Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 30

Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 30
30 MESSUR Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 AKUREYRARKIRKJA | Æskulýðs- guðsþjónusta kl. 11. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur. Þórhildur Eva Helgadóttir leikur á víólu og Guðmund- ur og Hákon Geir á gítar. Umsjón sr. Svavar Alfreð, Sonja og Sigrún Magna. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur og organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskól- inn er á sama tíma í safnaðarheim- ilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdótt- ur og Thelmu Rósar Arnarsdóttur. ÁSKIRKJA | Friðar- og íhugunarguð- sþjónusta kl. 13. Barnastarf á sama tíma. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni annast samverustund sunnu- dagaskólans. Sr. Sigurður Jónsson og Bjartur Logi Guðnason organisti leiða guðsþjónustuna. Hressing í Ási á eftir. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 17. Sönghópur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar leiðir sönginn og sr. Kjartan Jónsson annast prestsþjón- ustuna. Fermingarbörn og aðstand- endur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin. Boðið verður upp á altaris- sakramentið í messunni. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um- sjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfs- son þjónar. Kór kirkjunnar syngur, org- anisti er Örn Magnússon. Alþjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Toshiki Toma og sr. Ása Laufey Sæ- mundsdóttir þjóna, organisti er Örn Magnússon. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Kata, Eva og Jónas Þórir þjóna. Það verður biblíusaga, myndband, söngur og gleði. Guðsþjónusta kl. 13. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messu- þjónum, Jónasi Þóri organista og Kammerkór Bústaðakirkju. Beðið fyrir friði í heiminum og sérstaklega fyrir ástandinu í Úkraínu og fólki á flótta. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Sunna Dóra Möller. Söng- vinir leiða söng. Veitingar í safnaðar- sal að messu lokinni. Hjallakirkja kl. 17. Prestur er Bolli Pét- ur Bollason. Tónlist: Matthías V. Bald- ursson ásamt Gospelkór Vox Gospel. DÓMKIRKJAN | Samstöðumessa með Úkraníu kl. 11. Formaður félags Úkraínumanna á Íslandi, Lyubomyra Petruk, ávarpar kirkjugesti. Forseti Ís- lands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp, sr. Sveinn Valgeirsson þjónar. Erla Rut Káradóttir leikur á orgelið. Dómkórinn. Í messunni verður flutt úkraínsk tónlist en sálmur 52 og bænasvarið kyrie. Kórinn flytur úkraínska þjóðlagið Hljóðnar nú haustblær í útsetningu Magnúsar Ragnarssonar; ljóðið eftir Sigríði I Þorgeirsdóttur og úkraínski þjóðsöngurinn. Messukaffi. FELLA- og Hólakirkja | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhild- ar Valgarðsdóttur. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldu- messa kl. 14. Barnakórinn við Tjörn- ina syngur undir stjórn Álfheiðar Björg- vinsdóttur. Hljómsveitin Mantra ásamt sönghópnum við Tjörnina leiða sönginn undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar, organista. Fermingarung- menni sjá um ritningalestur. Barn verður borið til skírnar. Sr. Hjörtur Magni og dr. Sigurvin Lárus leiða stundina. Fjölskyldur fermingarbarna hvattar til að mæta. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Árni Heiðar Karls- son. Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólm- fríður Frostadóttir. Undirleikari er Stef- án Birkisson. Selmessa er í Kirkjusel- inu í Spöng kl. 13. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Beðið fyrir friði í heiminum og sérstaklega fyrir ástandinu í Úkraínu og fólki á flótta. Kór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdótt- ur, kantors. Hugrún Eva Haraldsdóttir úr Suzukitónlistarskólanum í Reykja- vík spilar á víólu. Sr. Þorvaldur Víð- isson þjónar fyrir altari ásamt messu- þjónum. Hádegisbæn og kyrrðarstund á þriðju- dögum kl. 12, núvitundarstund á fimmtudögum kl. 18.15, einnig í streymi. