Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Ég er einn af þeim
sem þykja fjármál
skemmtileg. Ég er
ekki viss um að allir
deili þeim áhuga mín-
um, en það fer ekki á
milli mála að íbúar
Garðabæjar eru með-
vitaðir um mikilvægi
fjármála sveitarfé-
lagsins. Sem betur fer.
Í Garðabæ er staðan
traust. Góð staða fjármála hefur þýtt
að okkur hefur tekist að halda álög-
um lágum. Góður rekstur hefur líka
þýtt að okkur hefur tekist að veita
mjög góða þjónustu, eins og íbúar
hafa staðfest í könnunum, en samt
sem áður skilað afgangi. Sá afgangur
hefur gert okkur kleift að fjárfesta
án óhóflegrar skuldsetningar. Í því
felst meðbyr og geta til að byggja
upp innviði og það leiðir til þess að
við getum gert meira með minni til-
kostnaði.
En góð fjárhagsstaða er ekki eitt-
hvað sem gerist af sjálfu sér. Það er
þrotlaus vinna þeirra sem stýrt hafa
Garðabæ í gegnum tíðina sem hefur
byggt upp þessa stöðu. Það þarf að
standa vörð um þann grunn sem hin
sterka fjárhagsstaða skapar.
Sterk staða Garðabæjar
Sveitarfélög landsins standa mis-
vel að vígi og hafa þurft að takast á
við ólíkar áskoranir. Þegar staða 10
stærstu sveitarfélaga landsins er
skoðuð skv. ársreikningum 2020
kemur áhugaverð mynd fram. Ef
miðað er við skuldahlutfall eru tvö
sveitarfélög sem skera sig úr með
besta stöðu, en það eru Akranes og
Garðabær. Lágt skuldahlutfall er
augljóslega mikilvægt, enda fara
tekjurnar þá frekar í útgjöld til þjón-
ustu og uppbyggingu innviða. Hærra
skuldahlutfall þýðir hins vegar að
tekjurnar fara fremur í vaxtagjöld
og greiðslu skulda.
Meðfylgjandi mynd sýnir einnig
veltufé frá rekstri sem hlutfall af
tekjum. Sá mælikvarði gefur til
kynna hversu mikið fjármagn er til
skiptanna til að greiða upp lán og/
eða til fjárfestinga. Á þennan mæli-
kvarða eru þrjú sveitarfélög sem
standa upp úr, þ.e. Reykjanesbær,
Reykjavík og Garðabær, en skulda-
staða þeirra er hins vegar mjög mis-
munandi. Þegar staðan er skoðuð í
heild er skýrt að Garðabær stendur
ákaflega vel í samanburði við önnur
stærri sveitarfélög landsins.
Garðabær hefur enda fjárfest
ríkulega í innviðum á undanförnum
misserum. Á yfirstand-
andi kjörtímabili hefur
til að mynda risið nýtt
fjölnota íþróttahús sem
hlotið hefur nafnið
Miðgarður. Einnig hef-
ur uppbygging leik- og
grunnskóla verið áber-
andi og miklum fjár-
munum varið í gatna-
og gangstéttafram-
kvæmdir. Það að fjár-
fest sé með skyn-
samlegum hætti gerir
okkur kleift að þjónusta íbúa bæj-
arins vel og búa í haginn fyrir kom-
andi kynslóðir. Það verkefni er við-
varandi og er t.a.m. frekari
uppbygging Urriðaholtsskóla og
fleiri leikskóla í því hverfi á döfinni.
Þá má nefna áframhaldandi upp-
byggingu búsetukjarna fyrir fatlað
fólk og fjárfestingar í félagslegu
húsnæði.
Velgengni í fjármálum
ekki sjálfgefin
Ég býð mig fram í forystusætið á
lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Ég tel það vera forgangsmál að
sinna fjármálum bæjarins vel og ég
hef þá reynslu og þekkingu sem til
þarf. Velgengni í fjármálum sveitar-
félaga er ekki sjálfgefin, eins og
dæmin sanna. En í Garðabæ skapar
hún grunn að þeirri metnaðarfullu
þjónustu sem við viljum veita í bæn-
um. Sú þjónusta þarf að end-
urspegla þarfir mismunandi hópa
íbúa. Við viljum einnig að þjónusta
og innviðir byggist upp samhliða
uppbyggingu nýrra hverfa.
