Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 ✝ Guðmundur Örn fæddist í Reykjavík 5. júní 1961. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 15. febrúar 2022. Guðmundur var sonur Flosa Gunn- arssonar skip- stjóra, f. 24. ágúst 1933, d. 26. maí 1990, og Margrét- ar Helgu Jóhannsdóttur leik- konu, f. 4. maí 1940. Alsystir Guðmundar er Jak- obína Flosadóttir, f. 12. októ- ber 1962. Hálfbróðir Guð- mundar sammæðra er Valur Jóhann Vífilsson, f. 2. sept- ember 1956, og hálfsystur hans samfeðra eru Anna Lilja Flosa- dóttir, f. 1. júlí 1974, og Rósa Dögg Flosadóttir, f. 26. nóv- ember 1975. Guðmundur eignaðist Andra Fannar Guðmundsson, f. 11. maí 1981, d. 6. janúar 2015, með Birnu Hauksdóttur. Eig- hann flutti aftur til Reykjavík- ur með móður sinni, systur og móðurömmu. Hann gekk í Austurbæjarskóla og síðar Menntaskólann á Ísafirði. Eftir stutta viðkomu í lagadeild Há- skóla Íslands fór Guðmundur á sjó með föður sínum og stund- aði síðan sjómennsku til ársins 2015 þegar hann þurfti að hætta heilsu sinnar vegna. Eft- ir það stundaði hann margs konar bóklegt nám og stefndi á vinnu í landi með tíð og tíma. Guðmundur og Busadee bjuggu í Keflavík ásamt sonum sínum þremur og líkaði vel. Þau voru samhent hjón og ferðuðust víða og voru dugleg að heimsækja ættingja Busadee í Taílandi, sem og margvíslegar ferðir innanlands og utan. Guðmund- ur hafði mikinn áhuga á lax- veiði og stundaði hana mikið með vinum og fjölskyldu, en hann var einnig vel að sér í þjóðmálum og bókmenntum og hafði síðustu árin áhuga á bíl- um og fór mikið utan vegna þess áhugamáls. Útför Guðmundar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 3. mars 2022, kl. 13. Hlekkir á streymi: https://tinyurl.com/2p8c2tkm https://www.mbl.is/andlat inkona Andra var Sara Sturludóttir og eignuðust þau tvö börn; Alex, f. 2008, og Kristrúnu Elmu, f. 2012. Guðmundur eignaðist dæturnar Fjólu Dröfn og Margréti Helgu 14. nóvember 1984 með Unu Þóreyju Sigurðardóttur og ólust þær upp á Akureyri. Fjóla Dröfn er gift Vali Þór Kristjánssyni, f. 24. janúar 1980, og eiga þau tvö börn; Þóreyju Lilju, f. 2018, og Bjarka Þór, f. 2021. Þann 2. nóvember árið 2000 giftist Guðmundur Busadee Phoonsawat, f. 9. október 1970. Þau eiga þrjá syni: Helga Nar- in, f. 12. mars 1991, Ólaf, f. 12. janúar 1996, og Flosa Gunnar, f. 13. september 2003. Guðmundur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Mos- fellssveit til 8 ára aldurs þegar Elsku pabbi. Svartur leðurjakki, kókópuffs í morgunmat, skrítnar mjólkur- fernur og kötturinn Tómas sitja sterkt í æskuminningunum úr rauða húsinu á Bergstaðastræt- inu. Þú varst töffari og Reykjavík- urheimsóknirnar voru ævintýri fyrir litlar stelpur. Það var alltaf gaman því þannig varst þú, vildir hafa alla glaða og ánægða. Síðan urðum við unglingar og þú kynnt- ist henni elsku Rung þinni sem tók krökkunum þínum þremur svo vel, og á nokkrum árum vor- um við orðin 6 systkini með flókna tengingasögu en samt svo týpíska. Það var svo fallegt að sjá þig loks- ins blómstra í fjölskylduhlutverk- inu, þú varst svo stoltur af strák- unum ykkar og heimsóknirnar til Keflavíkur voru matarævintýri og góðar stundir þar sem þú lékst á als oddi og allir voru glaðir eins og þú vildir hafa það. Því þannig varstu, hress og kátur og vildir