Morgunblaðið - 22.03.2022, Blaðsíða 27
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mosfellsbær Afturelding mætir
Breiðabliki í undanúrslitum.
Þórhildur Þórhallsdóttir var at-
kvæðamikil fyrir Aftureldingu þeg-
ar liðið tryggði sér sæti í undan-
úrslitum deildabikarsins,
Lengjubikarsins, með sigri gegn
Þrótti úr Reykjavík á Fagverks-
vellinum að Varmá í Mosfellsbæ í
gær.
Leiknum lauk með 3:1-sigri Aft-
ureldingar en öll mörk leiksins
komu í fyrri hálfleik.
Þórhildur kom Aftureldingu yfir
á 20. mínútu og hún bætti við öðru
marki sínu og öðru marki Aftureld-
ingar á 25. mínútu. Sigrún Gunndís
Harðardóttir í liði Aftureldingar
fékk að líta beint rautt spjald á 29.
mínútu en það kom ekki að sök því
Kristín Þóra Birgisdóttir skoraði
þriðja mark Aftureldingar á 33.
mínútu. Andrea Rut Bjarnadóttir
minnkaði muninn fyrir Þrótt á 41.
mínútu en lengra komust Þróttarar
ekki. Afturelding hafnaði í 2. sæti
2. riðils með 10 sig og mætir
Breiðabliki, sigurliði 1. riðils, í und-
anúrslitum hinn 25. mars. Í hinu
undanúrslitaeinvíginu mætast Val-
ur, sem endaði í efsta sæti 2. riðils
með fullt hús stiga, og Stjarnan
sem hafnaði í öðru sæti 1. riðils en
sá leikur fer fram 26. mars. Úr-
slitaleikurinn fer svo fram 1. apríl.
Afturelding leikur til undanúrslita
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022
Ég er handviss um að
íþróttaáhugamaðurinn Vladimír
Pútín er farinn að átta sig á því
innst inni að hann gerði mistök
með því að láta rússneskar her-
sveitir ráðast á Úkraínu. Þótt það
muni hann seint viðurkenna.
Sú ákvörðun hefur meðal
annars sett flest rússneskt af-
reksfólk í íþróttum út í kuldann
og það fær ekki að keppa á nein-
um alþjóðlegum mótum.
Þegar er ljóst að innrásin
kostar Rússa sæti á næstu
heimsmeistaramótum í fótbolta
og handbolta og keppnisrétt á
fjölda annarra stórmóta næstu
mánuði og ár.
Vissulega er íþróttakeppni í
hvaða mynd sem hún er nánast
hjóm eitt í samhengi við voða-
verkin sem nú eru í gangi í Úkra-
ínu vegna tilskipana Pútíns.
Rússar fara ekki á HM. Rúss-
um er hent út úr söngvakeppn-
inni. Þetta virðast smámál í
stóra samhenginu og ekki líkleg
til að hafa áhrif á pólitíkina og
gang stríðsins.
Eða hvað? Hluti af ímynd og
stolti hverrar þjóðar er einmitt
hvernig hún spjarar sig í keppni á
hinum ýmsu sviðum. Hvernig
fremsta fólk þjóðarinnar gerir
það gott á alþjóðavettvangi og
ber hróður síns lands. Og um leið
sinnar forystu.
Rússar hafa verið í fremstu
röð í flestum greinum og það
hefur verið þeirra metnaðarmál
eins og annarra stórþjóða að
vinna til sem flestra verðlauna.
Ég trúi ekki öðru en að þegar
rússneskur almenningur áttar
sig smám saman á því að forset-
inn þeirra er að einangra þjóðina
og eyðileggja tækifæri og
drauma þegnanna, muni vopnin
snúast í höndum hans.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu leikur útileik sinn gegn
Hvíta-Rússlandi í undankeppni
heimsmeistaramótsins í Serbíu 7.
apríl en Hvít-Rússar fá ekki að spila
á heimavelli vegna aðildar að inn-
rás Rússa í Úkraínu.
UEFA hefur nú tilkynnt að leik-
urinn fari fram í Vozdovac-
leikvanginum í úthverfi Belgrad,
höfuðborgar Serbíu, þann sama
dag. Íslenska liðið er með 9 stig í C-
riðli undankeppninnar, stigi minna
en Holland en Ísland á leik til góða
á Holland.
Mæta Hvít-
Rússum í Serbíu
Morgunblaðið/Unnur Karen
HM Íslenska kvennalandsliðið mæt-
ir Hvíta-Rússlandi í Serbíu í apríl.
