Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 44
Áhugasamar Magnea og Þórunn Marínósdætur og Ólöf Valsdóttir.
»Viðamikil nokkurra daga
hátíð helguð gjörningum
stendur nú yfir í Listasafni
Reykjavíkur undir yfirskrift-
inni Gjörningaþoka. Hinn
gamalgróni Gjörningaklúbbur,
sem skipaður er Eirúnu Sig-
urðardóttur og Jóní Jóns-
dóttur, setti ásamt hópi aðstoð-
arfólks á fimmtudag upp
verkið Vitni í porti Hafnarhúss
og fjölmenntu áhorfendur.
Gjörningaklúbburinn reið á vaðið í Gjörningaþoku Listasafns Reykjavíkur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listakonurnar Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir framkvæma gjörninginn á sviði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tónlistarfólk Una Sveinbjörnsdóttir og Ólafur Björn Ólafsson tóku þátt í framkvæmdinni.
Í gjörningaveislu Bjarni Gautason og Þorbjörg Ásgeirsdóttir.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Gestur í Palazzo Reale-safninu í Mílanó notar tækifær-
ið og virðir fyrir sér listaverkin Vængjaður Kúpíd frá
1795 eftir myndhöggvarann fræga frá Feneyjum, Ant-
onio Canova, og Portrett af af Nikolai Yusupv prinsi
með hund, frá 1780, eftir málarann Giovanni Battista
Lampi. Þetta eru tvo af fjölmörgum listaverkum í eigu
Hermitage-safnsins í Pétursborg sem eru í láni á sýn-
ingum í Palazzo Reale og Gallerie d’Italia í Mílanó.
Vegna stríðsins í Úkraínu og viðskiptaþvingana sem
vesturlönd, og þar á meðal Ítalir hafa sett á Rússa hafa
stjórnendur Hermitage-safnsins nú farið fram á það að
lánstími verkanna verði styttur og þeim skilað til Rúss-
lands áður en marsmánuði lýkur. Verk frá rússneskum
söfnum eru að láni víðar á sýningum í Evrópu.
AFP/Miguel Medina
Rússar vilja listaverkin heim
Skugga-efni er
heiti sýningar
sem myndlistar-
maðurinn Unnar
Örn opnar í Y
gallerýi í Hamra-
borginni í Kópa-
vogi í dag,
laugardag,
klukkan 15.
„Verk Unnars
á sýningunni verða til við kortlagn-
ingu á borgarlandinu – frásögn sem
gefur mynd af staðháttum og ósýni-
legum kostum þeirra. Verkin á sýn-
ingunni hverfast um samfélagslegt
minni; hvernig minningar borgara
eru flokkaðar, vistaðar og yfir-
heyrðar. Á tímum þar sem ólík öfl
skapa og nýta myndefni og minjar,
verður þetta alltumlykjandi
borgarland hugmyndafræðilegur
staður þar sem líf íbúanna fram-
kallast. Svið þar sem saga og sjálfs-
mynd okkar er ákvörðuð og endur-
sköpuð,“ segir í tilkynningu frá Y
gallerýi.
Unnar Örn hefur sýnt og sett upp
sýningar í söfnum og sýningar-
sölum víða. Verk hans eru iðulega
byggð á ýmis konar skjala- og
gagnasöfnum. Í tilkynningunni seg-
ir líka um þessa nýju sýningu hans:
„Manneskjan hefur lengi notast
við kerfi sem skilgreinir umhverfi
sitt út frá gæðum lands. Undir þá
sundurgreiningu falla bæði hlunn-
indi og auðlindir sem og samgöngu-
mannvirki, innviðir og opin svæði.
Horfa má á borgina sem manngert
landslag þar sem samkennd og
geðshræring – minningar, reynsla,
hughrif og skynjun – eiga sér sitt
staðbundna svæði.“
Skugga-efni Unnars Arnar í Y gallerýi
Unnar Örn
Tónleikar með efnisskrá sem spannar tónlist frá barokki
til Bítlanna fara fram í Hömrum í Hofi á Akureyri á
morgun, sunnudag, kl. 16. „Málmblásaradeild
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands ásamt slag-
verksleikara flytja metnaðarfulla efnisskrá sem
Vilhjálmur Sigurðarson trompetleikari hefur
valið saman. Verkin eru afar fjölbreytt, allt frá
hátíðlegum lúðragjöllum, björtum og hressandi
barokk-verkum yfir í dægurlög Bítlanna,“ segir
í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.
Þar kemur fram að meðal þeirra verka sem flutt
verða séu sálmurinn Heyr himna smiður eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Ungverskur mars eftir Hector Ber-
lioz, Dans Anítu eftir E. Grieg og Fascinating Rythm
eftir George Gershwin. Miðar fást í miðasölu Hofs og á
mak.is.
Frá barokki til Bítlanna í Hofi
Hljómsveitin Sigur Rós er komin á
kreik og mun senn halda upp í viða-
mikla heimsreisu, þá fyrstu í nær
fimm ár. Fyrst verður leikið í Mexíkó
og svo Kanada og Bandaríkjunum,
áður en haldið verður til Evrópu.
Ferðinni lýkur með tónleikum í
Laugardalshöllinni föstudaginn 25.
nóvember.
Samkvæmt upplýsingum frá
hljómsveitinni er Sigur Rós nú að
semja nýja tónlist og hljóðrita sína
fyrstu hljóðversplötu síðan Kveikur
kom út árið 2013. Nýju lögin verða
flutt á tónleikunum á ferðalaginu, auk margra eldri frá 25 ára ferli. At-
hygli vekur að Kjartan Sveinsson, tónskáld og hljómborðsleikari, er aftur
genginn til liðs við stofnfélaga sína, Jónsa og Georg Hólm.
Kjartan aftur í Sigur Rós sem fer á flakk
Tónaflóð Sigur Rós á sviði í Hörpu fyrir
fimm árum. Kjartan Sveinsson er aftur
genginn í sveitina sem er í hljóðveri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðarverk er heiti sýningar tvíeykis-
ins sem kallar sig Krot & Krass og
verður opnuð í Hverfisgalleríi neðst
við Hverfisgötu í dag, laugardag,
klukkan 16.
Krot & Krass eru þau Björn Loki
(f. 1991) og Elsa Jónsdóttir (f. 1990)
og hafa þau starfað saman í um ára-
tug. Þau hafa til að mynda staðið að
uppsetningu veggverka og að tón-
listar- og listahátíðum.
Á sýningunni verða ný skúlptúr-
verk úr rekavið og steypu. Samhliða
verkunum hefur Krot & Krass unnið
rannsóknarskýrslu sem gefin er út
sem sérstakt bókverk. Í tilkynningu
segir að höfðaletur hafi verið helsta
hugðarefni Krots & Krass undan-
farin misseri en letrið kom fyrst
fram í íslenskum útskurði á 16. öld.
Letrið getur verið torlæsilegt og
hefur verið sveipað dulúð.
Í vinnustofunni Verk sem eru á sýn-
ingu Krot & Krass eru hér í vinnslu.
Krot & Krass í Hverfisgalleríi
- Viðarverk á sýningu tvíeykisins
Björns Loka og Elsu Jónsdóttur
Trompet-
leikari
Vilhjálmur
Sigurðarson.