Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 48

Morgunblaðið - 12.03.2022, Page 48
B O S S B Ú Ð IN K R IN G L U N N I Barokkbandið Brák kemur fram á tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 16. Brák mun þar frumflytja þrjú ný verk sem samin voru sérstaklega fyrir hópinn eftir íslensku tónskáldin Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Þráin Hjálmarsson og Kristin Smára Kristinsson. Einnig verða leikin þekkt barokkverk eftir Vivaldi og Stradella sem og minna þekkt verk eftir Svíann Johan Agrel. Allt efnið verður flutt í anda barokktímans á girnistrengi og barokk- hljóðfæri. Flest verkanna sem Brák flytur prýða plöt- una Tvær hliðar sem kemur út á vegum Sono Luminus í lok ágúst og dreift verður af Naxos um heim allan. Brák með Tvær hliðar í Hörpu LAUGARDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Keflavík og Breiðablik fögnuðu sigrum í Subway-deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Keflavík hafði betur gegn KR, 110:106, í æsispennandi leik. Réðust úrslitin í fram- lengingu og voru Keflvíkingar ögn sterkari í blálokin eftir að KR byrjaði betur í framlengingunni. Keflavík er með 26 stig, eins og Njarðvík í öðru sæti. Breiðablik er komið upp í 16 stig og upp að hlið KR eftir 116:109- útisigur á botnliði Þórs frá Akureyri. Þór náði mest 13 stiga forskoti en Breiðablik neitaði að gefast upp og fagnaði sínum öðrum útisigri á leiktíðinni. »40 Keflavík og Breiðablik fögnuðu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Beinar sjónvarpsútsendingar þykja sjálfsagðar, en þær voru fátíðar fyrstu áratugi íslensks sjónvarps og þekktust ekki frá útlöndum á Íslandi fyrr en Bjarni Felixson, þáverandi íþróttafréttamaður ríkisútvarpsins, lýsti úrslitaleik Liverpool og Totten- ham í ensku deildabikarkeppninni fyrir 40 árum. „Útsendingin var al- gjört nýmæli og margir innan sjón- varpsins gerðu sér ekki grein fyrir því hvað var að gerast, að Ísland væri að komast í samband við útlönd, en þetta voru kaflaskipti í sögunni, al- gjör tímamót.“ Liverpool vann Tottenham 3:1 í framlengdum úrslitaleiknum á Wem- bley í Lundúnum laugardaginn 13. mars 1982. Framlengingin var reynd- ar ekki á dagskrá sjónvarpsins fyrr en helgina á eftir vegna þess að rík- isútvarpið gat aðeins tryggt sér gervihnattasendingu meðan á venju- legum leiktíma stóð. „Því urðu Ís- lendingar að bíta í það gallsúra epli að glápa á skíðastökk meðan Liverpool bætti tveimur mörkum við,“ sagði Morgunblaðið í umsögn um leikinn. Skert útsending átti sér samt eðli- legar skýringar. Bjarni bendir á að landið hafi í raun verið sambands- laust við umheiminn hvað sjónvarps- útsendingar varðar. Aðeins hafi verið um einn gervihnött að ræða, Intelsat, yfir Atlantshafinu og hann hafi að- allega verið gerður fyrir símtöl. „Þess vegna var erfitt að fá ótakmarkaðan tíma fyrir sjónvarpsútsendingar en það tókst að knýja út tíma fyrir venjulegan knattspyrnuleik.“ Kostnaðurinn vafðist fyrir ráða- mönnum ríkisútvarpsins en Bjarni segir að málið hafi fengist samþykkt fyrir tilstuðlan sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum, sem hafi hlaupið und- ir bagga og tekið þátt í samningum um útsendinguna. „Þær þurftu ekk- ert á því að halda en mér tókst að plata þær með á vagninn. Ég var í góðu sambandi við kollega á Norð- urlöndum og við störfuðum svo mikið saman að innan sjónvarpsréttarhafa vorum við kallaðir „norræna mafían“. Þarna var norræn samvinna eins og hún gerist best og þótt sumir hafi tal- að um óþarfa bruðl minnir mig að hagnaður hafi verið af útsending- unni.“ Farandprestur fór á flakk Dagskrá sjónvarpsins var niður- njörvuð á þessum árum og Bjarni segir að henni hafi helst ekki mátt breyta. Menn hafi haldið fast utan um sitt. „Þeir voru ekki tilbúnir að láta efni víkja fyrir beinni íþróttaútsend- ingu,“ rifjar hann upp. Hugvekjan hafi til dæmis verið fastur liður á sunnudögum alla tíð, en séra Emil Björnsson fréttastjóri hafi eitt sinn gefið eftir. „Hugvekjan var helgur og óbifanlegur þáttur, hjartans mál. Ég var samt ekki sáttur, þegar fellt var að vera með beina útsendingu frá kappleik í staðinn og sagði við séra Emil að presturinn væri farand- prestur þjóðkirkjunnar og mætti því fara á flakk. Það þótti séra Emil fynd- ið og lét undan.“ Undirbúningurinn hjá Bjarna fyrir fyrsti beinu útsendinguna var eins og fyrir aðrar útsendingar en öðru máli gegndi um tæknilegu hliðina. „Mesti undirbúningurinn var hjá tækniliðinu og Símanum, sem sá um móttökuna. Þar var mesta spennan en ég var vissulega spenntur. Eftir á var sagt að það hafi allt verið mér að kenna að farið var út í þessa vitleysu!“ Sumarið 1982 fór heimsmeistara- keppni karla í knattspyrnu fram á Spáni. Þá voru engar útsendingar í sjónvarpinu í júlí en Bjarni fékk því framgengt að úrslitaleikurinn var sýndur í beinni útsendingu. „Út- varpsráð hafnaði því alfarið að halda áfram útsendingum eftir 1. júlí en féllst síðan á að leyfa útsendinguna að því gefnu að ég gæti kallað menn úr sumarfríi í vinnu. Það voru mörg ljón í veginum en þetta tókst,“ segir Rauða ljónið, eins og Bjarni er oft kallaður. „Við sendum úrslitaleikinn út í svart-hvítu, því við gátum ekki komist inn á breska kerfið heldur urðum að nota hnött sem var á se- gam-kerfinu, sem Frakkar notuðu, og var notaður fyrir sendingar til Suður-Ameríku.“ Bjarni var ráðinn til ríkisútvarps- ins til þess að sjá um ensku knatt- spyrnuna í hlutastarfi 1968, fór síðar í fullt starf og hætti formlega skömmu fyrir sjötugsaldurinn en hélt áfram sem verktaki í nokkur ár. „Ég ætlaði aldrei að verða ríkisstarfsmaður en svona fór það nú,“ segir Bjarni, sem er 85 ára og í fínu formi og þakkar það daglegri vatnsleikfimi. „En fyrsta beina útsendingim er einn af hápunktum starfsins enda stór stund í sögunni.“ Rauða ljónið ruddi brautina yfir hafið - Fyrsta beina sjónvarpsútsendingin að utan fyrir 40 árum Morgunblaðið/Ómar Rauða ljónið Bjarni Felixson var lengi einn af hornsteinum Ríkisútvarpsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.