Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 6

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Skipulagsstofnun hefur ákveðið að gera skuli mat á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdir við fiskveg í jarðgöngum við Barnafoss í Borg- arfirði. Markmið verkefnisins er að gera Hvítá fiskgenga ofan við Barnafoss og gera Norðlingafljót sjálfbært fyrir laxfiska með því að nýta búsvæði þess og byggja upp sjálfbæran laxastofn. Í úrskurði Skipulagsstofnunar er vakin athygli á því að Hraunfossar og Barnafoss séu ásamt nánasta umhverfi friðlýst náttúruvætti. Þá njóti fossar sérstakrar verndar. Óheimilt sé að raska jarðmynd- unum á hinu friðlýsta svæði og þrátt fyrir að rask verði að stærst- um hluta neðanjarðar feli fram- kvæmdirnar engu að síður í sér rask á jarðmyndunum. Hraunfossar og Barnafoss eru vinsæll viðkomustaður ferðafólks og er ákvörðun um umhverfismat meðal annars tekin með hliðsjón af því. Nefnt er í niðurstöðum Skipu- lagsstofnunar að unnið sé að end- urhönnun áfangastaðarins og legu stíga. Bendir Skipulagsstofnun á að þar af leiðandi sé ekki hægt að úti- loka að breytingar verði á dreif- ingu ferðamanna sem kunni að hafa þau áhrif að fyrirhuguð fram- kvæmd verði enn sýnilegri en áform séu um. Niðurstaðan er að mikil óvissa ríki um áhrif framkvæmdarinnar, en í ljósi stærðar, hönnunar og um- fangs hennar og verndargildis svæðisins séu þau líkleg til að verða umtalsverð. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Barnafoss Gera á göng framhjá fossinum, til að opna nýtt laxveiðisvæði. Fiskvegur við Barnafoss í mat - Líkur taldar á umtalsverðum áhrifum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Eigendur fjárfestingarfélagsins Bjargar capital ehf., sem tengist Ís- lenskum verðbréfum hf. nánum bönd- um, eiga í viðræðum við Norðurþing um yfirtöku á lóð SR-mjöls á Raufar- höfn. Áform eru um atvinnuuppbygg- ingu á lóðinni og mun fiskeldi vera þar efst á blaði. Tveir íbúafundir hafa verið haldnir um hugmyndina á Raufarhöfn og óformleg könnun á vilja íbúa stend- ur yfir. „Ég er jákvæð fyrir þessu verkefni. Það getur verið mikilvægt fyrir at- vinnuuppbyggingu á svæðinu, ef það verður að veruleika,“ segir Helena Ey- dís Ingólfsdóttir, formaður byggðar- ráðs Norðurþings. Málið var rætt í byggðarráði á dögunum, að afloknum íbúafundi á Raufarhöfn þar sem verk- efnið var kynnt. Byggðarráð ákvað að halda áfram viðræðum við Björgu capital og vinna að málinu í samvinnu við hverfisráð Raufarhafnar. Áformar byggðarráð að kynna uppfærð drög að samningi um lóðina um miðjan mánuð. Mannvirki í niðurníðslu Síldarverksmiðjur ríkisins voru með starfsemi á Raufarhöfn en eftir að verksmiðjan var lögð niður tók sveitar- félagið við lóðunum með samningum við SR og ríkið. Þá mun sveitarfélagið hafa fengið ákveðna fjármuni til að rífa ónýtar byggingar og taka til og átti sjálft að leggja fram fé á móti. Ekki hefur orðið af því og hefur lóðin verið til vandræða í mörg ár. Nanna Steina Höskuldsdóttir, verkefnastjóri at- vinnu- og samfélagsþróunar á Rauf- arhöfn, starfsmaður SSNE (Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra), segir að mann- virkin séu ryðguð og ljót og jafnvel sé farið að fjúka úr þeim. Spurð um kaup- verð lóðarinnar eða hugsanlega með- gjöf segir Helena að það mál sé enn á samningsstigi og verði ekki opinberað að sinni. Ekki náðist í Jóhann M. Ólafsson, forstjóra Íslenskra verðbréfa og for- svarsmann Bjargar capital, í gær en hann kynnti áform um uppbyggingu fiskeldis á lóðinni á íbúafundinum. Nanna segir að hugmydin snúist um blandað eldi. Alin verði stórseiði á landi og þau alin í sjó um sumarið. Þarf að breyta reglum Til þess að stunda landeldi þarf mik- ið vatn og hita. Hitaveita er ekki á Raufarhöfn en forsvarsmenn fyrir- tækisins ræða um að athuga gamlar borholur á svæðinu. Sjórinn utan við Raufarhöfn er innan svæðis þar sem laxeldi í sjókvíum er bannað. Spurð um þetta segir Helena að færa þyrfti línuna innar með breytingu á reglu- gerð til þess að þessi áform gætu gengið eftir. Nanna Steina segir, þegar hún er spurð um afstöðu heimamanna, að málið sé enn til umræðu. Það sé síðan í höndum byggðarráðs að taka ákvörðun. „Þetta er mjög áhugavert verkefni. Ég tel að flestir séu hrifnir af því að fá einhverja uppbyggingu á SR-lóðinni. En það eru mörg ef í þessu og málið þarf að skoða vel,“ segir hún. Helena segist bjartsýn á framgang málsins, eins og almennt um atvinnu- tækifæri sem verið sé að laða að. „Það skiptir máli hvernig samfélaginu á Raufarhöfn líst á þetta. Mikilvægt er að íbúar og sveitarstjórn séu sam- stiga í því sem verður gert,“ segir Helena. Vilja koma upp fiskeldi á SR-lóðinni - Félag tengt Íslenskum verðbréfum á í viðræðum við Norðurþing um að fá SR-lóðina á Raufarhöfn Kristján Gíslason 65 ára fyrrverandi framkvæmdastjóri Aldrei hætta að þora! Það var hvatningin sem ég fékk frá frá föður mínum áður en ég keyrði á mótorhjóli 48.000 km í gegnum 35 lönd í fimm heimsálfum á rúmum 10 mánuðum. Ég kom heim breyttur maður. Tilgangur Vöruhúss tækifæranna er að auðvelda fólki á þriðja æviskeiðinu að gera breytingar á lífi sínu og láta óskir sínar rætast. Vöruhúsið er spennandi nýjung sem svarar kalli sífellt stækkandi hóps fólks sem komið er yfir miðjan aldur og vill feta nýjar slóðir í lífinu á einn eða annan hátt. Líttu inn á vöruhús tækifæranna.is Það var viðburðaríkur dagur fyrir krakkana á leikskólanum Múlaborg í gær. Ekki einasta fengu þau að klæðast grímubún- ingum í tilefni öskudagsins heldur var þeim boðið til afmælis- veislu. Í gær voru 70 ár liðin frá stofnfundi Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra og af því tilefni var hátíðardagskrá í Æfinga- miðstöðinni þar sem leikhópurinn Lotta og fleiri skemmtu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Krakkarnir á Múlaborg fengu boð í afmælisveislu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.