Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 69
MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Þ egar farþegar setjast um borð í flugvél eru þeir vilj- ugir að leggja líf sitt í hendur ókunnugra. Far- þegarnir treysta því að öryggi þeirra sé tryggt en í kapítalísku samfélagi þar sem peningar vega hærra en mannslíf er raunin ef til vill önnur. Fallið: Málið gegn Boeing, nú á Netflix, rannsakar flugslysin tvö á Max-vélum Boeing, viðbrögðin við slysunum og afhjúpar um leið nei- kvæða þróun fyrirtækisins sem olli þessum slysum. Þann 29. október árið 2018 hrap- aði indónesíska Lion Air-flugvélin 610 að því er virðist án ástæðu og lét- ust allir um borð. Flugslysið vakti óhug um allan heim en hörmung- unum var ekki lokið. Fimm mán- uðum síðar, 10. mars árið 2019, hrap- aði Ethiopian Airlines-flug 302 sex mínútum eftir flugtak með sömu af- leiðingum og fyrra slysið. Báðar flugvélarnar voru Boeing 737 sem vakti skiljanlega áhyggjur margra um öryggi þessara véla. Boeing lýsti ekki yfir ábyrgð heldur fór í alls- herjar auglýsingaherferð til þess að þagga niður allan grun um þátt fyrir- tækisins í flugslysunum. Í báðum til- fellum kenndi Boeing flugmönn- unum um slysin og mikil áhersla var lögð á þjóðerni þeirra í orðræðunni. Síðar kom í ljós að fjárhagslegur nið- urskurður Boeing varð til þess að flugvélarnar hröpuðu af himninum. Til þess að keppa við evrópska flug- geimferðafyrirtækið Airbus krafðist Boeing þess við eftirlitsaðila FAA að flugmenn 737 MAX þyrftu ekki við- bótarþjálfun fyrir flugmenn því það þýddi aukakostnað. Flugmennirnir flugu því flugvélum sem innihéldu glænýtt kerfi sem kallast MCAS sem þeir vissu hvorki af né voru þjálfaðir fyrir auk þess sem hönnun Max-flugvélanna var gölluð og slysin því óumflýjanleg. Rory Kennedy kemur ofan- greindum upplýsingum til skila á einfaldan og skýran máta á góðum hraða í gegnum myndina. Flestar upplýsingarnar eru fengnar í gegn- um viðtöl við fólk tengt málinu en meðal viðmælenda eru Andy Pasztor rannsóknarblaðamaður, þingmað- urinn Peter DeFazio, starfandi flug- menn, fyrrum starfsmenn Boeing og einstaklingar sem misstu ástvini í slysunum. Til þess að styrkja mynd- ina eru svo upptökur og raunveruleg myndskeið notuð. Fallið: Málið gegn Boeing er að mörgu leyti mjög hefð- bundin heimildarmynd en það sem Kennedy gerir mjög vel er að fanga hið gullna millistig milli þess að mata áhorfendur með upplýsingum og hins vegar að vekja tilfinningar hjá áhorfendum með því að sýna hvað aðstandendur fórnarlambanna þurftu að þola. Kennedy reynir þar af leiðandi ekki að kreista fram ein- hverjar tilfinningar heldur eru stað- reyndirnar nógu góðar til þess kalla fram sterk viðbrögð hjá áhorf- endum. Það sem er hins vegar áhugaverð- ast við myndina er hvernig Kennedy dregur fram undirrót þessara ham- fara. Flugslysin eru ekki orsök mannlegra mistaka heldur afleiðing þeirrar þróunar sem fyrirtækið Bo- eing hefur meðvitað tekið síðustu ár eða síðan fyrirtækið sameinaðist McDonnell Douglas árið 1997. Í kjöl- farið breyttist stefna fyrirtækisins frá því að gæta hagsmuna starfs- manna og kúnna þess yfir í að í fjár- magna sem mest á stuttum tíma. Mikilvæg öryggisstörf voru skorin niður í nafni gróðans og þeir efstu hættu að hlusta á sérfræðingana. Þessi nýja fyrirtækjamenning Bo- eing átti eftir að verða fyrirtækinu að falli, eða hvað? Kennedy stendur sig frábærlega í að kynna staðreyndir málsins en bætir litlu við núverandi umræðu. Eflaust á orðið „fall“ því ekki við í titli myndarinnar þar sem Boeing hlaut engar afgerandi afleiðingar og ekkert bendir til þess að Boeing hafi breytt fyrirtækjamenningunni. Bo- eing samþykkti að borga 2,5 millj- arða dala í sektir og skaðabætur og gat þannig forðast saksóknir. For- stjórinn Dennis Muilenburg sagði einnig af sér í kjölfar „slysanna“ en það gerði hann upp á 62 milljónir dollara. Það sem Kennedy gerir með Fall- ið: Málið gegn Boeing er að nota Bo- eing sem dæmi um skaðlegar afleið- ingar kapítalisma en ómögulegt er að svipta hulunni af neikvæðum hlið- um kapítalisma í 90 mínútna langri heimildarmynd. Myndin gefur hins vegar góða innsýn í hvað fór úrskeið- is með Max-flugvélarnar og hvaða hlutverki ný fyrirtækjamenning í kapítalísku samfélagi gegnir. Afleiðingar auðvaldsskipulags Flugslys „Kennedy stendur sig frábærlega í að kynna staðreyndir málsins en bætir litlu við núverandi umræðu.“ Netflix Downfall: The Case Against Boeing / Fallið: Málið gegn Boeing bbbnn Leikstjórn: Rory Kennedy. Handrit: Mark Bailey og Keven McAlester. Bandaríkin, 2022. 89 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Samkomulag við Evrópsku kvik- myndaakademíuna um Evrópsku kvikmyndaverðlaunin var undir- ritað í Höfða í gær. Vegna heims- faraldurs kórónuveirunnar var Evrópsku kvikmyndaverðlaun- unum 2020 frestað, en verðlauna- hátíðin átti að vera í Hörpu. Í gær var undirritaður samningur for- stjóra akademíunnar og fulltrúa ríkisins og Reykjavíkurborgar, um að hún fari þar fram 10. desember. Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu og varð Reykjavík nú fyrir valinu. Gert er ráð fyrir hátt í 1.200 gestum á verð- launahátíðina sjálfa víða að úr Evr- ópu auk þess sem von er á um tvö hundruð erlendum blaðamönnum. Stuðningur við hátíðina er meðal annars í takt við Kvikmyndastefnu Íslands þar sem lögð er áhersla á miðlun og stuðning við viðburði sem þennan. Bein útsending verður frá verðlaunakvöldinu í Hörpu. „Þetta er geysilega spennandi tækifæri fyrir íslenska kvikmynda- menningu og kvikmyndageirann hér á landi og við munum nýta það vel, viðburðurinn mun að auki skapa umtalsverðar gjaldeyris- tekjur,“ er í tilkynningu haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur menning- ar- og viðskiptaráðherra. AFP Merkisviðburður Frá afhendingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Berlín í desember síðastliðnum. Verðlaun afhent í Hörpu - Evrópsku kvik- myndaverðlaunin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.