Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 36

Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 36
✝ Ragnar Hjalta- son fæddist 28. mars 1939 á Brú- arlandi í Skagafirði. Hann lést á Sjúkra- húsi Fjallabyggðar 1. mars 2022. For- eldrar hans voru Hjalti Pálsson, Brú- arlandi í Skagafirði, og Klara Konráðs- dóttir, frá Bæ á Höfðaströnd. Ragnar kvæntist tvisvar. Fyrri kona hans var Hulda Elví og eignuðust þau þrjú börn: Ástu Björk, Helga og Víði Þór, en Víðir lést ungur. Þau hjón skildu eftir 10 ára sambúð. Seinni kona Ragnars var Rósa Halldórs- dóttir, f. 13. ágúst 1940, d. 17. ágúst 2021. Þau giftust í maí 1984 en voru barn- laus. Útför Ragnars fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 12. mars 2022, klukkan 13. Þegar við minnumst Ragnars vinar okkar koma upp í huga marg- ar gamlar minningar frá uppvaxt- arárum okkar í Ólafsfirði og skóla- árum á Varmalandi. Ragnar var fluttur til Ólafsfjarðar aðeins tveggja daga gamall til ömmu sinn- ar Guðfinnu Ástu, þar sem hann ólst upp við mikla fátækt í litlu húsi sem stóð við Kirkjuveg, en er löngu horfið. Þetta hús nefndist Leyni- ngur og var Ragnar af heimamönn- um ávallt kenndur við það nafn. Á uppvaxtarárum Ragnars vakti hann athygli okkar strákanna og annarra hve fjölhæfur hann var í öllum leikjum og íþróttum þeirra tíma. Hann er orðinn sextán ára þegar hann missir ömmu sína, þá eftirminnilegu konu. Þá ræður hann sig sem háseta á Norðlend- ing, fyrsta togara sem gerður var út frá Ólafsfirði. Þá hefst sjó- mannsferill hans. Hann starfaði sem sjómaður mestan hluta ævinn- ar sem háseti og stýrði á fjölda báta og togara. Síðar gerðist hann út- gerðarmaður og skipstjóri á eigin bátum. Um tíma átti hann og rak sendibílastöð í Hafnarfirði. Auk þess kom hann að ýmsum öðrum rekstri. Velgengni og farsæld Ragnars á löngum starfsferli var að þakka dugnaðinum, útsjónarsem- inni og ábyrgðinni fyrir þeim verk- efnum sem hann tók sér fyrir hend- ur. Fyrir nokkrum árum ákváðu þau hjón að flytja til Ólafsfjarðar og njóta þar ævikvöldsins, en þá voru þau varla búin að koma sér fyrir þegar Ragnar fékk heilablóðfall, og eftir það mátti hann lifa við mikla fötlun. Börnum hans sendum við sam- úðarkveðjur okkar. Jón Þorvaldsson, Sigrún Jónsdóttir. Ragnar Hjaltason 36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 ✝ Ólafur Bald- vinsson útgerð- armaður og lista- maður fæddist 17. október 1926 í Bræðratungu á Kljáströnd í Grýtu- bakkahreppi. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Grenilundi á Greni- vík 7. febrúar 2022. Foreldrar hans voru Sigurlaug Rósa Guð- mundsdóttir, f. 19. september 1886, d. 28. janúar 1980, og Baldvin Kristinn Ólafsson, f. 14. september 1891, d. 10. maí 1958. Ólaf- ur var einkabarn foreldra sinna. Hann var ókvæntur og barnlaus. Árið 1955 fluttist fjölskyldan í Háa- gerði á Grenivík og bjó Ólafur þar alla sína tíð þar til hann flutti á hjúkr- unarheimilið Gre- nilund á Grenivík. Útför Ólafs fer fram frá Grenivíkurkirkju í dag, 12. mars 2022, klukkan 14. Vinur okkar Ólafur Baldvinsson er allur. Hann var um margt áhugaverður maður með mikla hæfileika, útgerðarmaður, sjálf- menntaður rafvirki og listamaður eins og snemma kom í ljós því ekki var hægt að finna pappírsmiða á æskuheimilinu á Kljáströnd sem Óli var ekki búinn að teikna á. Það var hátíð í bæ ef barst