Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum STUTT « Eftir að hafa lækkað skarpt frá innrás Rússa í Úkraínu fyrir tveimur vikum rétti hlutabréfamarkaðurinn aðeins úr kútnum undir lok vikunnar. Öll skráð fé- lög á aðalmarkaði hækkuðu í gær, föstudag, og OMXI10-vísitalan hækkaði um 2,8%. Hækkunin yfir vikuna er þó ekki mikil, aðeins 0,4%, en vísitalan hefur lækkað um 2,7% á tveimur vikum og um 9,5% frá áramótum. Viðmælendur Morgunblaðsins af markaði lýsa því margir hvernig ró virðist hafa komist á eftir lítils háttar taugatitring í síðustu viku, þá sér- staklega á meðal almennra fjárfesta. Þó megi geta þess að enn liggja áhrif inn- rásarinar ekki fyllilega fyrir á íslensk fyrirtæki og íslenskt hagkerfi sem geti ráðið hegðun fjárfesta á næstu dögum og vikum. Icelandair hækkaði um 4,1% í gær en hefur þó lækkað um 7,3% yfir vikuna eftir töluverða lækkun fyrri hluta vik- unnar. Þá lækkaði gengi Play um 6,4% yfir vikuna. Sjávarútvegsfélögin, sem lækkuðu hratt eftir innrásina, hafa náð hægum bata hvað gengi hlutabréfa varðar. Gengi Iceland Seafood stóð í stað í vikulok eftir lækkun um miðja viku en hefur lækkað um 10,7% frá því innrásin hófst. Síldarvinnslan hækkaði um 4,7% yfir vikuna eftir að hafa birt gott uppgjör á fimmtudag og Brim, sem ólíkt hinum hefur hækkað á liðnum vik- um, hækkaði um 6,4%. Eimskip hækk- aði um tæp 6% yfir vikuna og Marel um 4%. Þetta eru þau félög sem urðu fyrst fyrir áhrifum innrásarinnar. Ljósgrænar tölur í Kauphöll í lok vikunnar um að þar tengja ekki allir í okkar markhópi okkur við Evrópu. Það á líka eftir að koma í ljós hvort ein- hverjir kjósi að ferðast frekar til Ís- lands en að vera á meginlandi Evrópu nærri átakasvæðunum.“ Spurð hvaða áhrif innrásin geti haft á ferðavilja Asíubúa til Íslands segir hún að Íslandsstofa hafi lengi beðið eftir að sá markaður tæki við sér en það hafi tafist eftir því sem faraldrinum vatt fram. „Við gerum ekki ráð fyrir að markaðurinn í Kína Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslands- stofu, segir erfitt að meta áhrif inn- rásar Rússa í Úkraínu á ferða- hegðun og ferða- vilja. Innrásin geti þó haft ýmis óbein áhrif. „Ég hef verið í samtölum við ferðaþjónustu- fyrirtæki og inn- rásin virðist ekki farin að hafa áhrif á bókanir. Það virðist vera gott innflæði af bókun- um enn þá. Sum fyrirtækin urðu vör við aukningu í bókunum þegar til- kynnt var um afléttingu sóttvarna- takmarkana hér á landi og á landa- mærunum vegna faraldursins. Minni kaupmáttur óvissuþáttur Þetta getur samt haft áhrif á ann- an hátt,“ segir Sigríður Dögg og vís- ar til hinna efnahagslegu afleiðinga innrásarinnar fyrir kaupmátt. „Það getur haft áhrif því Ísland er ekki og mun aldrei verða ódýr áfangastaður. Svo gæti líka haft áhrif að Ísland er álitinn mjög öruggur áfangastaður. Það er oft nefnt sem styrkleiki en við gerum könnun tvisvar á ári meðal ferða- heildsala og ferðaskrifstofa erlendis sem eru að selja ferðir til Íslands. Við erum einmitt að vinna úr niður- stöðum nýjustu könnunar og þar er öryggi áfangastaðarins að skora mjög hátt. Svo er það hitt að við er- um ekki á meginlandi Evrópu. Við sjáum úr könnunum í Bandaríkjun- taki við sér fyrr en á næsta ári en við erum farin að sjá hreyfingu frá Jap- an og frá öðrum löndum í Asíu. Það munar þó mest um Kína sem var komið í fjórða sæti yfir okkar stærstu markaði árið 2019. Kínverj- ar hafa líkt og Bretar verið duglegir við að ferðast hingað yfir veturinn en það er mikilvægt markmið í öllum okkar aðgerðum að reyna að hvetja til ferða árið um kring og stuðla að meiri dreifingu innan landsins.“ Aukin ferðalög innanlands Spurð um áhrif innrásarinnar á ferðahegðun Evrópubúa segir hún mikla uppsafnaða ferðaþörf út fyrir landsteinana. Á hinn bóginn hafi ferðalög innanlands færst í vöxt eftir að faraldurinn hófst árið 2020 og óvíst sé um langtímaáhrif þess. Loks telur Sigríður Dögg spár um að hingað komi 1,3 til 1,4 milljónir er- lendra ferðamanna í ár vera raun- hæfar, jafnvel þótt óvissan hafi auk- ist. Þá bendir hún á að Isavia reikni með jafn mörgum flugfélögum í Keflavík í sumar og árið 2019, eða 25, en Isavia hafi unnið þrekvirki með því að halda í erlend sambönd sín í gegnum faraldurinn. Þá njóti íslensk ferðaþjónusta þess að staðinn var