta umtalsvert
meira í félögunum sjálf-
um og innviðum þeirra
til að efla þau og styrkja
og í leiðinni samþætta
þeirra starf kröfum og
þörfum samfélagsins.
Eftir að hafa starfað
sem sjálfboðaliði innan
Stjörnunnar, sem er
fjölmennasta íþrótta-
félag landsins, þá veit
ég að þar inni er mikil
þekking sem getur nýst Garðabæ og
án efa á það sama við um önnur
íþróttafélög.
Það er mikilvægt að þeir sem gefa
kost á sér til að leiða starf bæj-
arfélaganna skilji annars vegar hlut-
verk íþróttafélaganna í landinu og
átti sig jafnframt á mikilvægi þeirra
til framtíðar þegar teknar eru inn í
myndina þær breytur varðandi
hækkandi aldur sem ég nefndi hér að
ofan. Til þess að geta tekið afgerandi
stöðu með forvörnum og íþróttastarfi
þá þarf að breyta hugsun um að það
þurfi að styrkja félögin og hugsa
frekar um að þessi félög veiti ákveðna
þjónustu sem við erum síðan sem
samfélag sammála um að þurfi að
vera til staðar og er líkleg að verða
lykillinn að því að takast á við áskor-
anir 21. aldarinnar. Þegar dæmið er
reiknað til enda er ljóst að efnahags-
leg áhrif íþrótta eru stórlega van-
metin og þau munu koma til með að
stóraukast til framtíðar. Sem betur
fer er ágætlega á málum haldið í
Garðabæ varðandi innviðauppbygg-
ingu en betur má ef duga skal. Það er
mikilvægt að bæjaryfirvöld marki sér
stefnu og varði leiðina með tímasettri
forgangsröðun sem snýr að öllum
þeim íþróttafélögum sem í bænum
starfa. Garðabær hefur sett fram
íþrótta- og tómstundastefnu til fram-
tíðar, sem er góð og gild. En nú þarf
að efla þetta starf með sannarlegum
hætti en er Garðabær sannarlega
íþróttabær og hefur tekið forystu í
þeim málum. Þeir hundruð sjálf-
boðaliða sem bera uppi starfið eiga
skilið að þeim sé sýndur sá sómi að
Garðabær stígi enn stærri skref til að
tryggja starfið til lengri tíma því
hreyfing sem efnahagsaðgerð er
klárlega það sem koma skal í sam-
félagsuppbyggingu 21. aldarinnar.
Eftir Hörpu Rós
Gísladóttur
»Hreyfing sem efna-
hagsaðgerð er klár-
lega það sem koma skal
í samfélagsuppbygg-
ingu 21. aldarinnar.
Harpa Rós Gísladóttir
Höfundur býður sig fram í 4.-6. sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Garðabæ.
Hreyfing sem
efnahagsaðgerð
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
FAXAFENI 14, 108 REYKJAVÍK
WWW.Z.IS
Óhætt er að segja að Rússar hafi fótum troðið
frelsi og sjálfstæði Úkraínu með innrás í landið.
Gegn ofurefli liðs hafa úkraínskar hersveitir
barist af hörku við Rússa.
Konur, börn og gamalmenni hafa fallið.
Sjúkrahús hafa vart verið látin í friði. Bjóst ein-
hver við öðru af manni sem alinn er upp af
KGB?
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Innrás
AFP
Úkraína
Fjölskyldur
eru á flótta.