Það er þessi sterka staða, lágar
álögur og góð þjónusta, sem hefur
leitt til þess að fólk sækist eftir að
flytja í bæinn okkar. Ég legg
áherslu á að við Sjálfstæðismenn í
Garðabæ hvikum ekki af þessari
braut. Við eigum að halda fast í okk-
ar aðalsmerki til hagsbóta fyrir alla
bæjarbúa.
Eftir Almar
Guðmundsson
» Góð fjárhagsstaða er
ekki eitthvað sem
gerist af sjálfu sér. Það
er þrotlaus vinna þeirra
sem stýrt hafa Garðabæ
í gegnum tíðina sem
hefur byggt upp þessa
stöðu.
Almar Guðmundsson
Höfundur er bæjarfulltrúi og fram-
kvæmdastjóri og sækist eftir fyrsta
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Garðabæ.
250%
200%
150%
100%
50%
0%
0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16%
Skuldahlutfall
Veltufé frá rekstri,% af tekjum
Skuldir og sjóðstreymi sveitarfélaga 2020
Skv. ársreikningum tíu stærstu sveitarfélaganna
Veltufé Skuldahlutfall
Reykjavík 14% 202%
Kópavogur 9% 134%
Garðabær 14% 100%
Hafnarfjörður 5% 161%
Mosfellsbær 4% 129%
Veltufé Skuldahlutfall
Reykjanesbær 13% 192%
Akranes 10% 79%
Akureyri 8% 124%
Fjarðabyggð 8% 115%
Árborg 5% 147%
Reykjavík
Garðabær
Akranes
KópavogurAkureyriÁrborg
Mosfellsbær
Hafnarfjörður
Fjarðabyggð
Reykjanesbær
Garðabær –
byggjum á traustri
fjárhagsstöðu
Trönuhrauni 8 – 565 2885 | Bíldshöfða 9 – 517 3900 | stod.is
Frábærir alhliða inniskór
fyrir heimilið og
vinnuna
Hannaðir af stoðtækja-
framleiðandanum Schein
Útskiptanlegt innlegg
Hentar sérlega vel fólki
með aumt táberg
Um árabil hef ég
starfað við veit-
ingarekstur og við-
burðastjórnun, bæði í
Reykjavík og erlendis.
Í raun er einstakt
hversu kraftmiklir ís-
lenskir veitingamenn
eru, enda er Reykjavík
þekkt um allan heim
fyrir fjölbreytt veit-
inga- og skemmtanalíf.
Þessi kraftur er enn merkilegri í
ljósi þess að næturhagkerfi Reykja-
víkur, ef svo mætti kalla, virðist
njóta meiri hylli og skilnings utan
frá en hjá borgaryfirvöldum.
Fáir bjuggu til að mynda við meiri
óvissu og ófyrirsjáanleika en veit-
ingamenn í Covid-faraldrinum.
Reglum um afgreiðslutíma var
breytt í tíma og ótíma,
oftast án nokkurs sam-
ráðs við þennan stóra
hagsmunahóp. Þetta
var um margt lýsandi
fyrir viðmót sem
veitingamenn hafa
mætt.
Veitingamenn
þekkja flestir af eigin
raun ósveigjanlegt og
ófyrirsjáanlegt leyfisk-
erfi þar sem teknar eru
ákvarðanir að því er
virðist eftir geðþótta.
Eða hver man ekki eftir sögunni af
hverfiskaffihúsinu sem fékk vínveit-
ingaleyfi í vikunni sem þau hættu
starfsemi eftir tveggja ára bið? Eða
þegar einum reyndasta kokki lands-
ins var bent á að minnka matseðilinn
af starfsmönnum borgarinnar?
