Morgunblaðið - 12.03.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 12.03.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is Litríkir dúnjakkar Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Nýtt danskt kjólamerki Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því. Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi, góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja. Ferðaskrifstofa eldri borgara býður sérferð fyrir eldri borgara til Færeyja dagana 27. júní – 1. júlí. Flogið frá Keflavík með Atlantic Airways og gist á hinu glæsilega Hótel Brandan 4* Fararstjóri: Gísli Jafetsson. Innifalið í verði: Flug báðar leiðir frá Keflavík til Færeyja. Gisting á Hótel Brandan 4* í 4 nætur, morgunverður og kvöldverður alla daga. Auk þess skoðunarferðir til Götu, Klaksvíkur, Fuglafjarðar, Gásadals og víðar. Heimsókn í Norðurlandahúsið og einnig að Kirkjubæ þar sem hádegisverður er snæddur í elsta timburhúsi sem búið er í í Evrópu. *Aukagjald fyrir einbýli: 39.500 kr. FÆREYJAR með flugi 27. júní – 1. júlí Sérferð eldri borgara Það er mikil stemning í okkar ferðum Verð kr. 199.000 á mann m.v. gistingu í tvíbýli* Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Hótel Brandan María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Neysla ávaxta hefur minnkað tölu- vert meðal Íslendinga. Þetta kemur fram í nýrri landskönnun landlækn- isembættisins á mataræði Íslendinga 2019-2021. Hólmfríður Þorgeirsdótt- ir, verkefnisstjóri næringar hjá emb- ætti landlæknis, segir mataræði Ís- lendinga hafa bæði þokast nær ráðleggingum um mataræði og fjær þeim eftir því hvaða fæðutegundir og næringarefni verið er að skoða. „Það sem olli vonbrigðum er að ávaxtaneysla hefur minnkað og grænmetisneysla staðið í stað. Þá mætti neysla á heilkornavörum vera meiri,“ segir Hólmfríður en aðeins 2% þátttakenda ná því að neyta 500 gr. af grænmeti og ávöxtum eins og mælt er með. „Hins vegar er jákvætt að neysla á viðbættum sykri minnkar sem og neysla á rauðu kjöti,“ segir Hólmfríður. Neysla á rauðu kjöti hef- ur minnkað um 10% frá síðustu könn- un. Áhrif „ketó“ mataræðis Hólmfríður telur líklegt að breyt- ingar á neyslumynstri Íslendinga stafi að hluta af lágkolvetnamatar- ræðinu eða svokölluðu „ketó“-matar- ræði sem hefur verið áberandi síð- ustu misseri. „Okkur finnst við sjá áhrif af lág- kolvetnamataræðinu sem gæti út- skýrt til dæmis af hverju ávaxta- neyslan minnkar og neysla á mettaðri fitu eykst,“ segir Hólmfríður sem einnig myndi vilja sjá fleiri taka D- vítamín en einungis rétt rúmlega helmingur tekur D-vítamín sem fæðubótarefni eins og ráðlagt er. Drekka sykurlausa gosdrykki Neysla sykraðra drykkja hefur minnkað um 40% en athygli vekur að neysla sykurlausra drykkja og orku- drykkja hefur að sama skapi aukist um fjórðung. „Það er gott að fólk sé að minnka viðbættan sykur en við myndum vilja sjá það færast yfir í neyslu á t.d. kolsýrðum vatnsdrykkj- um. Við mælum almennt ekki með sykurlausum gosdrykkjum,“ segir Hólmfríður. Huga beri að þeim yngri Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að vert sé að huga að yngstu aldurshópum karla og kvenna. Joðneysla er til að mynda minni hjá konum á aldrinum 18-39 ára sem kemur aðallega til vegna minni mjólkurneyslu og lítillar fiskneyslu í þeim hópi. Að könnuninni stóðu embætti landlæknis og Rannsóknarstofa í næringarfræði við heilbrigðisvísinda- svið Háskóla Íslands og náði hún til fólks á aldrinum 18–80 ára. Hliðstæð rannsókn fór síðast fram árið 2010– 2011. Vinsældir „ketó“ hafa sýnileg áhrif á mataræði - Aukin neysla mettaðrar fitu - Færri borða ávexti en áður Morgunblaðið/Golli Neysla Ávextir hafa dalað í vinsældum vegna lágkolvetnamataræðisins. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.