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem þjónar og prédikar fyrir altari. Org- anisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guð- ríðarkirkju syngur. Sunnudagaskólinn í Safnarheimilinu. Pétur Ragnildarson og Ásta Guðmundsdóttir. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffi og djús í boði eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Sighvatur Karls- son þjónar. Guðmundur Sigurðsson organisti og félagar úr Barbörukórnum syngja. Altarisganga. Sunnudagaskóli á sama tíma. hafnarfjardarkirkja.is HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Annar sunnudagur í föstu. Prestur er Sigurður Árni Þórð- arson. Messuþjónar aðstoða. Vox feminae syngur undir stjórn Hrafnhild- ar Árnadóttur Hafstað. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Ragnheiður Bjarnadóttir og Sólveig Franklínsdóttir. Málþing kl. 12.30. Passíusálmar til útflutnings. Málþing um nýju þýðingu Graciu Grin- dal. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkomur á sunnudögum. Almenn samkoma kl. 11. Samkoma fyrir enskumælandi (English speaking ser- vice) kl. 14. Samkoma fyrir spænsku- mælandi (reunión en español) kl. 16 ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð, fyrirbænum og barnastarfi kl. 13. Björn Inge, ung- lingaleiðtogi Fíladelfíu, prédikar. Kaffi eftir samverustundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskydu- messa kl. 11. Séra Fritz Már þjónar ásamt sunnudagaskólaleiðtogum. Arnór og kór Keflavíkurkirkju leiða söng. KIRKJUSELIÐ í Spöng | Sunnudag- inn 13. mars verður selmessa kl. 13. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Árni Heiðar Karlsson. KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannes- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Fé- lagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Kyrrðar og íhugunarstund með tónlist og bænum í kirkjunni á miðvikudögum kl. 17.30. KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta verður í suðurálmu Hallgrímskirkju klukkan 20, gengið inn að aftan. Séra Úrsúla Árnadóttir prédikar, Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur undir sálmasöng og Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Á eftir verður messukaffi. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli 13. mars kl. 11 í Langholtskirkju. Aldís Rut Gísladóttir prestur leiðir stundina, Futuri kórinn syngur undir stjórn Dagnýjar Arnalds og organisti er Magnús Ragnarsson. Sara Gríms tekur vel á móti börnunum í sunnudagaskólann og boðið verður upp á léttan hádegisverð að lokinni messu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Elísabet Þórðardóttir organisti og Söngfjelagið annast tónlistarflutning ásamt Guðfinni Vilhelm Karlssyni pí- anóleikara. Sr. Jón Ragnarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudaga- skóli í safnaðarheimilinu á meðan. Kaffi og samvera á eftir. Fimmtudagur 17. mars. Opið hús í Áskirkju kl. 12. Helgistund, málsverður og samvera. Helgistund í Hásalnum, Hátúni 10, kl. 4. Sr. Jón Ragnarsson leiðir stundina. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prédikun dagsins flytur Bryndís Böðvarsdóttir guðfræðingur. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Sr. Arndís Linn þjónar fyrir altari. Sunnu- dagskóli kl. 13 og verður þema dags- ins litir og föndur. Það eru Bryndís Böðvardóttir og Þórður Sigurðarsson sem taka á móti börnunum. Mosfellskirkja í Grímnesi | Föstu- messa miðvikudagskvöld 16. mars kl. 20. Fjallað um trúarbaráttuna og passíusálma sr. Hallgríms. Sr. Krist- ján Björnsson og sr. Bolli Pétur Bolla- son. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upp- haf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Lára Bryn- dís Eggertsdóttir. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Ari Agnarsson og Hrafnhildur Guð- mundsdóttir. Kex og kaffi á Torginu eftir guðsþjónustu. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Galdra- messa verður 13. mars kl. 14. Pétur þjónar fyrir altari. Kristján stýrir kórn- um og Bragi Árnason einsöngvari töfrar fram Bitlalög af plötunni Magical Mystery Tour. Pétur sýnir töfrabrögð, 5 og 6 ára börn fá afhentar bækur. Eftir messuna verður veglegt kaffihlaðborð til styrktar Bjargarsjóði, 2000 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr. fyrir börn. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli og Bára leiða stundina og Helgi verður við flygilinn. Guðsþjón- usta kl. 13. Sr. Ólafur Jóhann Borg- þórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Ástandið í Úkraínu. Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og lagahöfundur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kaffitveitingar í safnaðarheimilinu eft- ir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Föstu- messa sunnudag 13. mars kl. 11. Áhersla á passíusálma Hallgríms og trúarbaráttuna, hið innra stríð. Karla- kór í heimsókn. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup, prédikar og þjónar fyrir altari. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í Urriðaholti kl. 10 og í safnaðarheim- ilinu kl. 11. Tónlistarguðsþjónusta í Ví- dalínskirkju kl. 11. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar í sinni fyrstu guðs- þjónustu í kirkjunni. Kór Vídalínskirkju flytur tónlist undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Umfjöllunarefni stund- arinnar verður ljósið, bæði í tali og tón- um og þá verður sérstaklega beðið fyr- ir úkraínsku þjóðinni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjuferð frímúr- ara. Friðgeir Magni Baldursson prédik- ar. Bjarni Atlason og Benedikt Sigurðs- son syngja við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar organista og sr. Bragi J. Ingibergsson þjónar fyrir altari með aðstoð Hamarsbræðra. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Egilsstaðakirkja. ✝ Jón Trausti Markússon var fæddur 21. apríl 1942 á Hafrafelli í Reykhólasveit. Hann lést á heimili ástvina í Reykjavík 24. febr- úar 2022. Foreldrar hans voru Markús G. Guðmundsson, f. 5. október 1915 að Á á Skarðsströnd í Döl- um, d. 22. nóvember 1999, og Bjarnveig Þorgerður Sveinsdóttir, f. 30. maí 1907, d. 17. febrúar 1993. Jón giftist Guðrúnu Konný Pálmadóttur 21. október 1972 og var hún seinni kona hans. Hún er fædd 3. október 1947 í Stykk- ishólmi. Foreldrar hennar voru Rannveig M. Jónsdóttir, f. 9. nóv- ember 1923 í Vatnsholti í Stað- arsveit, d. 20. janúar 2017, og fyrri maður hennar Pálmi Sveins- son, f. 24. október 1921 í Bolung- arvík, d. 16 nóvember 1987. Jón Trausti byggði hús yfir fjöl- skyldu sína við Lækjarhvamm 9 í Búðardal 1971 sem síðan varð heimili þeirra hjóna alla tíð. Þau eignuðust þrjár dætur. 1) Rann- mars 2019. Hann bjó í Perú með Evelyn eiginkonu sinni og tveim- ur börnum. Uppkomin eldri dóttir hans býr í Danmörku. Jón og Konný eiga alls tuttugu og tvö barnabörn og sex barna- barnabörn. Yngri bróðir Jóns er Viðar Auðunn, f. 7. mars 1945, kona hans er Hrefna Magnúsdóttir. Þau eru búsett í Sandgerði og eiga fjögur uppkomin börn. Barnaskólanám stundaði Jón í Reykhólaskóla, síðar nam hann við Unglingaskólann á Reykhól- um. Hann lærði rafvirkjun í Iðn- skólanum í Reykjavík og hjá Ein- ari Stefánssyni rafvirkjameistara í Búðardal. Síðasta hluta iðnskólanámsins lauk hann á Patreksfirði 1972, tók sveinspróf í júní sama ár og hlaut meistararéttindi 1976. Hann vann hjá Einari meistara sínum í rúm 23 ár eða frá árinu 1962 til 1985 en þá hóf hann störf hjá Rarik í Búðardal og starfaði þar til sjö- tugs eða í 27 ár. Jón Trausti greindist með krabbamein í ársbyrjun 2021. Þrátt fyrir lyfja- og geislameðferð og síðan skurðaðgerð á síðasta ári tók meinið sig upp aftur. 