Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 16
Ljósmynd/Gungör Tamzok
Vinstri flokkarnir klofnir til kosninga
Kosningaferðalag Dagmála Morgunblaðsins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí helduráfram og nú liggur
leiðin um Fjarðabyggð. Þar stefnir í harðan slag á milli að minnsta kosti fjögurra framboða. Ekki liggur enn fyrir
hvort Miðflokkurinn bjóði þar fram en hefur einn fulltrúa í sveitarstjórn. Atvinnu- og húsnæðismál í brennidepli.
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Við erum stolt fyrirtæki á
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Stefán E. Stefánsson
Karítas Ríkharðsdóttir
Það ríkir talsverð bjartsýni meðal
íbúa í Fjarðabyggð þessi misserin.
Þar ræður ekki síst mikill loðnukvóti
sem reynst hefur mikil innspýting í
hagkerfið. Þar hafa sjávarútvegsfyr-
irtækin stóru, Síldarvinnslan, Loðnu-
vinnslan og Eskja, staðið í miklum
fjárfestingum undanfarin ár og at-
vinnustig hefur verið hátt. Þá sýnir
tölfræði sem tekin er saman úr stað-
greiðsluskýrslum að meðaltekjur í
sveitarfélaginu eru með þeim hæstu á
landinu.
Mikill vöxtur í laxeldinu
Flest bendir til áframhaldandi upp-
gangs á komandi árum en þessa dag-
ana vinna Laxar fiskeldi og Laxeldi
Austfjarða að sameiningu en við það
verður til stórt og öflugt fyrirtæki á
sviði laxeldis sem teygir starfsemi
sína vítt og breitt um Austfirði. Við-
mælendur Morgunblaðsins segja að
húsnæðismál séu í brennidepli í sveit-
arfélaginu og rímar sú afstaða við það
sem fram hefur komið í umfjöllun
blaðsins síðustu daga í yfirreið um
Múlaþing, nágrannasveitarfélagið
sem raunar hringar sig um Fjarða-
byggð frá Seyðisfirði í norðri og
Djúpavogi í suðri.
Jens Garðar Helgason er fram-
kvæmdastjóri Laxa fiskeldis. Hann
segir almennt ríkja góða sátt um lax-
eldið í sveitarfélaginu.
„Við höfum átt gott samstarf og
samtal við sveitarstjórnarmenn á
svæðinu og við höfum ekki fundið fyr-
ir því hingað til hér í Fjarðabyggð að
það sé andstaða við það, síður en svo
og átt mjög gott samstarf um áfram-
haldandi uppbyggingu í greininni.“
Hann kannast þó berlega við
ágreining þann sem kominn er fram á
Seyðisfirði, en telur að með aukinni
upplýsingagjöf og þekkingu á starfs-
greininni muni einnig nást sátt um
starfsemina þar.
Sævar Guðjónsson á og rekur
ferðaþjónustuna á Mjóeyri á Eski-
firði. Við spurðum hann út í hvort upp-
bygging fiskeldisins væri ógn við hans
starfsemi, eins og stundum er látið í
veðri vaka.
„Það eru mörg afleidd störf sem
hljótast af laxeldinu.Við höfum verið að
þjónusta fólk sem kemur að þjónusta
Laxa í alls konar uppbyggingu [...] Við
bjóðum upp á lax hér úr firðinum sem
ferðamenn vilja á veitingastaðnum
okkar og við finnum fyrir mikilli já-
kvæðni fyrir því og nánast allir sem
maður spyr út í það mjög ánægðir með
það og tenginguna við svæðið.“
Jákvæð áhrif á samfélagið
Hann segist vissulega hafa tekið eft-
ir kvíunum þegar þær voru fyrst sett-
ar upp en ef fólk sé upplýst um hvað
umsvifin geri fyrir svæðið þá verði fólk
jákvætt í garð þeirra.
En eru ekki gestir sem ekki vilja
eldislax hjá ykkur?
„Jú og borða þá bara eldiskjúkling í
staðinn,“ segir hann og glottir í kamp-
inn. Jens Garðar og Sævar segja báðir
að stórar áskoranir bíði samfélagsins í
Fjarðabyggð varðandi frekari upp-
byggingu íbúðarhúsnæðis. Sævar seg-
ir mikinn skort vera á þeim markaði
og að hann haldist að mörgu leyti í við
þann vanda sem fyrirtækin standa
frammi fyrir varðandi starfsfólk. Jens
Garðar segir hækkandi fasteignaverð
auka hvatann til þess að byggja upp.
Hann segir ólíklegt að Laxar muni
ráðast í uppbyggingu húsnæðis af
eigin rammleik en að víst sé að mörg
fyrirtæki séu opin fyrir því að tryggja
sér eignir, ef verktakar ráðist í ný-
framkvæmdir.Hann bendir einnig á
að áskoranir felist í því að fjölga at-
vinnutækifærum og að tryggja fjöl-
breytileika og aðgengi menntaðs
fólks að samfélaginu. Slíkum störfum
hafi fækkað vegna minnkandi op-
inberrar þjónustu og minni umsvifa á
sviði póst- og bankaþjónustu. Þar
þurfi hins vegar að horfa á tækifærin
í stað þess að barma sér yfir breyt-
ingunum.
Bendir Sævar á að mörg tækifæri
séu fram undan í ferðaþjónustunni.
Koma þurfi á millilandaflugi á Egils-
staðaflugvöll en að ferðaþjónustu-
tímabilið sé að lengjast í báða enda,
óháð því.
Frekari uppbygging fram undan
- Mikið hefur verið fjárfest í atvinnuvegum Fjarðabyggðar - Mikil uppbygging fram undan í laxeldi
- Ferðaþjónustan á mikið inni og tímabil hennar að lengjast - Mikil vöntun er á íbúðarhúsnæði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Atvinna Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis, og Sævar
Guðjónsson hjá ferðaþjónustunni Mjóeyri eru bjartsýnir á komandi tíð.