Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Hraunið í Geldingadölum er ekki kólnað en Björn Leví Gunn- arsson pírati er búinn að bera upp fyrirspurn við innviðaráðherra um hvernig „undirbún- ingi og fram- kvæmdum við nýjan flugvöll“ í Hvassa- hrauni miði, og vísar þar til samkomulags ríkis og Reykjavík- urborgar. Einhverjir hafa sjálfsagt haldið að eldgosið og jarð- hræringarnar í ná- grenni Hvassa- hrauns hefðu fært málið af dagskrá, en Björn Leví er ekki þeirrar skoðunar enda telur hann að það þoli enga bið að koma flugvellinum úr Vatnsmýrinni og Landspítalanum í leiðinni frá Hringbraut. - - - Innviðaráðherra svaraði Bergþóri Ólasyni skýrt þegar hann spurði ráðherra í þessum umræðum út í skilyrði í Vatnsmýrinni og vísaði þar til rannsóknar Hollensku geimferða- stofnunarinnar um skert hæfi vall- arins vegna byggðar á Valssvæðinu og mikinn varúðartón sem sleginn væri vegna fyrirhugaðrar byggðar í Skerjafirðinum. - - - Innviðaráðherra sagði alveg skýrt að í samkomulagi ríkis og Reykjavíkur skyldi Reykjavík við- halda sama rekstraröryggi og nú væri á flugvellinum. „Ef Skerja- fjarðarhugmyndirnar raska því, þá þurfa þær einfaldlega að raskast, bíða,“ sagði innviðaráðherra. - - - Samkvæmt þessu er augljóst að ekki getur orðið af fyrirhugaðri byggð í Skerjafirði, enda er vægast sagt erfitt að sjá að hún geti orðið án þess að skaða flugvöllinn, fyrir utan allan annan vanda sem henni mundi fylgja. Björn Leví Gunnarsson Skerjafjarðarhug- myndir komnar á ís STAKSTEINAR Sigurður Ingi Jóhannsson Alþjóðlegi skákmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson náði í sinn annan áfanga að stórmeistaratitli á alþjóð- legu skákmóti sem fór nýlega fram í Serbíu. Vigni vantar einn áfanga til að verða útnefndur stórmeistari. Vignir er kominn með 2492 „lif- andi“ skákstig svo hann þarf að krækja sér í átta skákstig til viðbótar, að því er fram kemur á skak.is. Ná þarf 2.500 skákstigum til að fá nafn- bótina. Vignir gerði örstutt jafntefli í lokaumferðinni í Serbíu og hlaut sjö vinninga í umferðunum níu. Frammistaða hans samsvaraði 2617 skákstigum og hækkar hann um 15 stig fyrir hana. Mótið kemur hins vegar ekki til útreiknings fyrr en 1. apríl nk. Vignir er nú skráður með 2.484 skákstig. Verkefnin hjá Vigni á næstunni eru fyrst og fremst innanlands. Íslands- mót skákfélaga fer fram 3.-6. mars, Kviku Reykjavíkurskákmótið 6.-12. apríl og landsliðsflokkur Skákþings Íslands á Selfossi 21. apríl til 1. maí. Væntanlega mun hann tefla á mótum erlendis síðar á árinu. Vignir Vatnar, sem er nýorðinn 19 ára, náði 1. áfanganum að stórmeist- aratitli um síðustu áramót, þegar hann vann glæsilegan sigur á skák- móti á Írlandi. Hann varð alþjóðlegur meistari í fyrrasumar. sisi@mbl.is Náði öðrum stórmeistaraáfanga - Vignir Vatnar nálgast óðfluga 2.500 skákstiga takmarkið - Átta stig vantar Morgunblaðið/Kjartan Briem Skákmeistari Vignir Vatnar hefur verið sigursæll að undanförnu. Umferðin á hringveginum dróst sam- an um 16,4% í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og hefur aldrei á þess- um árstíma dregist jafn mikið saman. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Vegagerðarinnar. „Hér munar mest um samdrátt í umferð um Hellisheiði sem kemur ekki á óvart miðað við veðurfar og þar af leiðandi óvenjutíðar lokanir það sem af er ári,“ segir þar. Umferð dróst saman í öllum lands- hlutum og mest yfir teljarasnið á Suð- urlandi (20%) en minnst um Austur- land (4%). Um mælisnið á Hellisheiði mældist 35% samdráttur og hafa aldrei fyrr sést aðrar eins samdrátt- artölur þar. Umferð á hringvegi hefur dregist saman um rúm 11% frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári. „Aldrei áður hefur umferð dregist jafn mikið saman og í tveimur fyrstu mánuðum ársins þótt covid og banka- hrunið sé tekið með. Þetta er lang- mesti samdráttur sem mælst hefur miðað við árstíma, en hann er tæp- lega tvisvar sinnum meiri en eldra samdráttarmet,“ segir Vegagerðin. sisi@mbl.is Ótíðin hefur mikil áhrif á bílaumferð - Á Hellisheiði var 35% samdráttur Ljósmynd/Magnús Ásmundsson Hellisheiðin Algeng sjón í febrúarmánuði. Tugir bíla sátu fastir í sköflum. Viltu láta sumarhúsið vinna fyrir þig? Við höfum yfir 20 ára reynslu í útleigu sumarhúsa á Íslandi til traustra erlendra ferðamanna. Við gerum það eins einfalt og áreynslulaust og mögulegt er fyrir eigendur að leigja út sumarhúsið sitt. Við bjóðum persónulega ráðgjöf, frábært samstarf og hnökralausa útleigu á húsinu þínu. Kynntu þér málið nánar á viator.is/eigendur Við sjáum um öll samskipti við gesti Öflug markaðssetning á erlendum mörkuðum Það kostar ekkert að vera á skrá Grensásvegur 5, 108 Reykjavík info@viator.isViator 544 8990 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.