10. febr- úar sl. kom í ljós að sjúkdómurinn reyndist ólæknanlegur. Bálför hans hefur farið fram en sérstök kveðjuathöfn verður hald- in í félagsheimilinu Dalabúð í dag, 12. mars 2022, klukkan 14. veig Margrét, f. 27 mars 1972, á Pat- reksfirði, búsett í Danmörku með eig- inmanni sínum Danna Hansen. Þar búa einnig tvö upp- komin börn hennar. 2) Hrönn, f. 20. jan- úar 1981, á Akra- nesi, hún á þrjú börn og býr með þeim í Noregi ásamt sam- býlismanni sínum, Jan Egil Forn- es. 3) Kolbrún, f. 2. júlí 1986, á Akranesi. Hún er búsett í Grinda- vík með tveimur börnum sínum. Fósturdóttir Jóns Trausta sem hann ól upp sem sína eigin er Linda Björk Sæmundsdóttir, f. 23. janúar 1967, á Akranesi. Hún býr í Noregi og á fjóra uppkomna syni sem allir búa á Íslandi. Jón átti tvo syni frá fyrra hjónabandi. 1) Gísli Hraunfjörð, f. 22. júlí 1963 í Reykjavík. Hann býr í Færeyjum með sambýliskonu konu sinni, Ann Dam Árnastein og fimm börnum þeirra en þrjú eldri uppkomin börn Gísla búa öll á Íslandi. 2) Trausti Hraunfjörð, f. 20. mars 1966 í Reykjavík, d. 26. Elsku pabbi minn. Ég er enn þá að meðtaka það að þú sért ekki hérna með okkur, alla- vega ekki í því formi sem við erum vön. En ég finn sterkt fyrir návist þinni á annars konar hátt. Mér finnst þú vera meðal okkar, með þitt jafnaðargeð, þolinmæði og kærleik. Það leit út fyrir að þú ættir kannski einhverja mánuði eftir. Aldrei datt mér í hug að það yrðu bara 15 dagar. Ég hefði svo inni- lega viljað fá meiri tíma, en er líka svo óendanlega þakklát fyrir þann tíma sem gafst. Þakklát fyrir stundirnar okkar saman í gegnum tíðina, þakklát fyrir allt sem þú kenndir mér, þakklát fyrir að Markús og Bergrún fengu að kynn- ast afa sínum, einstökum manni með hjarta úr gulli. Allt lék í stóru, hlýju höndunum þínum, hvort sem það voru risavax- in verk með þungum verkfærum, eða agnarsmá með nál og tvinna. Allt nema kannski píanóið, við hlóg- um oft af því hvað það lét illa að stjórn, hvernig tónarnir í höfðinu skiluðu sér illa út í fingurna. Það er svo ótal margs að minn- ast, en nú er eins og þeir tónar skili sér ekki út í mína fingur, svo ég geymi þær gersemar áfram í hjart- anu. Þín er sárt saknað, elsku pabbi minn. Takk fyrir allt. „Hversu heppinn er ég að eiga einhvern sem er svo erfitt að kveðja.“ – Bang- símon. Kolbrún Jónsdóttir. Elsku pabbi minn. Það kemur víst aldrei að því að maður finni sig fullmettan af hlátri, samtölum og ást. Það er aldrei nægur tími, sama hve vel er skammtað. Þessi kveðjustund kem- ur allt, allt of snemma, en núna var tíminn okkar saman bara búinn. Héðan af verður okkur að nægja að heyra hláturinn þinn í minning- unni, að finna sögurnar þínar innra með okkur sjálfum og nema elsku þína í vindinum, í sólinni, í tónlist meistara, í jólaljósum, í ilmi bóka, í pappírsmiðum og rauðum ópal. Skáldið mikla sagði: „Þegar þú lítur í augun á þeim sem þú elskar þá skilurðu að enginn dauði er til.“ Þessi orð hugga mig í dag eins og höndin, sem þú lagðir á höfuðið mitt einn síðustu daganna okkar saman. Ég er þér svo dæmalaust þakk- lát og þeim heimi sem leyfði mér að eiga þig að föður. Þú ert fyrirmynd þolinmæði, æðruleysis, hjálpsemi, gæsku, frásagnargleði og bjartsýni. Það er ómetanlegur verkfærakassi. Þú hélst um hendur mér þegar ég var hrædd, veik, þreytt eða ráð- villt. Ég sat á háhesti og skoðaði heiminn. Faðmur þinn var kjölfest- an mín, traustar hendur þínar vermdu mig. Þú veittir mér frelsi, leyfðir mér að fara. Þó var faðm- urinn opinn þegar ég þurfti hug- hreystingu og styrk. Ég mun ætíð leita í hann, þó hann sé núna hugmynd ein. Hrönn Jónsdóttir. Elsku mágur og vinur. Eftir stutta en harða baráttu við illvígan og óvæginn sjúkdóm máttir þú láta undan þann 24. febrúar sl. Eftir stóra aðgerð og meðferð á árinu sem leið gekk allt vel og þú náðir skjótum bata enda líkamlega og andlega ótrúlega sterkur. Þann 6. febrúar sl. komuð þið hjónin til okk- ar í Árskóga frá Búðardal og þá var ljóst í hvað stefndi. Enginn vissi þá hve fáir