Einvígi SA og SR um Íslandsmeist-
aratitil karla hefst í Skautahöllinni
á Akureyri í kvöld en þar mætast
liðin klukkan 19.30. SA varð deild-
armeistari með 43 stig í 16 leikjum
en SR fékk 26 stig og Fjölnir aðeins
þrjú. Liðin mættust átta sinnum
innbyrðis í vetur og ríkjandi meist-
arar frá Akureyri unnu sex leikj-
anna. Báðir sigurleikir SR komu
hinsvegar á Akureyri, 7:6 eftir
framlengingu í fyrstu umferð og
aftur 4:2 í desember. SA vann hins-
vegar 9:1 og 10:4 í Reykjavík í
marsmánuði og 5:3 á Akureyri.
Einvígið hefst á
Akureyri í kvöld
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Íshokkí Slagurinn um meistara-
titilinn 2022 hefst í kvöld.
DANMÖRK
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn
Ólafsson leikur ekki meira með
danska knattspyrnuliðinu Midt-
jylland á leiktíðinni vegna meiðsla
sem hann varð fyrir í leik gegn Silke-
borg í dönsku úrvalsdeildinni á
sunnudag. Elías handleggsbrotnaði
eftir einvígi við sóknarmann Silke-
borgar undir lok leiks.
„Þetta var stungusending í gegn
og ég fer út í boltann í 50/50 einvígi
við sóknarmann. Hann er seinn að
hoppa úr þessu og fer beint í fram-
handlegginn á mér og hann brotnar,“
útskýrði Elías Rafn í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta var mjög vont
en ég hef ekki lent í þessu áður, svo
ég var ekki viss hve alvarleg meiðslin
væru í fyrstu. Ég vonaði það besta og
þetta eru auðvitað ekki niðurstöð-
urnar sem ég vonaðist eftir.“
Tímasetningin er sérlega slæm
fyrir Elías enda stærstu leikir tíma-
bilsins á næsta leyti. Midtjylland er á
leiðinni í úrslitakeppni um danska
meistaratitilinn og þá er liðið einnig í
undanúrslitum danska bikarsins. Elí-
as missir einnig af landsleikjum við
Finnland og Spán 26. og 29. mars.
Svekkelsið leyndi sér ekki hjá Elíasi
aðspurður um tímasetningu meiðsl-
anna. „Þetta er á eins svekkjandi
tímapunkti og hægt er.“
Búist við sigri í hverjum leik
Elías, sem er aðeins 21 árs, hefur
spilað 14 af 22 leikjum Midtjylland í
úrvalsdeildinni í vetur og leikið sam-
tals fimm leiki í Evrópu- og Sam-
bandsdeildum UEFA. Hann við-
urkennir að hann hafi ekki endilega
átt von á að spila svona mikið þegar
tímabilið hófst.
„Það var ekki beint planið að ég
myndi spila svona mikið þegar tíma-
bilið fór af stað en ég er mjög sáttur
við það. Þetta er mjög stórt félag og
það er búist við sigri í hverjum ein-
asta leik. Þetta hefur hins vegar
gengið upp og niður síðan við byrj-
uðum aftur eftir frí. Ég hef sjálfur
spilað vel síðan við byrjuðum eftir frí,
fyrir utan 15 sekúndur á móti FC Kö-
benhavn. En við sem lið höfum ekki
staðið okkur nægilega vel,“ sagði Elí-
as en hann vitnar í mistök sem hann
gerði gegn Kaupmannahafnarliðinu í
0:1-tapi. Þess fyrir utan hefur
frammistaðan verið góð og Elías sex
sinnum haldið hreinu í deildinni á
leiktíðinni.
Mitdjylland hafnaði í þriðja sæti
F-riðils í Evrópudeildinni og féll því
niður í Sambandsdeildina. Þar féll
liðið úr leik í 32-liða úrslitum gegn
PAOK frá Grikklandi en Sverrir Ingi
Ingason leikur með PAOK. Elías er
reynslunni ríkari eftir Evrópuleiki
með einu stærsta liði Danmerkur.
„Það var frábært að spila í þeim
keppnum og mikil reynsla. Það er að-
eins öðruvísi bolti og lið til í að gera
ýmislegt fyrir sigurinn,“ sagði hann.
Finnst ég betri en hann
Danski landsliðsmarkvörðurinn
Jonas Lössl, sem áður lék með ensku
liðunum Huddersfield og Everton,
byrjaði sem aðalmarkvörður Midt-
jylland á leiktíðinni en Elías fékk
tækifærið þegar sá danski meiddist
og greip gæsina á meðan hún gafst.