allt fyrir alla gera. En þú fórst allt of snöggt og allt of fljótt. Og það er svo sárt. Það er sárt að hafa ekki getað kvatt þig. Það er sárt að hafa ekki fengið fleiri stundir með þér og það er sárt að þú fáir ekki að fylgjast með barnabörn- unum vaxa úr grasi því þú elskaðir afahlutverkið. Það er huggandi í sorginni að vita af ykkur Andra aftur saman og við munum hugsa til þín með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar, brandarana og gleðina, góða matinn og alla ástina sem þú hafðir að gefa. Og pössum það að barnabörnin fái að heyra sögur af Gumma afa því minning þín mun svo sannarlega lifa. Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin. Mundu, að það er stutt hver stundin, stopult jarðneskt yndi þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Elsku pabbi, takk fyrir allt og góða ferð. Þínar dætur, Fjóla Dröfn og Margrét Helga. Í dag kveðjum við elsku Gumma bróður, mág og frænda, sem hefur skyndilega kvatt þessa jarðvist og siglt inn í sólarlagið. Margs er að minnast á kveðju- stundu sem er eftirlifandi ástvin- um þungbær. Við Gummi bróðir vorum sam- feðra og hann var elstur okkar í hópi fjögurra samfeðra systkina. Gummi átti einnig einn bróður sammæðra eins og við yngri syst- urnar móðurmegin. Þrátt fyrir ólík systkinatengsl og að við höf- um ekki alist upp öll saman var alltaf góður andi í hópnum þegar við hittumst, virðing borin fyrir tengingunni og væntumþykja ríkjandi. Með útgerðar- og sjómanns- genin úr föðurfjölskyldunni kom ekki á óvart að sjómennskan í ýmsum myndum yrði aðalævist- arf Gumma bróður. Gummi stund- aði um tíma sjóinn með pabba á bátnum hans en síðar hjá fleiri út- gerðum þar til hann varð frá að hverfa vegna vinnuslyss. Gummi bróðir var einstakur maður sem verður best lýst sem miklum öðlingi og ljúfmenni. Gummi var harðduglegur, skarp- greindur og mjög talnaglöggur enda vissi hann alltaf hvað allt kostaði, nánast upp á krónu. Það kom sér vel þegar hann var kokk- ur á sjónum og keypti inn fyrir út- gerðina, en ekki síst í bílaviðskipt- unum erlendis hin síðari ár þar sem Gummi sótti sér glæsilega bíla og vissi upp á hár hversu góð viðskiptin voru. Gummi var orð- heppinn, skemmtilegur og hnytt- inn og það var gaman að hlusta á sögurnar hans. Hann fylgdist vel með þjóðfélagsmálum og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Gummi var mikill veiðimaður og var duglegur að fara í veiði með fjölskyldunni eða góðum vinum. Hann hafði einnig mikinn áhuga á íþróttum eins og fótbolta og körfubolta og leiddist ekki að ræða úrslit leikja, hvort sem það var í enska boltanum eða í körfuboltanum innanlands. Gummi hafði mjög fallegt hjartalag sem endurspeglaðist á svo marga vegu en sértaklega í góðvild hans til barnanna í fjöl- skyldunni sem mátu hann líka mikils. Áhugi hans var alltaf ein- lægur þegar hann spurði þau út í námið eða áhugamálin og hann var alltaf rausnarlegur í gjöfum til þeirra eins og annarra. Gummi var mikill fjölskyldumaður sem var óendanlega stoltur af börnun- um sínum og barnabörnum. Hann var frábær kokkur og mikill höfð- ingi heim að sækja. Hann og Busadee áttu fallegt heimili í Reykjanesbæ og héldu þau hjónin ófáar glæsilegar veislur þar. Það er sárt að hugsa til þess að Gummi muni ekki standa oftar í dyrunum í Hátúninu að taka á móti