Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Sjáumst á fjöllum
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
SUMARLEYFISFERÐIR FÍ
www.fi.is
Marta
Guðjónsdóttir
Verið velkomin í dag í
kosningakaffi kl.15-17
Suðurlandsbraut 22, 3ja hæð
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík
2.
SÆTI Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst
laus til umsóknar eitt embætti dóm-
ara við Landsrétt. Skipað verður í
embættið frá og með 22. september
næstkomandi.
Jón Finnbjörnsson, einn 15 dóm-
ara við réttinn, hefur fengið lausn
frá embætti en hann verður 65 ára
þennan dag. Landsréttur tók til
starfa 1. janúar 2018. Jón hefur
ekki getað sinnt dómstörfum síðan
dómur Mannréttindadómstólsins
féll árið 2019.
Umsóknir eiga að berast dóms-
málaráðuneytinu eigi síðar en 28.
mars. Dómnefnd, sem fjallar um
hæfni umsækjenda um dóm-
arastörf, mun síðan fjalla um um-
sóknirnar. Dómsmálaráðherra
skipar í embættið að fengnu áliti
dómnefndarinnar. Öllum umsókn-
um verður svarað þegar ákvörðun
um skipun liggur fyrir, segir í aug-
lýsingunni. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Dómaraembætti við
Landsrétt auglýst
Prestsvígsla fer fram í Hóladómkirkju næstkomandi sunnudag, þann 13.
mars, kl. 14:00. Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup vígir Eddu
Hlíf Hlífarsdóttur guðfræðing, sem valin hefur verið til þjónustu í Þingeyr-
arklaustursprestakalli.
Vígsluvottar verða sr. Bryndís Valbjarnardóttir, sr. Gísli Gunnarsson, sr.
Sigríður Gunnarsdóttir og sr. Stefanía Steinsdóttir. Sr. Dalla Þórðardóttir,
prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi, lýsir vígslu. Sr.
Halla Rut Stefánsdóttir sóknarprestur á Hólum þjónar fyrir altari.
Organisti er Eyþór Franzson Wechner. Kirkjukórar Þingeyrarklaust-
ursprestakalls syngja. Boðið er til messukaffis á Kaffi Hólum eftir athöfn.
Prestsvígsla í Hóladómkirkju á sunnudag
Byggingarvöruverslunin Heimamenn
hefur verið opnuð á Húsavík. Engin
slík verslun hefur verið á svæðinu eftir
að verslun Húsasmiðjunnar var lokað
um áramótin. Brynjar T. Baldursson
framkvæmdastjóri segir viðtökurnar
hafa verið góðar og að grundvöllur sé
fyrir verslun sem þessa á Húsavík.
„Það var óánægja með að Húsa-
smiðjan skyldi hætta með verslunina
hér og allt var reynt til þess að snúa
ofan af þeirri ákvörðun. Það gekk ekki
og menn hér tóku því höndum saman
og settu þessa verslun á fót,“ segir
Brynjar en að versluninni standa
fyrirtækin Steinsteypir, Vermir, Tré-
smiðjan Rein, Val og Bæjarprýði.
Mikilvægt fyrir samfélagið
„Við gátum ekki hugsað okkur að
vera án verslunar sem þessarar en það
er mikilvægt fyrir okkur sem störfum
í þessum geira að hafa greiðan aðgang
að öllum helstu byggingavörum. Ann-
ars þyrfti hver verktaki að liggja með
gríðarlegan lager af skrúfum og öðr-
um tólum. Þá getur það einnig verið
stórmál að þurfa að fara til Akureyrar
eftir skrúfu, nagla eða málning-
arpensli,“ segir Brynjar sem bendir
jafnframt á mikilvægi verslunarinnar
fyrir samfélagið í heild.
„Skortur á þjónustu sem þessari
getur haft keðjuverkandi áhrif og fólk
gæti orðið hikandi við að flytja hingað.
Ég tel að samfélagið sé það stórt að
það eigi að vera grundvöllur fyrir
svona verslun. Við heyrum á fólki hvað
það er ánægt með þetta framtak. Það
var eilítið hrætt um hvað færi næst,“
segir Brynjar.
mariamargret@mbl.is
Ánægja með nýja verslun
Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Hægt er að kaupa allar helstu byggingavörur og verkfæri ásamt
málningu og hreinlætistæki í versluninni Heimamenn.