Með góðri frammistöðu hélt íslenski
landsliðsmarkvörðurinn Lössl á
bekknum. Í kjölfarið fór Daninn í við-
töl við fjölmiðla í heimalandinu og
sagðist litlar áhyggjur hafa af stöð-
unni því hann væri betri markvörður
en Elías að sínu mati.
„Ég bjóst aldrei við því að hann
myndi segja að ég væri betri en
hann. Honum finnst hann betri en ég
og mér finnst ég betri en hann. Þetta
var góð barátta og ég hafði gaman af
þessu. Við skutum aldrei beint hvor á
annan, heldur var þetta í gegnum
fjölmiðla,“ sagði Elías.
Niðurstaðan varð síðan sú að Lössl
var lánaður til enska liðsins Brent-
ford og hefur leikið tvo leiki með því í
úrvalsdeildinni í vetur. Elías tók
hinsvegar alfarið við stöðu aðal-
markvarðar Midtjylland.
Gerðist allt mjög hratt
Hann lék sinn fyrsta A-landsleik 8.
október gegn Armeníu í undan-
keppni HM þar sem lokatölur urðu
1:1. Elías stóð sig vel og fékk traustið
gegn Liechtenstein, Rúmeníu og
Norður-Makedóníu í sömu undan-
keppni í kjölfarið og var því orðinn
aðalmarkvörður landsliðsins og eins
stærsta liðs Danmerkur á skömmum
tíma.
„Þetta gerðist allt mjög hratt. Það
er heiður að spila fyrir íslenska
landsliðið og ég er ánægður með að
fá það tækifæri. Ég hef alltaf verið
jarðbundinn og því fór ég ekki of hátt
þótt það gengi vel,“ sagði hann.
Elías skrifaði undir nýjan fimm
ára samning við Midtjylland í desem-
ber á síðasta ári og á því von á því að
vera áfram hjá félaginu á næstu ár-
um. „Ég verð þarna væntanlega
nokkur ár í viðbót, ég er ekki að
hugsa um neitt annað eins og er,“
sagði Elías Rafn.
Á eins svekkjandi
tímapunkti og hægt er
- Elías frá út tímabilið - Aðalmarkvörður landsliðsins og Midtjylland 21 árs
Ljósmynd/Alex Nicodim
Midtjylland Elías Rafn Ólafsson leikur ekki meira með Midtjylland á leiktíðinni eftir handleggsbrot um helgina.
Subway-deild karla
Vestri – Njarðvík................................ 82:115
Staðan:
Þór Þ. 19 15 4 1867:1679 30
Njarðvík 19 14 5 1832:1636 28
Keflavík 19 13 6 1717:1620 26
Valur 19 11 8 1547:1518 22
Stjarnan 19 11 8 1702:1645 22
Tindastóll 19 11 8 1666:1686 22
Grindavík 19 10 9 1621:1620 20
KR 19 9 10 1744:1755 18
Breiðablik 19 8 11 2033:2032 16
ÍR 19 7 12 1671:1672 14
Vestri 19 4 15 1536:1713 8
Þór Ak. 19 1 18 1475:1835 2
1. deild karla
Skallagrímur – Selfoss......................... 90:82
Álftanes – Hrunamenn ...................... 118:90
Hamar – Haukar ................................ 86:107
Höttur – Fjölnir.................................. 102:83
ÍA – Sindri........................................... 56:120
Staðan fyrir lokaumferðina:
Haukar 26 24 2 2682:2048 48
Höttur 26 22 4 2645:2166 44
Sindri 26 17 9 2498:2245 34
Álftanes 26 16 10 2481:2237 32
Fjölnir 26 14 12 2438:2497 28
Skallagrímur 26 11 15 2215:2343 22
Selfoss 26 11 15 2271:2351 22
Hrunamenn 26 10 16 2298:2540 20
Hamar 26 4 22 2026:2492 8
ÍA 26 1 25 1952:2587 2
_ Haukar leika í úrvalsdeild 2022-23.
_ Höttur, Sindri, Álftanes og Fjölnir fara í
umspil um eitt sæti í úrvalsdeildinni.
NBA-deildin
Indiana – Portland ............................. 129:98
Houston – Memphis ........................... 98:122
Atlanta – New Orleans..................... 112:117
Orlando – Oklahoma City .................... 90:85
Sacramento – Phoenix............. (frl.) 124:127
New York – Utah................................ 93:108
Denver – Boston ............................... 104:124
Philadelphia – Toronto ........................ 88:93
Golden State – San Antonio............. 108:110
4"5'*2)0-#