Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
✝
Þórunn Sigríð-
ur Oddsteins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 5. júlí
1938. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 28.
febrúar 2022. For-
eldrar hennar voru
Oddsteinn Árnason
frá Pétursey í Mýr-
dal, f. 4. janúar
1895, d. 25. október
1947, og Gunnheiður Guðjóns-
dóttir frá Hlíð í Skaftártungu, f.
31. mars 1907, d. 17. nóvember
1984. Systkini hennar eru Valur
Guðjón Oddsteinsson bóndi í Út-
hlíð í Skaftártungu, f. 23. ágúst
1941, og Árni Oddsteinsson bif-
reiðasmiður Vík í Mýrdal, f. 27.
Viðar Loga. Anna Sigrún Ás-
mundsdóttir, f. 14. maí 1978.
Maki hennar er Ingvar Sigurður
Alfreðsson, saman eiga þau þrjú
börn, Viktor Örn, Ásmund
Steinar og Þórunni Örnu. Guð-
jón Eiður Ásmundsson, f. 17. júlí
1980. Maki hans er Sigríður
Tryggvadóttir, saman eiga þau
tvö börn, Darra Stein og Aðal-
björgu Heiði.
Þórunn nam við farskólann í
Hlíð í Skaftártungu. Stundaði
nám við hússtjórnarskólann á
Laugarvatni 1958-1959. Lauk
kennaraprófi frá gamla Kenn-
araskólanum 1971.
Þórunn kenndi við Alþýðu-
skólann á Eiðum 1971-1973,
Héraðsskólann að Skógum
1973-1984, Barnaskólann að
Skógum 1973-1977, Grunnskól-
ann á Eiðum 1984-2005 þegar
hún lauk störfum.
Útför Þórunnar Sigríðar
verður gerð frá Grafarkirkju í
Skaftártungu í dag, 12. mars
2022, klukkan 14.
febrúar 1946.
Eftirlifandi mað-
ur Þórunnar Sig-
ríðar er Ásmundur
Þórhallsson húsa-
smiður frá Orms-
stöðum í Eiða-
þinghá, f.
28.september 1935.
Börn þeirra eru
Oddsteinn Gunnar
Ásmundsson, f. 26.
apríl 1975. Maki
hans er Berglind Gunnarsdóttir
saman eiga þau þrjú börn,
Gunnar Tjörva, Þórönnu Stef-
aníu og Freyju Gunnheiði. Þór-
hallur Rúnar Ásmundsson, f. 23.
janúar 1977. Maki hans er Lilja
Sigurðardóttir, saman eiga þau
þrjú börn, Hörpu Sif, Trausta og
Elsku besta mamman mín, nú
er komið að þessu. Eitthvað sem
ég hef óttast síðan ég var krakki.
Alltaf hrædd um að þú myndir
deyja frá mér því hvað átti ég að
gera ef þú værir ekki. Það var
bara eitthvað sem gengi ekki upp.
Til allrar hamingju fékk ég að hafa
þig þetta lengi en engu að síður er
söknuðurinn og sorgin mikil.
Það er svo furðulegt að geta
ekki hringt í þig og spjallað um
daginn og veginn, spurt þig ráða
um eitthvað sem ég þyrfti ráða
með og oftar en ekki fundum við
saman niðurstöðu. Gott að spjalla
við þig um krakkana og oftar en
ekki kom frá þér að ég mætti nú
ekki vera of hörð við þau eða að
jagast of mikið í þeim. Það var
eitthvað sem þú varst alveg laus
við og hafðir einstaklega gott lag á
þessum barnabörnum þínum. Þú
skildir svo vel ef þeim leið illa og
viðurkenndir þeirra vanlíðan og
eins tókstu sýnilega þátt í þeirra
gleði. Þetta gerði það að verkum
að þeim fannst, eins og mér, svo
gott að spjalla við þig um allt og
ekkert.
Þó svo að þú værir orðin svolítið
gömul kella þá fannst þér þú vera
miklu yngri, sagðir stundum að
við systkinin héldum þér ungri.
Enda varstu líka alltaf svo ung í
anda.
Svo var dugnaður þinn magn-
aður og ósérhlífnin. Aldrei
kvartaðirðu (sem þú hefðir sann-
arlega mátt gera). Ég man eftir
því að þegar þú fórst einu sinni
til að láta mynda á þér hrygginn
sennilega fyrir 15 árum. Þá
sagði læknirinn við þig að þetta
væri nú ónýtt bak. Þá sagðirðu
við mig að þér hefði nú bara þótt
betra að vita þetta ekki, þú værir
engu bættari með að vita af
þessu ónýta baki.
