Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 16
Spilling er landlæg hér og meiri
en í öðrum vestrænum löndum.
Sk ý ring: Smæð þjóðfélagsins,
frændsemi, vináttubönd, nánir
hagsmunahópar og -tengsl, klíku-
skapur. En, skýring er ekki afsökun
eða réttlæting.
Þegar ég kom heim, eftir nær
30 ára fjarveru erlendis, var þetta
ástand mest óbreytt.
Það getur enginn breytt þessu,
nema þjóðin sjálf. Í kosningum.
Af hverju hefur hún ekki gert það?
Hvers vegna lætur hún þessa spill-
ingu og sjálftöku sérhagsmunaafl-
anna ganga yfir sig aftur og aftur og
endalaust?
Hafna verður forustu D og B end-
anlega! Þá gefst loks tækifæri til að
stokka upp og uppræta gömul kerfi
ranglætis, klíkuskapar og hyglunar
útvalinna.
Nú gengur stormur vandlætingar
og hneykslunar yfir landið vegna
bankasölu, sem byggir á mismunun,
ranglæti og klíkuskap. Auðvitað er
það, þetta almenna andóf, af hinu
góða, en valdaklíkan, nú með VG
og Katrínu Jakobsdóttur með í för,
reyndar í stafni, mun standa þetta
af sér.
Hættan er, að almenningur verði
búinn að gleyma þessu máli, líkt
og svo mörgum öðrum spillingar-
málum, sem einkum D og B bera
ábyrgð á, en lík aðrir, þegar næst
verður kosið.
Eða, kannski skortir þjóðina vit,
andlegan styrk, vilja og getu gagn-
vart sjálfri sér til að sprengja af sér
hlekki ranglætis, óheilinda og sjálf-
töku hinna útvöldu.
Kannski finnst mönnum þetta
bara fínt, svona af gömlum vana
– svo má illu venjast, að gott þyki
– eins og með krónuna, sem var og
er eitt helzta verkfæri spillingarafl-
anna og valdið hefur þjóðinni meiri
óvissu og áþján – hrunið meðtalið
– en tárum tekur.
Hér skrifar spillingin í kringum
hvalveiðarnar líka sinn eigin kafla,
svo að ekki sé talað um framsal auð-
linda sjávar til örfárra fjölskyldna,
sem svo nota þá fjármuni, sem
auðlindirnar skila, til yfirtöku og
eignarhalds margra helztu fyrir-
tækja landsmanna. Stórauka þannig
áhrif sín, völd og auðæfi.
Í spillingarkerfinu er þess auðvit-
að líka vel gætt, að hafa sem flesta,
sem vettlingi geta valdið, með á
spena. Hringur sameiginlegrar hags-
munagæzlu og spillingar lokaður.
Þetta spillingarkerfi varð trúlega
mikið til eftir lýðræðistökuna og
sjálfstæðið 1944. Auðvitað var það
nokkuð til fyrir, en við sjálfstæðið
gafst meira svigrúm fyrir hags-
munapot og hrossakaup.
Spillingin byggir því á gömlum
grunni, er vandlega f léttuð og vel
hnýtt. Kjördæmaskipan, þar sem
hluti þjóðarinnar hefur tvö atkvæði,
en annar hluti bara hálft, snar þátt-
ur í f léttunni. Hvernig hafa hálfs-
atkvæðismenn getað unað sinni
stöðu allan þennan tíma?
Illskiljanleg raunasaga.
Annað hvort skortir þjóðina
vitsmuni eða sálarþrek og kjark
til breytinga, til að umbylta þjóð-
félaginu, rífa tökin á því úr höndum
klíkna og sjálftökumanna og inn-
leiða hér loks nútímalega, vest-
ræna siðmenningu, þar sem stjórn-
málamenn taka og bera ábyrgð
og taka afleiðingum gjörða sinna,
eða hún er orðin samdauna; finnur
ekki óþefinn lengur. Finnst hann
kannski bara orðinn góður.
Annar möguleiki er, að stór hluti
þjóðarinnar sé haldinn Stokk-
hólmsheilkenninu, sem Sif Sigmars-
dóttir rifjaði upp í snjöllum pistli á
dögunum, en því má líkja við það,
þegar flengdir menn kyssa vöndinn
í þakkarskyni, fyrir það, að hafa
ekki hlotið harðari refsingu, þótt
saklausir séu. ■
Þjóðina virðist vanta
vit eða sálarstyrk
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður og
stjórnmálarýnir
Nú eru þau sem stóðu í sársauka-
fullri réttindabaráttu hinsegin
fólks á áttunda áratug síðustu aldar
við stofnun Samtakanna ‘78 að fylla
flokk eldri borgara landsins.
Þetta fólk varð margt fyrir margs
konar mismunun við það að opin-
bera sig fyrir þjóðfélaginu í lok átt-
unda áratugarins og fram eftir öld-
inni og jafnvel fram á okkar dag við
að berjast fyrir sjálfsögðum mann-
réttindum. Það varð útsett fyrir hat-
ursorðræðu, andlegu, líkamlegu og
fjárhagslegu ofbeldi eingöngu vegna
kynhneigðar sinnar. Það voru þær
fórnir sem þessi þjóðfélagshópur
varð að færa fyrir því að standa með
sjálfum sér, fyrir að standa í mann-
réttindabaráttu sem bar að lokum
margvíslegan árangur svo að þjóð-
félagið hefur orðið þó nokkuð víð-
sýnna fyrir tilstilli þeirra. En slíkri
mannréttindabaráttu lýkur aldrei,
það sýna sorglega mörg dæmi sög-
unnar.
