Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 55
✝
Páll Ólafsson
fæddist 25.
nóvember 1935 í
Reykjavík. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ 19.
febrúar 2022.
Foreldrar Páls
voru Ólafur Páls-
son sundkennari,
f. 16.10. 1898, d.
23.1. 1981 og
Jústa Sigurðardóttir, f. 19.7.
1902, d. 23.8. 1995. Systur Páls
eru Sigríður húsmóðir, f. 25.8.
1934 og Helga hjúkrunarfræð-
ingur, f. 23.1. 1940.
Páll kvæntist 24.3. 1962
Þuríði Jónu Guðjónsdóttur, f.
2.2. 1936, fyrrv. stjórnarráðs-
fulltrúa. Foreldrar hennar
voru Matthea Jónsdóttir, f. 1.9.
1908, d. 5.9. 1978 og Guðjón
Guðbjörnsson, f. 4.5. 1897, d.
8.1. 1976, skipstjóri. Börn Páls
og Þuríðar eru: 1) Ólafur
Steinn, f. 26.8. 1962, doktor í
klínískri sálfræði, kona hans
er Marcia Elaine Walker, f.
14.9. 1968, markaðsfræðingur.
2) Helga Rún, f. 29.6. 1964,
klæðskerameistari og bún-
ingahönnuður, maki Alfreð
Sturla Böðvarsson, f. 27.2.
1961, heimspekingur og ljósa-
hönnuður. Synir þeirra eru
undirbúningi virkjunar í
Gvatemala á vegum Elektro-
watt Eng. Co Int., hjá Ístaki
við byggingu Vatnsfellsveitu,
við námavinnslu í Marmorilik
á Grænlandi og hjá Lands-
virkjun við byggingu Sigöldu-
og Hrauneyjafossvirkjunar.
Frá árinu 1985 var hann fram-
kvæmdastjóri Byggingadeildar
Landsvirkjunar og sá þá um
byggingu Blönduvirkjunar,
Sultartangastíflu og gerð
Kvíslaveitna, o.fl. Hann var
ráðgjafi fyrir danska fyrir-
tækið Kamphil við hafnar-
framkvæmdir í Dar es Salaam
í Tansaníu 1993-1994 og leiddi
alþjóðlegan sérfræðingahóp
fyrir Harza Eng. Co. Int. við
byggingu Tian Huan Ping-
dæluvirkjunar í Austur-Kína
1994-1997. Frá 1997 var Páll
ráðgjafi Landsvirkjunar, m.a.
við byggingu Vatnsfellsvirkj-
unar og undirbúning
Kárahnjúkavirkjunar. Við
starfslok hjá Landsvirkjun árið
2000 stofnaði hann ásamt öðr-
um ráðgjafarfyrirtækið ProF-
iTec ehf., en seldi það 2012.
Páll var félagslyndur og var
m.a. í Rótary, skákklúbbi,
bridgeklúbbi, gönguhópi, vina-
hópi sundfélaga og árgangs
MR-55, fél. eldri verkfræðinga,
Ferðaklúbbnum Eddu og
Ferðaklúbbi MIT-félaga.
Útförin fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 3. mars
2022,klukkan 13.
Andri Páll, f. 29.9.
1995, verkfræð-
ingur, unnusta
hans er Kristín
Björg Bergþórs-
dóttir, f. 18.10.
1995, stærðfræð-
ingur og Atli Geir,
f. 29.2. 2000, fata-
hönnuður. 3) Matt-
hías Geir, f. 31.5.
1966, doktor í lög-
fræði, kvæntur
Berglindi Laufeyju Ingadóttur,
f 29.12. 1973, mann-
auðsfræðingi. Dætur þeirra
eru Matthea Katrín, f. 9.1.
2010 og María Rún, f. 13.7.
2012.
Páll stundaði nám í Laug-
arnesskóla, varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1955, lauk byggingarverkfræði
1960 frá Tækniháskólanum í
Karlsruhe í Þýskalandi og
stjórnunarnámi 1983 við MIT-
háskólann í Cambridge í USA.