gestum, enginn plokkfiskur í sparibúningi, rækjur í majó eða aðrir sérréttir hans sem fengu iðulega að fljóta með á kantinum ásamt öðrum ljúffengum veitingum. Þótt sam- verustundirnar hefðu eflaust mátt vera fleiri þá munu fallegar minn- ingar um Gumma bróður, mág og frænda, ylja þegar sorgin knýr að dyrum. Fyrir samverustundirnar og hlýjuna í okkar garð verðum við ævinlega þakklát. Ég þakka Gumma bróður sam- fylgdina í gegnum lífið og votta Margréti Helgu móður hans, Busadee eiginkonu hans, börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum hugheila samúð. Minningin um yndislega Gumma mun lifa í hjört- um okkar um ókomna tíð. Rósa Dögg Flosadóttir og fjölskylda. Vinátta okkar Gumma hafði staðið í fjóra áratugi þegar hann lést, óvænt og langt um aldur fram. Við hittumst örfáum dögum áður – í Hátúninu heima hjá hon- um – þar sem hann bauð upp á kaffi og tók bílinn minn í fóstur ásamt því að skutla mér upp á flugvöll eins og hann gerði oft. Þegar við kvöddumst fyrir utan flugstöðina sagði Gummi: „Ég skal sækja þig, en ég kæri mig ekki um neitt kóvid-vesen svo það verður ekkert knúsast þegar þú kemur heim aftur.“ Við kynntumst haustið 1982 og það var gaman að kynnast Gumma. Fyrstu árin lágu leiðir okkar mest saman, vináttan óx og það er óhætt að segja að við höfð- um umtalsverð áhrif á líf hvor annars. Minningarnar steyma fram, núna þegar söknuðurinn tekur við og sorgin litar dagana sínum föla lit. Gummi gerðist sjómaður og hann kynnti mig fyrir dragnóta- veiðum í Faxaflóa á báti föður síns, Guðbjörginni, þar sem Gummi var kokkur. Það var eft- irminnilegt að standa við hlið hans og gera að kola því handfljótari kúttari fyrirfannst trúlega ekki í íslenska flotanum. Það var heldur ekki leiðinlegt að fá að njóta hæfi- leika Gumma í matseld og ógleymanleg er kvöldstundin þar sem hann bauð gestum til kvöld- verðar á heimili okkar Grétu á Ægisíðunni og tókst að nota öll áhöldin í eldhúsinu. Gummi var hlýr maður, greind- ur og skemmtilegur, hláturmildur og húmorískur með afbrigðum. Það var aldrei leiðinleg stund þeg- ar hann var nálægt. Hann gat vissulega verið meinhæðinn en hræddist á sama tíma ekki að gera góðlátlegt grín að sjálfum sér. „Ég er byrjaður að safna hári,“ skrifaði hann okkur eitt sinn og bætti við: „Ég geymi það í greið- unni!“ Sambandið okkar á milli rofn- aði aldrei þótt með árunum liði stundum lengri tími á milli þess sem við höfðum tök á að hittast. Og það var lán að eiga með Gumma þessa síðustu stund því hún skerpir myndina af honum eins og ég ætla að muna hann. Við Gréta færum ástvinum og fjölskyldu Gumma okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Kristján Kristjánsson. Eftir stutt veikindi hefur kær vinur minn, Guðmundur Örn Flosason, kvatt lífið, alltof snemma. Fallegan haustdag 1977 flutti ég inn á heimavist Menntaskólans á Ísafirði. Múraður eftir sjó- mennsku sumarsins bjó ég að ný- keyptum hljómflutningsgræjum og plötukassa. Ég setti strax plötu á fóninn og „blastaði“ nýútkom- inni plötu Boney M. Stuttu síðar var bankað; strýhærður, freknótt- ur rauðhaus sem náði vart and- anum af hneykslun tilkynnti mér að barnalega óþroskaður tónlist- arsmekkur minn væri tortúr af verstu gerð gagnvart siðmennt- uðu fólki og því ætti ég vinsam- lega að reyna að hemja græjuna og