Morgunblaðið - 22.03.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.03.2022, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 ✝ Anna Guðjóns- dóttir fæddist á Saurhóli í Saur- bæ í Dalasýslu 9. janúar 1933. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 15. febrúar 2022. Foreldrar Önnu voru hjónin Guð- jón Guðmundsson, f. 27. júlí 1891, d. 2. janúar 1980, og Sigríður Jóna Halldórsdóttir, f. 8. október 1906, d. 5. janúar 1994. Systkini: Anna Margrét, f. 22. júlí 1928, d. 14. desember 2013, Elínborg, f. 15. október 1929, Guðmundur, f. 14. jan- úar 1931, d. 18. júlí 2018, og Halldór, f. 14. desember 1937. Anna giftist Jóhanni Júlíusi Andersen, þau skildu. Anna bjó með Guðlaugi L. Guð- mundssyni síðustu 45 árin eða þar til hann lést 31. júlí 2020. Börn Önnu eru : 1) Helena Önnudóttir, f. 16. nóvember 1961, gift Mary Hawk- ins. 2) Linda And- ersen, f. 18. júlí 1964, unnusti Þor- steinn Sigurðsson, börn Lindu eru: a) Júlíanna Sig- tryggsdóttir, f. 17. sept. 1982, gift Símoni Geir Geirs- syni. b) Melkorka Otradóttir, f. 4. nóv. 1987, gift Alexander Magnússyni. c) Henríetta Andersen, f. 3. sept. 1990. Barnabörn Lindu eru níu talsins. 3 ) Pétur Magni J. Andersen, f. 10. júní 1966, kvæntur Ídu Þorgeirsdóttur, synir þeirra eru: a) Jóhann Sindri, f. 6. ágúst 1986. b) Guð- laugur Darri, f. 8. maí 2000. Barnabörn þeirra eru þrjú talsins. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku mamma. Nú hefur leiðir okkar skilið um hríð. Leiðarlok sem komu engum á óvart. Hugur þinn var lagður upp í þessa leið fyr- ir þó nokkru. Södd lífdaga enda bú- in að skila þínu. En alltaf er erfitt að kveðja þeg- ar að því kemur. Þá er maður að kveðja þá mömmu sem hún var og hafði verið manni klettur í gegnum ævina. Alltaf gat maður gengið að mömmu vísri. Seinni árin oftast sitjandi á kollinum við eldhúsborð- ið á Njálsgötunni. Kaffi á beyglaðri hitakönnu sem við vorum margoft búin að reyna að skipta út fyrir ein- hverja nýtískulegri en alltaf var þessi kanna dregin upp því hún hélt langbest heitu. Þetta lýsir svo- lítið mömmu og hennar kynslóð sem var fædd rétt fyrir seinna stríð. Hlutum var ekki skipt út fyr- ir nýja að ástæðulausu. Þeim var ekki skipt út fyrr en þeir höfðu lok- ið sínu hlutverki. Nýtni og útsjón- arsemi var henni í blóð borin. Því miður hugsar maður það ekki fyrr en nú, hvað þá að maður hafi sagt það með berum orðum, hversu mikilvæg mamma var í lífi manns. Fastur punktur í lífi okkar systkinanna. Alltaf var hægt að reiða sig á hana. Sama hvaða klandur maður var búinn að koma sér í á unglingsárunum, þá leysti hún þau og gekk í málin með festu. Hún hafði skoðanir, sat ekki á þeim. Lét mann alveg vita ef mað- ur hafði valdið henni vonbrigðum en það var fljótt að gleymast. En í hjarta hennar voru nokkur hólf. Eitt af mörgum hólfum var mjög stórt og var það hólf sem dýr- in áttu. Það var alveg sama hvar sem hún sá t.d. hunda á göngu sinni, þá varð hún að stoppa, knúsa þá og kyssa svo okkur systkinun- um þótti stundum nóg um. Ógleymanleg er ferð sem við fór- um með henni á sveitabæ fyrir austan fjall fyrir nokkrum árum. Við fengum að kíkja í fjósið og hún lét kýrnar sleikja sig í framan og fannst henni það dásamlegt. Alveg eins og hún hafði gert heima í sveitinni í Dölunum þar sem hún var fædd og uppalin. Þegar hún hnaut um eitthvað heima á Njáls- götunni sagði hún stundum að Prins væri að flækjast fyrir fótun- um á sér. Það var hundur sem hafði verið á æskuheimili hennar og var hún sannfærð um