Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is H ér sit ég og hnýti flugur alla daga og sökkvi mér ofan í alls konar pælingar því tengdu,“ segir Sigurður Héðinn, eða Siggi Haugur eins og flestir kalla hann, þar sem hann situr inni í fyrirtæki sínu, Haugnum við Rauðarárstíg. Siggi ætlar að koma á Borgar- bókasafnið í Árbæ og kenna og kynna fluguhnýtingar nk. mánu- dag, 14. mars. Siggi er lands- frægur í fluguveiðibransanum og hefur hannað flugur sem heita Von, Skuggi og Gosi, en þekktust er fluga hans sem ber nafnið Haugur og hann er kenndur við. „Ég býð upp á hnýtinganám- skeið á kvöldin, held meðal annars nördakvöld fyrir lengra komna, fyrir fólk sem er vant að hnýta. Þá förum við á næsta stig, að gera eftirlíkingar úr náttúrunni, en þá búum við til vængina, litum þá og allt er tekið alla leið frá grunni. Á þessum námskeiðum fara oft mikl- ar spekúlasjónir af stað en þá er- um við að herma eftir því sem fiskurinn étur,“ segir Siggi og dregur fram hnýtta fiskiflugu máli sínu til stuðnings. „Í silungsveiði eru notaðar flugur sem líkjast því sem fiskur- inn étur og þá þarf að vera með ótrúlegt úrval af flugum, því fisk- urinn getur verið að éta ólíka fæðu frá einum degi til annars, það fer allt eftir því hvaða fæði áin fram- leiðir hverju sinni. Margir veiði- menn hafa stúderað þetta í áratugi og kunna að lesa í náttúruna.“ Tveir afar ólíkir heimar Siggi segist hafa byrjað held- ur seint að hnýta, þegar hann var 26 ára. „Í raun var það af rælni, þetta bara gerðist í framhaldi af því að ég fór að veiða. Einstök tilfinning fylgir því að veiða á flugur sem maður hefur búið til sjálfur. Flug- an mín, Haugur, er ein af mest seldu flugum í laxveiðinni, en það var heppni að hún virkar svona vel, ég bjó hana til úr haugi af dóti sem var í kringum mig. Sumar flugur eru betri veiðiflugur en aðr- ar flugur, rétt eins og einhver matur er betri en annar. Þetta eru tvær ólíkar kategóríur, flugur fyrir silungsveiði og laxveiði, því laxinn er ekki að éta, eins og silungurinn. Það grær fyrir vélindað á laxinum þegar hann kemur upp í árnar og hjá honum er þetta árásargirni að gleypa flugur. Fyrir vikið heilla allt öðruvísi flugur laxinn, þær eru miklu skrautlegri en silungaflug- urnar sem eru í náttúrulegum lit- um. Þetta eru tveir ólíkir heimar og það gerir þetta svo heillandi. Það er ekkert sem segir að þótt þú sért góður laxveiðimaður þá verðir þú sjálfkrafa góður silungsveiðimaður, og öfugt,“ segir Siggi og bætir við að það sé mjög róandi að hnýta flugur. „Þetta er fullkomin núvitund, af því maður þarf að halda hundr- að prósent einbeitingu við verkið. Þetta er líka mjög skapandi og hjá mér eru alltaf að fæðast nýjar og nýjar hugmyndir að flugum sem ég þarf svo að þróa.“ Frekjan í karlmönnum Siggi segir að kona sé upp- hafsmaður að þessu sporti, flugu- veiði og fluguhnýtingum. „Hún heitir Juliana Berners og var fædd 1388 á Englandi, rit- höfundur, veiðimaður og skjaldar- fræðingur sem gerðist nunna. Hún gaf út fyrstu bók í heimi um flugu- veiði árið 1496 og hún hannaði fyrstu nútímaflugurnar líkar þeim sem við erum að gera í dag. Þetta var mjög merkileg kona sem sagði að góður veiðimaður þyrfti að vera mannvinur, heimspekingur og náttúruunnandi. En frekjan í karl- mönnum yfirtekur allt og þeir gerðu þetta að sínu karlasporti. Konur voru kúgaðar þá, rétt eins og þær eru reyndar margar enn, en ég vil gera mitt til að greiða konum leið. Ég var með fluguhnýt- ingakeppni um daginn og þar hreppti kona fyrsta sætið fyrir mjög fallega púpu, en þau voru jöfn hún og annar karlmaður. Handbragðið var mjög fallegt hjá báðum en ég ákvað að gefa henni aukastig fyrir að vera kona. Okkur vantar fleiri konur á þessu sviði, en núna er sem betur fer vitundar- vakning meðal kvenna í fluguveiði og -hnýtingum og mig langar að vera partur af því með því að hvetja konur til að endurheimta sportið sitt,“ segir Siggi og bætir við að bresk kona, Megan Boyd, sé einn mesti fluguhnýtari sem heim- urinn hefur alið. „Hún var fædd 1915, en hún fæddist á kolröngum tíma því hún passaði ekki í normið. Hún hafði ekki áhuga á að falla inn í þess tíma kvenhlutverk og gekk alltaf í karlmannsfötum og klippti sig stutt. Ég vil að allir fái að vera til á eigin forsendum og ég trúi því að við séum fædd í þennan heim til að vera hamingjusöm,“ segir Siggi sem á nokkur uppáhalds- veiðisvæði, Norðausturlandið, Borgarfjörðinn og Húnavatns- sýslurnar. Karlar stálu fluguveiðinni af konum „Mig langar að vera partur af vitundarvakn- ingu meðal kvenna í fluguveiði og hnýtingum með því að hvetja konur til að endurheimta sport- ið sitt,“ segir Siggi Haug- ur sem ætlar að kenna og kynna fluguhnýtingar í bókasafninu í Árbæ næst- komandi mánudag. Morgunblaðið/Eggert Siggi Haugur „Þetta er fullkomin núvitund, af því maður þarf að halda hundrað prósent einbeitingu.“ Siggi Haugur kemur á Borgar- bókasafnið Árbæ og kennir og kynnir fluguhnýtingar nk. mánu- dag, 14. mars, kl. 17-18. Þar fá gestir að kynnast ýmsum skil- greiningum á laxaflugum, Kubb- um, Long Ving, Long Tail og Túb- um. Aðgangur á viðburðinn er ókeypis og allir eru velkomnir. Haugur Vinsælasta fluga Sigga sem heppni raðaði saman úr réttum litum og efni. Hann bjó hana til úr haugi af dóti á borði. Caddis-fluga Hnýtt af Sigga undir leiðsögn Hrafns Ágústs- sonar, a.k.a. Caddibróðir. Vængur er litað teapokaléreft. Púpa Hér má sjá púpuna sem hreppti fyrsta sæti í púpukeppni en höfundur hennar er kona. Sérlega fallegt handbragð. WWW.ASWEGROW.IS Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Framlagning kjörskráa Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps, sem haldnar verða laugardaginn 26. mars 2022, skulu lagðar fram eigi síðar en 16. mars 2022. Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður. Þeim sem vilja koma að athugasemdum er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Dómsmálaráðuneytinu, 12. mars 2022.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.