Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 48
B
O
S
S
B
Ú
Ð
IN
K
R
IN
G
L
U
N
N
I
Barokkbandið Brák kemur fram á tónleikaröðinni
Sígildir sunnudagar í Norðurljósum Hörpu á morgun kl.
16. Brák mun þar frumflytja þrjú ný verk sem samin
voru sérstaklega fyrir hópinn eftir íslensku tónskáldin
Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Þráin Hjálmarsson og
Kristin Smára Kristinsson. Einnig verða leikin þekkt
barokkverk eftir Vivaldi og Stradella sem og minna
þekkt verk eftir Svíann Johan Agrel. Allt efnið verður
flutt í anda barokktímans á girnistrengi og barokk-
hljóðfæri. Flest verkanna sem Brák flytur prýða plöt-
una Tvær hliðar sem kemur út á vegum Sono Luminus í
lok ágúst og dreift verður af Naxos um heim allan.
Brák með Tvær hliðar í Hörpu
LAUGARDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Keflavík og Breiðablik fögnuðu sigrum í Subway-deild
karla í körfubolta í gærkvöldi. Keflavík hafði betur gegn
KR, 110:106, í æsispennandi leik. Réðust úrslitin í fram-
lengingu og voru Keflvíkingar ögn sterkari í blálokin
eftir að KR byrjaði betur í framlengingunni. Keflavík er
með 26 stig, eins og Njarðvík í öðru sæti. Breiðablik er
komið upp í 16 stig og upp að hlið KR eftir 116:109-
útisigur á botnliði Þórs frá Akureyri. Þór náði mest 13
stiga forskoti en Breiðablik neitaði að gefast upp og
fagnaði sínum öðrum útisigri á leiktíðinni. »40
Keflavík og Breiðablik fögnuðu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Beinar sjónvarpsútsendingar þykja
sjálfsagðar, en þær voru fátíðar
fyrstu áratugi íslensks sjónvarps og
þekktust ekki frá útlöndum á Íslandi
fyrr en Bjarni Felixson, þáverandi
íþróttafréttamaður ríkisútvarpsins,
lýsti úrslitaleik Liverpool og Totten-
ham í ensku deildabikarkeppninni
fyrir 40 árum. „Útsendingin var al-
gjört nýmæli og margir innan sjón-
varpsins gerðu sér ekki grein fyrir
því hvað var að gerast, að Ísland væri
að komast í samband við útlönd, en
þetta voru kaflaskipti í sögunni, al-
gjör tímamót.“
Liverpool vann Tottenham 3:1 í
framlengdum úrslitaleiknum á Wem-
bley í Lundúnum laugardaginn 13.
mars 1982. Framlengingin var reynd-
ar ekki á dagskrá sjónvarpsins fyrr
en helgina á eftir vegna þess að rík-
isútvarpið gat aðeins tryggt sér
gervihnattasendingu meðan á venju-
legum leiktíma stóð. „Því urðu Ís-
lendingar að bíta í það gallsúra epli að
glápa á skíðastökk meðan Liverpool
bætti tveimur mörkum við,“ sagði
Morgunblaðið í umsögn um leikinn.
Skert útsending átti sér samt eðli-
legar skýringar. Bjarni bendir á að
landið hafi í raun verið sambands-
laust við umheiminn hvað sjónvarps-
útsendingar varðar. Aðeins hafi verið
um einn gervihnött að ræða, Intelsat,
yfir Atlantshafinu og hann hafi að-
allega verið gerður fyrir símtöl. „Þess
vegna var erfitt að fá ótakmarkaðan
tíma fyrir sjónvarpsútsendingar en
það tókst að knýja út tíma fyrir
venjulegan knattspyrnuleik.“
Kostnaðurinn vafðist fyrir ráða-
mönnum ríkisútvarpsins en Bjarni
segir að málið hafi fengist samþykkt
fyrir tilstuðlan sjónvarpsstöðva á
Norðurlöndum, sem hafi hlaupið und-
ir bagga og tekið þátt í samningum
um útsendinguna. „Þær þurftu ekk-
ert á því að halda en mér tókst að
plata þær með á vagninn. Ég var í
góðu sambandi við kollega á Norð-
urlöndum og við störfuðum svo mikið
saman að innan sjónvarpsréttarhafa
vorum við kallaðir „norræna mafían“.