Stærstan hluta starfsævi
sinnar sinnti Páll stjórn-
unarstörfum við virkjana-
framkvæmdir. Frá 1961-1970
starfaði hann fyrst hjá Verk-
legum framkvæmdum og síðan
Harza Eng. Co. Int. við und-
irbúning og eftirlit með bygg-
ingu Búrfellsvirkjunar. Á ár-
unum 1970-1984 vann hann að
Það var mikil blessun að eiga
Pál Ólafsson sem föður. Hann var
ákaflega góður, traustur, stuðn-
ingsríkur og velviljaður faðir og
afi. Hann fylgdist alla tíð með
heimsfréttum, var áskrifandi að
Time, Spiegel og National Geog-
raphy, fróður og vel lesinn. Hann
hélt dagbækur alla tíð og ef mað-
ur mundi ekki eitthvert ártal eða
atburð gat maður alltaf flett upp í
pabba. Hann var ákaflega fé-
lagslyndur og naut þess að hitta
fólk og spjalla, þekkti ótrúlega
margt fólk og var mannglöggur
mjög. Þau mamma, Þuríður Guð-
jónsdóttir, gerðu alla hluti saman
árin 60 sem þau voru gift, byggðu
húsið sitt á Kleppsveginum, ólu
upp þrjú börn og ferðuðust um
allan heim. En á þeim var þó sá
munur að pabbi sagði alltaf já við
öllu sem við börnin báðum um!
Hann var alltaf til í að gera eitt-
hvað skemmtilegt og í æsku
minni leyfði hann okkur börnun-
um ótrúlega margt, hvort sem um
var að ræða sjóróðra á uppblásn-
um kanó í Sundahöfn þegar ég
var 11-12 ára, skotæfingar með
rifflum í fjörunni við Klepp, að
synda út í eyju í sumarleyfi, kaup
á skellinöðru 15 ára o.s.frv. Frá
fyrsta degi ferðuðust þau
mamma með okkur hvert sem
þau fóru, innanlands sem utan.
Og það var víða, því pabbi vissi
fátt skemmtilegra en að ferðast
og skoða Ísland og heiminn.
Hann var góður félagi í útivist,
veiðiferðum og á skíðum, naut
þess að vera úti við og ég heyrði
hann aldrei kvarta undan veðri.
Hann lærði verkfræði í Karls-
ruhe í Þýskalandi beint eftir stúd-
entspróf, en vann síðan lengst af
við byggingu virkjana hjá Lands-
virkjun á Íslandi. Einnig vann
hann um tíma við námagröft á
Grænlandi, virkjanagerð í Gvate-
mala, hafnargerð í Tansaníu og
eftirlit með virkjanagerð í Kína
og á Íslandi. Sögurnar af öllu því
sem hann hafði lent í og séð voru
ævintýralegar og hann sagði
skemmtilega frá.
Hann lagði mikla áherslu á að
við börnin næðum okkar í góða
menntun og þau mamma studdu
okkur heilshugar í því. Hann var
alltaf ráðagóður og tilbúinn að að-
stoða og jafnvel þegar ég heim-
sótti hann í janúar sl. rúmliggj-
andi á hjúkrunarheimili spurði
hann mig eins og hann alltaf
gerði: „Er eitthvað sem ég get
gert fyrir þig, Matti minn?“ Þótt
líkaminn hafi verið farinn að gefa
sig síðustu mánuðina var andinn
óbugaður, í síðasta skipti sem ég
hitti hann var hann að plana að
þau mamma kæmu til mín og fjöl-
skyldu minnar í Róm á Ítalíu í
vor.
Elsku pabbi minn, það var gott
að eiga þig sem föður. Góðar
minningar sitja eftir og ást okkar
Berglindar, Mattheu Katrínar og
Maríu Rúnar fylgir þér í þitt
hinsta ferðalag.
Matthías G. Pálsson.
