Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 24

Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á sunn- anverðum Kór- euskaganum, sunnan við 38. breiddargráðuna, var í vikunni kos- inn nýr forseti, Yoon Suk- yeol, sem sigraði keppinaut- inn með minnsta mun og fékk raunar innan við helming at- kvæða. Í Suður-Kóreu er far- sælt lýðræðis- og réttarríki þar sem lífskjör eru góð og fólk frjálst. Þar skiptir þjóðin um leiðtoga sína með þeim hætti sem við þekkjum og þar eru menn jafnir fyrir lög- unum, sem sést til dæmis á því að hinn kjörni forseti, sem hefur starfað sem saksóknari, sótti frægt spillingarmál gegn fyrrverandi forseta, Park Geun-hye. Norðan landamæranna á Kóreuskaganum eru ekki miklar líkur á að fyrrverandi leiðtogar sæti rannsóknum eða saksóknum. Þar er reynd- ar ekki líklegt að rekast á fyrrverandi leiðtoga, því það hlutverk gengur í erfðir frá Kim Il-sung, til Kim Jong-il og síðast til Kim Jong-un. Og almenningur er vitaskuld ekki ónáðaður með því að leita álits hans á því hver sé best til þess fallinn að leiða landið, enda á almenningur fullt í fangi með að afla sér næringar og tekst það því miður alls ekki alltaf, með hörmulegum afleið- ingum. Þetta stærsta fangelsi í heimi hefur lengi ógnað um- hverfi sínu og er nú komið á kreik eina ferðina enn. Til- raunir með langdrægar flaug- ar höfðu legið niðri um nokk- urra ára skeið eftir að Trump og Kim áttu fundi, sem þó skiluðu ekki tilætluðum árangri, en nú er Kim farinn að fikta við þessi stórhættulegu vopn á nýjan leik. Búist er við frekari tilraunum á næstunni, meðal annars í tilefni að því að í næsta mánuði eru 110 ár frá fæðingu hins eilífa leiðtoga og stofnanda ríkisins, Kim Il- sung. Stríðið sem nú geisar í Úkraínu dregur að sér mikla athygli sem von er, en hætt er við að varasamir menn á borð við harðstjórann Kim nýti sér þær aðstæður og láti reyna á það á ný hvað hann kemst upp með. Hann veit að Rússland gerir ekki athugasemdir við hann eins og sakir standa og Kína er ekki líklegt til þess heldur. Og aðrar þjóðir eru uppteknar af stærri vanda en honum, stríðinu. Bandaríkja- menn segjast að vísu ætla að herða efnahagsþvinganirnar gegn Norður-Kóreu, en hversu líklegt ætli það sé til að stöðva Kim? Hann hefur búið við harðar efnahags- þvinganir árum saman en heldur áfram að lifa í vellyst- ingum þó að almenningur líði skort. Það er afskaplega ósenni- legt við þær aðstæður sem ríkja í heiminum í dag að hægt verði að ná samstöðu ríkja við að halda aftur af mönnum á borð við Kim. Og því miður eru allar líkur á að þeir menn hafi áttað sig á þessari stöðu sem upp er komin, að í henni eigi þeir skjól. Stríðið í Úkraínu gefur Kim Jong-un og öðrum slíkum ýmis sóknarfæri} Skálkaskjól Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að nauðsynlegt væri að skoða laga- rammann í tengslum við raf- orkuframleiðslu hér á landi. Hann sagði að á sama tíma og tryggja þyrfti „aðkomu allra að upplýsingum og mögu- legum kærum og slíku, sem er mikilvægt, þá þarf þessi ferill að vera skilvirkari held- ur en hann hefur verið.“ Þetta er í samræmi við sjónarmið sem fram hafa komið frá fleiri forystumönn- um stjórnmálanna og þarf ekki að koma á óvart. Sú lög- gjöf sem átti að tryggja jafn- vægi á milli nýtingar og verndar, ramma- áætlunin, hefur reynst afar óskil- virk og fyrst og fremst gagnast þeim sem hafa viljað hindra allar framkvæmdir til aukinnar raforkuvinnslu. Nú er ástandið í raforku- málum orðið þannig að ekki verður lengur undan því vik- ist að ráðast í þær breytingar sem duga til að hægt sé að auka framleiðslu og bæta dreifingu rafmagns. Á sama tíma verður vitaskuld að horfa til náttúruverndar, en þau sjónarmið verður að setja fram af sanngirni og ekki í þeim tilgangi einum að koma í veg fyrir fram- kvæmdir. Ráðherra bendir á að þörf kunni að vera á að lagfæra lagaumhverfi} Rétt sjónarmið um raforkumál B yggjum 20 þúsund íbúðir