Sem slík eiga þau á hættu að
þurfa á ný, þegar þau fylla hóp eldri
borgara, að hverfa í felur eða eiga á
hættu að upplifa á ný margs konar
mismunun og óréttlæti. Þeirra hlut-
skipti getur auðveldlega orðið að
fela tilfinningar sínar og hver þau
eru í raun, þegar þau þurfa að leita
á náðir velferðarþjónustu ríkis og
sveitarfélaga. Þar sem þau þurfa að
opna heimili sín, hvort sem heimili
þeirra er í þeirra eigin eigu eða er á
stofnunum, fyrir ókunnugu fólki
sem hefur verið falið að þjónusta
þau vegna minnkandi færni í dag-
legum störfum og eða vegna hrak-
andi andlegrar heilsu. Sum hver
eru þannig á „valdi“ einstaklinga
sem þau hafa ekki endilega valið að
umgangast reglulega, en verða háð
þeim vegna þeirrar þjónustu sem
þau verða að þiggja vegna aðstæðna
sinna. Mörg þeirra gætu kosið í ljósi
þessa að hafna þjónustu og félags-
skap annarra og orðið útsett þ.a.l.
fyrir einangrun og einmanaleika.
Því er mikilvægt að verja stöðu
þessa viðkvæma hóps: Hinsegin
eldra fólk.
Í þing sá lyk t u na r t il lög u nni
Aðgerðaáætlun í málefnum hin-
segin fólks 2022 -2025 sem nú er til
umfjöllunar í allsherjar- og mennta-
málanefnd er ekki vikið einu orði að
þessum viðkvæma og sístækkandi
hópi. En málefni hans mætti fella
undir þá grein sem er nr. 13 í þings-
ályktunartillögunni eða jafnvel gera
að sérstökum lið í aðgerðaáætlun-
inni. Því það er afar mikilvægt að
almenn fræðsla og þekking verði hjá
þeim sem eiga að þjónusta hinsegin
eldra fólk í viðkvæmri stöðu.
Í fyrrnefndri 13. gr. draganna
er yfirskriftin: Fræðsla um hin-
segin málefni fyrir kjörna fulltrúa
og starfsfólks sveitarfélaga. Boðið
verði upp á fræðslu um hinsegin
málefni fyrir alla kjörna fulltrúa
og starfsfólk sveitarfélaga. Mark-
mið aðgerðarinnar verði að auka
þekkingu meðal kjörinna fulltrúa
og starfsfólks sveitarfélaga um rétt-
indi og félagslega stöðu hinsegin
fólks, segir í skýringu.
Þetta er eina greinin í tillögunni
til Aðgerðaráætlunar í málefnum
hinsegin fólks 2022–2025 sem í
raun víkur í einhverju að hinsegin
eldra fólki í viðkvæmri stöðu, en
hvergi í þingsályktunartillögunni
er þó minnst á þennan hóp sér-
staklega berum orðum, þó ýmsir
aðrir hópar séu sérstaklega nefndir
í veikri stöðu – réttilega.
Það er algjört grundvallarat-
riði að í þeirri aðgerðaáætlun sem
nú liggur fyrir Alþingi verði þessi
hópur, hinsegin eldra fólk, sér-
staklega skilgreindur sem hópur í
afar viðkvæmri stöðu og gerð verði
áætlun til að bregðast við henni.
Ég vona að svo verði þegar þessi
þingsályktun kemur í endanlegu
formi fram á Alþingi. Ef ekki, treysti
ég á að þingheimur bregðist fljótt og
vel við þannig að svo megi verða í
endanlegri samþykkt Aðgerðaáætl-
unar í málefnum hinsegin fólks
2022–2025.
Það yrðu sorgleg örlög þessarar
elstu kynslóðar hinsegin fólks að
þurfa að hrekjast í skápinn á síðasta
æviskeiðinu – aftur. ■
Eldra hinsegin fólk
vill ekki deyja í skápnum
Viðar Eggertsson
leikstjóri og eldri
borgari
Auglýsing um framboðslista til sveitarstjórnarkosninga
á Seltjarnarnesi 14. maí 2022
D A S
Sjálfstæðisflokkur Framtíðin Samfylking og óháðir
Þór Sigurgeirsson Karl Pétur Jónsson Guðmundur Ari Sigurjónsson
Ragnhildur Jónsdóttir Áslaug Ragnarsdóttir Sigurþóra Bergsdóttir
Magnús Örn Guðmundsson Björn Gunnlaugsson Bjarni Torfi Álfþórsson
Svana Helen Björnsdóttir Árný Hekla Marinósdóttir Karen María Jónsdóttir
Dagbjört Oddsdóttir Guðbjörn Logi Björnsson Guðmundur Gunnlaugsson
Hildigunnur Gunnarsdóttir Anna Þóra Björnsdóttir Eva Rún Guðmundsdóttir
Örn Viðar Skúlason Garðar Svavar Gíslason Björg Þorsteinsdóttir
Grétar Dór Sigurðsson Hildur Aðalsteinsdóttir Stefán Árni Gylfason
Hannes Tryggvi Hafstein Georg Gylfason Bryndís Kristjánsdóttir
Guðmundur Helgi Þorsteinsson Halla Helgadóttir Stefán Bergmann
Hákon Róbert Jónsson Vilmundur Jósefsson Magnea Gylfadóttir
Inga Þóra Pálsdóttir Marta Hrafnsdóttir Ólafur Finnbogason
Guðmundur Jón Helgason Páll Árni Jónsson Hildur Ólafsdóttir
Ásgerður Halldórsdóttir Katrín Pálsdóttir Árni Emil Bjarnason
Þessir listar eru í boði:
seltjarnarnes.is
16 Skoðun 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