að hann fylgdi sér. Trúi ég því að nú séu þau sameinuð á ný og farin að hlaupa á grasi grónum þúfum eins og hún hafði gert sem barn. En það voru ekki bara dýrin sem áttu sér hólf, það voru líka börnin. Barnabörn hennar og barnabarnabörn, sem eru orðin 17 talsins, nutu hlýju hennar og að- stoðar á allan þann hátt sem hún gat veitt þeim. Þá gleymdist nú stundum nýtnin þegar eitthvert barnabarnið varð að fá nýjustu tegundina af takkaskóm eða nýj- ustu gallabuxurnar sem voru komnar í búðir þótt hún fussaði stundum yfir því þegar þær voru keyptar, splunkunýjar flíkur sem voru gauðrifnar! Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði, tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Jæja elsku mamma, nú ætla ég að hætta enda held ég að þér þætti nú nóg komið og tími til að setja punkt. Hvíldu í friði. Pétur Magni. Elsku mamma er búin að kveðja. Mamma lifði langa ævi, ná- tengd fjölskyldu sinni, og lagði mikla áherslu á að styðja börnin sín og aðra í lífsins leik. Mamma var líka góður vinur barna sinna, barnabarna og barnabarnabarna, alltaf tilbúin að leika og grínast og seinni árin glöð að sitja í fé- lagsskap afkomenda sinna og hlusta á nýjasta slúðrið. Á þeim tíma sem mamma var líkamlega hress nutu hún og Gulli þess að ferðast til sólríkra staða í Evrópu. Þegar mamma varð eldri gafst hún ekki upp á ferðalögum, hún hélt áfram að ferðast í draumum sín- um. Ég hef mikið saknað þess að geta ekki séð og faðmað móður mína á síðustu tveimur árum. Ég hef saknað þess að koma inn á 92 og hoppa upp í rúm milli mömmu og Gulla þar sem þau fengu sér síð- degislúr og spyrja mömmu um nýjustu draumaferðirnar hennar. Í draumum sínum var mamma venjulega með gömlum vinum, fjölskyldu og dýrum í Saurbæ. Hún er nú frjáls í sinni ástkæru Dalasýslu, þar sem ég er viss um að hún er á ferð með eldri systur sinni og bróður, öllum dýrunum, hlaupandi upp og niður hæðir og fjöll, með lófa fulla af bláberjum og nýjum kartöflum. Og líklega stundum röltandi hönd í hönd með Gulla. Mamma, nú ertu laus við sárs- auka, sem er gott að vita. Ég mun ævinlega vera þakklát því að þú varst mamma mín. Ég mun alltaf elska þig. Þakka þér fyrir allt. Helena Önnudóttir. Elsku mamma. Nú er komið að kveðjustund og hugurinn fyllist af minningum. Eru það allt góðar minningar um góða konu, sem vildi öllum vel. Mamma gaf mér frá- bæra æsku sem einkenndist af mikilli hlýju, festu og endalausu trausti. Ekki mikið um boð og bönn heldur alltaf mátulega frjáls- legt. Mamma var mikill handavinnu- snillingur, og þegar kom að því að prjóna, sauma eða sauma út var ekkert sem hún gat ekki gert. En því miður þurfti hún að hætta því öllu eftir að hún greindist með liða- gigt um fimmtugt. Þótt það hafi oft verið erfitt til dæmis bara að fara fram úr á morgnana og gera þá hluti sem hún var vön að gera, þá kvartaði hún aldrei. Þegar hún var spurð hvernig hún hefði það var svarið alltaf: „Það eru aðrir sem hafa það verra.“ Þær voru ófáar ferðirnar sem hún fór til Benidorm, sólin gerði henni gott. Pönnukökupannan var alltaf tekin með og bauð hún þeim sem vildu pönnukökur. Fyrir tæpum 30 árum flutti ég og dætur mínar í sama hús og mamma, það var mikill samgangur hjá okkur og eigum við frábærar minningar um þennan tíma. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur og nú fyllist hugurinn af öllum gæða- stundunum sem við áttum saman. Mamma var mjög örlát og vildi allt fyrir alla gera, en var nægjusöm þegar kom að sjálfri sér og vildi alls ekki láta hafa fyrir sér. Dálæti hennar á dýrum var með eindæmum og það var mikið af þeim á heimilinu þegar við systk- inin vorum yngri. Mamma sá um köttinn Zorro í nokkur ár, og hún dekraði við hann. Ef hann var ekki kominn inn á kvöldin mátti heyra mömmu kalla á hann, hún hætti ekki fyrr en hann var kominn inn. Hún sagðist ekki geta sofnað nema hún vissi af honum inni. Síðustu árin voru mömmu oft erfið, hún var mest rúmliggjandi. Minnið var farið að versna, en allt- af þótti henni gaman að vera innan um fólk og fylgjast með. Mamma fékk inni á hjúkrunar- heimilinu Skjóli ári 2020, þar fékk hún þá umönnun sem hún þurfti. Það hefur verið vel tekið á móti henni af þeim sem fóru á undan. Og þar hefur Gulli verið fremstur í flokki. Takk fyrir allt elsku mamma, þú verður ávallt með mér. Þín Linda. Það eru 25 ár síðan ég kynntist Önnu þegar hún, Gulli og öll fjöl- skyldan komu að sækja okkur Hel- enu á flugvöllinn. Ég var stressuð. Ég hafði komið til Íslands áður, en fjölskyldan var ný fyrir mér, hvernig myndu þau bregðast við þessum Ástrala? Ég var svo hepp- in að mjög ung Henrietta ákvað að ég væri forvitnileg og fyrsta kvöld- ið sá ég Önnu horfa, á sinn sér- staka hátt, á Henny hangandi á handleggnum á mér. Næstu dag- ana var ég „metin“ og svo loksins kom Anna til Helenu og sagði: „Hún er í lagi.“ Þannig hófust kynni mín af Önnu, svo ekki sé talað um restina af fjölskyldunni. Anna talaði ekki ensku og íslenskan mín er mjög takmörkuð, en við áttum í litlum vandræðum með samskipti. Hún var skemmtileg, vitur, sterk og hreinskiptin, svo hressandi íslensk. Þótt hún væri oft með verki vegna langvinnrar liðagigtar dvaldi hún ekki við það eða vorkenndi sjálfri sér. Ég hef lært heilmikið um lífið af Önnu og það er mér heiður að vera tengdadóttir hennar. Vale Anna litla, alltaf í mínu hjarta. Mary Hawkins. Elsku amma, kletturinn minn og mín besta vinkona. Þú varst al- gjör demantur, húmoristi og með hjarta úr gulli. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér, skipti ekki máli hvað hefði gengið á, reyndir alltaf að rífa upp stemninguna með gríni. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla, dæmdir engan og trúðir alltaf á það góða í fólki. Þetta er mikill missir en á sama tíma reyni ég að hugga mig við það hve mikinn tíma ég fékk með þér, allar minningarn- ar og góðu stundirnar. Amma hvíldu í friði, ég mun aldrei gleyma þér og þinni sterku og hvetjandi nærveru. Elska þig. Þín Henríetta. Ljóð til ömmu Núna ertu farin elsku amma mín. Mér hugleikin er góða nærveran þín. Í heiminn þinn ég var svo velkomin, átti hjá þér heimili og griðastaðinn minn. Í raunum varstu klettur og viskusól. Alltaf varstu blíð og þolinmóð. Þú gafst mér í bakpokann fjölda- mörg tól. Já, þú reyndist mér meira en mjög góð. Ég veit að þú hvílir nú í friði og ró. Þú hleypur um sveitina sælleg og rjóð. Eftir sitja minningar sem gefa mér fró og breytast með tímanum í sögur og ljóð. (Júlíanna) Þín Júlíanna. Elsku amma, nú kveðjum við þig í hinsta sinn og eftir sitja svo margar góðar minningar. Ég er svo ótrúlega lánsöm að hafa fengið að alast upp í sama stigagangi og þú. Það var mikill samgangur á milli og það sem er eftirminnilegt núna eru jólin okkar á Njálsgötu. Við systurnar brunuðum niður stigaganginn á 10 mínútna fresti til að athuga hvort þið afi væruð ekki örugglega orðin spennt fyrir kvöldinu. Ég man alltaf eftir þér sem töff- ara sem elskaði dýr og kom vel fram við alla. Árið 2011 fékk ég mér kettling sem þú hugsaðir síð- an