Morgunblaðið - 12.03.2022, Síða 34
✝
Hulda Axels-
dóttir fæddist
á Hjalteyri við
Eyjafjörð þann 14.
október 1928. Hún
lést á HSN Sauð-
árkróki þann 21.
febrúar 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Guðmunda
Karen Guðjóns-
dóttir, f. 5.1. 1901,
d. 23.10. 1995, og
Axel Sæmann Sigurbjörnsson,
f. 14.8. 1895, d. 20.6. 1959.
Systkini Huldu í aldursröð:
Vilborg, f. 6.10. 1930, d. 29.3.
2015. Valdimar, f. 10.4. 1932.
Guðbjörn, f. 12.2. 1934, d. 14.6.
2018. Jórunn, f. 14.4. 1936, d.
21.6. 2005. Gissur Sæmann, f.
28.7. 1938, d. 16.1. 2016. Óskar
Gunnar, f. 23.12. 1941. Grétar
Steingrímur, f. 2.12. 1943, d.
15.9. 1991.
Hulda giftist 15.11. 1949,
Steindóri Kristjáni Sigurjóns-
syni, f. 11.6. 1923, d. 4.11. 2003.
Börn Steindórs og Huldu eru
Margrét Helga, f. 12.11. 1950,
Axel, f. 7.11. 1953, Karen
Hulda, f. 18.10. 1967.
1) Margrét Helga, m Guð-
mundur Lárusson f. 20.6. 1950.
Synir þeirra: 1) Lárus, k. Guð-
rún Rut Sigmarsdóttir. Þeirra
börn: Elías Óttar, Júlía Karen
Þór. 2) Íris María, m. Halldór
Þórir, dóttir Írisar er Diljá Ís-
fold Sigurpálsdóttir og sonur
Halldórs Þóris er Halldór Berg
Halldórsson. 3) Aníta Rós.
Hulda var elst átta systkina
sem ólust upp á Hjalteyri við
Eyjafjörð. Hún fór snemma að
vinna, meðal annars til sjós með
föður sínum. Tólf ára fór hún
ein með báti til Siglufjarðar að
passa börn og var þar nokkur
sumur auk vetursetu. Einnig
vann hún á hótelinu á Hjalteyri.
Á saumastofu á Akureyri 18
ára gömul, kynntist hún tveim-
ur stúlkum úr Lýtings-
staðahreppi, sem höfðu milli-
göngu um vistarráðningu á
Nautabúi þar sem hún kynntist
verðandi eiginmanni sínum og
hófu þau búskap á Nautabúi
laust eftir 1950 með foreldrum
Steindórs, en tóku við búskapn-
um um 1970. Hulda tók við veð-
urathugunum 1974 af tengda-
föður sínum og sinnti þeim yfir
30 ár. Hún fór í Húsmæðraskól-
ann á Laugalandi í Eyjafirði
veturinn 1948-49 en bjó annars
á Nautabúi allt þar til hún flutti
á dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki 2019.
Jarðsungið verður frá Mæli-
fellskirkju í dag, 12. mars 2022,
klukkan 14.
Að ósk hinnar látnu verða
einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
og Gyða Dögg. 2)
Steindór, k. Ólöf
Ósk Magnúsdóttir.
Þeirra börn: Mar-
grét Helga, m. Ari
Jóhannsson, þeirra
sonur Annþór Óli,
Guðmunda Bríet,
Kári Þór og Magn-
ús Ögri. 3) Óttar
Sigurjón, d. 2.11.
1996. 4) Vignir
Andri, k. Kristrún
Ósk Karlsdóttir. Þeirra börn
Óttar Flóki og Regína, dóttir
Kristrúnar er Ísabella Friðriks-
dóttir, m. Hilmir Örn Eiríksson,
þeirra dóttir Hulda Kóbra.
2) Axel, k. Elín Jóhanna Ósk-
arsdóttur, f. 17.11. 1953. Þeirra
börn: 1) Hulda, m. 1) Atli Þor-
geirsson þeirra sonur er Breki,
m. 2) Albert Þorbergsson,
þeirra sonur er Kári. Börn Al-
berts eru Sunneva Líf og Þor-
geir Atli. 2) Daníel Pétur, k.
