Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 1
Sameinaðirstöndum vér
Lík grafið íLeiruvogi
13. MARS 2022SUNNUDAGUR
Skíðað ítunglskini
Kári Valtýssonsendir frá sérspennusögunaKverkatak. 22
Íslenskirhermenn
Bræðurnir GunnlaugurGeir Júlíusson ogHilmar Þór BjörnssonDurham hafa báðirverið í bandarískahernum. 12
RagnheiðurStefánsdóttirfór Lauga-veginn á göngu-skíðum.18
L A U G A R D A G U R 1 2. M A R S 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 60. tölublað . 110. árgangur .
KÚPULLINN
KOMINN
Á HVOLF ÁTAKALÍNUR Í FJARÐABYGGÐ
KOSNINGAFERÐALAG DAGMÁLA 16-17RÓSA Í ÁSMUNDARSAFNI 42
_ Verður nýr þjóðarleikvangur í
knattspyrnu reistur á félagssvæði
Breiðabliks í Kópavogsdal en ekki í
Laugardalnum í Reykjavík?
„Tíminn er dýrmætur og miðað
við hvernig staðan er í dag hjá rík-
inu og Reykjavíkurborg varðandi
byggingu nýs þjóðarleikvangs telj-
um við að tími sé kominn til að
reyna að leysa það mál á annan
hátt. Við sjáum fyrir okkur að það
væri hægt að reisa þjóðarleikvang í
Kópavogi á næstu fimm árum og
fjármagna hann á annan hátt en
rætt hefur verið um til þessa,“ segir
Gunnar Gylfason, talsmaður hóps
sem stofnaður hefur verið til að
kanna möguleikana á að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd.
Hópurinn stefnir á að ákvörðun
liggi fyrir innan fjögurra mánaða.
»40-41
Völlur Þjóðarleikvangurinn í Lúxemborg
er fyrirmynd verkefnishópsins.
Rís þjóðarleikvang-
ur í Kópavogi?
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
„Úkraínumenn eru sannfærðir um
sigur í þessu stríði. Andspyrna
þeirra hefur komið öllum á óvart –
ekki síst þeim sjálfum – og hún hefur
blásið þeim baráttuanda í brjóst.
Það hefur líka vakið undrun þeirra
að rússneski herinn er ekki eins
óárennilegur og búist var við.“
Þetta segir breski blaðamaðurinn
Tim Judah í samtali við Morgun-
blaðið en hann er staddur í Kænu-
garði.
Hann segir stríðið hafa sameinað
úkraínsku þjóðina. „Auðvitað hafa
margir flúið land, sem er skiljanlegt,
en þeir sem eru eftir vilja upp til
hópa leggja sitt af mörkum til að
freista þess að velgja rússneska
hernum undir uggum og helst flæma
hann á brott. Þúsundir manna hafa
gengið til liðs við hinar nýstofnuðu
varnarsveitir og það er mikill hugur
í mönnum. Það eru ekki síst þessar
sveitir sem hafa komið í veg fyrir að
Úkraína hafi fallið í hendur Pútíns,
vegna þess að þær gera hinum eig-
inlega her kleift að berjast í fremstu
víglínu.“
Judah var á ferð í bænum Irpin á
fimmtudaginn sem skilgreindur hef-
ur verið sem hlið að Kænugarði.
„Í gær var svokölluð „græn braut“
frá Irpin, sem þýðir að fólk gat kom-
ist þaðan óáreitt. Það voru mörg hvít
flögg á lofti. Ég fékk að fara alla leið
að útmörkum þess svæðis sem
Úkraínumenn ráða en þaðan eru að-
eins um 700 metrar að staðnum þar
sem rússneski herinn hefur tekið sér
stöðu. Rússar hafa þurft að hörfa
síðustu daga og ég kom auga á tvo
fallna Rússa í vegkantinum. Það hef-
ur líka verið mannfall í Irpin og ég
sá tvo látna óbreytta borgara þar.“
Nánar er rætt við Tim Judah á
mbl.is, auk þess sem grein eftir hann
birtist í Sunnudagsblaðinu.
Sannfærðir um sigur
- Breski blaðamaðurinn Tim Judah, sem er í Kænugarði, segir mikinn hug í
Úkraínumönnum - Rússneski herinn ekki eins óárennilegur og menn héldu
AFP/Aleksey Filippov
Kveðjustund Úkraínskur hermaður býr sig undir för til Kænugarðs.
Virðisaukinn er farinn út í bláinn!
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.mitsubishi.is/eclipse
Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!*
Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross
PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til.
*Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu.
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
18.-19.mars
Helgi Áss 5. sæti
Spörumsímtölin!
Hittumst frekar á opnun
kosningaskrifstofuminnar
ámorgun frá kl. 15:00-17:00
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð.
Langþráðir tónleikar Damons Albarn fóru fram
í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi eftir að hafa
verið frestað vegna kórónuveirufaraldursins. Í
Hörpu flutti hann ásamt hljómsveit verkið The
Nearer the Fountain, More Pure the Stream
Flows í viðameiri útgáfu en á nýjustu plötu hans
sem kom út fyrr í vetur. Tónleikarnir voru þeir
fyrstu sem Damon heldur á Íslandi eftir að hann
fékk ríkisborgararétt hér. Þeir voru þeir síðustu
á tónleikaferð hans en viðeigandi þótti að henni
lyki hér þar sem verkið var samið í stofunni á
heimili hans í Grafarvogi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Damon Albarn söng fyrir landa sína í Hörpu