þínir hinstu dagar yrðu. Sú barátta einkenndist af hógværð og æðruleysi sem voru raunar meðal þinna góðu lyndiseinkunna alla tíð. „Það er ekki búið fyrr en það er bú- ið“ sagðir þú bara og sast með nál og tvinna og gerðir við buxurnar þínar. Vinátta okkar stóð í 50 ár eða allt frá frá því að þú og systir mín hófuð búskap að Lækjarhvammi 9 í Búð- ardal. Þú varst auðvitað þekktur rafvirkjameistari sem alkunna er en þar fyrir utan varstu jafnvígur á tré og járn. Alls þessa nutum við hjónin ríkulega alla tíð sem og íbú- ar Reykhóla og nágrennis, Dala- sýslu allrar og raunar víðar. Sagt er að varla finnist það heimili á þessu svæði öllu sem ekki naut á einhvern hátt greiðvikni þinnar og fag- mennsku. Við hjónin þökkum þér innilega fyrir langa og gefandi samfylgd. Fjölskyldunni allri vottum við okk- ar dýpstu samúð. Við dáumst að samheldni ykkar, æðruleysi og styrk. Guð blessi ykkur öll. Þorvaldur Pálmason. Það var fastur passi hjá pabba og Huldu að renna úr Hafnarfirð- inum í Búðardal á hverju sumri og ekki bara til að koma við heldur setjast upp í nokkra daga. Það var ekki bara elskuleg, vel gefin og skemmtileg bróðurdóttir pabba sem þau sóttu í. Það var kannski enn frekar maðurinn hennar, Jón Trausti, sem pabbi sótti í fé- lagsskap við. Ævinlega hlýr og létt- ur í lund og alltaf til í að taka skák. Ekki bara eina eða tvær, heldur hundrað skáka einvígi ef svo bar undir. Jón Trausti var mikill náttúru- unnandi, frá Hafrafelli í Reykhóla- sveit, einu alfallegasta berjalandi sem ég hef kynnst. Það er ekkert eins dásamlegt og að sitja þar hátt uppi í aðalbláberjabrekku, í algerri stillu í ljósaskiptunum og heyra ekkert nema grátinn í himbriman- um á Berufirði. Eftir að pabbi var orðinn einn fékk ég að fylgja honum í Búðardal. En það var löngu fyrr sem ég sett- ist upp hjá Jóni og Guðrúnu Konný, frænku minni og nöfnu. Það var þegar ég var að því kom- inn að ljúka námi í Árósum og tók að mér afleysingu á heilsugæsl- unni. Mér tókst að koma því þannig fyrir að ég fékk að vera í fæði og húsnæði hjá frænku og þá fylgdi Nonni með í kaupunum. Manni leiddist ekki eitt augna- blik í þeim félagsskap. Jón var mik- ill bókamaður og feiknarlega vel lesinn. Hann var áhugasamur um pólitík og Vilmundur Gylfa var hans maður, meðan hans naut við og lengur. Ég ætla að sleppa bíl- unum, það er kafli út af fyrir sig. En ég verð að fá að segja eina sögu af Jóni Trausta sem er mér svo dýrmæt minning. Hann var einu sinni sem oftar að vísa mér á berjamó í Dalasýslu. Að þessu sinni lá leiðin fram í Haukadal og fór hann með mig alveg inn í botn þar sem foss fellur nálægt gamalli rétt. Framan við hana liggur flöt sem af- markast af kvíslum Haukadalsár. Ég hef víða farið í berjamó, en þeg- ar ég kom að réttarflötinni hafði ég aldrei séð aðra eins sprettu af krækiberjum. Þau spruttu svo þétt að ég sá ekki betur en þau væru ferköntuð til að komast betur fyrir hvert hjá öðru. Þannig opnaði Jón fyrir mér leyndardóm í náttúrunni, nánast eins og dulræna reynslu. Eitt framhaldið á þessari sögu er þegar Guðfinnur sonur minn var með mér í Borgarfirði og við á leið í berjamó sem oftar. Hann vildi fara í Haukadal, en það var dembandi rigning svo langt sem augað eygði, mér sýndist kannski skárra í Borg- arfjarðardölum og stakk upp á Húsafelli. Nei, Haukadalur skyldi það vera. Við ókum frá Heyholti í dembandi rigningu, fórum Bröttu- brekku og ekkert sást nema rign- ing í Dölunum. En um það leyti sem við nálguðumst brúna yfir Hauka- dalsá sá í birtublett fremst í daln- um. Þegar nær dró kom í ljós að réttarflötin var eini þurri bletturinn á svæðinu þennan daginn. Jón Trausti var með okkur í anda. Ég þakka mínum kæra berjavini samfylgdina og gleðistundir í berja- mó, við skákborð og spjall. Fjöl- skyldu hans votta ég innilega sam- úð. Minning Jóns Trausta lifir. Sveinn Rúnar Hauksson. Jón Trausti Markússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.