Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Stærði: 27-35 11.196.- / 13.995.- Vnr.: E-711722 Stærði: 27-35 11.196.- / 13.995.- Vnr.: E-711722 Stærði: 36-42 19.996.- / 24.995.- Vnr.: E-209713 Stærði: 41-46 14.396.- / 17.995.- Vnr.: E-820194 Stærði: 36-42 19.996.- / 24.995.- Vnr.: E-209713 Stærði: 36-42 14.396.- / 17.995.- Vnr.: E-820193 Stærðir: 36-42 15.996.- / 19.995.- Vnr.: E-820223 tær r: - 17.596.- / 21.995.- Vnr.: E-811274 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS -20% AF ÖLLUM ECCO SKÓM KRINGLUKAST - KAUPHLAUP Rúmlega hundrað manns voru handteknir í St. Pétursborg og Moskvu vegna mótmæla gegn stríð- inu í Úkraínu í gærkvöldi eftir að stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hvatti Rússa til þess að mótmæla Úkraínustríðinu á hverj- um einasta degi. Sagði Navalní að þjóðin ætti ekki að vera „þjóð hræddra hugleysingja“ og kallaði hann Vladimír Pútín Rússlands- forseta „brjálaðan lítinn keisara“. „Ég hvet alla til að halda út á göt- urnar og berjast fyrir friði,“ sagði Navalní í yfirlýsingu sinni, sem birt var á Facebook. Sagði hann að Rússar ættu ekki að vera hræddir við að fara í fangelsi. „Ef við þurfum að fylla fangelsin og lögreglubílana til að koma í veg fyrir stríð, munum við fylla upp fangelsin og lögreglu- bílana,“ sagði Navalní. Sagði Na- valní að fólk ætti að mótmæla klukk- an 19 á virkum dögum og kl. 14 um helgar. Þúsundir Rússa hafa mót- mælt stríðinu frá því að það hófst fyrir viku, en OVD-Info, óháður eft- irlitsaðili, áætlar að rúmlega 7.000 manns hafi verið handteknir í Rúss- landi fyrir að mótmæla. Lögreglan í Sankti Pétursborg leysti upp mótmælin þar með mikilli hörku, og handtók hún um 100 mót- mælendur. Þá lokaði lögreglan í Moskvu Rauða torginu og handtók að minnsta kosti sjö manns. Bjóða mæðrum að sækja synina Af þeim fjarskiptum rússneskra hermanna, sem náðst hefur að hlera, má ráða að mörgum þeirra hafi ekki verið sagt að þeir ættu að ráðast inn í Úkraínu. Þá hafa birst á sam- félagsmiðlum upptökur af hermönn- um sem hafa lagt niður vopn, og hafa þeir í mörgum tilfellum verið ungir og óreyndir hermenn, sem töldu sig hafa átt að taka þátt í her- æfingum. Varnarmálaráðuneyti Úkraínu bauð í gær rússneskum mæðrum að sækja þá syni sína sem hefðu gefist upp, svo fremi að þær kæmu sjálfar til Kænugarðs að sækja þá. Áður hafði ráðuneytið sett upp sérstakan upplýsingasíma, þar sem rússneskir foreldrar gætu hringt og kannað hvort synir þeirra væru meðal þeirra sem hefðu fallið eða verið teknir höndum. AFP Mótmæli Lögreglumenn í Moskvu fjarlægja mótmælanda gegn stríðinu, en rúmlega 100 voru handteknir í gær. Navalní hvetur Rússa til að mótmæla á hverjum degi - Rúmlega 100 handteknir í stærstu borgum Rússlands Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússar hertu enn árásir sínar á helstu borgir Úkraínu í gær, þar á meðal Kænugarð og Karkív. Var hart barist um Karkív, þar sem fallhlífarhermenn Rússa gerðu áhlaup á borgina í fyrri- nótt og reyndu að hertaka mikilvæga staði. Anton Gerastsjenkó, ráðgjafi innan- ríkisráðherra Úkraínu, sagði í gær við fjölmiðla að það væri nær enginn blett- ur í Karkív, sem Rússar hefðu ekki skotið á, en þeir hafa látið stýriflaug- um, eldflaugum og fallbyssukúlum rigna yfir borgina. Rússar sögðust í gær hafa hertekið hafnarborgina Kerson og er það fyrsta stórborgin í Úkraínu sem þeir hafa náð á sitt vald, en vika er nú liðin frá upp- hafi innrásarinnar. Igor Nikolajev, borgarstjóri Kerson, þar sem um 290.000 manns búa, sagði þær fregnir hins vegar rangar, en að borgin væri enn undir umsátri. Bað hann um leyfi til þess að flytja hinu látnu og særðu frá borginni og að fá matvæli og lyf inn í hana, því að annars myndi borgin deyja. Þá