En þessi dugnaður og ósér-
hlífni er sennilega partur af því
að þegar þú ert einungis níu ára
missir þú pabba þinn og eftir er-
uð þið amma og bræður þínir og
leggist á eitt að halda búskapn-
um í Úthlíð áfram. Ég veit að afi
og amma taka vel á móti þér.
Þolinmæði þrautir vinnur allar,
já það var líka eitt af þínum ein-
kennum, man eftir að góða kona
frænda míns sagði við mig um þig
„að hún hefði varla kynnst þolin-
móðari manneskju“. Það held ég
bara að sé svolítið sannleikskorn í
því.
Það var afskaplega lítið að að-
finnslum í okkar uppvexti að þinni
hálfu. En einu man ég þó eftir
þegar ég var að hræra út sósu í
potti og ég auðvitað hrærði bara
kröftuglega í báðar áttir. Það
fannst þér alveg ómögulegt. Það
átti alltaf að hræra í sömu átt því
annars gæti sósan orðið seig. Mér
fannst þetta alveg furðuleg að-
finnsla, gæti þetta virkilega skipt
máli? En ætli ég haldi mig ekki
bara við báðar áttir og brosi til þín.
Elsku mamma mín við hin
reynum að hafa þig að leiðarljósi.
Kyss og knús,
stelpan þín,
Anna Sigrún.
Nú fylgjum við henni dásam-
legu og hjartahlýju Þórunni,
tengdamóður minni og vinkonu,
síðasta spölinn. Það var mín lífsins
lukka að kynnast syni hennar og
með honum fylgdi þessi líka frá-
bæra fjölskylda sem ég er svo
þakklát fyrir að vera partur af.
Hún Þórunn var hjartahlý, góð og
þolinmóð kona og veit ég til þess
að hún hafi hjálpað ansi mörgum í
gegnum tíðina og tekið bæði full-
orðna og börn, sem þurftu smá að-
stoð í lífinu, inn á heimilið sitt að
Ormsstöðum. Börnin mín eru ein-
staklega heppin og njóta góðs af
því að hafa átt Þórunni fyrir
ömmu, hún var svo lagin og natin
við þau og mun hún ætíð eiga stór-
an stað í hjarta þeirra.
Hún Þórunn vissi vel að hlut-
irnir fara nú ekki alltaf eins og
þeir eru planaðir og átti ég (plan-
arinn) það til að brosa yfir „sjáum
nú til“ og „vonandi“ svörunum
hennar. Svo gerðist það eitt sinn
að við fjölskyldan vorum að fljúga
austur rétt fyrir áramót, til að
dvelja þar hjá Þórunni og Ás-
mundi sem bjuggu þá enn á Orms-
stöðum. Ég tala við Þórunni dag-
inn fyrir flug og kveð hana með
orðunum „sjáumst á morgun“ og
tengdamóðir mín svarar „já von-
andi gerum við það“ og ég gat ekki
annað en hlegið þar sem allt var
klappað og klárt, allt komið ofan í
töskur og flugmiðarnir klárir. Viti
menn, daginn eftir snjóaði svo
mikið í Reykjavík að fluginu var
seinkað um sólarhring. Já, hún
Þórunn vissi að hlutirnir fara ekki
alltaf eftir áætlun og það höfum
við svo sannarlega upplifað síð-
ustu tvo mánuði frá því hún veikist
skyndilega, þessi hrausta kona, en
við erum afar þakklát fyrir að hafa
fengið að hitta hana og kveðja
þessa síðustu daga.
Elsku Þórunn mín, við erum
svo rík að hafa átt þig að og við
munum sakna þín sárt, en við eig-
um svo margar minningar í bank-
anum til að ylja okkur við og nú
óskum við þér góðrar ferðar í
þetta loka ferðalag.
Sigríður Tryggvadóttir.
Elsku hjartans tengdamamma
mín er farin til guðs, eins og hún
sagði sjálf og eins sorglegt og það
er að þessarar ljúfu og yndislegu
sálar njóti ekki lengur við og að
þessi yfirþyrmandi sorg yfir öllum
þeim stundum sem við munum
ekki eiga með henni hangi yfir, að
þá er hjartað einhvern vegin fullt
af þakklæti, yfir þeim tíma sem við
áttum saman, yfir því að hafa
kynnst og fengið að njóta hennar
nærveru og ekki síst þess að börn-
in mín hafi átt hana að sem ömmu.
Þakklát fyrir að hafa allt frá
okkar fyrstu kynnum upplifað
mikla virðingu og skilning í okkar
samskiptum og ég vona svo sann-
anlega að ég hafi sýnt henni þá
virðingu sem hún átti skilið og sem
ég upplifði að fólkið hennar sýndi
henni.
