Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 29

Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 86% EMPIRE TOTAL F ILM VARIET Y “ONE OF THE BEST SUPERHERO MOVIES EVER MADE” “A masterpiece.” Í Angouleme í Frakklandi lauk um helgina 49. árlegu teiknimynda- sagnahátíðinni, en áhugafólk um teiknimyndasögur af ýmsu tagi þyrpist ætíð á hátíðina til að sjá nýj- ar bækur, hlusta á höfunda og skoða hvers kyns sýningar tengdar teikni- myndasögum sem mikil menning er kringum í Frakklandi. Meðan á hátíðinni stóð var afhjúp- aður á torgi í borginni minnisvarði um teiknarann Albert Uderzo, sem er dáður út um heimsbyggðina fyrir sögurnar um félagana Ástrík og Steinrík sem flestar voru skrifaðar af René Goscinny. Uderzo lést fyrir tveimur árum og voru dætur Uderzo og Goscinnys viðstaddar. Það var við hæfi að minnisvarðinn væri í formi bautasteins. Í sögunum ber Stein- ríkur hinn sterki út slíka steina, og kastar þeim líka léttilega að róm- verskum hermönnum ef þörf er á. Aðalverðlaun alþjóðlegu teikni- myndasagnahátíðarinnar féllu að þessu sinni í skaut kanadíska teikn- arans Julie Doucet, fyrir ævistarf í þjónustu teiknaðra sagna. Hún er fyrsti Kanadabúinn sem hreppir verðlaunin og aðeins fjórða konan á 49 árum. Brasilíski teiknarinn Mar- cello Quintanilha vann verðlaun fyrir bók ársins, Listen, pretty Marcia. Hún fjallar um móður í fátækrahvefi nærri Ríó hvers dóttir flækist inn í átök milli gengja. AFP/Yohan Bonnet Bautasteinn Sylvie Uderzo og Anne Goscinny, dætur höfunda Ástríkssagn- anna, Alberts Uderzo og Renés Goscinny, við minnisvarðann. Bautasteinn reistur í minningu Uderzo - Doucet heiðruð fyrir teiknaðar sögur Víða um lönd hafa listamenn og menningarstofnanir af ýmsu tagi staðið fyrir ýmiss konar viðburðum þar sem varnarbaráttu Úkraínu- manna gegn innrás Rússa er í senn sýndur stuðningur og fé safnað fyrir flóttamenn og hjálparsamtök. Tón- listarmenn hafa haldið tónleika, dansarar dansað og leikarar leikið, ljósmyndir víða að sýna fólk streyma að viðburðunum og sýna hug sinn til innrásarinnar. AFP/Florian Wieser Friðarljós Á samstöðutónleikum með Úkraínu á aðalíþróttaleikvangi Vínarborgar hafa gestir kveikt ljós á snjall- símum sínum sem tákn um ósk fyrir frið í landinu. Margir vinsælir austurrískir tónlistarmenn komu fram. AFP/Daniel Leal Svifið Argentínski dansarinn Marianela Nunez sveif í London Coliseum á sýningunni Dansað fyrir Úkraínu. Frægir dansarar víða að komu fram. AFP/Thomas Coex Í fánalitum Á Torgi lýðveldisins í París, Place de la Republique, er brons- styttan sem táknar franska lýðveldið klædd í liti úkraínska fánans. Koma fram saman fyrir Úkraínu AFP/Florian Wieser Friðarhvatning Meðal listamanna á friðartónleikum í Vín var söngv- arinn Marco Michael Wanda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.