Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 20
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is HPP Solutions, dótturfélag Héðins, og finnska fyrirtækið Meitmel gengu á mánudag frá samningi um sölu og uppsetningu á próteinverksmiðju í bænum Kaskinen í Finnlandi. Verð- mæti samningsins er 700 milljónir króna, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Fram kemur í tilkynningunni að próteinverksmiðjan sé „byggð á ís- lensku verk- og hugviti og var í þró- un hjá Héðni í um tíu ár en fyrsta gerð hennar var gangsett árið 2017 um borð í Sólbergi ÓF-1 frá Ramma hf“. Þá var hefur einnig verið sett upp verksmiðja frá HPP í húsakynn- um Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað. HPP, sem varð um áramótin sjálf- stætt félag, hefur selt próteinverk- smiðjuna í ýmsum útfærslum til skipaútgerða og fyrirtækja í land- vinnslu víða utan landsteinanna. Þá segir að útflutningsverðmætin sem um ræðir, að samningnum við Finnana meðtöldum, nemi samtals um sjö milljörðum króna. Í tilkynningunni er sagt frá því að Kaskinen sé vestast í Finnlandi og að bærinn hafi áður verið ein helsta fiskihöfn Finnlands en nú sé bæjar- félagið það minnsta. Það hafði því mikil áhrif þegar stórri pappírsverk- smiðju var lokað kjölfar fjármála- hrunsins en nú sé von um að nýr kafli hefjist. Nýja verksmiðjan mun vera í húsnæði sem hefur staðið tómt und- anfarin ár en verkefnið er að hluta fjármagnað með styrk frá finnska sjávarútvegsráðuneytinu og Evr- ópusambandinu. Gerðu 700 milljóna króna samning í Finnlandi - Fleiri milljarðar í útflutningsverðmæti úr verk- og hugviti Ljósmynd/HPP Solutions Kaskinen Forsvarsmenn Meitmel og HPP Solutions skoða hafnarsvæðið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Framtíðin í veiðarfæratækni er björt og engin ástæða til að örvænta. Við erum með 18 nemendur skráða og það er mikið spurt um þetta nám. Þegar við tókum við þessari kennslu árið 2018, af Fjölbrautaskóla Suður- nesja, voru nemendur tveir. Við höf- um nú þegar útskrifað fimm veiðar- færatækna,“ sagði Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisk- tækniskóla Íslands í Grindavík. Veiðarfæratækni er löggilt iðngrein sem áður hét netagerð. Flestir nem- endurnir eru sjómenn eða starfa á netagerðarverkstæðum og taka námið misjafnlega hratt meðfram vinnu. Ólafur sagði að vaxandi fisk- eldi í sjó hafi aukið þörfina fyrir veið- arfæratækna því þjónusta þarf sjókvíarnar. „Við vinnum mjög náið með fag- nefnd netagerðar að uppbyggingu námsins. Í henni sitja Hörður Jóns- son frá Veiðarfæraþjónustunni, Rut Jónsdóttir og Hermann Her- mannsson, bæði frá Hampiðjunni. Þau eru netagerðarmeistarar og eru aðal-faggreinakennarar okkar,“ sagði Ólafur. „Við í Fisktækniskól- anum erum með fagbóklega áfanga, eins og iðnteikningar, hönnun veið- arfæra og efnisfræði og verklega áfanga sem taka eina önn. Hægt er að taka stóran hluta námsins í fjar- námi en veiðarfæralíkönin, hönnun veiðarfæra og handverkið vinna nemendur hjá okkur hér í Grindavík. Við erum með gegnumflæðistank og þar eru veiðarfæralíkönin sem nem- endur gera prófuð. Áfanga í almenn- um greinum geta nemendur tekið í hvaða framhaldsskóla sem er. Svo taka þeir vinnustaðahlutann á sínum vinnustað. Náminu lýkur með sveinsprófi.“ Margir að komast á aldur Guðni Hjörleifsson, netagerðar- meistari (veiðarfæratæknir) í Vest- mannaeyjum, skrifaði nýlega grein sem birtist á netmiðlum um framtíð netagerðar sem nú fellur undir veiðarfæratækni. Hann fór á dögun- um austur í Neskaupstað ásamt þremur skipverjum af Vestmannaey VE 54 til að vinna í loðnunót. Þegar hann leit yfir mannskapinn sem vann verkið sýndist honum töluvert marg- ir vera komnir á aldur. Guðni lýsti áhyggjum af því hvert stefndi í fag- inu og taldi of litla endurnýjun hafa verið í greininni. „Eftir því sem ég kemst næst þá eru 11 netagerðarmenn starfandi í Vestmannaeyjum í dag. Yngsti er 51 árs, næstyngsti er 52 ára en restin er komin yfir 60. Því miður held ég að þetta sé langt frá því að vera eins- dæmi hér í Eyjum,“ skrifar Guðni. Hann telur kominn tíma til að út- gerðir og atvinnurekendur grípi til markvissra aðgerða til að auka nýlið- un í stéttinni. Það þurfi að gerast fljótlega til að þekking sem þegar er til glatist ekki. Það er bjart framund- an í veiðarfæratækni - 18 nemendur skráðir - Fiskeldi kallar á netagerðarmenn Morgunblaðið/Eggert Veiðarfæratækni Fagið hét áður netagerð. Lítil endurnýjun var í stéttinni en nemendum í faginu hefur nú fjölgað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.