Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 40

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Ég er einn af þeim sem þykja fjármál skemmtileg. Ég er ekki viss um að allir deili þeim áhuga mín- um, en það fer ekki á milli mála að íbúar Garðabæjar eru með- vitaðir um mikilvægi fjármála sveitarfé- lagsins. Sem betur fer. Í Garðabæ er staðan traust. Góð staða fjármála hefur þýtt að okkur hefur tekist að halda álög- um lágum. Góður rekstur hefur líka þýtt að okkur hefur tekist að veita mjög góða þjónustu, eins og íbúar hafa staðfest í könnunum, en samt sem áður skilað afgangi. Sá afgangur hefur gert okkur kleift að fjárfesta án óhóflegrar skuldsetningar. Í því felst meðbyr og geta til að byggja upp innviði og það leiðir til þess að við getum gert meira með minni til- kostnaði. En góð fjárhagsstaða er ekki eitt- hvað sem gerist af sjálfu sér. Það er þrotlaus vinna þeirra sem stýrt hafa Garðabæ í gegnum tíðina sem hefur byggt upp þessa stöðu. Það þarf að standa vörð um þann grunn sem hin sterka fjárhagsstaða skapar. Sterk staða Garðabæjar Sveitarfélög landsins standa mis- vel að vígi og hafa þurft að takast á við ólíkar áskoranir. Þegar staða 10 stærstu sveitarfélaga landsins er skoðuð skv. ársreikningum 2020 kemur áhugaverð mynd fram. Ef miðað er við skuldahlutfall eru tvö sveitarfélög sem skera sig úr með besta stöðu, en það eru Akranes og Garðabær. Lágt skuldahlutfall er augljóslega mikilvægt, enda fara tekjurnar þá frekar í útgjöld til þjón- ustu og uppbyggingu innviða. Hærra skuldahlutfall þýðir hins vegar að tekjurnar fara fremur í vaxtagjöld og greiðslu skulda. Meðfylgjandi mynd sýnir einnig veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum. Sá mælikvarði gefur til kynna hversu mikið fjármagn er til skiptanna til að greiða upp lán og/ eða til fjárfestinga. Á þennan mæli- kvarða eru þrjú sveitarfélög sem standa upp úr, þ.e. Reykjanesbær, Reykjavík og Garðabær, en skulda- staða þeirra er hins vegar mjög mis- munandi. Þegar staðan er skoðuð í heild er skýrt að Garðabær stendur ákaflega vel í samanburði við önnur stærri sveitarfélög landsins. Garðabær hefur enda fjárfest ríkulega í innviðum á undanförnum misserum. Á yfirstand- andi kjörtímabili hefur til að mynda risið nýtt fjölnota íþróttahús sem hlotið hefur nafnið Miðgarður. Einnig hef- ur uppbygging leik- og grunnskóla verið áber- andi og miklum fjár- munum varið í gatna- og gangstéttafram- kvæmdir. Það að fjár- fest sé með skyn- samlegum hætti gerir okkur kleift að þjónusta íbúa bæj- arins vel og búa í haginn fyrir kom- andi kynslóðir. Það verkefni er við- varandi og er t.a.m. frekari uppbygging Urriðaholtsskóla og fleiri leikskóla í því hverfi á döfinni. Þá má nefna áframhaldandi upp- byggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk og fjárfestingar í félagslegu húsnæði. Velgengni í fjármálum ekki sjálfgefin Ég býð mig fram í forystusætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Ég tel það vera forgangsmál að sinna fjármálum bæjarins vel og ég hef þá reynslu og þekkingu sem til þarf. Velgengni í fjármálum sveitar- félaga er ekki sjálfgefin, eins og dæmin sanna. En í Garðabæ skapar hún grunn að þeirri metnaðarfullu þjónustu sem við viljum veita í bæn- um. Sú þjónusta þarf að end- urspegla þarfir mismunandi hópa íbúa. Við viljum einnig að þjónusta og innviðir byggist upp samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Það er þessi sterka staða, lágar álögur og góð þjónusta, sem hefur leitt til þess að fólk sækist eftir að flytja í bæinn okkar. Ég legg áherslu á að við Sjálfstæðismenn í Garðabæ hvikum ekki af þessari braut. Við eigum að halda fast í okk- ar aðalsmerki til hagsbóta fyrir alla bæjarbúa. Eftir Almar Guðmundsson » Góð fjárhagsstaða er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Það er þrotlaus vinna þeirra sem stýrt hafa Garðabæ í gegnum tíðina sem hefur byggt upp þessa stöðu. Almar Guðmundsson Höfundur er bæjarfulltrúi og fram- kvæmdastjóri og sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. 