Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
✝
Reynir Guð-
mundsson
fæddist á Horna-
firði þann 13. júlí
1951. Hann lést á
Skjólgarði Horna-
firði þann 1. mars
2022.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Þorgrímsson, f. 21.
september 1917, d.
27. maí 2002, og Jó-
hanna Lúvísa Þorsteinsdóttir, f.
13. janúar 1920, d. 17. maí 2010.
Reynir var yngstur í sínum
systkinahópi en systkini hans
eru: Óskar Unnsteinn, f. 17.
febrúar 1944, Erlingur Kristinn,
f. 4. október 1946, Þorgrímur, f.
10. febrúar 1948, og Sædís, f. 24.
febrúar 1950.
Úr fyrra hjónabandi eignaðist
Reynir 1) Ívar Smára, f. 14.
Stefáns er Reynir Leó.
Börn Sigríðar eru 1) Elsa
Lára Arnardóttir, f. 30. desem-
ber 1975. Maki hennar er Rúnar
Geir Þorsteinsson. Börn þeirra
eru Þorsteinn Atli og Þórdís
Eva. 2) Sigrún Ólöf Björgvins-
dóttir, f. 28. febrúar 1980. Maki
hennar er Jóhann Hilmar Har-
aldsson. Börn þeirra eru Nína
Dögg, Petra Rós, Hilmar Óli,
Emilía Ósk og Guðbjörg Lilja. 3)
Helga Jóna Björgvinsdóttir, f.
14. september 1981. Unnusti
hennar er Sigurður Þór Run-
ólfsson. Börn þeirra eru Sigríð-
ur Elín, Íris Björg og Jón Þór.
Reynir og Sigríður eiga átján
barnabörn og eitt langafa- og
langömmubarn.
Reynir var sjómaður og starf-
aði síðan í netagerð Skinney
Þinganes. Hann vann allan sinn
starfsaldur hjá sjávarútvegsfyr-
irtækjum á Hornafirði.
Útför Reynis fer fram frá
Hafnarkirkju í dag, 12. mars
2022, kl. 11. Athöfninni verður
streymt frá hafnarkirkja.is.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
mars 1974. Maki
hans er Anna Björg
Kristjánsdóttir.
Börn þeirra eru
Áróra Dröfn,
Selma Ýr og Krist-
ján Reynir. 2) Jó-
hönnu Lúvísu, f. 7.
ágúst 1978. Börn
hennar eru María
Mist, Katrín Þóra,
Markús Thor og
Valdís Lilja.
Eftirlifandi eiginkona Reynis
er Sigríður Lárusdóttir, f. 4.
febrúar 1960. Þau giftu sig í
Akraneskirkju 9. september
2000. Foreldrar hennar eru Elsa
Sigurðardóttir, f. 21. janúar
1940, og Stefán Lárus Pálsson,
f. 20. maí 1940. Barn Reynis og
Sigríðar er 1) Stefán Lárus, f.26.
febrúar 1992. Sambýliskona
hans er Auður Gísladóttir. Barn
Ástin mín hvað get ég sagt, að
missa þig frá mér er erfiðara en
orð fá lýst. Við höfum verið saman
í nær 35 yndisleg ár, við vorum
eitt. Við vorum svo stolt af ríki-
dæminu okkar, öllum börnunum
okkar, barnabörnum og barna-
barnabarninu. Fjölskyldan okkar
er stór og samheldin og þú elsk-
aðir okkur öll.
Það að fá að njóta ástar þinnar
öll þessi ár yljar mér nú. Þú varst
svo ástfanginn af konunni þinni og
sýndir mér það oft á dag. Við vor-
um svo góð saman, elskuðum að
vera með stórfjölskyldunni,
ferðast og vera ein saman. Hvað
get ég sagt, hvað get ég gert,
þetta er svo erfitt. Við héldum eft-
ir öll þessi veikindi sem þú hafðir
barist við að núna væri komið að
okkur að njóta, alltaf héldum við
að við gætum saman sigrast á
þessu, læknarnir gáfu okkur alltaf
von. Þú fórst að vinna í febrúar og
varst svo glaður að geta haldið
áfram, en þá kom enn eitt áfallið,
þrekið var svo lítið að þú varðst að
játa þig sigraðan í bili. Ástin mín,
ég sakna þín svo mikið, þú varst
það besta sem ég átti. Margar
góðar minningar þjóta um huga
minn, elsku fallegi maðurinn
minn, og þær er gott að eiga.