Ég hitti Pál Ólafsson fyrst þeg-
ar ég var að gera hosur mínar
grænar fyrir einkadóttur hans,
Helgu Rún, fyrir hartnær þrjátíu
árum. Hann spurði auðvitað
hverra manna maður væri og
kannaðist við föður minn, bygg-
ingameistarann, enda var Páll
meistari bygginganna á hálend-
inu, staðarverkfræðingur Lands-
virkjunar í Búrfelli, Sigöldu,
Hrauneyjafossi og fleiri virkjun-
um. Við Helga Rún höfðum verið
samtíma í námi í London, án þess
að hittast nokkurn tímann, en
hnutum hvort um annað í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Páll og Þur-
íður tóku mér afar vel og maður
var alltaf velkominn á Kleppsveg-
inum.
Eldri sonur okkar Helgu Rún-
ar kom í heiminn þegar Páll var í
Kína að smíða stíflu, en þegar
hann kom heim eftir þriggja ára
útlegð urðu fagnaðarfundir með
Páli og Andra Páli, og hafist var
handa við að ala upp fyrsta
barnabarnið með þeirri alúð og
eftirtektarsemi sem hann sýndi
öllum sínum fjórum barnabörn-
um. Við Helga Rún vorum vinnu-
söm á þessum árum og Palli tók
að sér að kenna barninu að lesa
og reikna, en einkaritarinn Þur-
íður sá held ég meira um skrift-
ina.
Palli var afskaplega þolinmóð-
ur og natinn kennari og dreng-
urinn varð fluglæs á skömmum
tíma. Hann hafði óskaplega gam-
an af því að hafa strákinn með sér
að dunda í bílskúrnum, og nokkr-
um árum síðar bættist annar
drengur í hópinn, og var hann
ekki lengi að fá inngöngu í bíl-
skúrsbandið. Eins og strákarnir
sögðu alltaf, þá átti amma bara
húsið, en afi bílskúrinn. Í bíl-
skúrnum var lögð stund á ýmsar
hagnýtar greinar, svo sem vopna-
smíð og annað því skylt, eins og
vafalaust í fleiri slíkum skúrum á
þessum tímum, og þar var lagður
grunnur að handverksmenntun
strákanna. Palli kenndi þeim á
hin ýmsu verkfæri og fór með þá
ófáar ferðirnar í efnisöflun og
verkfærakaup. Svo hélt sú
menntun áfram á saumastofu
mömmunnar, með þeim árangri
að sá eldri varð verkfræðingur,
eins og afi hans, og sá yngri
ílengdist á saumastofunni, og er
að klára nám í fatahönnun í LHÍ í
vor.
Páll og Þuríður voru einstak-
lega víðförul og við Helga Rún og
strákarnir vorum svo lánsöm að
fara með þeim nokkar ferðir, þar
á meðal skemmtilega ferð til
Gvatemala árið 2006, þar sem þau
höfðu búið 35 árum áður þegar til
stóð að stífla Tikal-vatnið, en ekk-
ert varð úr og fjölskyldan náði
með naumindum að komast til Ís-
lands í miðri byltingu. Páll var
alltaf vel undirbúinn fyrir slík
ferðalög, með bækur og kort, og
skrifaði allt hjá sér í vasabækurn-
ar. Palli var fyrst og fremst mikill
fjölskyldumaður sem lét sér annt
um allt sitt fólk, nær og fjær, og
vildi allt fyrir alla gera. Ég veit að
strákarnir okkar munu sárt
sakna afa síns, sem var svo stór
hluti af þeirra uppvexti, og ég
þakka fyrir að hafa kynnst þess-
um mikla öðlingi.
Alfreð Sturla Böðvarsson.
Við höfum báðir lært margt frá
afa okkar, allt frá því að kenna
okkur að lesa yfir í að smíða boga
og örvar til þess að skjóta í trén í
garðinum. Við minnumst helst
stundanna í bílskúrnum, þar sem
við baukuðum tímunum saman
við alls kyns verkefni. Amma var
okkur innan handar með mjólk og
kex þótt hún hafi ekki mátt vera í
bílskúrnum, því eins og Andri
sagði eitt sinn: „Afi á bílskúrinn,
en amma á bara húsið.“ Þó fylgdi
baukinu oft örlítil hætta sem for-
eldrar okkar voru ekki jafn
spennt fyrir. Eitt sinn þegar þau
komu að sækja okkur í pössun á
Kleppsveginn vorum við báðir
uppi á þaki því afi hafði fengið
okkur til að hjálpa sér við að
hreinsa rennurnar. Eitt sumarið
fékk Atli það hlutverk að hjálpa
afa að slá grasið og fékk fyrir það
Zippo-kveikjara að launum. Ekki
skildum við hvers vegna launin
voru bensínkveikjari því Atli var
aðeins 12 ára gamall en þennan
kveikjara á hann enn þá sem
nýttist vel á áramótum þegar afi
keypti allar þær sprengjur sem
okkur strákana langaði í.
