Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Svanhildur Eiríksdóttir Suðurnesjabæ Það má segja að það hafi verið hálfgerð tilviljun að Jazzfjelag Suð- urnesjabæjar var stofnað. Þegar Halldór Lárusson, skólastjóri tón- listarskólans þar í bæ, hafði verið að halda nemendatónleika í bóka- safninu, til þess að breyta til, komst hann að því að það er prýð- ishljómburður í húsakynnum safns- ins og þá laust niður þeirri hugsun, að gaman yrði að halda tónleika þar. Þannig fæddist hugmynd að Jazzfjelaginu. En af hverju jazzfélag? „Það er eiginlega þrennt sem kom til. Í fyrsta lagi var nokkuð ljóst að við værum ekki að fara að halda stóra rokktónleika í Bóka- safninu. Í öðru lagi þá rúmast svo margt undir þessa tónlistarstefnu sem gefur mikinn fjölbreytileika í tónlistarhaldi. Í þriðja lagi eru jazztónlistarmenn í tónlist af hug- sjón, sem mér finnst svo aðdáun- arvert, líkt og pönkararnir voru, enda segi ég að jazztónlistarmenn í dag séu nokkurskonar pönkarar nútímans,“ segir Halldór í samtali við fréttaritara. Það hefur komið Halldóri á óvart hversu mikil aðsóknin að tónleik- unum hefur verið. „Ég átti svo sem ekkert von á því að fólk færi að flykkjast á jazztónleika hér í Suð- urnesjabæ en reyndin hefur sann- arlega verið önnur. Á tímum sam- komutakmarkana voru oft færri sem komust að en vildu.“ Þeir sem hafa sótt tónleika fé- lagsins stíft, undrast ekki vinsæld- irnar enda má með sanni segja að rjómi tónlistarmanna hafi komið þar fram og fjölbreytileikinn verið mikill. „Það hefur einnig verið mik- il aðsókn í að koma að spila á tón- leikum félagsins, ekki bara íslensk- ir tónlistarmenn heldur einnig erlendir og ég hef margoft þurft að segja, því miður er árið fullbókað. Þetta skýrist af því að Jazzfjelagið er að verða þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi og listafólki finnst afar gaman að koma til okkar á Suð- urnesin. Þá hafa áheyrendur kom- ist að raun um að á tónleikunum gengur það að góðri tónlist, auk þess að upplifa hana í mikilli nánd í rými bókasafnsins.“ Eðaljazz fram undan Að sögn Halldórs er staðan þannig núna að árið 2022 er full- bókað og byrjað er að bóka fyrir tónleika á næsta ári. Áfram verður hægt að hafa tónleikana gjald- frjálsa, sem ákveðið var strax í upphafi, en félagið hefur notið góðra styrkja frá Sóknaráætlun Suðurnesja, Félagi íslenskra hljómlistarmanna og Suð- urnesjabæ. Eftir smá pásu frá tón- leikahaldi vegna Covid hófust leik- ar að nýju þann 9. mars sl. þegar fyrstu tónleikar félagsins á þessu ári voru haldnir. Þá kom fram Þor- grímur Jónsson kvartett til að kynna nýju plötu kvartettsins, Haga, en með Þorgrími sem lék á raf- og kontrabasa komu fram Rögnvaldur Borgþórsson gítarleik- ari, Tómas Jónsson píanó- og alls- konarleikari og Magnús Trygvason Eliasen trommuleikari. Má uppljóstra um tónleika fram undan? „Já, já. Við verðum með aðra tónleika nú í marsmánuði, þann 25., en þá kemur íslenski píanóleik- arinn Benjamín Gísli með al- þjóðlega hljómsveit sem nefnist BLISS. Margrét Eir verður með tónleika ásamt hjómsveit í apríl og svo heldur veislan áfram. Ég get nefnt Mikael Mána, Ólaf Jónsson kvartett, Refil, Maríönnu Ósk og Scott McLemor,“ segir Halldór og vonast til að geta áfram boðið áhugasömum upp á eðaljazz í Suð- urnesjabæ. Árið fullbókað hjá Jazzfjelagi Suðurnesjabæjar - Þegar byrjað að skipuleggja tón- leika á næsta ári Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Tónleikar Kvartett Þorgríms Jónssonar spilaði lög af nýútkominni plötu, Högum, á fyrstu tónleikum Jazzfjelags Suðurnesjabæjar á þessu ári. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Stofnandinn Halldór Lárusson stofnandi jazzfjelagsins spjallar við gesti. DAGSKRÁ: Útgáfusaga Passíusálma Hallgríms Péturssonar á erlendum málum Karl Sigurbjörnsson, biskup Nýja þýðing Passíusálmanna og tónlistin Sigurður Sævarsson, tónskáld Er hægt að koma Passíusálmunum til skila á ensku? Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor Enska þýðingin í ljósi ritgerðar í Skírni um Gyðingaandúð í Passíusálmunum Mörður Árnason, fræðimaður Einar Karl Haraldsson, form. sóknarnefndar, stýrir umræðum frummælenda. Stjórnandi er Sigurður Árni Þórðarson. PASSÍUSÁLMAR TIL ÚTFLUTNINGS Málþing um enska þýðingu Gracia Grindal á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar Hallgrímskirkja 12:30 – 14:30 sunnudaginn 13. mars 2022 Áhugasamir skrái sig hjá kirkjuvörðum Hallgrímskirkju s. 5101000 eða á kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrsta skemmtiferðaskip sumars- ins er væntanlegt til Reykjavíkur næsta miðvikudag, 16. mars. Það heitir Borealis, er 61.849 brúttó- tonn og tekur 1.404 farþega. Alls eru bókaðar 207 skipakomur farþegaskipa til Faxaflóahafna árið 2022 með um 217.000 þúsund far- þega. Vegna Covid-19 er óvissa hver lokatalan verður. Starfsmenn Faxaflóahafna eru byrjaðir að undirbúa sumarvertíð- ina. Þau farþegaskip sem eru með flestar skipakomur á árinu eru leið- angursskip og taka þau í kringum 250 farþega. Farþegar koma yfir- leitt fyrr til landsins með flugi og gista á hótelum, áður en farið er í siglingu hringinn í kringum landið. Leiðangursskipin gera út frá Reykjavík og þar fara farþega- skiptin fram. Hver hringferð tekur u.þ.b. viku og koma skipin við á mörgum höfnum á landsbyggðinni. Farþegaskipti munu aukast árið 2022, ef allar bókanir ganga eftir. Áætlað er að af þessum 207 skipa- komum, verði 98 skipakomur með 51.022 farþega í farþegaskiptum sem er mikil aukning frá fyrri ár- um. Þetta kallar á aðstöðubreyt- ingar hjá Faxaflóahöfnum í Sunda- höfn þar sem núverandi aðstaða er takmörkuð, segir í tilkynningu á vef Faxaflóahafna. Með vorinu verður sett upp bráðabirgðaaðstaða með viðeig- andi tækjabúnaði við Skarfabakka til að allt gangi farsællega fyrir sig. Nú þegar hafa Faxaflóahafnir keypt níu fríholt (fenders), málm- leitarhlið og farangursskanna. Haustið 2022 verður síðan farið að huga að næstu skrefum varðandi framtíðarhúsnæði fyrir farþega og aukinn búnað við Skarfabakka. Bókunarstaðan, líkt og fyrri ár, er byggð á væntingum skipafélag- anna að koma til Faxaflóahafna, segir á heimasíðunni. Rauntölur síðustu tvö ár hafa hins vegar verið allt aðrar. Skipafélög eru að afbóka ferðir sínar með mánaðar til viku fyrirvara. Raunhæfari listi fyrir sumarið ætti að liggja fyrir í lok maí eða byrjun júní. Nú þegar veirufaraldurinn er að ganga niður í heiminum standa vonir til þess að mun fleiri skemmtiferðaskip komi til landsins en raunin varð tvö síðustu árin. Undirbúa sumarvertíð - Aðstaða far- þegaskipa bætt á Skarfabakka Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stigið á land Búist er við mikilli umferð farþegaskipa hingað næsta sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.