um frá því þú hittir hann fyrst. Amma sagði við mig að Zorro ætti frekar heima þar sem hann kæm- ist út og inn eins og hann vildi. Ég sá það strax og allir aðrir í fjöl- skyldunni að þessi köttur ætti hjarta þitt. Þið áttuð eitthvert sér- stakt samband sem tekið var eftir í hverfinu. Þegar kötturinn átti að koma inn á kvöldin stóð amma í útidýrunum og kallaði á hann, þá kom hann hlaupandi inn. Ég þakka þér fyrir allt elsku amma mín og nú hefur afi tekið á móti þér og þið dansið eflaust sam- an í einhverjum dýragarði í para- dís. Þín Melkorka. Anna Guðjónsdóttir ✝ Jóhann Hann- esson fæddist í Reykjavík 20. júní 1930. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 26. febrúar 2022. Foreldrar Jó- hanns voru Hannes J. Jónsson, f. 26.5. 1892, d. 2.7. 1971, kaupmaður í Reykjavík, og Ólöf G. Stefánsdóttir, f. 12.5. 1900, d. 23.7. 1985, húsfreyja. Systkini Jóhanns voru Mál- fríður (hálfsystir, samfeðra), f. 1920, látin, Sveinbjörn, f. 1921, látinn, Stefán, f. 1923, látinn, Pétur, f. 1924, látinn, Sesselja, f. 1925, látin, Ólafur, f. 1926, lát- inn, Andrea, f. 1928, látin, Björg- vin (tvíburabróðir), f. 1930, lát- með Hlyni Sigurðssyni, f. 1989, börn þeirra eru Arnbjörg Elín, f. 2016, og Eysteinn Pétur, f. 2021. 3) Helga, f. 1964, d. 2014. Jóhann ólst upp ásamt systk- inum sínum á Ásvallagötu. Hann gekk til náms í Miðbæjarskól- anum og lærði húsgagnasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík. Að námi loknu gerðist hann lærling- ur hjá Áhaldahúsi Reykjavíkur. Hann starfaði sem smiður alla sína tíð, aðallega við húsaupp- slátt og húsinnréttingar. Jóhann kvæntist Margréti Sigfúsdóttur og hófu þau saman búskap í Vesturbænum og bjuggu þar á Hagamel, Víðimel og Birkimel. Þau byggðu sér svo hús í Gilja- landi í Fossvogi þar sem þau bjuggu lengst af með dætrum sínum þremur. Þegar hreiðrið var tómt fluttust þau hjónin loks á Sléttuveg, þar til þau fengu skjól á Droplaugarstöðum. Útförin fór fram 10. mars 2022. inn, Jón, f. 1936, látinn, Sigurður, f. 1937, og Þorbjörg, f. 1939. Jóhann giftist Margréti Sigfús- dóttur 14. febrúar 1952. Margrét var fædd í Reykjavík 3. september 1929, hún lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum 5. júlí 2017. Dætur Jóhanns og Margrétar eru: 1) Arnbjörg Guðrún Kristín, f. 1949, gift Jóhanni Kröyer, f. 1949, d. 2014. 2) Jóhanna Ólöf, f. 1959, gift Birgi Heiðari Þór- issyni, f. 1960. Börn þeirra eru: Jóhann Þórir, f. 1978, Hulda Björg, f. 1984, og Margrét Hanna, f. 1988, hún er í sambúð Mikið vorum við heppin með hann afa Giljó/Sléttó okkar. Þegar ég hugsa um afa sé ég fyrir mér gleðiblik í augum hans og lítið glott á vör. Hann var undantekn- ingarlaust kátur og glaður við okkur barnabörnin, alltaf tilbúinn með smá stríðni upp í erminni. Hann kvaddi yfirleitt með frasan- um „komdu sem oftast, það er svo gaman þegar þú ferð!“ og hló dátt á meðan hann lýsti Jóa sem „fal- lega ljótum“. Afi var líka orðinn þessi fíni langafi og undi því vel enda var hann mikill barnakall. Hann hafði mjög gaman að Öddu langafabarni sínu og reyndi eftir mesta megni að halda í við hana í leik, þó hún hefði nú ekki alltaf þolinmæði fyrir þessum hægfara stríðnispúka. Undir stríðnispúkanum var þó algjör öðlingur, umhyggjusamur, duglegur, hjálpsamur og góður maður. Hann sinnti ömmu Mar- gréti og Helgu sinni af mikilli ást- úð og vildi bókstaflega allt fyrir þær gera. Afi fékk til dæmis aldrei möndluna í möndlugrautnum, að minnsta kosti ekki opinberlega, því hann laumaði henni þá