250% 200% 150% 100% 50% 0% 0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16% Skuldahlutfall Veltufé frá rekstri,% af tekjum Skuldir og sjóðstreymi sveitarfélaga 2020 Skv. ársreikningum tíu stærstu sveitarfélaganna Veltufé Skuldahlutfall Reykjavík 14% 202% Kópavogur 9% 134% Garðabær 14% 100% Hafnarfjörður 5% 161% Mosfellsbær 4% 129% Veltufé Skuldahlutfall Reykjanesbær 13% 192% Akranes 10% 79% Akureyri 8% 124% Fjarðabyggð 8% 115% Árborg 5% 147% Reykjavík Garðabær Akranes KópavogurAkureyriÁrborg Mosfellsbær Hafnarfjörður Fjarðabyggð Reykjanesbær Garðabær – byggjum á traustri fjárhagsstöðu Trönuhrauni 8 – 565 2885 | Bíldshöfða 9 – 517 3900 | stod.is Frábærir alhliða inniskór fyrir heimilið og vinnuna Hannaðir af stoðtækja- framleiðandanum Schein Útskiptanlegt innlegg Hentar sérlega vel fólki með aumt táberg Um árabil hef ég starfað við veit- ingarekstur og við- burðastjórnun, bæði í Reykjavík og erlendis. Í raun er einstakt hversu kraftmiklir ís- lenskir veitingamenn eru, enda er Reykjavík þekkt um allan heim fyrir fjölbreytt veit- inga- og skemmtanalíf. Þessi kraftur er enn merkilegri í ljósi þess að næturhagkerfi Reykja- víkur, ef svo mætti kalla, virðist njóta meiri hylli og skilnings utan frá en hjá borgaryfirvöldum. Fáir bjuggu til að mynda við meiri óvissu og ófyrirsjáanleika en veit- ingamenn í Covid-faraldrinum. Reglum um afgreiðslutíma var breytt í tíma og ótíma, oftast án nokkurs sam- ráðs við þennan stóra hagsmunahóp. Þetta var um margt lýsandi fyrir viðmót sem veitingamenn hafa mætt. Veitingamenn þekkja flestir af eigin raun ósveigjanlegt og ófyrirsjáanlegt leyfisk- erfi þar sem teknar eru ákvarðanir að því er virðist eftir geðþótta. Eða hver man ekki eftir sögunni af hverfiskaffihúsinu sem fékk vínveit- ingaleyfi í vikunni sem þau hættu starfsemi eftir tveggja ára bið? Eða þegar einum reyndasta kokki lands- ins var bent á að minnka matseðilinn af starfsmönnum borgarinnar? Besta efnahagsaðgerð borg- arinnar í þágu þessa geira og sann- gjarna og eðlilega aðgerðin er að stytta afgreiðslutíma yfirvalda, gera raunhæfar og fyrirsjáanlegar kröfur í reglugerðum og halda álögum í lág- marki. Fella niður óþarfa hindranir í öllum hverfum borgarinnar. Aðeins þannig hafa allir jafna möguleika til að blómstra. Blómlegt atvinnulíf í borginni verður nefnilega ekki til af sjálfu sér. Búum til stemningu í borginni, fyrir atvinnurekendur og borgar- búa. Einfalt og fyrirsjáanlegt Eftir Róbert Aron Magnússon » Blómlegt atvinnulíf í borginni verður nefnilega ekki til af sjálfu sér. Róbert Aron Magnússon Höfundur er veitingamaður og býður sig fram í 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. roberticeland@gmail.com Prófkjör Sjálfstæð- isflokksins í Hafnar- firði verður haldið dagana 3. til 5. mars þar sem kosið verður á milli einstaklinga á lista fyrir komandi bæjarstjórnarkosn- ingar í vor. 14 ein- staklingar taka þátt í prófkjörinu, allt hæft fólk með ólíkan bak- grunn sem hefur brennandi áhuga á að efla okkar góða samfélag og leggja sitt af mörkum til þess að Hafnarfjörður verði áfram leiðandi sveitarfélag. Ég er stolt af því að tilheyra þess- um hópi og ég óska eftir stuðningi ykkar í 2.-3. sæti í prófkjörinu. Ég legg með mér reynslu mína sem bæjarfulltrúi þar sem ég hef frá árinu 2014 verið formaður umhverf- is- og framkvæmdaráðs, varafor- maður fjölskylduráðs og frá árinu 2018 fulltrúi í stjórn Strætó bs. fyrir Hafn- arfjörð. Ég hef haft for- ystu um ýmis framfara- mál á liðnum árum og má þar nefna umhverf- ismálin, samgöngur og stíga, betri almennings- samgöngur, uppbygg- ingu íþróttamann- virkja, nýtt hjúkrunarheimili og endurbætur á Sólvangi, frístundastyrk fyrir eldri borgara, nýjan vinnustað fyrir fólk með fötlun á Suðurgötu 14 og fjölgun búsetu- kjarna. Ég hef beitt mér af krafti fyrir því að hagkvæmni sé gætt í út- boðum og þjónustukaupum á vegum sveitarfélagsins með góðum árangri og í störfum mínum sem bæj- arfulltrúi hef ég ávallt lagt áherslu á góða þjónustu við bæjarbúa þar sem jafnræði og góð stjórnsýsla er í önd- vegi og skýr markmið um ábyrgan rekstur og sjálfbærni. Þekking mín úr atvinnulífinu og breiður bakgrunnur hafa komið að góðum notum í störfum mínum sem bæjarfulltrúi og ég hef áhuga á að nýta áfram krafta mína og reynslu fyrir sveitarfélagið okkar. Frá árinu 2013 hef ég sinnt trúnaðarstörfum sem stjórnarmaður í stjórn VR og ég er fulltrúi VR í stjórn Lífeyr- issjóðs verslunarmanna (LIVE) auk þess sem ég starfa sem bókari í hlutastarfi. Ég hvet Hafnfirðinga til þess að taka þátt í prófkjörinu og ég óska eftir stuðningi ykkar til þess að vera í forystusveit Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Eftir Helgu Ingólfsdóttur Helga Ingólfsdóttir »Ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi og ég óska eftir stuðningi ykkar í 2.-3. sæti í prófkjörinu. Höfundur er bókari og bæjarfulltrúi. helgai@hafnarfjordur.is Hafnfirðingar – veljum öfluga forystu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.