á næstu fimm árum, samkvæmt formanni Framsóknarflokksins í grein Morgunblaðsins þann 10. mars sl. Sem ráðherra innviðamála hefði ég búist við að sjá einhverjar tilkynningar um þessa stefnu ríkisstjórnarinnar á vefsíðu stjórnarráðsins en þar er ekkert að finna. Þetta eru greinilega kosningaloforð Framsókn- arflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar sem ríkissjóður á að fjármagna. Þetta er áhugaverð stefnubreyting hjá Framsóknarflokknum sem hefur ekki talað mikið fyrir uppbyggingu íbúða í undanförnum kosningum. Þar er bara að finna einhverja svissneska leið sem hjálpar fólki að kaupa íbúð með þeirra eigin lífeyrissparnaði eða ein- hverjar lánaleiðir bara. Sem dæmi, í síðustu kosningum þá hafði flokkurinn sér- stakar áhyggjur af húsnæðisskorti á landsbyggðinni en hefur farið mikinn í að gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir að byggja ekki fleiri íbúðir. Þar er hins vegar ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur því af öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu þá hefur Reykjavíkurborg byggt langmest, bæði í fjölda íbúða og hlutfallslega. Af 6.000 íbúðum sem eru í byggingu samkvæmt talningu HMS og SI eru um 41% þeirra í byggingu í Reykjavík, sem er um- fram hlutfallslega íbúastærð Reykjavíkur (sem er um 36%). Hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru 28% af íbúafjölda landsins og eru að byggja 28% af þeim íbúðum sem nú eru að rísa. Síðustu 36% íbúa eru utan höfuðborgarsvæðisins og þar er verið að byggja 31% íbúða. Samkvæmt skýrslu Íbúðalánasjóðs um íbúðaþörf 2019-2040 þurfti um 1.830 íbúðir á ári, en samkvæmt tölum Húsnæðis- og mann- virkjastofnunnar voru byggðar 3.033 íbúðir ár- ið 2019, 3.816 árið 2020 og áætlað að um 3.200 íbúðir hafi verið fullkláraðar á síðasta ári. Það þarf aðeins að spýta í lófana ef það á að ná því markmiði miðað við tölur HMS, ekkert voða- lega mikið samt. Ef hin sveitarfélögin væru að byggja jafn mikið og Reykjavík núna, þá væru rúmlega 800 fleiri íbúðir í byggingu sem myndi eiginlega ná að dekka það sem upp á vantar. Samkvæmt uppfærðum greiningum um þörf á íbúðum í byggingu vantar þá um 1.000. Það þýðir að það vantar um 7 milljarða í hús- næðisstuðning. Samdráttur á því málefnasviði hefur verið 12 milljarðar frá árinu 2016. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einhver úr núverandi ríkisstjórn reynir að leysa húsnæðisvandann, en þrátt fyr- ir það hefur vandinn aukist síðan þá. Meðal annars vegna eftirspurnaraðgerða ríkisstjórnarinnar. Þetta tvennt fer saman, samdráttur í húsnæðisstuðningi frá því að rík- isstjórnin tók við og hagstjórnarmistök ríkisstjórnarinnar að kynda eftirspurnarbálið án þess að koma með framboð á íbúðum til að vega upp á móti. Fyrir það þurfa allir að borga út af verðbólgu sem fer út um allt. Takk Framsókn. bjornlevi@althingi.com Björn Leví Gunnarsson Pistill Takk fyrir ekkert Framsókn Höfundur er þingmaður Pírata STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is D regið verður úr útgáfu nýrra leyfa til fiskeldis á meðan beðið er eftir nið- urstöðu úttektar Ríkisendurskoðunar á stjórnsýslu á sviði fiskeldis sem og nýrrar stefnu- mótunar. Er lagt upp með að ljúka afgreiðslu þeirra umsókna sem komnar voru í ferli fyrir gildistöku lagabreytinga árið 2019 og láta þar við sitja. Þetta þýðir að ekki verða boðin út leyfi á nýjum eldissvæðum næstu mánuði eða misseri en stefnt er að því að kynningu og samráði vinnu við stefnumótun ljúki á vor- mánuðum 2023. Kemur þetta fram í greinargerð um áherslur og fyrirhugað verklag Svandísar Svavarsdóttur matvæla- ráðherra við stefnumótun á sviði matvæla á yfirstandandi kjörtímabili en greinargerðin er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er fjallað um sjávarútveg, landbúnað og fiskeldi. Gert er ráð fyrir að þings- ályktunartillaga um matvælastefnu verði lögð fyrir Alþingi og stefnur í landbúnaði, sjávarútvegi