Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Stærði: 27-35
11.196.- / 13.995.-
Vnr.: E-711722
Stærði: 27-35
11.196.- / 13.995.-
Vnr.: E-711722
Stærði: 36-42
19.996.- / 24.995.-
Vnr.: E-209713
Stærði: 41-46
14.396.- / 17.995.-
Vnr.: E-820194
Stærði: 36-42
19.996.- / 24.995.-
Vnr.: E-209713
Stærði: 36-42
14.396.- / 17.995.-
Vnr.: E-820193
Stærðir: 36-42
15.996.- / 19.995.-
Vnr.: E-820223
tær r: -
17.596.- / 21.995.-
Vnr.: E-811274
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
-20%
AF ÖLLUM ECCO SKÓM
KRINGLUKAST - KAUPHLAUP
Rúmlega hundrað manns voru
handteknir í St. Pétursborg og
Moskvu vegna mótmæla gegn stríð-
inu í Úkraínu í gærkvöldi eftir að
stjórnarandstæðingurinn Alexei
Navalní hvatti Rússa til þess að
mótmæla Úkraínustríðinu á hverj-
um einasta degi. Sagði Navalní að
þjóðin ætti ekki að vera „þjóð
hræddra hugleysingja“ og kallaði
hann Vladimír Pútín Rússlands-
forseta „brjálaðan lítinn keisara“.
„Ég hvet alla til að halda út á göt-
urnar og berjast fyrir friði,“ sagði
Navalní í yfirlýsingu sinni, sem birt
var á Facebook. Sagði hann að
Rússar ættu ekki að vera hræddir
við að fara í fangelsi. „Ef við þurfum
að fylla fangelsin og lögreglubílana
til að koma í veg fyrir stríð, munum
við fylla upp fangelsin og lögreglu-
bílana,“ sagði Navalní. Sagði Na-
valní að fólk ætti að mótmæla klukk-
an 19 á virkum dögum og kl. 14 um
helgar. Þúsundir Rússa hafa mót-
mælt stríðinu frá því að það hófst
fyrir viku, en OVD-Info, óháður eft-
irlitsaðili, áætlar að rúmlega 7.000
manns hafi verið handteknir í Rúss-
landi fyrir að mótmæla.
Lögreglan í Sankti Pétursborg
leysti upp mótmælin þar með mikilli
hörku, og handtók hún um 100 mót-
mælendur. Þá lokaði lögreglan í
Moskvu Rauða torginu og handtók
að minnsta kosti sjö manns.
Bjóða mæðrum að sækja synina
Af þeim fjarskiptum rússneskra
hermanna, sem náðst hefur að hlera,
má ráða að mörgum þeirra hafi ekki
verið sagt að þeir ættu að ráðast inn
í Úkraínu. Þá hafa birst á sam-
félagsmiðlum upptökur af hermönn-
um sem hafa lagt niður vopn, og
hafa þeir í mörgum tilfellum verið
ungir og óreyndir hermenn, sem
töldu sig hafa átt að taka þátt í her-
æfingum.
Varnarmálaráðuneyti Úkraínu
bauð í gær rússneskum mæðrum að
sækja þá syni sína sem hefðu gefist
upp, svo fremi að þær kæmu sjálfar
til Kænugarðs að sækja þá. Áður
hafði ráðuneytið sett upp sérstakan
upplýsingasíma, þar sem rússneskir
foreldrar gætu hringt og kannað
hvort synir þeirra væru meðal
þeirra sem hefðu fallið eða verið
teknir höndum.
AFP
Mótmæli Lögreglumenn í Moskvu fjarlægja mótmælanda gegn stríðinu, en rúmlega 100 voru handteknir í gær.
Navalní hvetur Rússa til að
mótmæla á hverjum degi
- Rúmlega 100 handteknir í stærstu borgum Rússlands
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rússar hertu enn árásir sínar á helstu
borgir Úkraínu í gær, þar á meðal
Kænugarð og Karkív. Var hart barist
um Karkív, þar sem fallhlífarhermenn
Rússa gerðu áhlaup á borgina í fyrri-
nótt og reyndu að hertaka mikilvæga
staði.
Anton Gerastsjenkó, ráðgjafi innan-
ríkisráðherra Úkraínu, sagði í gær við
fjölmiðla að það væri nær enginn blett-
ur í Karkív, sem Rússar hefðu ekki
skotið á, en þeir hafa látið stýriflaug-
um, eldflaugum og fallbyssukúlum
rigna yfir borgina.
Rússar sögðust í gær hafa hertekið
hafnarborgina Kerson og er það fyrsta
stórborgin í Úkraínu sem þeir hafa náð
á sitt vald, en vika er nú liðin frá upp-
hafi innrásarinnar. Igor Nikolajev,
borgarstjóri Kerson, þar sem um
290.000 manns búa, sagði þær fregnir
hins vegar rangar, en að borgin væri
enn undir umsátri. Bað hann um leyfi
til þess að flytja hinu látnu og særðu
frá borginni og að fá matvæli og lyf inn
í hana, því að annars myndi borgin
deyja.