Þarna var norræn samvinna eins og
hún gerist best og þótt sumir hafi tal-
að um óþarfa bruðl minnir mig að
hagnaður hafi verið af útsending-
unni.“
Farandprestur fór á flakk
Dagskrá sjónvarpsins var niður-
njörvuð á þessum árum og Bjarni
segir að henni hafi helst ekki mátt
breyta. Menn hafi haldið fast utan um
sitt. „Þeir voru ekki tilbúnir að láta
efni víkja fyrir beinni íþróttaútsend-
ingu,“ rifjar hann upp. Hugvekjan
hafi til dæmis verið fastur liður á
sunnudögum alla tíð, en séra Emil
Björnsson fréttastjóri hafi eitt sinn
gefið eftir. „Hugvekjan var helgur og
óbifanlegur þáttur, hjartans mál. Ég
var samt ekki sáttur, þegar fellt var
að vera með beina útsendingu frá
kappleik í staðinn og sagði við séra
Emil að presturinn væri farand-
prestur þjóðkirkjunnar og mætti því
fara á flakk. Það þótti séra Emil fynd-
ið og lét undan.“
Undirbúningurinn hjá Bjarna fyrir
fyrsti beinu útsendinguna var eins og
fyrir aðrar útsendingar en öðru máli
gegndi um tæknilegu hliðina. „Mesti
undirbúningurinn var hjá tækniliðinu
og Símanum, sem sá um móttökuna.
Þar var mesta spennan en ég var
vissulega spenntur. Eftir á var sagt
að það hafi allt verið mér að kenna að
farið var út í þessa vitleysu!“
Sumarið 1982 fór heimsmeistara-
keppni karla í knattspyrnu fram á
Spáni. Þá voru engar útsendingar í
sjónvarpinu í júlí en Bjarni fékk því
framgengt að úrslitaleikurinn var
sýndur í beinni útsendingu. „Út-
varpsráð hafnaði því alfarið að halda
áfram útsendingum eftir 1. júlí en
féllst síðan á að leyfa útsendinguna að
því gefnu að ég gæti kallað menn úr
sumarfríi í vinnu. Það voru mörg ljón
í veginum en þetta tókst,“ segir
Rauða ljónið, eins og Bjarni er oft
kallaður. „Við sendum úrslitaleikinn
út í svart-hvítu, því við gátum ekki
komist inn á breska kerfið heldur
urðum að nota hnött sem var á se-
gam-kerfinu, sem Frakkar notuðu,
og var notaður fyrir sendingar til
Suður-Ameríku.“
Bjarni var ráðinn til ríkisútvarps-
ins til þess að sjá um ensku knatt-
spyrnuna í hlutastarfi 1968, fór síðar í
fullt starf og hætti formlega skömmu
fyrir sjötugsaldurinn en hélt áfram
sem verktaki í nokkur ár. „Ég ætlaði
aldrei að verða ríkisstarfsmaður en
svona fór það nú,“ segir Bjarni, sem
er 85 ára og í fínu formi og þakkar
það daglegri vatnsleikfimi. „En
fyrsta beina útsendingim er einn af
hápunktum starfsins enda stór stund
í sögunni.“
Rauða ljónið ruddi
brautina yfir hafið
- Fyrsta beina sjónvarpsútsendingin að utan fyrir 40 árum
Morgunblaðið/Ómar
Rauða ljónið Bjarni Felixson var lengi einn af hornsteinum Ríkisútvarpsins.