og fiskeldi muni byggja á þeirri stefnu. Vaxtarvextir í fiskeldinu Í kaflanum um fiskeldi er vakin athygli á hröðum vexti sjóeldis sem er að nálgast 50 þúsund tonn á ári og gæti tvöfaldast á næstu fimm árum. Gera megi ráð fyrir að tekjur af framleiðslu 100 þúsund tonna gætu orðið 80 til 100 milljarðar króna ár- lega. Framleiðslan sé að mestu leyti á Vestfjörðum og Austfjörðum og hafi haft í för með sér mikil og já- kvæð áhrif á atvinnulíf og þróun samfélaga þar. Jafnframt er komið inn á mikil áform um landeldi og sagt að sú grein gæti orðið jafn stór sjó- eldinu áður en langt um líður. Mögu- leikar séu í fleiri greinum. „Eins og gjarnan vill verða við hraða uppbyggingu í flókinni at- vinnugrein hafa fylgt henni nokkrir vaxtarverkir og hafa stjórnvöld átt fullt í fangi með að fylgja þróuninni. Er þá sama hvort litið er til setn- ingar laga og stjórnvaldsfyrirmæla, uppbyggingar í stjórnsýslu og eft- irliti eða skiptingar tekna af grein- inni,“ segir í greinargerðinni. Matvælaráðherra boðar nýja stefnumörkun í málefnum fiskeldis. Ráðherra óskaði eftir því við Rík- isendurskoðun að gerð verði úttekt á stjórnsýslu atvinnu- og nýsköp- unarráðuneytisins og undirstofnana þess á sviði fiskeldis og hefur Rík- isendurskoðun fallist á það. Er ætl- unin að úttektin nái yfir alla stjórn- sýslu málaflokksins, allt frá undirbúningi löggjafar og setningu afleiddra reglna til eftirlits með starfsemi fyrirtækja í greininni. Áætlað er að niðurstaða úttekt- arinnar liggi fyrir á haustmánuðum. Til viðbótar verður þjóðhags- legur ávinningur fiskeldis greindur sem og ávinningur byggðarlaganna. Gjaldtaka af fiskeldi verður sér- staklega skoðuð og skipting þeirra gjalda sem til fjalla. Þá þarf að greina starfsumhverfi greinarinnar hér í samanburði við samkeppn- islönd og kanna samkeppnishæfni hennar. Kynning vorið 2023 Í greinargerðinni kemur fram að móta þurfi umhverfi þar sem verðmætasköpun í sátt við samfélag og umhverfi eru í forgrunni. Vinna að stefnumótun á að fara fram sam- hliða stjórnsýsluúttekt Ríkisend- urskoðunar. Stefnt er að því að mat á stöðu og greining á áhrifum, ávinn- ingi, samkeppnisstöðu og gjaldtöku liggi fyrir á sama tíma og niðurstaða Ríkisendurskoðunar. Í framhaldinu verði unnið úr niðurstöðunum og stefnt að kynningu og samráði um langtímastefnumótun á vormán- uðum 2023. Engin útboð á laxeldis- leyfum næstu misseri Umsóknir um rekstrarleyfi til fiskeldis Umsóknir sem eru til afgreiðslu Heimild: Matvælastofnun Dags. umsóknar Fullgilding umsóknar Umsækjandi Staðsetning Hámarks líf- Tegund massi, tonn 16.5.2019 13.7.2020 Arctic Fish Arnarfjörður Lax 4.000 22.5.2017 24.6.2021 Fiskeldi Austfjarða Stöðvarfjörður Lax 7.000 20.5.2019 28.1.2021 Arctic Fish Ísafjarðardjúp Lax og regn- bogasilungur 8.000 21.5.2019 19.2.2021 Arnarlax Ísafjarðardjúp Lax og ófrjór lax 10.000 28.8.2018 31.12.2021 Fiskeldi Austfjarða Seyðisfjörður Lax 10.000 Stöðugar breytingar hafa orðið á rekstrarumhverfi fiskeldisins á undanförnum árum, frá því heildarlög voru sett árið 2008. Aðeins eru tæp þrjú ár frá því umfangsmikil breyting var gerð og eru sum ákvæði hennar ekki enn komin til framkvæmda í raun. Það á til dæmis við um út- hlutun leyfa á nýjum svæðum samkvæmt útboðskerfi. Engin leyfi hafa enn verið auglýst og verða ekki á næstunni en Mat- vælastofnun og Umhverf- isstofnun eru enn að afgreiða umsóknir um rekstrar- og starfsleyfi sem komin voru í far- veg fyrir gildistöku þess ákvæð- is laganna. Umsóknir um rekstr- arleyfi sjást á meðfylgjandi töflu en sömu umsóknir eru í vinnslu hjá Umhverfisstofnun. Matvælastofnun segir að um- sóknir Arctic Fish í Arnarfirði og Fiskeldis Austfjarða í Stöðv- arfirði séu lengst komnar og verði að líkindum afgreiddar á næstu vikum. Þá sitja eftir tvær umsóknir um Ísafjarðardjúp og ein um Seyðisfjörð. Gamlar um- sóknir í ferli EFTIRLITSSTOFNANIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.