var hart barist um hafnarborgina Maríupol, sem Rússar og rússnesku- mælandi aðskilnaðarsinnar úr Do- netsk-héraði sitja nú um. Vadím Bojtsjenkó borgarstjóri sagði í gær að Rússar hefðu gert linnulitla stórskota- hríð á borgina í 14 klukkustundir og valdið „stórkostlegum skaða“ á henni. „Það eru margir særðir og því miður margir óbreyttir borgarar fallnir, kon- ur, börn, gamalmenni,“ sagði Bojtsj- enkó. Þá hefðu Rússar komið í veg fyr- ir að óbreyttir borgarar gætu sloppið undan árásunum með því að rjúfa lest- arteina og sprengja lestarvagna í borg- inni. „Þannig að verkefni þeirra er að gereyða okkur, þeir hafa engan áhuga á að hjálpa óbreyttum borgurum.“ Ræða vopnahlé á ný Sendinefndir Rússa og Úkraínu- manna ætla að hittast á ný í dag og ræða möguleikann á vopnahléi, en ólík- legt er talið að það muni ganga eftir. Fór sendinefnd Úkraínumanna að fundarstaðnum í gærkvöldi, en hann á að vera á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Dmitró Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði í gær að landið myndi ekki samþykkja neina afarkosti frá Rússum. Sergei Lavrov, utanríkisráð- herra Rússa, sagði hins vegar fyrr um daginn að markmið Rússa væri enn „afvopnun“ Úkraínu, og setti fram lista af vopnum sem aldrei mætti setja upp á úkraínskri grund. Hann sagði einnig að Rússar viðurkenndu þó rétt Úkra- ínumanna til að velja sér eigin leiðtoga, og að Rússar viðurkenndu að Volodi- mír Selenskí væri forseti landsins. Rússar hafa undanfarna daga sent sérstakar aftökusveitir til Kænugarðs til að ráða Selenskí af dögum, en Úkra- ínumenn segja að þeir hafi náð að fella þær. Innrás Rússa „hörmuð“ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti á neyðarfundi sínu í gær ályktun, þar sem innrás Rússa í Úkra- ínu var hörmuð og þess krafist að þeir yfirgæfu landið tafarlaust. Þá var ákvörðun Pútíns Rússlandsforseta um að setja kjarnorkuherafla landsins á hærra viðbúnaðarstig fordæmd. Ályktunin var samþykkt með mikl- um meirihluta, en 141 af 193 aðildar- ríkjum SÞ samþykkti hana. Einungis fimm ríki greiddu atkvæði gegn álykt- uninni, Rússland, Hvíta-Rússland, Eri- trea, Norður-Kórea og Sýrland. Kjarnorkuveldin Kína, Indland og Pakistan voru hins vegar öll meðal þeirra 35 ríkja sem sátu hjá. Sergí Kislitsja, sendiherra Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði að til- gangur innrásarinnar væri að svipta Úkraínu tilverurétti sínum. „Það er þegar ljóst að markmið Rússlands er ekki bara herseta. Það er þjóðarmorð.“ Yfirlýsingar stangast á Varnarmálaráðuneyti Rússlands lýsti því yfir í gær að 498 rússneskir hermenn hefðu fallið í innrásinni til þessa og 1.597 til viðbótar særst. Er það heldur lægra en Úkraínumenn hafa sagt, en þeir segjast hafa fellt rúmlega 5.840 rússneska hermenn. Þá sögðu Rússar að þeir hefðu fellt rúmlega 2.870 hermenn Úkraínuhers og sært um 3.700, en Úkraína hefur ekki gefið upp eigið mannfall. Vestræn ríki, þar á meðal Bretland, hafa hins vegar áætlað að Rússar hafi mátt þola töluvert mannfall í innrásinni til þessa. Þá lýstu almannavarnir Úkraínu því yfir í gær að rúmlega 2.000 óbreyttir borgarar hefðu fallið í innrásinni til þessa, en Sameinuðu þjóðirnar hafa einungis getað staðfest um 350 andlát meðal þeirra. Líklegt væri þó að mann- fallið væri enn meira. Harðir bardagar um helstu borgir - Vika liðin frá innrás Rússa í Úkraínu - Barist um Karkív, Kerson og Maríupol - Rússar segjast hafa náð Kerson á sitt vald - Allsherjarþing SÞ krefst þess að Rússar yfirgefi Úkraínu tafarlaust AFP Stríðshörmungar Þessi úkraínska fjölskylda leitaði sér skjóls í neðan- jarðarlestarstöð í Kænugarði, sem breytt hefur verið í sprengjuskýli. Stríð í Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.