Þakklát fyrir að hafa aldrei
heyrt skammir og þótt setningin
„andskotans vitleysa er þetta“
heyrðist nokkuð oft að þá fylgdi
henni iðulega hlátur og þessi
dásamlega léttleiki sem einkenndi
oft hennar fas.
Þakklát fyrir að hún gaf iðulega
barnabörnunum sínum þessa dýr-
mætu gjöf sem tími og samvera
er, sat með þeim á gólfinu og sýndi
þeim gömlu leikföngin sín og sagði
þeim sögur frá því hún var barn.
Þakklát fyrir að hún sýndi mér
að heiðarleiki og berskjöldun á til-
finningum getur veitt mér og öðr-
um öryggi.
Þakklát fyrir að hafa komið á
þetta yndislega sveitaheimili þar
sem ég hitti hana fyrst, þar sem
alltaf var nægur matur sama
hversu margir mættu. Þessi hlýja
og umhyggja gagnvart hverjum
gesti eru góðar minningar að eiga.
Og ég er þakklát fyrir að fá
tækifæri til þess að gera mitt allra
besta til þess að halda minningu
hennar á lofti með því að segja
börnunum okkar sögurnar hennar
og sýna þeim sömu virðingu og
hlýju og hún sýndi mér og þeim.
Takk fyrir allt.
Þín tengdadóttir
Berglind.
Elsku kæra frænka. Kveðju-
stund er komin, fyrr en við áætl-
uðum. Við dveljumst um stund í
söknuði og trega en þegar tilfinn-
ingarnar róast og myndin af þér
skýrist í huga og fyrir augum, þá
stendur upp úr hversu margt er að
þakka.
Takk fyrir alla umönnunina í
gegnum tíðina. Takk fyrir móttök-
urnar á Skógum og seinna á
Ormsstöðum. Takk fyrir allan
þann tíma sem þú komst og dvald-
ir í Skaftártungunni og leist eftir
okkur systkinunum, alveg með
sama hætti og þínum eigin börn-
um. Það voru ávallt ævintýratímar
þegar þið Ásmundur og börnin
komuð í Tunguna. Takk fyrir að
vera vinkona mömmu okkar og
kærleiksrík systir pabba. Takk
fyrir að vera alltaf óhagganlega
hlý og góðlát, sama hvað á gekk.
Takk fyrir að hugsa ekki bara um
fólkið þitt í samtímanum heldur
líka fyrir að halda á lofti minningu
þeirra sem eru farnir. Takk fyrir
að taka að þér gamla húsið í Hlíð
og síðan fyrir að leyfa Trausta
Fannari og Gunni Ingu að taka
þátt í því með þér að halda við hús-
inu og minningunum sem því
tengjast. Því verkefni halda þau
nú áfram, þótt þín þátttaka verði
með öðrum hætti á næstunni.
Það eru margir atburðir að rifja
upp, mörg dæmin sem hægt væri
að segja frá. Þórunn Oddsteins-
dóttir var markverð og einstök
kona. Í kringum hana var stilla,
ánægja og nægjusemi sem hafði
áhrif á alla sem voru henni nálæg-
ir. Það er okkar persónulega gæfa
að hafa fengið að umgangast Þór-
unni og Ásmund og börnin þeirra
mikið, að hafa átt þau öll að bestu
vinum alla tíð. Af samvistum við
Þórunni lærðist manni ósjálfrátt
hvernig á að koma fram við aðra,
hvernig á að virða aðra, hvernig á
að þakka fyrir hið góða og taka
hinu af æðruleysi. Þórunn virti
alla jafns og tróð engum hlutum
upp á aðra. Hún kenndi öðrum
með því að vera hún sjálf. Minn-
ingin um Þórunni gefur okkur sem
eftir erum gleði og hlýju eins og
hún gerði sjálf öllum stundum.
Elsku Ásmundur. Við vottum
þér og þínum okkar dýpstu sam-
úð. Það var gæfa fjölskyldunnar
okkar (stórfjölskyldunnar) að eiga
og fá að njóta Þórunnar.
Kveðja frá krökkunum í Úthlíð;
Herdís Erna, Trausti
Fannar, Elín Heiða, Oddný
Steina og Sigurður Árni.
Það var mikill heiður að fá að
kynnast Þórunni, mömmu tengda-
sonar okkar, tengdamömmu dótt-
ur okkar, og ekki síst ömmu
barnabarnanna okkar sem fannst
fátt skemmtilegra en fara austur á
hérað til ömmu og afa og frænd-
systkinanna þar. Það mátti bók-
staflega allt í sveitinni og var ým-
islegt brallað, hvað er heilbrigðara
fyrir börn en að fá að njóta og upp-
lifa á eigin forsendum!