Afi var alla tíð góður vinur
okkar bræðra. Þegar við vorum
yngri las afi gamlar kúrekasögur
fyrir okkur þar sem við lágum í
handakrikanum hans, þolinmæði
hans fyrir tveimur orkuríkum
strákum var í raun ótrúleg og fyr-
ir vikið eigum við óteljandi góðar
minningar með honum. Við áttum
margar góðar stundir í golfi, veiði
og á ferðalögum bæði innanlands
og utan. Þar má nefna sólarlanda-
ferðir þar sem afi varð alltaf
kakóbrúnn á tveimur dögum en
auk þess heimsóttum við fram-
andi staði eins og Guatemala þar
sem amma og afi höfðu eitt sinn
búið.
Hann studdi okkur báða ávallt
við allt það sem við tókum okkur
fyrir hendur, jafnvel þótt Atli hafi
ákveðið að stunda nám við
listaháskóla í fatahönnun sem afi
skildi stundum misvel hvað gengi
út á. Afi var Andra mikil fyrir-
mynd sem verkfræðingur og við
bræður litum mikið upp til hans
starfa og allra þeirra spennandi
verkefna sem hann fékkst við.
Við minnumst afa með hlýju í
hjarta en við misstum mikinn vin
okkar. Við erum heppnir að hafa
átt einstaklega góðan afa og
þakklátir fyrir allar þær stundir
sem við áttum með honum.
Andri Páll og Atli Geir
Alfreðssynir.
Allrar veraldar vegur
víkur að sama punkt.
(Hallgrímur Pétursson)
Leiðir okkar Páls Ólafssonar
lágu saman er við settumst í
Menntaskólann í Reykjavík
haustið 1951. Náin vinátta fá-
einna bekkjarbræðra þar tók á
sig mót skömmu eftir námslok
með mánaðarlegum samfundum
að vetri sem eiginkonur okkar
höfðu amstur af til skiptis. Yfir-
varpið var að grípa í skák, en um-
fram allt hittumst við til að fylgj-
ast hver með öðrum, spyrja
tíðinda, svala forvitni, skiptast á
skoðunum og njóta samveru.
Páll reyndist mikill tiltekta-
smiður í okkar hópi. Þar er fyrst
að minnast árlegra sumarferða
um forvitnilegar og stundum af-
skekktar slóðir víða um land, upp
til jökla og út til eyja. Annars
háttar og strjálli voru skíðaferðir
til Alpalanda á útmánuðum og
stöku reisur að sumri eða hausti
um lönd og höf í suðri og vestri.
Ógleymanlegt varð vetrarkvöld í
Austurríki þegar Páll gerði konu
sinni dagamun á stórafmæli. Úti
fyrir hóteli okkar biðu þá hvítir
fákar spenntir fyrir æki og fluttu
gesti við bjölluklið að hnýsilegum
sögustað úti í sveit þar sem boðið
var til málsverðar. Páll var stór í
broti þegar hann vildi gera stund-
ina minnilega.
Ekki er það síst til upprifjunar
að um langt árabil var það háttur
okkar vinahjóna að hreyfa okkur
árdegis á sunnudögum út fyrir
þéttbýlið. Minnisstæður er til
dæmis sá helgarmorgunn er við
Páll og konur okkar hittumst í
slíkri veðurblíðu að ekkert veitti
löngun okkar viðnám annað en
sjálft Akrafjall sem blasti við aug-
um. Þar beið okkar um miðdeg-
isbil það heiða víðerni sem við
minntumst æ síðan.