Þú kallaðir á mig í síðasta sinn
horfðir á mig, greipst í höndina
mína og kvaddir mig með þessum
orðum: ástin mín, ástin mín, ástin
mín. Þessi orð lýsa hug þínum til
mín og mínum til þín. Takk fyrir
að vera til fyrir mig og börnin
okkar.
Elsku Reynir minn, ég mun
alltaf elska þig fallegi, dásamlegi
maðurinn minn.
Þín að eilífu Sigga Lár.
Sigríður.
Elsku pabbi, ég á svo erfitt
með að trúa því að þú sért farinn,
það er eitthvað svo óraunverulegt,
ég hélt ég hefði nægan tíma. Því
miður var staðan þannig að við
þekktum hvort annað ekki náið,
þú vissir t.d. ekki að ég væri með
aulahúmorinn þinn eða hversu
sárt mér fyndist að samband okk-
ar væri svona stirt. Mér finnst ég
aldrei hafa fengið tækifæri til að
kynnast þér almennilega enda
voru samverustundirnar ekki
nógu margar. En þegar ég hugsa
til baka þá man ég þegar ég var
lítil og kom austur til þín. Þú
leyfðir mér að koma í vinnuna
með þér, þú leyfðir mér líka að
leika með allt playmoið hans Ívars
út um alla stofu. Á kvöldin, þegar
ég var að fara að sofa, þá hélstu á
mér á hvolfi inn í rúm og kysstir
mig góða nótt. Þegar þú komst
svo í bæinn þá fórum við stundum
í Staldrið og fengum okkur
rækjusamloku og appelsín.
Elsku pabbi, það er svo sárt að
kveðja þig og fá ekki tækifæri til
þess að kynnast þér betur en
minningin um góðan mann lifir að
eilífu. Hvíldu í friði elski pabbi
minn, ég elska þig.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín dóttir,
Jóhanna Lúvísa
og barnabörn.
Þegar kemur að kveðjustund
er margs að minnast, oft standa
uppúr smáu atriðin í daglega líf-
inu sem voru svo sjálfsögð í okkar
huga. Öll símtölin þegar við feðg-
ar hringdumst á, bara til að taka
stöðuna hvor á öðrum og fá frétt-
ir, það verður mikið tóm þegar
pabbi hringir ekki og verður held-
ur ekkert „best að heyra aðeins í
kallinum“. Skrítnu pabbabrandar-
arnir sem ekki var hægt annað en
að hlæja að gleymast seint en þeir
virðast ganga í erfðir svo þeim
verður haldið á lofti.
Fíllinn sem þú valdir handa
nafna þínum þegar hann fæddist
var heldur betur vel valinn, 12 ár-
um síðar er hann enn bestur og
mun alltaf minna okkur á þig.
Uppúr standa dásamlegar
minningar úr hversdagsleikanum,
frá stórhátíðum og ferðum innan-
lands og erlendis. Við þökkum
fyrir að hafa getað haldið upp á 70
árin með þér síðastliðið sumar en
þá hvarflaði ekki að okkur að af-
mælin yrðu ekki fleiri.
Takk fyrir allt elsku pabbi, þú
varst kletturinn minn á mínum
uppvaxtarárum.
Þinn
Ívar Smári og fjölskylda.
Elsku pabbi minn, ég trúi því
ekki ennþá að þú sért farinn, allar
góðu stundirnar okkar saman.
Betri pabba gæti ég ekki óskað
mér að hafa átt. Ég kveð þig með
söknuð í hjarta og hugsa um allar
þær góðu stundir sem við áttum
saman. Ég mun sakna þess að
geta ekki fengið mér mjólk og kex
með þér á kvöldin eins og við
gerðum svo oft alveg síðan ég
man fyrst eftir mér. Ástin sem þú
gafst okkur, ég hef aldrei séð
neinn mann elska konu eins og þú
elskaðir mömmu, þið voruð svo
heppin með hvort annað. Minn-
ingar um þig eru mér svo dýr-
mætar, ég sakna þín svo mikið.
Reynir Leó afastrákurinn þinn
var svo heppinn að fá að kynnast
þér, þið voruð alltaf svo glaðir
saman, hann á eftir að sakna afa
Reynis síns mikið.
Takk fyrir ferðalagið elsku
besti, ég mun aldrei gleyma þér,
takk fyrir allt sem þú kenndir
mér. Elska þig til tunglsins og til
baka.
Þinn sonur
Stefán Lárus.
