Morgunblaðið - 12.03.2022, Qupperneq 43
Í kvöld verður spurt
að leikslokum í
Söngvakeppninni.
Förum aðeins yfir
stöðuna af því tilefni,
endurmetum lögin og
spáum aðeins í spilin.
heillaði mig. En hvorugt hlaut náð.
Það eru auðvitað til ótal dæmi um
að sérkennileg lög fái brautargengi
en vindarnir blésu ekki með Hönnu
í þetta sinnið. Lagið of gott fyrir
keppnina, segi og skrifa það.
En, Reykjavíkurdætur, mínar
konur, flugu áfram og það glæsi-
lega. Frábærlega útsett sviðsatriði
og bara stuð og kraftur sem heill-
aði. Mér fannst Katla vera vafamál,
Við syngjum að leikslokum...
Morgunblaðið/Eggert
Kraftur „Glysbundið sviðsatriði“ en „ögrandi pólitíkin ekki langt undan,“
segir Arnar Eggert um framlag Reykjavíkurdætra, „Tökum af stað“.
var ekki viss hvort ég væri að fíla
það eða ekki, en þetta rökkur-
drama sem hún býður upp á náði
að fanga Mörlandann en eins og
vitað er fáum við aldrei nóg af bik-
svartri epík hér á norðurhjara.
En hugsum aðeins saman
hérna. Hver vinnur svo? Hvaða at-
riði fer til Tórínó? Í mínum huga er
þetta spurning um tvennt. Annað-
hvort vinna Reykjavíkurdætur eða
þá systurnar. En ég treysti mér
ekki til að skera úr um hvort það
verður, því að ég sé fram á hníf-
jafna baráttu. Mér finnst bæði
framlög frábær, þó með ólíkum
hætti sé. Ég var að spjalla við koll-
ega og hann sagði að þetta yrði
barátta á milli bolanna og hipster-
anna og það er að vissu – ef ekki
öllu – leyti rétt. Aldrei myndi ég
setja lagasmíðar hinnar hæfi-
leikaríku Lovísu Elísabetu Sigrún-
ardóttur í flokk með auðmeltanlegu
færibandapoppi en lagið – og flytj-
endur – búa hins vegar yfir sjarma
sem fer yfir mörk og mæri margra
þjóðfélagshópa. Dúddi Liverpool og
amma þín eru sátt en tónsmíðin
sjálf og ára systkinanna dregur enn
frekar að þegar maður hugsar um
það. Reykjavíkurdætur eru aftur á
móti spútnikatriði ársins. Kröftugt,
storkandi og hressilegt. Með glys-
bundið sviðsatriði sem passar vel í
hið ýkta form Söngvakeppninnar
en um leið er ögrandi pólitíkin ekki
langt undan, veri það kynjapólítik
eða annað. Þessi atriði munu berast
á sönglegum banaspjótum, sanniði
til. Að öðrum kosti snæði ég hatt
minn með glöðu geði. Góða
skemmtun í kvöld kæru landsmenn.
Munið eftir skrúfunum, engiferöl-
inu og múnderingunni...
»
Þessi atriði munu
berast á sönglegum
banaspjótum, sanniði til.
Að öðrum kosti snæði
ég hatt minn með glöðu
geði.
Morgunblaðið/Eggert
Sjarmi Systurinar Sigga, Beta og Elín gerðu lukku með lag eftir Lovísu
Elísabetu Sigrúnardóttur eða Lay Low. Gagnrýnandi spáir því velgengni.
Systkinin Már Gunnarsson og Ísold
Wilberg mynda tvíeykið Amarosis.
Ljósið Stefán Óli, lag „með hæfileg-
um skammti af Evróvisjóndúllum“.
Katla Við fáum „aldrei nóg af bik-
svartri epík hér á norðurhjara“.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef hlaupið sigurhring
með reffilegum brag og
teygað bikar niðurlæging-
arinnar í botn og það með tilþrifum
í spádómum mínum um gengi ein-
stakra laga í Söngvakeppninni.
Eins og gengur. Sumt hefur mér
þótt blasa við – og það gengið eftir,
en svo hafa lög farið áfram og skil-
ið mig eftir í forundran.
Mér fannst fyrra undanúrslita-
kvöldið auðvelt. Þau lög sem áttu
skilið að komast áfram gerðu það
svo sannarlega. „Ljósið“ er hefð-
bundið popplag með hæfilegum
skammti af Evróvisjóndúllum og
Stefán Óli flutti af eftirtektarverðu
öryggi. Birgir Steinn Stefánsson og
hans fólk er á kjörlendum þegar
kemur að svona vinnu og ég hef
ekkert nema gott um þetta mál að
segja. Sigga, Beta og Elín fóru líka
örugglega áfram og ekki að undra.
Sviðsatriðið flott, þrjár systur í for-
grunni – og litli bróðir á trommum!
Foreldrahjartað tók kipp. Þá var
„Eitt lag enn“ trompinu beitt á
þetta kvöld og við munum sjá
Amarosis keppa í kvöld. Ég var
ekki nema í meðallagi hrifinn verð
ég að segja en það hefur sýnt sig í
gegnum tíðina að tvær vikur eru
ekki langur tími í Söngvakeppninni,
allt getur breyst.
Síðara kvöldið var erfiðara fyr-
ir þennan popppenna. Ég var hrif-
inn af einfaldleikanum og ægifeg-
urðinni hjá Markétu og skrítipopp
Hönnu Míu og geimferðalanganna
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
HERCULE POIROT ER MÆTTUR
Í SÖGU AGATHA CHRISTIE
Í LEIKSTJÓRN KENNETH BRANAGH
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
86%
EMPIRE
TOTAL F ILM
VARIET Y
“ONE OF THE BEST SUPERHERO MOVIES EVER MADE”
“A masterpiece.”