vörður um fyrirtæki í greininni. Morgunblaðið/Eggert Keflavíkurflugvöllur Ferðamenn á ferð um Leifsstöð í byrjun vikunnar. Öryggið geti unnið með Íslandi - Íslandsstofa merkir ekki samdrátt í bókunum á ferðum til Íslands - Lakari kaupmáttur geti haft áhrif - Hins vegar sé Ísland álitinn öruggur áfangastaður Sigríður Dögg Guðmundsdóttir með talið í Vogabyggð og á Ártúns- höfða. Þá hafi mikil fjölgun erlendra ferðamanna aukið umsvif margra fyrirtækja og það kalli á meira rými. Óli Örn Eiríksson, teymisstjóri at- vinnu- og borgarþróunar hjá Reykja- víkurborg, sýndi Morgunblaðinu at- vinnulóðirnar við Álfabakka um hádegisbilið í gær. Um sé að ræða þrjár lóðir; Álfa- bakka 2, 4 og 6. Eignabyggð undirbúi framkvæmdir í Álfabakka 2 og Garð- heimar undirbúi nú uppbyggingu nýrra höfuðstöðva í Álfabakka 6. Þá sé eftir lóðin Álfabakki 4. Auglýst til úthlutunar í mars „Við Álfabakka 4 er ný 7.000 fer- metra athafnalóð þar sem byggja má 3.000 fermetra atvinnuhúsnæði. Borginni hafa þegar borist nokkrar fyrirspurnir í hana en hún verður auglýst til úthlutunar í mars. Við Álfabakka 6 hafa Garðheimar nýlega fengið úthlutað lóð undir 7.000 fermetra verslunarhúsnæði fyrir gróður og garðvörur og eru þau að undirbúa framkvæmdir sem gert er ráð fyrir að hefjist fljótlega,“ sagði Óli Örn en vegalagning stóð yfir á svæð- inu í gær. Nánar tiltekið var verið að leggja veg að lóð Garðheima syðst á svæðinu. Alls má því byggja yfir 20 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði á lóðunum þremur en það er um þriðj- ungur af grunnfleti upphaflegu Kringlunnar. „Reykjavíkurborg áformar gatna- gerð í sumar í tengslum við þessar út- hlutanir og eru framkvæmdir áætlaðar frá apríl og fram í nóvem- ber. Til viðbótar við gatna- og lagna- framkvæmdir verður gerður nýr göngu- og hjólastígur við Álfabakka sem tengist stígakerfi Kópavogs og einnig verður gerður nýr göngu- og hjólastígur neðan Þverársels. Áætl- aður kostnaður við þessar fram- kvæmdir er 450 milljónir.“ Óli Örn áætlar að atvinnuhúsnæðið verði fullbyggt eftir fjögur til fimm ár. Aðilar úr ýmsum áttum hafi sýnt Álfabakka 4 áhuga. Þ.m.t. úr versl- unar- og afþreyingargeiranum. Mikil uppbygging er að hefjast í Suður-Mjódd - Eignabyggð í viðræðum við þrjú fyrirtæki um 10 þúsund m2 höfuðstöðvar Við Reykjanesbraut Álfabakki 6, lóð Garðheima, verður þar sem grafan er að athafna sig á myndinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brynjólfur S. Þorkelsson Óli Örn Eiríksson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fasteignafélagið Eignabyggð á nú í viðræðum við þrjú fyrirtæki vegna uppbyggingar á tíu þúsund fermetra atvinnuhúsnæði í Suður-Mjódd. Byggingin verður áberandi en tug- þúsundir ökutækja fara daglega hjá á Reykjanesbraut. Brynjólfur Smári Þorkelsson, framkvæmdastjóri og annar tveggja eigenda Eignabyggðar, segir áform- að að ganga til samninga á næstu vik- um. Um sé að ræða lóðina Álfabakka 2 (A til D) en þar verði reistar höfuð- stöðvar fyrir eitt fyrirtæki. Eignabyggð sérhæfir sig í bygg- ingu atvinnuhúsnæðis til útleigu og er nú með um 15.000 fermetra í notkun. Markmið félagsins er að byggja 5.000 til 10.000 fermetra á ári. Brynjólfur Smári segir Eigna- byggð hafa unnið að verkefninu undanfarið ár og nú standi valið milli þriggja fyrirtækja sem vilji reisa nýjar höfuðstöðvar á Álfabakka 2. Byggingin myndi hljóðmön „Það er áformað að byggja tíu þús- und fermetra hús sem verður versl- un, lager og skrifstofur. Mig minnir að heimilt sé að byggja 16 metra há hús á lóðinni en held við munum miða við 10-13 metra. Skipulagið óskar þess að byggingin myndi hljóðmön fyrir ÍR-völlinn og nálæg fjölbýlishús og við ætlum að leggja upp með að húsið hlífi svæðinu fyrir umferðinni,“ segir Brynjólfur Smári. Hann segir aðspurður að markaður með atvinnuhúsnæði hafi glæðst að undanförnu. Þétting byggðar eigi þátt í því með því að atvinnuhúsnæði sé að víkja fyrir íbúðarhúsnæði, þar 12. mars 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.27 Sterlingspund 172.85 Kanadadalur 102.54 Dönsk króna 19.556 Norsk króna 14.669 Sænsk króna 13.589 Svissn. franki 141.67 Japanskt jen 1.1319 SDR 182.19 Evra 145.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.7845

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.