Angeline Rondonuwu, þau
skildu. 3) Steinunn Ósk, m. Ju-
vicsa Vela. 4) Grétar Örn, k. 1)
Anna Karen Skúladóttur, k. 2)
Lindsey Hunter Axelsson.
3) Karen, m. Eyjólfur Þór
Þórarinsson, f. 17.4. 1960. Börn
Eyjólfs: 1) Andrés Þórarinn, k.
Jóhanna Ingvarsdóttir, þeirra
börn eru Alísa Rún, Lovísa, Elí-
as Dagur, d. 6.4. 2011, og Andri
Elsku mamma mín. Það eru
trúlega ekki margar mæðgur sem
hafa eytt jafn miklum tíma saman
og við, bæði í leik og starfi.
Við höfðum það kerfi í æsku
minni þegar ég gekk í myrkrinu
niður á vegamótin á Nautabúi í
veginn fyrir skólabílinn að þá
hafði ég með mér vasaljós og
blikkaði því þegar ég var komin
niður á vegamótin og þú blikkaðir
útiljósinu á móti. Vasaljósið var
svo geymt í póstkassanum þar til
ég kom heim úr skólanum.
Við unnum alltaf vel saman,
hvort sem það var í fjósverkum,
bakstri, veðurathugunum eða
heyskap, þá var eins og það þyrfti
aldrei mörg orð okkar á milli, það
gekk allt smurt. Berjaferðirnar
okkar voru óteljandi og við höfð-
um báðar jafn gaman af því að
tína ber. Ein þeirra er sérstak-
lega minnisstæð þegar við létum
Eyjólf keyra okkur lengst upp í
Nautabúsland af því að við vorum
báðar með hækjur, ég brotin og í
gifsi og þú með hækju út af slit-
gigtinni. Við komumst líka í svip-
aðan ham þegar við tókum upp
kartöflur og pabbi og Eyjólfur
höfðu ekki roð við okkur.
Uppskerugræðgin, maður minn.
Það er ein sterk minning um
heyskap í beitinesinu þar sem við
tvær múguðum á Deutz og Nalla
og pabbi batt í smábagga á Case
með New Holland-bindivélinni.
Þetta var skemmtilegt tún að
heyja, það gekk allt vel og veðrið
var svo gott og við svo glöð í
bragði að veifa hvert öðru mjög
virðulega í hvert skipti þegar við
mættumst.
Við áttum mjög góðan tíma
saman þegar við Eyjólfur fluttum
í Nautabú og þú bjóst á neðri
hæðinni. Það voru ófáir morgn-
arnir um helgar sem við fundum
kaffiilm leggja upp til okkar og
við runnum á lyktina og fengum
gott spjall í leiðinni.
Eftir að þú fluttir á dvalar-
heimilið á Sauðárkróki í mars
2019 komstu samt í þónokkur
skipti í helgarheimsóknir og varst
hjá okkur jólin 2019 en svo kom
Covid og þá breyttist allt. Fyrstu
jólin á minni ævi í 53 ár sem við
vorum ekki saman voru jólin 2020
þegar það var bannað, jólin 2021
treystir þú þér ekki til að koma.
Þú komst þó í helgarheimsókn
sumarið 2021 og við borðuðum
saman á neðri hæðinni, börn,
tengdabörn og Steinunn Ósk son-
ardóttir þín. Það var ómetanleg
samvera fyrir okkur öll.
Þrátt fyrir háan aldur þinn þá
fannst mér andlát þitt ótímabært,
þú áttir svo mikið eftir og varst
svo hress í anda „en eitt sinn
verða allir menn að deyja“ og þú
varst sátt og vildir bara að þér liði
vel. Það verður eitthvað skrýtið
að geta ekki hringt í þig eða litið
við hjá þér og hlegið yfir eins og
einum fimmaur eins og okkur var
svo tamt. Eins og við sögðum svo
oft: „Lítið er ungs manns gaman“.
Vertu sæl mamma mín og
hafðu hjartans þökk fyrir allar
okkar stundir saman.
Þín dóttir
Karen.
Í dag kveð ég ástkæra tengda-
móður mína hinstu kveðju. Fyrir
52 árum kom ég fyrst að Nauta-
búi til að heimsækja kærustuna,
Margréti Helgu. Það var vel tekið
á móti mér af verðandi tengdafor-
eldrum, Steindór hafði sig meira í
frammi, spurði um ætterni og fór
jafnvel með vísur, Hulda hlédræg-
ari, fámálli, en ég sá fljótt að þar
fór einstaklega hlý og góð kona.