- Grundvöllur fyrir
verslun á Húsavík
- Fylla í gat sem
Húsasmiðjan bjó til
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur opnað tilboð í upp-
byggingu Eyjafjarðarvegar á nýja
vegastæðið við Hrafnagil, nær Eyja-
fjarðará. Vegurinn verður færður
fjær íbúðabyggðinni til að auka
öryggi. Fjögur tilboð bárust í verkið
og voru þau öll undir kostnaðar-
áætlun. Öll fyrirtækin sem buðu í
verkið eru norðlensk.
Vegurinn liggur í dag í gegnum
þéttbýlið í Hrafnagili. „Við höfum
gert margháttaðar ráðstafanir til að
draga úr hraða þarna í gegn, t.d.
með hliði inn í þéttbýlið og aðrar
hraðahindranir og hraðinn er tekinn
niður í 50 km/klst. Þannig að það
hefur ekki verið mikið um slys, en
auðvitað er mun öruggara að veg-
urinn sé í nýju veglínunni,“ segir G.
Pétur Matthíasson upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar.
Gamli vegurinn verður innan-
bæjarvegur eftir breytingar og auð-
veldar mönnum frekari uppbygg-
ingu á Hrafnagili í framtíðinni.
Verði tilbúinn árið 2024
Verkið felst í nýbyggingu Eyja-
fjarðarbrautar vestri, Miðbrautar og
nýrra tenginga á um 3,58 km kafla.
Einnig byggingu nýrra heimreiða,
samtals um 0,25 km. Eyjafjarðar-
braut vestri, Miðbraut og tengingar
inn í þéttbýli verða átta metra breið-
ar með bundnu slitlagi. Heimreiðar
verða fjögurra metra breiðar með
bundnu slitlagi. Verkinu skal vera að
fullu lokið fyrir 15. júlí 2024.
G.V. Gröfur ehf. Akureyri áttu
lægsta tilboðið, 373,5 milljónir
króna. Var það 75% af áætluðum
verktakakostnaði, sem var tæpar
497 milljónir. G. Hjálmarsson hf.,
Akureyri, bauð 471,4 milljónir, Nes-
bræður ehf., Akureyri, 478,5 millj-
ónir og og Árni Helgason ehf., Ólafs-
firði, 490 milljónir. Nú er verið að
yfirfara tilboðin hjá Vegagerðinni.
Eyjafjarðarsveit varð til þann 1.
janúar 1991 við sameiningu hrepp-
anna þriggja sunnan Akureyrar,
Hrafnagilshrepps, Saurbæjar-
hrepps og Öngulsstaðahrepps. Mið-
stöð sveitarfélagsins er að Hrafna-
gili. Þar er stjórnsýslan til húsa,
skólar og önnur þjónusta sveitarfé-
lagsins.
Þjóðvegur færður frá Hrafnagili
Færsla Eyjafjarðarbrautar við Hrafnagil
Eyjaf
jarða
rá
Hrafnagilshverfi
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Fyrirhuguð lega
Eyjafjarðarbrautar
neðan við byggðina
Núverandi
vegur
- Nýtt vegastæði verður nær Eyjafjarðará - Umferðaröryggi mun aukast - Fjögur tilboð bárust
Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir
prófkjörum um helgina fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í maí
og kosningu í prófkjörum Pírata í
tveimur bæjarfélögum lýkur.
Kosning í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi fer fram í dag
en kosið er um sex efstu sætin á
framboðslista flokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í maí. Fjórtán
frambjóðendur taka þátt og sækjast
tveir eftir efsta sætinu á D-listanum,
þær Ásdís Kristjánsdóttir og Karen
Halldórsdóttir.
Kosið er um fimm efstu sætin í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Múlaþingi sem fer fram í dag. Átta
gefa kost á sér í prófkjörinu. Berg-
lind Harpa Svavarsdóttir býður sig
fram í 1. sæti og Jakob Sigurðsson
býður sig fram í 1.-3. sæti.
Níu frambjóðendur eru í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi
ytra sem fram fer í dag. Kosið er um
sex efstu sætin. Ásmundur Friðriks-
son gefur kost á sér í oddvitasæti
listans, Ingvar P. Guðbjörnsson
sækist einnig eftir fyrsta sæti og Ey-
dís Þorbjörg Indriðadóttir býður sig
fram í 1.-3. sæti.
Prófkjöri Pírata í Hafnarfirði sem
hófst 5. mars lýkur í dag. Tólf ein-
staklingar gefa kost á sér. Einnig
lýkur prófkjöri Pírata í Árborg kl 15
í dag en þar eru þrír frambjóðendur í
kjöri.
Prófkjör á fimm
stöðum í dag
- Sjálfstæðisflokkur og Píratar velja
Morgunblaðið/Ómar
Kosning Prófkjörum hjá tveimur
stjórnmálahreyfingum lýkur í dag.