Páll átti annríkt í vandasömum
störfum sínum og var ötull til
verka, að auki félagslyndur í
besta lagi. Hann naut mikillar
gæfu heima fyrir. Þau Þuríður
kona hans bjuggu við mikið
barnalán. Sambúð þeirra mótað-
ist af eindrægni og gagnkvæmri
umhyggju. Vegna verkgleði Páls
lagði Þuríður það eitt sinn til
gamanmála að hún hefði staðið á
bremsu í þrjátíu ár. – Þau Páll og
Þuríður fögnuðu gestum alúðlega
í fallegu húsi sínu. Af listmunum
þeirra mátti marka hve Páll hafði
víða farið og verið kvaddur til
verka. Hann dvaldist um tíma og
starfaði að verklegum fram-
kvæmdum í þremur álfum utan
Evrópu.
Á næstliðnum árum höfum við
Páll átt skjól í íbúðum aldraðra í
Mörk. Þau hjón stunduðu lengst
af þá heilsurækt að þau hófu ekki
dagsverk sitt fyrr en að loknu
morgunsundi. Páll var alinn upp á
laugarbarmi, af ætt frækinna
sund frömuða. Því var það raun
að fylgjast með dvínandi lífsgleði
hans undir hið síðasta. Í vetur
hafði hann ráðgert að halda með
fjölskyldu sinni í sólarátt, en þeg-
ar að því kom gripu forlögin í
tauma; honum var búin önnur för.
Í því bræðralagi sem hér var
nefnt vorum við níu sambekking-
ar. Sex okkar lifa Pál og fimm eig-
inkonur auk Þuríðar. Við sendum
henni og hennar fólki einlægar
samúðarkveðjur og þökkum
langa og gjöfula fylgd. Blessuð sé
minning okkar góða vegbróður.
Ólafur Pálmason.
Páll Ólafsson
MINNINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR SVEINSSON,
Hrafnkelsstöðum I,
Hrunamannahreppi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
23. febrúar. Útförin fer fram frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn
5. mars og hefst klukkan 13. Streymt verður á slóð
www.skalholt.is/vidburdir. Hlekk á streymi má nálgast á
www.mbl.is/andlat.
Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir
Helgi Sigurður Haraldsson Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Ingólfur Haraldsson Rutt Brattaberg Jacobsen
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐBJÖRN KRISTJÁNSSON
matreiðslumeistari,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
9. febrúar.
Útförin hefur farið fram að ósk hins látna.
Kristín Ósk Óskarsdóttir
Kristjana Friðbjörnsdóttir
Óskar Friðbjörnsson Sigurbára Sigurðardóttir
Anna Kristín Magnúsdóttir Helgi Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, mamma okkar,
amma okkar og systir,
SOLVEIG LILJA SÖEBECH
ÓLADÓTTIR,
Árskógum 5,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum 27. febrúar.
Útförin fer fram í Langholtskirkju mánudaginn 7. mars
klukkan 11. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki MND-deildar
Droplaugarstaða fyrir mikla alúð og hlýtt viðmót.
Victor G. Cilia
Þorgrímur Óli Victorsson
Halla Þórey Victorsdóttir Daniel Björk
Kjartan E. Victorsson Cilia
systur og barnabörn
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir, mágkona
og frænka,
KRISTÍN MARÍA ÞORSTEINSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum laugardaginn
26. febrúar. Útför fer fram í Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 9. mars klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkað.
Sindri Björn Ákason
Ragnheiður Ósk Ákadóttir
Margrét Ragnheiður Sigurðardóttir
Þorsteinn Valgeir Konráðsson
Konráð Þorsteinsson Ingveldur Rósa Baldursdóttir
Sigurlaug A. Þorsteinsdóttir Valgeir Ólafsson
Sigurður Gísli Þorsteinsson Valgerður Una Sigurvinsdóttir
og systkinabörn
Besti maðurinn minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
JÓHANN HANNÓ JÓHANNSSON,
Snorrabraut 35 A,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
fimmtudaginn 24. febrúar. Útförin hans
fer fram í Digraneskirkju mánudaginn 7. mars klukkan 13.
Svanhildur Óskarsdóttir
Kristján Orri Elfa Rut
Jóhanna Davíð
Brynja Brynjar Þór
Elvar Orri
Andreas