yfir til Helgu. Hann setti samt ávallt höndina upp að munninum og þóttist taka möndluna út og fela hana í servíettunni bara til að rugla í okkur og var alsæll með eigin fyndni. Afi var mjög gjafmildur við okkur barnabörnin, hann var til dæmis svo spenntur þegar Jói fékk bílpróf að hann fór keypti fyrsta bílinn fyrir hann (bíllinn var nefnilega á svo góðum díl). Afi átti erfitt með að sleppa góðu tilboði, sér í lagi ef um skó var að ræða! Hann keypti sér fleiri skó en hann komst yfir að nota og yfirleitt end- aði það svo að aðrir fjölskyldu- meðlimir græddu á þessum kjara- kaupum hans. Við systkinin eyddum ófáum stundum niðri í Giljó hjá ömmu og afa, þar var alltaf gott að vera. Það var spennandi að fá að kíkja í smíðakompuna með afa þar sem hann kenndi okkur að saga og negla og leyfði okkur að berja dós- ir með hamri. Afi var einnig hinn mesti sælgætisgrís, sló hendinni aldrei á móti góðu súkkulaði og sendi okkur krakkana oft niður í frystikistu að sækja eina sand- köku fyrir kaffið. Oftast fór maður heim frá ömmu og afa með mag- ann fullan af ást og vasana fulla af klinki í þokkabót. Það var mikil breyting fyrir afa þegar Helga flutti á sambýlið í Fannafold og svo seinna meir þeg- ar amma flutti á Droplaugarstaði. En afi hafði þó alltaf göngurnar sínar, hann spígsporaði fram og til baka um allan Fossvoginn á degi hverjum með derhúfu á kollinum, sama hvernig viðraði. Líklegast á hann heilsu sinni og langlífi þess- um göngum að þakka. Hann var tæplega 92 ára gamall en samt farinn of snemma. Við erum full af þakklæti fyrir árin sem við áttum, fyrir hláturinn, gleðina og þennan dásamlega afa. „Abbisínía“ elsku besti afi okk- ar, við munum ævinlega sakna þín. Þín barnabörn, Margrét Hanna, Hulda Björg og Jóhann Þórir. Jóhann Hannesson Gott er sjúkum að sofna meðan sólin er aftanrjóð og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa meðan sólin í djúpinu er og ef til vill dreymir þá eitthvað sem engin í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Margrét systir mín er dáin langt fyrir aldur fram. Við kynntumst því miður ekki að ráði fyrr en á fullorð- insárum, en alltaf síðan hefur hún verið og reynst mér sama góða systirin. Mér er minnis- stætt eins og hafi gerst í gær þegar hringvegurinn um Ísland opnaðist og við sunnlenskir sveitadrengir lögðum upp í ferð á Norðurlandið. Þar átti ég föð- ur og systur sem ég þekkti að vísu ekki mikið. En viðtökurnar Margrét Hólm Magnúsdóttir ✝ Margrét Hólm Magnúsdóttir fæddist 12. desem- ber 1956. Hún lést 24. febrúar 2022. Útför hennar fór fram 7. mars 2022. voru frábærar og þar áttu Magga og Gunnar stærstan hlut, að öllum öðr- um ólöstuðum. Eftir þessa stuttu heimsókn – með ballferð, að sjálf- sögðu, í þá daga var tíminn nýttur til hins ýtrasta – héldu þau hjónin vina- og systkina- sambandi við mig og mína alla tíð. Þegar þau bjuggu í Noregi komu þau aldrei svo til Íslands að ekki heimsækti Margrét bróður sinn á Suðurlandinu. Okkur var líka alltaf tekið opn- um örmum á Akureyri hjá þeim og áttum vinum að fagna. Margrét bjó sér og sínum glæsilegt heimili, garðurinn hennar var og er rómaður fyrir fegurð og allt sem hún snerti á var smekklegt og vel gert. Margrét glímdi við alvarleg- an heilsubrest síðustu árin, sem sigraði hana að endingu, allt of snemma. Innilega samúð votta ég fólkinu hennar. Hvíldu í friði elsku systir, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þinn bróðir, Gísli Halldór Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.