Eftir að Þórunn og Ásmundur
fluttu i Kópavog urðu samveru-
stundir fleiri.
Þórunn var skemmtileg, hæv-
ersk, æðrulaus og mikil fjöl-
skyldukona sem naut þess að hafa
fólkið sitt hjá sér og er það þyngra
en tárum taki að hún hafi þurft að
vera einangruð frá sínum síðustu
vikurnar vegna heimsfaraldurs.
Hún talaði við fólkið sitt i síma og
tókst á við veikindi sín af sömu
hæversku og annað.
Við Tryggvi og börn minnumst
Þórunnar með kærleik og þakk-
læti og vottum eiginmanni, börn-
um og fjölskyldum okkar dýpstu
samúð.
Aðalbjörg Þorvarðardóttir.
Þórunn Sigríður
Oddsteinsdóttir
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ODDSTEINN RUNÓLFUR
KRISTJÁNSSON,
Hvammi í Skaftártungu,
lést sunnudaginn 6. mars á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum,
Kirkjubæjarklaustri. Útför hans fer fram frá Grafarkirkju
laugardaginn 19. mars klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á að láta Klausturhóla njóta þess.
Athöfninni verður útvarpað í bíla við kirkjuna og upptaka verður
á facebooksíðu Kirkjubæjarklaustursprestakalls.
Gunnar Kristján Oddsteins. Sigurbjörg Kristín Óskarsd.
Inga Björt H. Oddsteinsdóttir Brandur Jón H. Guðjónsson
Kristbjörg Elín Oddsteinsd. Tryggvi Agnarsson
Páll Símon Oddsteinsson Jónína Jóhannesdóttir
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ADDA BÁRA SIGFÚSDÓTTIR
veðurfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund 5. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 18. mars klukkan 10.
Við þökkum starfsfólki Grundar fyrir hlýhug og góða umönnun.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á söfnunarsjóð Rauða krossins vegna
mannúðarstarfs í Úkraínu, 0342-26-12, kt. 530269-2649.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Sigfús Bjarnason Maria Nikka
Kolbeinn Bjarnason Guðrún Óskarsdóttir
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
Hanna Bára Sigfúsdóttir Nikka
Karl Emil Sigfússon Nikka
Arvid Bjarne Sigfússon Nikka
Sólrún Kolbeinsdóttir
Sölvi Kolbeinsson
Sigrid Anna Sigfúsdóttir Nikka
og barnabarnabörn
Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Kjartansgötu 5,
Borgarnesi,
lést í Brákarhlíð mánudaginn 21. febrúar.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 15. mars
klukkan 14.
Alúðarþakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir góða umönnun og
ljúft viðmót. Athöfninni verður streymt á kvikborg.is.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Brákarhlíðar, https://brakarhlid.is/minningarsjodur/.
Konráð Andrésson
Birna G. Konráðsdóttir Brynjar H. Sæmundsson
Ingibjörg A. Konráðsdóttir Gunnar Á. Gunnarsson
Konráð Konráðsson Arna Einarsdóttir
Jóhanna M. Konráðsdóttir Guðjón H. Egilsson
Andrés Kr. Konráðsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
THEODÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Skaftafelli,
lést á Landspítala síðastliðinn föstudag.
Gísli Ragnarsson Kolbrún Karlsdóttir
Sigríður Ragnarsdóttir Nökkvi Bragason
Sveinn Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir hlýhug, samúð og
fallegar kveðjur vegna andláts ástkærs
föður okkar, afa og langafa,
ÁMUNDA GUNNARS ÓLAFSSONAR
flugstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
og HERU fyrir faglega og kærleiksríka
umönnun.
Ólöf Ragna Ámundadóttir
Laufey Þóra Ámundadóttir Þorkell Andrésson
Sigrún Ámundadóttir Guðni Ingólfsson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir, systir
og amma,
MAGNÚSÍNA ELLEN
SIGURÐARDÓTTIR,
Neðra-Ási 3, Skagafirði,
áður til heimilis í Lyngholti 5, Keflavík,
lést á LSH, deild 11EG, miðvikudaginn 23. febrúar. Útförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
15. mars klukkan 13. Hjartans þakkir til starfsfólks deildar 11EG
á LSH fyrir hlýja og kærleiksríka umönnun.
Ólafur Eggertsson
Emilía Magnúsdóttir Örvar Ólafsson
Sigrún Munda Magnúsdóttir Logi Birgisson
Ingimundur Arnar Ólafsson
Selma Jóhannesdóttir
systkini, barnabörn og aðrir aðstandendur