ekki kvelja viðkvæmar hlustir þroskaðra fólks á næstu herbergj- um. Frá þessum fyrstu kynnum okkar Gumma gat leiðin aðeins legið upp á við. Og það gerði hún svo sannar- lega. Við Gummi vorum ekki sam- an í bekk, en lífið á heimavistinni bauð upp á mikla samveru hóps- ins, sem slípaðist fljótt og vel. Við skemmtum okkur saman, mikið var spjallað og við tefldum og spil- uðum, ekki síst í bridge nýttist vel hans óbrigðula minni og athygl- isgáfa. Gummi var glaðlyndur og hafði skarpa og góðlátlega kímni- gáfu sem naut sín vel í fjörugum samræðum um tilveruna og lífs- gátuna. Eftir samveruna á heima- vistinni í nokkur örstutt, skemmtileg ár skildu eðlilega leið- ir og flaug hver í sína áttina. Um áratug síðar kom ég aftur heim eftir útlandadvöl og fyrir atbeina karma rákumst við Gummi saman á förnum vegi. Það var líkt og við hefðum síðast hist daginn áður og síðan hefur vináttan bara styrkst, í meðvindi og mótvindi, gleði og sorg. Gummi var lengi sjómaður og þegar hann heyrði að sjávarút- vegsfræðingurinn ég hefði ekki migið í saltan sjó um langt árabil bauð hann mér í róður með sér og skipsfélögum sínum, sem var sér- deilis ánægjuleg upplifun í góðum félagsskap. Eins og iðulega fór ég heim með úrvalssoðningu. Báðir vel giftir höfum við löngum fengið leyfi til að vera áfram strákar og farið árlega eða oftar í stangveiði- ferðir, þar sem við höfum veitt furðanlega, sem og kynnst lítt þekktum hliðum á sjálfum okkur eins og ómældri þolinmæði og áð- ur óþekktu úthaldi í að berja á líf- litlu vatni. Gummi sá um maðkana og rækjusamlokurnar, ég var far- þeginn. Og þegar hann sá, löngu á undan mér, að rafmagn væri framtíðin í bílum fórum við, að hans frumkvæði, saman til Þýska- lands, nutum samverunnar og keyptum okkur splunkunýja bíla. Gummi var enn ungur í anda, ástfanginn af lífinu og yndislegu konunni sinni, mannvænlegu börnunum sínum og barnabörn- unum, en þótt heilsan hafi vissu- lega verið farin að stríða honum var hann alls ekkert á leiðinni að deyja. En enginn ræður sínum næturstað og eftir sitjum við hin, slegin og sorgmædd. Við búum þó að því að vera ríkari en áður af ást, vináttu og hlýju einstaks og góðs drengs. Margar góðar og kærar minningar munu lifa áfram með okkur og vonandi með tímanum mýkja sorgina. Öllum ástvinum Gumma, hjartkærri eiginkonu hans, elskuðum börnum, barna- börnum, systkinum, móður og vinum sendum við Hrefna og fjöl- skyldan öll innilegar samúðar- kveðjur. Kristján Þ. Davíðsson. Vinátta sem myndast á ung- lingsárum varir stundum ævi- langt. Slík vinátta getur verið jafn djúp þótt samskiptin minnki með árunum. Þannig var vinskapur okkar Guðmundar Arnar Flosa- sonar. Hann var einn litríkasti skóla- bróðir minn í menntaskóla. Við vorum samt aðeins skólabræður í einn vetur. Þetta var í fyrsta bekk í Menntaskólanum á Ísafirði. Við bjuggum á heimavistinni ásamt öðrum ungmennum. Þetta var skemmtilegur vetur með fjörugu og lífsglöðu fólki. Samt færði ég mig um set eftir þennan vetur og lauk menntaskólanámi í Reykja- vík. Guðmundur lauk sínu menntaskólanámi á Ísafirði. Eftir þennan vetur vorum við Guð- mundur öðru hvoru í sambandi, þó að oft liði langur tími á milli. Guðmundur skar sig strax úr í fjörlegum nemendahópnum. Hann var óvenjulegur meðal ann- ars vegna þess hve snöggur hann var til