Framan af voru heimsóknir
ekki tíðar, bæði á Nautabúi og
Stekkum var stundaður kúabú-
skapur sem gaf ekki tækifæri á
helgarfríum, hvað þá löngum
sumarfríum. Þó var reynt að fara
norður einu sinni á sumri og synir
okkar dvöldu hjá afa og ömmu
nokkrar vikur árlega. Það voru
helst skírnir og fermingar barna-
barnanna sem fengu þau til að
leggja í ferðalag suður á land,
annars undu þau sér langbest
heima á Nautabúi.
Þau hjón bjuggu ekki stóru búi
en einstaklega snyrtilegu og vel
reknu, allir hlutir á sínum stað og
vel passað upp á að ekkert færi til
spillis. Þau stóðu bæði að bú-
rekstrinum en á heimilinu var
Hulda sá aðilinn sem sá um
næstum alla hluti. Það var gest-
kvæmt á Nautabúi alla tíð og þau
hjón vinmörg, margir ættingja
Huldu bjuggu fyrir sunnan og
alltaf var pláss fyrir alla, þótt
húsnæði þeirra væri ekki stórt.
Vissulega var húsið stórt, en í því
bjuggu jafnframt foreldrar Stein-
dórs og því þrjár kynslóðir, nokk-
uð sem flest nútímafólk fer á mis
við í dag.
Þegar aldurinn færðist yfir
hættu þau að mestu búskap og
héldu sig nær alfarið á heima-
slóðum. Þau höfðu hvort annað,
það færði þeim gleði og ham-
ingju. En þegar Steindór dó
breyttist allt, nú var Hulda ein í
þessu stóra húsi, það átti ekki við
hana. Fljótlega fluttu Karen dótt-
ir hennar og Eyjólfur tengdason-
ur að Nautabúi. Hulda lét inn-
rétta litla en snotra íbúð í húsinu,
þar bjó hún í einstaklega fallegu
og einlægu sambandi við þau.
Hún fór að taka þátt í félagsstarfi
aldraðra, tvisvar í viku fór hún á
Sauðárkrók, þar eignaðist hún
fjölda vina. Þá komu í ljós list-
rænir hæfileikar hennar, hún
málaði m.a. fjölda gripa og nú
eiga allir afkomendur hennar
listilega gerða hluti sem um
ókomna tíð munu minna á hana.
Fyrir 15 árum hófum við
byggingu á bústað í landi Nauta-
bús, þá urðu samskiptin enn nán-
ari, margar ferðir norður, oftast
með ótal vini sem tóku þátt í
byggingunni, alltaf var kaffi og
með því í boði Huldu. Og þegar
byggingu var lokið urðu heim-
sóknir okkar enn fleiri, afkom-
endur okkar sóttu í að fara í
heimsókn til ömmu, taka í spil
eða bara spjalla. Eftir heimsókn
sagði Óttar Flóki kotroskinn:
„Við amma spiluðum ólsen ólsen
og ég vann hana átta sinnum!“
Ég held að hún hafi aðeins sett til
hliðar ýtrustu spilareglur, en
hvað gerði hún ekki fyrir sitt
fólk.
En allt hefur sinn tíma. Þegar
Hulda fann líkamlega þrekið
minnka sótti hún sjálf um dvöl á
deild eldri borgara á Sauðár-
króki, þar dvaldi hún í góðu yf-
irlæti allt til æviloka. Mikið væri
nú heimurinn betri ef sem flestir
hefðu tileinkað sér lífsskoðanir
Huldu Axelsdóttur; að lifa í sátt
við allt og alla, gera fyrst og
fremst kröfur til sjálfs sín en ekki
til annarra.
Guðmundur Lárusson.
Tímamót verða með ýmsum
hætti og upplifun ólík frá æsku til
fullorðinsára.
Nú er komið að tímamótum
sem marka lok langrar samfylgd-
ar og vinskapar sem tókst milli
húsmóður á Nautabúi á Neðri-
byggð í Skagafirði og hálfstálp-
aðs unglings sunnan úr Keflavík,
sem upp úr miðri síðustu öld
baðst vistar á bænum sem sum-
arliðléttingur.