böggull inn á heimilið því þá gat Óli fengið að teikna á umbúðirnar. Hann fékk jafnvel pappír nágrannans líka sem þótti mikið til um hæfileka Óla á þessu sviði. Þrátt fyrir að fá aldrei leiðsögn náði Óli undraverðum ár- angri og eftir hann liggja nú mál- verk út um allt land. Þegar Óli var unglingur bjó hann til útvarp sem virkaði og virkjaði einnig bæjar- lækinn svo eitthvað sé nefnt. Óli var einnig stórbrotinn persónuleiki, umdeildur en mjög vinsæll meðal vina sinna því hann kom til dyranna eins og hann var klæddur. Það gerði hann líka áhugaverðan. Um árabil var hann á síldarplönum, lengst af á Siglufirði en einnig á Raufarhöfn og Seyðisfirði. Þar var hann í félagsskap með síldarspekú- löntum og skipstjórum og þurfti stundum að gera sér glaðan dag með þeim þegar mesta álagið var á planinu. Það var honum þó vel fyr- irgefið, hann var þar í hópi stór- menna. Þegar síldin hvarf gerðist Óli útgerðarmaður, keypti sér trillu og byrjaði að gera út á grásleppu. Það stóð þó ekki lengi því í fyrstu brælu þegar netin fylltust af þara og skít sá Óli að þetta væri ekkert fyrir hann, seldi netin í sjónum og sagðist aldrei koma nærri þessum veiðarfærum meir. Óli stundaði eft- ir það færaveiðar frá Grenivík og einnig var hann með nælonlínu á Gljánni í mörg ár. Árið 1982 keypti Óli sér plastbát eða skel sem átti eftir að standsetja. Skelina fór hann með inn á trésmíðaverkstæð- ið Stuðlaberg þar sem vinir hans, Jón og Danni byggðu yfir bátinn en Óli sá sjálfur um að setja í hann raf- magnið og fleiri báta eftir það. Það var venjan um árabil að fara á sjáv- arútvegssýningar og einnig voru farnar ófáar óvissuferðir hérna um norðausturlandið. Þetta voru litrík- ar og eftirminnilegar ferðir og Óli alltaf miðpunkturinn. Það má einn- ig segja að Óli hafi verið á undan sinni samtíð að því leyti að hann þráði ekkert heitara en að eignast rafmagnsbíl eftir að þeir fóru að ryðja sér til rúms. Honum varð svo að ósk sinni og var hann fyrstur manna í sveitarfélaginu til að fjár- festa í slíku fyrirbæri. Þegar árin færðust yfir seldi Óli bátinn sinn, Sindra og settist í helgan stein. Í seinni tíð áttu vinir Óla ófáar gæða- stundir með honum á heimili hans, Háagerði á Grenivík, ýmist í morg- unkaffi eða seinna kaffi þar sem oft var glatt á hjalla. Árið 2017 varð Óli okkar fyrir því óláni að detta og lærbrotna heima hjá sér. Eftir skamma sjúkrahúslegu á Akureyri flutti hann á hjúkrunarheimilið Grenilund á Grenivík og bjó þar við gott atlæti. Far þú í friði vinur okkar kær, þú gerðir lífið svo miklu litríkara. Fyrir hönd vinahópsins, Kristjana Björg Hall- grímsdóttir. Ólafur Baldvinsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför GUNNLAUGS MAGNÚSSONAR, Brekkugötu 56, Þingeyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði fyrir einstaka umönnun og hlýju. Kristín Kristjánsdóttir Þórhallur Gunnlaugsson Izabela Lecka Þorgerður Gunnlaugsdóttir Höskuldur Brynjar Gunnarss. Bergþór Gunnlaugsson Alda Agnes Gylfadóttir barnabörn og barnabarnabörn Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HARALDAR SVEINSSONAR, Hrafnkelsstöðum I, Hrunamannahreppi. Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir Helgi Sigurður Haraldsson Sigríður Anna Guðjónsdóttir Ingólfur Haraldsson Rutt Brattaberg Jacobsen barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Sólheimum 25, lést á Landspítalanum 7. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. mars klukkan 15. Kristín Petersen Renato Gruenenfelder barnabörn og langömmubörn Við sendum hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður, tengdaföður, afa og langafa, STEINÞÓRS INGVARSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hlíðarbæ og á Droplaugarstöðum fyrir framúrskarandi umönnun í erfiðum veikindum. Sigurður I. Steinþórsson Gunnar Steinþórsson Ágústa Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÓLAFS AÐALSTEINS GÍSLASONAR, Ásbúð 74, Garðabæ. Gíslína Henný Einarsdóttir Jónína Helga Ólafsdóttir Guðbjörn Gylfason Sigurborg Anna Ólafsdóttir Andri Þór Gestsson Sædís Ólafsdóttir Gunnar Örn Svavarsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Hlíðargötu 18, Neskaupstað, lést á Hrafnistu Hafnarfirði miðvikudaginn 9. mars. Minningarathöfn fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 18. mars klukkan 15. Útför verður frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 24. mars klukkan 14. Hjartans þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir hlýja og góða umönnun. Gígja Sólveig Guðjónsdóttir Guðný Steinunn Guðjónsd. Einar Bridde María Guðjónsdóttir Karl Jóhann Birgisson Hólmfríður G. Guðjónsdóttir Jón Ásgeir Tryggvason Guðjón Dagbjörn, Guðrún Júlía, Guðrún Dagmar, Guðríður Elísa, Sigurlaug María, Guðrún Sigríður, Guðjón Birgir, Guðrún Stella og fjölskyldur Hjartans þakkir fyrir hlýhug, samúð og fallegar kveðjur vegna andláts og útfarar elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BERTHU MARÍU GRÍMSDÓTTUR WAAGFJÖRÐ, Ísafold, Strikinu 3, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Ísafoldar fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Halldór Waagfjörð Birna Ben Kristinn Waagfjörð Hjördís Sigmundsdóttir Grímur Rúnar Waagfjörð Helga Gunnarsdóttir Þorsteinn Waagfjörð Sigrún Snædal Logadóttir Rósa María Waagfjörð Einar Ingason Már Viktor Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, dóttir, unnusta og systir, AGNES ÞÓRA KRISTÞÓRSDÓTTIR frá Moldhaugum, lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn 6. mars. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 25. mars klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Elmar Blær Kjartansson Alexander Týr Andrason Ása Björk Þorsteinsdóttir Freyr Helgason Sigríður Kristín Kristþórsd. Gunnar Reynisson Elmar Freyr Kristþórsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA LÍSA WÍUM, lést á heimili sínu miðvikudaginn 2. mars. Útför fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 18. mars klukkan 13. Sigursteinn Þór Einarsson Erla Lind Þórisdóttir Svava Hrund Einarsdóttir Gústaf Guðbrandsson Stefán Helgi Einarsson Elín Hrund Guðnadóttir Ómar H. Wíum Eyrún Eðvalds Jóhann Viðar Hjaltason Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÖRGENSDÓTTIR, Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 8. mars. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 24. mars klukkan 13. Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir hlýhug og góða umönnun. Jón Ágúst Einisson Aud Rensmoen Sigurbjörg Einisdóttir Ingibjörg Sigrún Einisdóttir Gylfi Ólafsson María Einisdóttir Tyrfingur Tyrfingsson Ásta Einisdóttir Mogens Hove Pedersen ömmubörnin og langömmubörnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.