Þá var hart barist um hafnarborgina
Maríupol, sem Rússar og rússnesku-
mælandi aðskilnaðarsinnar úr Do-
netsk-héraði sitja nú um. Vadím
Bojtsjenkó borgarstjóri sagði í gær að
Rússar hefðu gert linnulitla stórskota-
hríð á borgina í 14 klukkustundir og
valdið „stórkostlegum skaða“ á henni.
„Það eru margir særðir og því miður
margir óbreyttir borgarar fallnir, kon-
ur, börn, gamalmenni,“ sagði Bojtsj-
enkó. Þá hefðu Rússar komið í veg fyr-
ir að óbreyttir borgarar gætu sloppið
undan árásunum með því að rjúfa lest-
arteina og sprengja lestarvagna í borg-
inni. „Þannig að verkefni þeirra er að
gereyða okkur, þeir hafa engan áhuga
á að hjálpa óbreyttum borgurum.“
Ræða vopnahlé á ný
Sendinefndir Rússa og Úkraínu-
manna ætla að hittast á ný í dag og
ræða möguleikann á vopnahléi, en ólík-
legt er talið að það muni ganga eftir.
Fór sendinefnd Úkraínumanna að
fundarstaðnum í gærkvöldi, en hann á
að vera á landamærum Póllands og
Hvíta-Rússlands.
Dmitró Kuleba, utanríkisráðherra
Úkraínu, sagði í gær að landið myndi
ekki samþykkja neina afarkosti frá
Rússum. Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússa, sagði hins vegar fyrr um
daginn að markmið Rússa væri enn
„afvopnun“ Úkraínu, og setti fram lista
af vopnum sem aldrei mætti setja upp
á úkraínskri grund. Hann sagði einnig
að Rússar viðurkenndu þó rétt Úkra-
ínumanna til að velja sér eigin leiðtoga,
og að Rússar viðurkenndu að Volodi-
mír Selenskí væri forseti landsins.
Rússar hafa undanfarna daga sent
sérstakar aftökusveitir til Kænugarðs
til að ráða Selenskí af dögum, en Úkra-
ínumenn segja að þeir hafi náð að fella
þær.
Innrás Rússa „hörmuð“
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
samþykkti á neyðarfundi sínu í gær
ályktun, þar sem innrás Rússa í Úkra-
ínu var hörmuð og þess krafist að þeir
yfirgæfu landið tafarlaust. Þá var
ákvörðun Pútíns Rússlandsforseta um
að setja kjarnorkuherafla landsins á
hærra viðbúnaðarstig fordæmd.
Ályktunin var samþykkt með mikl-
um meirihluta, en 141 af 193 aðildar-
ríkjum SÞ samþykkti hana. Einungis
fimm ríki greiddu atkvæði gegn álykt-
uninni, Rússland, Hvíta-Rússland, Eri-
trea, Norður-Kórea og Sýrland.
Kjarnorkuveldin Kína, Indland og
Pakistan voru hins vegar öll meðal
þeirra 35 ríkja sem sátu hjá.
Sergí Kislitsja, sendiherra Úkraínu
hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði að til-
gangur innrásarinnar væri að svipta
Úkraínu tilverurétti sínum. „Það er
þegar ljóst að markmið Rússlands er
ekki bara herseta. Það er þjóðarmorð.“
Yfirlýsingar stangast á
Varnarmálaráðuneyti Rússlands
lýsti því yfir í gær að 498 rússneskir
hermenn hefðu fallið í innrásinni til
þessa og 1.597 til viðbótar særst. Er
það heldur lægra en Úkraínumenn
hafa sagt, en þeir segjast hafa fellt
rúmlega 5.840 rússneska hermenn.
Þá sögðu Rússar að þeir hefðu fellt
rúmlega 2.870 hermenn Úkraínuhers
og sært um 3.700, en Úkraína hefur
ekki gefið upp eigið mannfall. Vestræn
ríki, þar á meðal Bretland, hafa hins
vegar áætlað að Rússar hafi mátt þola
töluvert mannfall í innrásinni til þessa.
Þá lýstu almannavarnir Úkraínu því
yfir í gær að rúmlega 2.000 óbreyttir
borgarar hefðu fallið í innrásinni til
þessa, en Sameinuðu þjóðirnar hafa
einungis getað staðfest um 350 andlát
meðal þeirra. Líklegt væri þó að mann-
fallið væri enn meira.
Harðir bardagar um helstu borgir
- Vika liðin frá innrás Rússa í Úkraínu - Barist um Karkív, Kerson og Maríupol - Rússar segjast
hafa náð Kerson á sitt vald - Allsherjarþing SÞ krefst þess að Rússar yfirgefi Úkraínu tafarlaust
AFP
Stríðshörmungar Þessi úkraínska fjölskylda leitaði sér skjóls í neðan-
jarðarlestarstöð í Kænugarði, sem breytt hefur verið í sprengjuskýli.
Stríð í Evrópu