svars og vel hann svaraði fyrir sig. Hann gat líka verið fynd- inn. Svo var hann óvenjuhrað- mæltur, þannig að maður gat þurft að hafa sig allan við að fylgj- ast með því sem hann sagði, til að missa ekki af neinu, líka vegna þess að það sem hann sagði var oft óvænt og birti nýja sýn á málin. Það gat verið gaman að hlusta á hann segja frá hugðarefnum sín- um, til dæmis hafði hann sérlega þroskaðan tónlistarsmekk og tjáði skoðanir sínar um þau efni á af- gerandi og oft aðdáunarverðan hátt. Þegar maður var einhvers staðar með Guðmundi hlustaði maður oftast vel á það sem hann hafði til málanna að leggja. En kannski var annað einkenni á Guðmundi sem olli því að manni þótti strax vænt um hann. Guð- mundur var nefnilega í senn bæði töffari og harðjaxl og um leið við- kvæmur maður sem var furðu ófeiminn að viðurkenna veikleika sína. Við hinir vorum líklega flest- ir ragari við að viðurkenna veik- leika okkar, bæði fyrir sjálfum okkur og öðrum. Þessa hlið sýndi Guðmundur af sér alla þá tíð sem við þekktumst og vakti mig oft til umhugsunar með því. Sumt fólk sem maður kynnist vel á lífsleiðinni hefur til að bera einhverja eiginleika sem maður getur verið að læra af og dást að áratugum saman, þrátt fyrir að maður sjái þessa aðdáunarverðu eiginleika kannski sjaldnast nema við hversdagslegar aðstæður. Þannig voru kynni mín af Guð- mundi. Fyrir fáeinum árum fékk ég að fara með þeim skólabræðrum mínum frá Ísafirði, Guðmundi og Kristjáni Davíðssyni, í laxveiði í Eystri-Rangá. Þetta er í eina skiptið sem ég hef reynt að veiða lax. Við gistum í sumarhúsi Krist- jáns en Guðmundur hafði lagt til nesti. Gaman var þegar Guð- mundur dró veitingar upp úr pússi sínu, þar á meðal sérlagað rækjusalat. Guðmundur var góð- ur kokkur og hafði afdráttarlaus- ar skoðanir á slíkum efnum ekki síður en tónlist og kunni að búa til rækjusalat eins og það á að vera. Veiðin gekk ekki vel hjá okkur, þó að þessir tveir væru alvanir laxveiðimenn. Það kom ekki á óvart að Guðmundur væri mikill keppnismaður í laxveiði eins og í öðru. Og honum tókst á endanum að verða aflakóngurinn í leiðangr- inum með því að veiða eina laxinn sem við náðum.Mitt framlag í málinu var að grípa fiskiháfinn og beita honum með góðri leiðsögn veiðimannsins þegar kom að því að landa aflanum. Rétt áður en kóvid-farsóttin fór að herja á landsmenn hittumst við nokkrir skólafélagar á kaffihúsi og ætluðum svo að halda áfram að hittast þannig öðru hvoru til að ræða málin. Því miður truflaði far- sóttin illa þau áform. Á dögunum hringdi svo okkar sameiginlegi vinur, Kristján Davíðsson, í mig og sagði mér að Guðmundur hefði farið skyndilega á sjúkrahús dag- inn áður og svo dáið nú um morg- uninn. Það voru óvæntar og sorg- legar fréttir. Ég vil senda ástvinum Guðmundar, eiginkonu, börnum, barnabörnum, móður og systkinum innilegar samúðar- kveðjur. Þorbergur Þórsson. Guðmundur Örn Flosason Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLGRÍMUR JÓNSSON frá Laxamýri, verður jarðsunginn fimmtudaginn 3. mars í Laugarneskirkju klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað. Sveinbjörg Hallgrímsdóttir Ásgerður Hallgrímsdóttir Ingunn Elín Hróbjartsdóttir Jóna Hróbjartsdóttir Elín Margrét Hallgrímsdóttir Álfhildur Hallgrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.