Besta efnahagsaðgerð borg-
arinnar í þágu þessa geira og sann-
gjarna og eðlilega aðgerðin er að
stytta afgreiðslutíma yfirvalda, gera
raunhæfar og fyrirsjáanlegar kröfur
í reglugerðum og halda álögum í lág-
marki. Fella niður óþarfa hindranir í
öllum hverfum borgarinnar. Aðeins
þannig hafa allir jafna möguleika til
að blómstra. Blómlegt atvinnulíf í
borginni verður nefnilega ekki til af
sjálfu sér.
Búum til stemningu í borginni,
fyrir atvinnurekendur og borgar-
búa.
Einfalt og fyrirsjáanlegt
Eftir Róbert Aron
Magnússon » Blómlegt atvinnulíf
í borginni verður
nefnilega ekki til af
sjálfu sér.
Róbert Aron Magnússon
Höfundur er veitingamaður og býður
sig fram í 6. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
roberticeland@gmail.com
Prófkjör Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnar-
firði verður haldið
dagana 3. til 5. mars
þar sem kosið verður á
milli einstaklinga á
lista fyrir komandi
bæjarstjórnarkosn-
ingar í vor. 14 ein-
staklingar taka þátt í
prófkjörinu, allt hæft
fólk með ólíkan bak-
grunn sem hefur brennandi áhuga á
að efla okkar góða samfélag og
leggja sitt af mörkum til þess að
Hafnarfjörður verði áfram leiðandi
sveitarfélag.
Ég er stolt af því að tilheyra þess-
um hópi og ég óska eftir stuðningi
ykkar í 2.-3. sæti í prófkjörinu.
Ég legg með mér reynslu mína
sem bæjarfulltrúi þar sem ég hef frá
árinu 2014 verið formaður umhverf-
is- og framkvæmdaráðs, varafor-
maður fjölskylduráðs og frá árinu
2018 fulltrúi í stjórn
Strætó bs. fyrir Hafn-
arfjörð. Ég hef haft for-
ystu um ýmis framfara-
mál á liðnum árum og
má þar nefna umhverf-
ismálin, samgöngur og
stíga, betri almennings-
samgöngur, uppbygg-
ingu íþróttamann-
virkja, nýtt
hjúkrunarheimili og
endurbætur á Sólvangi,
frístundastyrk fyrir
eldri borgara, nýjan
vinnustað fyrir fólk með fötlun á
Suðurgötu 14 og fjölgun búsetu-
kjarna. Ég hef beitt mér af krafti
fyrir því að hagkvæmni sé gætt í út-
boðum og þjónustukaupum á vegum
sveitarfélagsins með góðum árangri
og í störfum mínum sem bæj-
arfulltrúi hef ég ávallt lagt áherslu á
góða þjónustu við bæjarbúa þar sem
jafnræði og góð stjórnsýsla er í önd-
vegi og skýr markmið um ábyrgan
rekstur og sjálfbærni.
Þekking mín úr atvinnulífinu og
breiður bakgrunnur hafa komið að
góðum notum í störfum mínum sem
bæjarfulltrúi og ég hef áhuga á að
nýta áfram krafta mína og reynslu
fyrir sveitarfélagið okkar. Frá árinu
2013 hef ég sinnt trúnaðarstörfum
sem stjórnarmaður í stjórn VR og
ég er fulltrúi VR í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna (LIVE) auk
þess sem ég starfa sem bókari í
hlutastarfi.
Ég hvet Hafnfirðinga til þess að
taka þátt í prófkjörinu og ég óska
eftir stuðningi ykkar til þess að vera
í forystusveit Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði.
Eftir Helgu
Ingólfsdóttur
Helga Ingólfsdóttir
»Ég er stolt af því að
tilheyra þessum
hópi og ég óska eftir
stuðningi ykkar í 2.-3.
sæti í prófkjörinu.
Höfundur er bókari og
bæjarfulltrúi.
helgai@hafnarfjordur.is
Hafnfirðingar –
veljum öfluga forystu