Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 15-30% afsláttur af völdum vörum KAUPHLAUP 2.-7. MARS KRINGLUKAST 3.-7. MARS -15% -30% DUKA.IS Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Alls voru tilkynnt sjóatvik til Tryggingastofnunar og/eða Sjúkratrygginga 108 talsins á síð- asta ári og hafa ekki verið færri frá því að skráningar hófust árið 1966, en það ár var tilkynnt um 286 atvik, að því er fram kemur í upplýsingum frá Samgöngustofu. Sjóatvik voru í fyrra tæplega 30% færri 2021 en árið 2020 þegar þau voru 153 og voru þau 227 árið 2019. Árið 1989 hafði tíðni slysa meira en tvöfaldast frá því að skráningar voru teknar upp og er það árið sem fjöldi tilkynntra atvika var mestur, alls 631 talsins. Vekur at- hygli að tilvikum tók að fækka fá- einum árum eftir að Slysavarna- skóli sjómanna var stofnaður 1985. Töluverð viðhorfsbreyting hefur orðið frá þeim tíma og hefur sjóatvikum fækkað jafnt og þétt – að árunum 2002 og 2007 undan- teknum, en þá varð skyndileg og ör fjölgun atvika sem dalaði þó ár- in á eftir. Þá var 2021 fimmta árið í röð sem enginn lést á sjó. Árvekni sjómanna að þakka „Það er afar ánægjulegt að slys- um fækki og að enn eitt árið skuli enginn hafa farist á sjó. Árang- urinn á undanförnum árum er ekki síst að þakka árvekni sjómanna og aukinni vitund um mikilvægi ör- yggismála. Þar leikur Slysavarna- skóli sjómanna lykilhlutverk,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdótt- ir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er hún er innt álits á þróun fjölda slysa. Hún segir sjávarútvegsfyrir- tækin hafa tekið öryggismálin föstum tökum og vekur einnig at- hygli á að fjárfestingar í nýjum skipum hafi skilað betri aðbúnaði og starfsumhverfi á sjó. „Svo vil ég einnig nefna fiskveiðistjórnun- arkerfið. Áður fyrr þurftu menn kannski að fara út í misjöfnum veðrum, þegar keppst var um fisk- inn. Nú geta skip hagað sókn eftir aðstæðum. Það er því margt sem skýrir þennan árangur, en fyrst og fremst held ég að það séu skip- verjar sjálfir sem eiga hér stærst- an hlut,“ segir Heirðún Lind. Kostnaður taki að lækka „Við erum afskaplega ánægðir með þessa þróun í slysamálum sjó- fólks. Þó grunar okkur að upp á vanti í skráningu smærri slysa. Alltaf má gera betur og helst þá að engin slys verði til sjós,“ segir Valmundur Valmundsson, formað- ur Sjómannasambands Íslands. „Þegar ákvörðun var tekin um að útrýma banaslysum til sjós voru margir efins um að það væri hægt, alltaf þyrfti að reikna með „afföll- um“ en reyndin er önnur og af hverju ekki í slysamálunum líka? En þróunin er góð. Sjófólk á að geta gengið að því vísu að koma heilt heim frá vinnu sinni. Það er markmið okkar allra sem vinnum að þessum málum,“ segir hann. Valmundur kveðst vona að ár- angurinn verði til þess að trygg- ingakostnaður útgerðarstarfsemi lækki. „Þá minnkar pressan á að starfsfólk þeirra til sjós taki þátt í þeirri tryggingu eins og nú er.“ Áberandi fækkun slysa á sjó - Skráðum sjóatvikum fækkaði um 30% milli ára og voru 108 talsins árið 2021 - Útgerðarmenn og sjómenn fagna þeim árangri sem náðst hefur í öryggismálum sjómanna á undanförnum árum 021* *Tilkynningar um sjóatvik til Tryggingastofnunar og/eða Sjúkratrygginga hófust 1966 Heimild: Samgöngustofa '58 '61 '64 '67 '70 '73 '76 '79 '82 '85 '88 '91 '94 '97 '00 '03 '06 '09 '12 '15 18 '21 7 59 13 27 29 40 15 21 17 22 21 29 12 22 24 31 16 14 13 5 7 18 21 14 5 13 16 7 11 15 2 6 4 10 17 8 4 2 9 5 3 1 3 7 2 2 3 3 4 5 0 1 1 0 4 2 0 1 2 0 0 0 0 0 423 631 227 108 Fjöldi látinna í sjóslysum 286 Fjöldi tilkynntra slysa til TR/ Sjúkratrygginga Heiðrún Lind Marteinsdóttir Valmundur Valmundsson Samgöngustofa stendur að út- gáfu mánaðarlegra veggspjalda undir merkjum 12 hnúta sem hófst í janúar. Veggspjöldin eru til þess gerð að vekja athygli sjó- manna á fyrirbyggjandi aðgerð- um sem vonað er að þeir tileinki sér. „Óhætt er að segja að þetta verkefni hafi fengið mjög góðar viðtökur en fjöldi aðila hefur sameinast í að vekja athygli á því,“ skrifar Einar Magnús Magn- ússon, sérfræðingur á öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, í tölvupósti til blaðamanns. Annað veggspjaldið í 12 spjalda röð kom út í síðasta mánuði og er yfirskrift þess „kæru- og agaleysi“. Einar segir veggspjaldið að þessu sinni fjalla um „fyrirbyggjandi aðgerðir sem sjómenn þurfa að hafa í huga til að koma í veg fyrir að kæru- og agaleysi verði vandamál með til- heyrandi slysahættu. Í þessu sambandi er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að gætt sé hreinlætis, að viður- kenndum verklagsreglum og gátlistum sé fylgt, að öll atvik sem leiða eða leitt geta til slysa séu skráð og að menn treysti ekki á heppnina.“ Vel tekið í veggspjöld FORVARNASTARF Mynd/Samgöngustofa 12 hnútar Veggspjöldin eru gefin út í hverjum mánuði í forvarnaskyni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.