Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
15-30% afsláttur af völdum vörum
KAUPHLAUP
2.-7. MARS
KRINGLUKAST
3.-7. MARS
-15%
-30%
DUKA.IS
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Alls voru tilkynnt sjóatvik til
Tryggingastofnunar og/eða
Sjúkratrygginga 108 talsins á síð-
asta ári og hafa ekki verið færri
frá því að skráningar hófust árið
1966, en það ár var tilkynnt um
286 atvik, að því er fram kemur í
upplýsingum frá Samgöngustofu.
Sjóatvik voru í fyrra tæplega 30%
færri 2021 en árið 2020 þegar þau
voru 153 og voru þau 227 árið
2019.
Árið 1989 hafði tíðni slysa meira
en tvöfaldast frá því að skráningar
voru teknar upp og er það árið
sem fjöldi tilkynntra atvika var
mestur, alls 631 talsins. Vekur at-
hygli að tilvikum tók að fækka fá-
einum árum eftir að Slysavarna-
skóli sjómanna var stofnaður
1985. Töluverð viðhorfsbreyting
hefur orðið frá þeim tíma og hefur
sjóatvikum fækkað jafnt og þétt –
að árunum 2002 og 2007 undan-
teknum, en þá varð skyndileg og
ör fjölgun atvika sem dalaði þó ár-
in á eftir.
Þá var 2021 fimmta árið í röð
sem enginn lést á sjó.
Árvekni sjómanna að þakka
„Það er afar ánægjulegt að slys-
um fækki og að enn eitt árið skuli
enginn hafa farist á sjó. Árang-
urinn á undanförnum árum er ekki
síst að þakka árvekni sjómanna og
aukinni vitund um mikilvægi ör-
yggismála. Þar leikur Slysavarna-
skóli sjómanna lykilhlutverk,“
segir Heiðrún Lind Marteinsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, er hún
er innt álits á þróun fjölda slysa.
Hún segir sjávarútvegsfyrir-
tækin hafa tekið öryggismálin
föstum tökum og vekur einnig at-
hygli á að fjárfestingar í nýjum
skipum hafi skilað betri aðbúnaði
og starfsumhverfi á sjó. „Svo vil
ég einnig nefna fiskveiðistjórnun-
arkerfið. Áður fyrr þurftu menn
kannski að fara út í misjöfnum
veðrum, þegar keppst var um fisk-
inn. Nú geta skip hagað sókn eftir
aðstæðum. Það er því margt sem
skýrir þennan árangur, en fyrst
og fremst held ég að það séu skip-
verjar sjálfir sem eiga hér stærst-
an hlut,“ segir Heirðún Lind.
Kostnaður taki að lækka
„Við erum afskaplega ánægðir
með þessa þróun í slysamálum sjó-
fólks. Þó grunar okkur að upp á
vanti í skráningu smærri slysa.
Alltaf má gera betur og helst þá að
engin slys verði til sjós,“ segir
Valmundur Valmundsson, formað-
ur Sjómannasambands Íslands.
„Þegar ákvörðun var tekin um
að útrýma banaslysum til sjós voru
margir efins um að það væri hægt,
alltaf þyrfti að reikna með „afföll-
um“ en reyndin er önnur og af
hverju ekki í slysamálunum líka?
En þróunin er góð. Sjófólk á að
geta gengið að því vísu að koma
heilt heim frá vinnu sinni. Það er
markmið okkar allra sem vinnum
að þessum málum,“ segir hann.
Valmundur kveðst vona að ár-
angurinn verði til þess að trygg-
ingakostnaður útgerðarstarfsemi
lækki. „Þá minnkar pressan á að
starfsfólk þeirra til sjós taki þátt í
þeirri tryggingu eins og nú er.“
Áberandi fækkun slysa á sjó
- Skráðum sjóatvikum fækkaði um 30%
milli ára og voru 108 talsins árið 2021
- Útgerðarmenn og sjómenn fagna þeim
árangri sem náðst hefur í öryggismálum
sjómanna á undanförnum árum
021*
*Tilkynningar um sjóatvik til Tryggingastofnunar og/eða Sjúkratrygginga hófust 1966
Heimild: Samgöngustofa
'58 '61 '64 '67 '70 '73 '76 '79 '82 '85 '88 '91 '94 '97 '00 '03 '06 '09 '12 '15 18 '21
7
59
13
27
29
40
15
21
17
22
21
29
12
22
24
31
16
14
13
5
7
18
21
14
5
13
16
7
11
15
2
6
4
10
17
8
4
2
9
5
3
1
3
7
2 2
3 3
4
5
0
1 1
0
4
2
0
1
2
0 0 0 0 0
423
631
227
108
Fjöldi látinna
í sjóslysum
286
Fjöldi tilkynntra
slysa til TR/
Sjúkratrygginga
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Valmundur
Valmundsson
Samgöngustofa stendur að út-
gáfu mánaðarlegra veggspjalda
undir merkjum 12 hnúta sem
hófst í janúar. Veggspjöldin eru
til þess gerð að vekja athygli sjó-
manna á fyrirbyggjandi aðgerð-
um sem vonað er að þeir tileinki
sér.
„Óhætt er að segja að þetta
verkefni hafi fengið mjög góðar
viðtökur en fjöldi aðila hefur
sameinast í að vekja athygli á
því,“ skrifar Einar Magnús Magn-
ússon, sérfræðingur á öryggis-
og fræðsludeild Samgöngustofu,
í tölvupósti til blaðamanns.
Annað veggspjaldið í 12
spjalda röð kom út í síðasta
mánuði og er yfirskrift þess
„kæru- og agaleysi“. Einar segir
veggspjaldið að þessu sinni fjalla
um „fyrirbyggjandi aðgerðir sem
sjómenn þurfa að hafa í huga til
að koma í veg fyrir að kæru- og
agaleysi verði vandamál með til-
heyrandi slysahættu. Í þessu
sambandi er meðal annars
fjallað um mikilvægi þess að
gætt sé hreinlætis, að viður-
kenndum verklagsreglum og
gátlistum sé fylgt, að öll atvik
sem leiða eða leitt geta til slysa
séu skráð og að menn treysti
ekki á heppnina.“
Vel tekið í
veggspjöld
FORVARNASTARF
Mynd/Samgöngustofa
12 hnútar Veggspjöldin eru gefin út
í hverjum mánuði í forvarnaskyni.