Húsmóðirin á Nautabúi fóstr-
aði unglinginn af alúð sem eigið
barn, með leiðsögn og hvatningu
sem varð til endurtekinna sum-
ardvala, fyrst sem matvinnungs
og síðar kaupamanns allt til 16
ára aldurs. Árin þaðan í frá liðu
með góðum samskiptum bréfleið-
is með helstu fréttum frá Skaga-
firði og Suðurnesjum. Vinnumað-
urinn bjó að góðu nesti frá
æskusumrunum í hjarta Skaga-
fjarðar og hélt góðu sambandi við
heimilisfólkið á Nautabúi þó leið-
ir skildu tímabundið og annir
fylgdu stofnun fjölskyldu og
námi.
Sumarið 1993 höguðu örlögin
því svo, að ég unglingurinn að
sunnan, átti leið um Skagafjörð,
uppkominn maður, fráskilinn
með börn mín á ferðalagi og kom
við hjá Huldu og Steindóri á
Nautabúi. Þar endurnýjuðust
kynni mín af heimasætunni Kar-
en Huldu Steindórsdóttur á öðr-
um grunni en verið hafði og
markaði tímamót. Kærleikur
tókst með okkur Karen, sem
styrkti þá örlagaþræði sem
spunnir voru á unglingsárunum
Hulda Axelsdóttir
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
VIÐ ERUM FLUTT
Eyrartröð 16, 220 Hafnarfirði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarfirði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ANNA VIGDÍS GUNNLAUGSDÓTTIR,
Kleppsvegi 62,
lést þriðjudaginn 8. mars
á Hrafnistu í Reykjavík.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
miðvikudaginn 16. mars klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Sigurjón R. Markússon
Hanna Guðrún Sigurjónsd. Sigurður Bogason
Markús Sigurjónsson Hafdís Huld Þórólfsdóttir
Andrea Sigurjónsdóttir Manuel Aronsson
Gunnlaugur Þór Sigurjóns. Anna Marín Kristjánsdóttir
og barnabörn
Okkar ástkæri
PÁLL ÖRVAR GARÐARSSON
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 3. mars.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju
mánudaginn 21. mars klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð
en þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið.
Guðfinna Kaldalóns Pálsd. Inge Henriksen
Helgi Hrafn Pálsson
Anna Margrét Jóhannsdóttir
Einar Örn Jóhannsson
Jórunn Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS INGVARSSON,
Heinabergi 13, Þorlákshöfn,
lést á Landspítalanum mánudaginn 7. mars.
Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju
þriðjudaginn 15. mars klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á körfuknattleiksdeild Þórs frá Þorlákshöfn, kt.
680312-0950, reikn. 0152-15-200073.
Hafdís Þóra Ragnarsdóttir
Ragnar Eðvarðsson Fjóla Traustadóttir
Ingvar Júlíusson Aiste Juliusone
Anna Júlíusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi
JÓHANN MAGNÚSSON,
Lundi 56, Kópavogi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 22. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Valgerður Andrésdóttir
Helga Kristín Jóhannsdóttir
Harpa Hrund Jóhannsdóttir Rodolfo Sepúlveda
Jón Atli Jóhannsson Ása Unnur Bergmann
Arna María Sepúlveda Ófeigur Kári Jónsson
Ónefndur Jónsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HAFDÍS HELGA HELGADÓTTIR,
Hlíðarhúsum 7,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
5. mars. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 14. mars klukkan 15.
Sigurður Helgi Gunnarsson
Hermóður Gestsson Anna María Gerhardt
Henný Bára Gestsdóttir
Harpa Hrönn Gestsdóttir Runólfur Hjalti Eggertsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku frændi okkar,
JÓHANNES HELGASON,
hagleiksmaður og bóndi,
Brenniborg,
Skagafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkróki sunnudaginn 6. mars.
Útförin fer fram frá Víðimýrarkirkju laugardaginn 19. mars
klukkan 14.
María Bergþórsdóttir
Helgi Bergþórsson
Kristín Bergþórsdóttir
Ingibjörg Halldóra Bergþórsdóttir
Guðmundur Örvar Bergþórsson
Rúnar Þór Bergþórsson
Haukur Þór Adólfsson
Guðrún Ingibjörg Adólfsdóttir
Helga Adólfsdóttir
Sigurlaug Anna Adólfsdóttir
og fjölskyldur okkar