Elsku fóstri, afi og tengda-
pabbi, Reynir Guðmundsson. Það
er önnur tilvera og sár að hafa þig
ekki til staðar frá degi til dags.
Við söknum þín óskaplega en það
er engu líkara en við búumst við
þér í pítsu á Heiðarbrautina,
næsta föstudag, líkt og hefð hafði
skapast fyrir síðustu misseri eða
ár. Þú hefur hins vegar kvatt hót-
el jörð og þitt samferðafólk eftir
stutt veikindi. Við erum þakklát
fyrir að hafa átt þig að og hafa
notið manngæsku þinnar, ástar og
umhyggju. Þú verður alltaf í
hjarta okkar, minningum og
hugsunum elsku Reynir. Þegar
þú og Sigga fóruð að fella saman
hugi og byrja sambúð, tókst þú á
móti þremur ungum stúlkum á
aldrinum sex til tólf ára. Segja má
að Ívar einkasonurinn á þessum
tíma sem bjó með þér hafi fengið
fangið fullt af þremur systrum.
Sjálfsagt hefur það reynst ærið
verkefni fyrir fjórtán ára Ívar á
þeim tíma. Frá þessum dögum og
til þíns síðasta dags reyndist þú
happafengur og algjör klettur fyr-
ir systurnar Sigrúnu, Jónu og
Elsu en líka ástina þína, líkt og þú
ætíð kallaðir Siggu. Allir heyrðu,
sáu og skynjuðu að samband þitt
og Siggu var umvafið ást, um-
hyggju og virðingu. Okkur þykir
vænt um að börnin okkar tali um
að amma og afi hafi verið svo ást-
fangin. Þetta fræ, þessi minning á
eftir að lifa með þeim alla ævi og
gefa þeim gott fordæmi í þeirra
nálgun á rómantíkina. Það er
margt sem börnin okkar hafa
nefnt með brosi og hlýju á milli
táranna síðustu daga. Við ætlum
að nefna nokkrar setningar sem
þau hafa látið falla. Alltaf þegar
afi var spurður, hvað er í matinn
sagði hann „burtflogin hænsn og
teiknaðar kartöflur“ svo hló hann
og við með. Alltaf þegar matar-
tíminn var búinn heima hjá afa og
ömmu fór afi út í frystinn í bíl-
skúrnum og náði í íspinna fyrir
okkur. Afi gerði besta rabarbar-
agraut í heimi. Þegar við vorum
eitthvað óþæg sagði afi „á ég að
hrista úr þér óþekktina?“ og grín-
aðist í leiðinni. Þegar við vorum
mikið í símanum eða spjaldtölv-
unni sagði afi „vissirðu að síma-
lausi dagurinn er á morgun?“ Afi
að lakka á mér neglurnar. Afi að
reyna að fá Mola til að setjast. Afi
að segja fimmaurabrandara.
Elsku Reynir, börnin okkar
hefðu ekki getað hugsað sér betri
afa. Ég hefði ekki getað hugsað
mér betri fóstra líkt og við systur
kölluðum þig og betri tengda-
pabba er vart hægt að hugsa sér.
Við gætum haldið áfram að tala
um svo margar góðar minningar.
Ferðalögin sem við fórum í sam-
an, ferðin til Manchester, sum-
arbústaðaferðirnar, útilegurnar
og Jöklabræðraferðirnar. Svo
bara allar hversdagslegu stund-
irnar heima á Höfn. Takk fyrir
samfylgdina, takk fyrir allar
minningarnar. Við munum alltaf
elska þig og megi Fjörðurinn og
algóði guð vefja þig sínum örm-
um. Þú mikla fyrirmynd, elsku
Reynir okkar. Takk fyrir allt og
allt.
Ástarkveðjur, fjölskyldan þín á
Heiðarbrautinni,
Sigrún Ólöf, Jóhann
Hilmar, Nína Dögg,
Petra Rós, Hilmar Óli,
Emilía Ósk og Guðbjörg
Lilja.
Elsku besti Reynir pabbi.
Það er óraunverulegt að sitja
hér og skrifa til þín minningar-
grein. Við fjölskyldan áttum eftir
að búa til svo margar minningar
saman og stund sem þessi langt
frá því að vera tímabær.
En elsku besti Reyni minn. Ég
er svo þakklát að hafa fengið að
eiga þig sem pabba og ég held ég
hafi aldrei þakkað þér nógu vel
fyrir hversu vel þú tókst á móti
okkur systrum þegar þú og
mamma urðuð par. Frá fyrstu
stundu áttum við stóran sess í
hjarta þínu og þú í okkar.
