Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 27

Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 27
600–800 fm atvinnuhúsnæði óskast til kaups eða leigu! Hreint ehf óskar að kaupa eða leigja til lengri tíma snyrtilegt 600-800 ferm. skrifstofu- og lagerhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Æskileg staðsetning er í mið- eða vesturhluta Kópavogs, Garðabær og mið- og austurhluta Reykjavík. Mikilvægt er að húsnæðið liggi vel við samgöngum, þ.m.t. strætó og að pláss sé fyrir um 25 bíla við húsið. Æskilegt, en ekki skilyrði, er að húsnæðið sé á einni hæð. Vinsamlegast svarið með tölvupósti; skjolshus@gmail.com eða í hringið í síma 820-1814 þar sem Tryggvi Hallvarðsson veitir frekari upplýsingar. Morgunblaðið/Sverrir 1990 Valtýr Pétursson, myndlistarmaður og gagnrýnandi Morgunblaðs- ins, Selma Jónsdóttir, forstöðukona Listasafns Íslands, og Ólafur K. Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins, við opnun í Listsafni Íslands. Ólafur K. Magnússon ljós- myndari fæddist í Reykjavík 12. mars 1926 í Reykjavík. For- eldrar hans voru hjónin Magnús Jóhannsson, skipstjóri, f. 16.6. 1894, d. 27.2. 1928, og Kristín Hafliðadóttir, húsfreyja, f. 9.10. 1896, d. 8.4. 1984. Hann var yngstur fimm bræðra og missti föður sinn tæplega tveggja ára gamall, þegar fyrsti togari Ís- lands, Jón forseti, strandaði á Stafnnesrifi 27. febrúar 1928 þar sem 15 menn fórust, en 10 björguðust. Ólafur lauk námi frá Ingi- marsskólanum og fór til New York árið 1944 og nam þar ljós- myndun í eitt ár. Þaðan fór hann til Los Angeles og lærði kvik- myndun hjá Paramount Pict- ures. Hann kom til Íslands 1947 og hóf þá störf hjá Morg- unblaðinu þar sem hann vann í tæplega hálfa öld, til loka ársins 1996. Hann kvæntist Evu Krist- insdóttur, sjúkraliða, f. 19.5. 1931, d. 6.11. 2006, og þau eign- uðust fjögur börn. Ólafur var frumkvöðull í ís- lenskri fréttaljósmyndun og fyrstur Íslendinga til að gera fréttaljósmyndun að ævistarfi. Ólafur þótti hafa afar næmt auga fyrir að fanga hið frétt- næma á filmu. Þá var hann læri- faðir margra af fremstu blaða- ljósmyndurum landsins sem komu til starfa hjá Morg- unblaðinu og nutu leiðsagnar hans þegar ljósmyndadeild blaðsins varð sú stærsta og öfl- ugasta á landinu. „Óli var sérfræðingur í frétta- myndum og sífellt reiðubúinn að miðla af kunnáttu sinni,“ sagði Ragnar Axelsson – RAX um læriföður sinn og bætti við. „Hann lagði áherslu á að ljós- myndarinn sæi fyrir sér, um leið og hann væri að mynda, hvernig myndirnar kæmu út á síðum blaðsins. Hvert væri sterkasta augnablikið í keðju atburðanna. Að lesendur blaðsins fengju ætíð sem besta yfirsýn yfir atburðinn í einni eða tveimur hnitmiðuðum myndum. Þannig vann Óli, reyndi ætíð að setja sig inn í að- stæðurnar enda var hann ein- staklega næmur fyrir frétt- næmum atburðum; einn mesti fréttamaður sem þessi þjóð hef- ur átt. Hann lagði mikið á sig, enda verða ljósmyndarar ætíð að fara á vettvang til að ná mynd af atburðum, sama hvernig aðstæð- urnar eru – starf fréttaljósmynd- arans felst í því að skrá atburði í sögu landsins á filmur sínar.