Ég veit það hafa örugglega
verið viðbrigði að fá allt í einu
þrjár stelpuskottur inn í líf sitt.
Það er nefnilega ekki hægt að
segja að það hafi alltaf verið logn-
molla í kringum okkur systurnar
en þú virtist hafa endalausa þol-
inmæði, ást og umhyggju til að
gefa okkur. Fyrir það verð ég allt-
af þakklát.
Mig langar að þakka þér fyrir
góðu uppvaxtarárin mín í Óláta-
garði. Takk fyrir allar góðu minn-
ingar sem ylja svo sannarlega.
Ein þannig er minning af okkur
vera að dansa á ættarmóti og þá
kom einhver til okkar og sagði
„það er mikill svipur með ykkur
feðginunum“. Við þökkuðum bara
fyrir og brostum hvort til annars.
Vorum ekkert að leiðrétta og
segja að ég væri uppeldisdóttir
þín. Held við höfum bæði bara
verið stolt af því að heyra þetta þó
við vissum að það væri líklega lítill
sem enginn svipur með okkur.
Mér þykir líka óskaplega vænt
um allar „ræs“ minningarnar þó
mér hafi líklega ekki þótt jafn
vænt um þær þegar ég var vakin
þannig upp á morgnana. Mér þyk-
ir vænt um bíltúrana okkar saman
á bláa pikkanum þegar þú skutl-
aðir mér í Heppuskóla, vænt um
samverustundirnar þegar þú
kenndir mér á bíl og svona get ég
lengi haldið áfram.
En elsku Reynir, við áttum
samt eftir að gera svo margt sam-
an. Við fjölskyldan ætluðum okk-
ur í ferðalag með haustinu. Við
Rúnar og þú og mamma áttum
eftir að fagna svo mörgum sam-
eiginlegum brúðkaupsafmælis-
dögum. En okkur Rúnari þykir
mjög vænt um að þið hafið átt
daginn okkar með okkur.
Þú áttir eftir að fá að sjá svo
margt eins og t.d. að vera við út-
skrift Þórdísar Evu í vor, fagna
mörgum Liverpool-sigrum með
Rúnari og Þorsteini og þú áttir
eftir að fá að fylgjast með litlu
dásamlegu langafastelpunni þinni
Aríel Freyju.
Elsku Reynir. Það er tómlegt
hér án þín og stórt skarð hefur
myndast í fjölskylduhópinn þinn
úr Ólátagarði. En við munum
passa vel upp á mömmu og styðja
hvert annað á þessum tímum sem
fram undan eru.
En mundu elsku Reynir minn
að við elskum þig alltaf. Alla leið
til tunglsins og stjarnanna, langt
út í geim og alla leið aftur heim.
Með þökk fyrir allt.
Þín,
Elsa Lára og fjölskyldan
þín úr Eikarskógum 4.
Reynir
Guðmundsson
- Fleiri minningargreinar
um Reyni Guðmundsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR EBENEZERSSON,
Skúlagötu 40a,
lést fimmtudaginn 24. febrúar á
Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fór fram í kyrrþey 4. mars frá
Háteigskirkju að ósk hins látna.
Ebenezer Þ. Ásgeirsson
Hinrik Ásgeirsson Nataly Sæunn Valencia
Lára Fjeldsted Ásgeirsdóttir Michael Brookman
og barnabörn
Okkar elskulegi
BIRGIR ÞÓR ARNARSON,
Skúlagötu 11, Borgarnesi,
lést föstudaginn 4. mars.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 18. mars klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónína Birgisdóttir Sigríður Svavarsdóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ELÍSABET SIGMUNDSDÓTTIR
frá Melum í Trékyllisvík,
lést laugardaginn 5. mars á
Hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 18. mars klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Grundar fyrir góða umönnun.
Sigrún Jóhannsdóttir Jörundur Matthíasson
Dyljá Sól, Daníel Sveinn og Dagur Smári
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
GÍSLI HALLDÓRSSON
klæðskeri frá Hafnarfirði,
lést 2. mars á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Jarðsungið verður frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu, Hátúni 2, mánudaginn 14. mars
klukkan 11, útförinni verður streymt á filadelfia.is/live.
Þökkum starfsfólki á Hrafnistu Ölduhrauni fyrir frábæra
umönnun.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Samúel Gíslason Ragna Rut Magnúsdóttir
Aron Gísli Samúelsson
Mikael Andri Samúelsson