“ Í viðmiklu myndasafni Ólafs K. sem varðveitt er á Morg- unblaðinu má sjá hvernig hann skrásetti með einstökum hætti sögu þjóðarinnar í hálfa öld. Sér- staka athygli innan safnsins vek- ur viðamikil skrásetning á sér- tökum áhugasviðum hans, eins og stjórnmála- og menningarlíf- inu. Unnið er að viðamikilli bók um störf og verk Ólafs. Ólafur K. lést á heimili sínu 15. nóvember 1997. Merkir Íslendingar Ólafur K. Magnússon 1945 Ólafur við útskrift úr ljós- myndanáminu í New York. UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Þ ó að sigur Taflfélags Reykjavíkur á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk um síðustu helgi hafi hangið á bláþræði þá verður að telja hann sanngjarnan þó að lengst af hefði sveit Taflélags Garðabæjar örugga forystu en var undarlega þróttlaus á lokasprettinum. Fyrir lokaumferð- ina átti TR eitt stig á Garðabæinga og mætti öflugri sveit Fjölnis og vann nauman sigur, 4½:3½. Þegar nokkuð var liðið á viðureignina átti Margeir Pétursson við ramman reip að draga í skák sinni við Dag Ragn- arsson og það sama gilti um Karl Þorsteins sem tefldi við Hilmi Frey Heimisson. En þessum þrautreyndu skákmönnum tókst með góðri vörn að halda jöfnu. Staða Helga Áss Grétarssonar var heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir, en hann sneri taflinu við í skákinni við Hollending- inn Robert Ris og vann. Margeir Pétursson hefur undan- farin ár fengið með til keppni fyrir TR hinn kunna liðsstjóra/þjálfara Evrópumeistara Úkraínu, Alexand- er Sulypa. Sá sá góði maður varð eftir að þessu sinni – til að verja land sitt og þjóð. Annar Úkra- ínumaður, Mykhaylo Oleksiyenko, kom í hans stað og var drjúgur fyrir TR. Aðrir sem tefldu fyrir a-sveit TR um helgina voru Þröstur Þór- hallsson, Karl Þorsteins, Guð- mundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson, Ingvar Þ. Jóhannesson, Mikkel Jakobsen, Daði Ómarsson, Bárður Örn Birkisson og Alexander Oliver Mai. Akureyringar kvöddu úrvalsdeild- ina með hetjulegri baráttu gegn Garðbæingum og töpuðu, 3½: 4½. Lokaniðurstaða Úrvalsdeildar varð þessi: 1. TR 16 stig 2. TG 15 stig 3. Víkingaklúbburinn 12 stig 4. Fjölnir 10 stig 5. Breiðablik 6 stig. 6. SA 1 stig. Í fyrsta sinn var tefld tvöföld um- ferð í úrvalsdeildinni. Hugmyndin var alltaf sú að keppnin færi fram á þrem helgum en greinilegt er að kostnaður vex mörgum í augum. Fyrstu tvær umferðirnar fóru fram í húsakynnum TR í Faxafeni en loka- umferðirnar fóru fram í Egilshöll. Margir voru að ná góðum úrslit- um á Íslandsmótinu, t.d. Helgi Áss Grétarsson sem hlaut 8 vinninga af 10 mögulegum, með árangur sem reiknast upp á 2621 elo-stig. Héðinn Steingrímsson hlaut 7½ v. af 10, ár- angur upp á 2656 elo-stig. Í 1. deild sigraði skákdeild KR og flyst upp í Úrvalsdeild. Í 2. deild vann skákdeild Blika öruggan sigur og í 3. deild sigraði d-sveit TR, Í 4. deild vann Skákfélag Sauðárkróks yfirburðasigur. Jóhann Hjartarson og Vignir Vatnar stóðu sig báðir vel um helgina. Þeir mættust í lokaumferð- inni og lenti Vignir í krappri vörn: Íslandsmót skákfélaga 2021- 2022; 10. umferð: Jóhann Hjartarson – Vignir Vatnar Stefánsson Liðsafli er jafn en kóngsstaða hvíts er betri og svartur er að burðast með slæman biskup og þrjá „akademíska veikleika“. Jóhann leitaði lengi að vinningsleið með gegnumbroti á drottningarvæng en fann ekki. Samt er rétta leiðin að leika 45. a5! og eftir 45. … bxa5 46. Bxa5 Be7 47 Bc7 Bf6 bakkar hvítur með biskupinn, 48. Bb6 Be7. 49. Ba5! Minnir á „þríhyrninginn“ – þekkt leikbragð í peðsendatöflum. Eftir 49. … Bf6 50. Bc7! Bg7 51. Bd8 Bh6 52. f3! er svartur í leikþröng og missir peð. Jóhann dró lið sitt til baka og lék 45. Bc1 og eftir 45. … Bc7 46. Kf3 Kd5 47. Ke2 e4! voru erfiðleikar svarts ekki alveg að baki en jafn- teflinu náði Vignir eftir 66 leiki. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Hallfríður Sigu Háspenna TR-ingarnir Þröstur Þórhallsson, Helgi Áss Grétarsson og Myk- haylo Oleksiyenko við taflið. Ríkharður Sveinsson formaður TR og Guð- mundur Kjartansson fylgjast með. Taflfélag Reykjavík- ur sigraði á Íslands- móti skákfélaga Kópavogur er í mik- illi uppbyggingu og mikilvægt að halda þar vel um taumana með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Á und- anförnum árum hefur Kópavogur tekið mikl- um breytingum. Á ár- unum 1990 til 2005 voru byggð fimm ný skólahverfi. Kópavog- ur hefur þannig stækk- að mikið til austurs en einnig hafa ýmis þéttingarverkefni átt sér stað, mörg með góðum árangri. Má þar nefna hverfi eins og Lund og Naustavör. Auðbrekkusvæðið og fleiri svæði eru einnig dæmi um vel heppnaða þéttingu byggðar. Mik- ilvægt er að huga vel að gæðum fyrir íbúa í slíkum þéttingarverkefnum. Þéttingin má ekki vera það mikil að ekki sjáist til sólar í hverfum eða samanstanda af byggingum sem draga niður háloftavindana og búa til trekk um nærliggjandi hús. Ég vil að bærinn okkar sé hlý- legur og að fólkinu sem hér býr líði vel. Það er því grundvallaratriði að vel takist til í skipu- lagsmálum. Vissulega fær bærinn ákveðnar tekjur af seldum lóðum en alltaf þarf að hafa hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi þegar ákveð- ið er hvað, hvar og hvernig skal byggja. Ekki má heldur gleyma að sala á lóð er ein- skiptistekjur. Samráð við bæjarbúa og sérfræðinga á þessu sviði er grunnurinn að því að byggja góðan bæ. Fram undan eru mik- ilvæg verkefni svo sem uppbygging Fannborgarreits, Taðarreits og fleiri svæða. Ég vil að það sé gert í góðu samráði við bæjarbúa, enda er ætlunin að þetta verði miðbærinn okkar. Það eru mörg tækifæri í allri uppbyggingu en samráð og sátt um þessi mál eru einnig mikilvæg. Ég vil taka samtalið um þessi mál og vinna með ykkur að því að byggja upp bæinn okkar. Vinnum saman! Vinnum saman að skipulags- málum í Kópavogi Eftir Berg Þorra Benjamínsson » 1990-2005 voru byggð fimm ný hverfi. Kópavogur hefur þannig stækkað mikið til austurs en ýmis þétt- ingarverkefni hafa átt sér stað, mörg með góð- um árangri. Bergur Þorri Benjamínsson Höfundur býður sig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 12. mars nk. bergur@bergurthorri.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.