Fréttablaðið - 12.04.2022, Qupperneq 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Nói Síríus fagnaði 100 ára afmæli
sínu árið 2020 og eru páskaeggin
frá Nóa Síríus fyrir löngu orðin
stór partur af páskahefð okkar
Íslendinga. Páskaeggjaframleiðsla
hófst um miðjan fjórða áratug
síðustu aldar, svo það styttist í að
heil öld sé liðin frá því að leiðir
Íslendinga og Nóa-páskaeggjanna
lágu saman. Á þessum árum hefur
byggst upp mikil saga, reynsla
og ríkar hefðir,“ segir Alda Björk
Larsen, markaðsstjóri yfir fram-
leiðsluvörum Nóa Síríus. „Síríus-
súkkulaðið okkar er þjóðinni hug-
ljúft og bæði eggin og konfektið
okkar eru orðin nauðsynlegur
hluti af hátíðunum.
Við Íslendingar erum fastheldnir
á hefðir og erum líklega eina
þjóðin sem heldur enn í þá hefð að
vera með málshætti í eggjunum.
Íslendingar sem flytja utan sækja
líka mikið í að fá páskaegg send
út til sín,“ segir Alda. „Verslanir á
Norðurlöndunum eru því farnar
að selja meira og meira af páska-
eggjunum okkar, bæði vegna
Íslendinga sem óska eftir þeim og
líka vegna þess að Danir og Norð-
menn eru að falla fyrir íslensku
páskaeggjunum sem eru svo ómót-
stæðileg.“
Gómsæt egg sem henta öllum
„Við bjóðum upp á fjölbreytt
úrval af páskaeggjum af ýmsum
stærðum og gerðum og henta þau
öllum aldurshópum. Við viljum
reyna að koma til móts við sem
flesta og bjóðum til að mynda
upp á egg úr dökku súkkulaði
sem henta fyrir þá sem eru með
mjólkuróþol eða eru vegan,“ segir
Alda. „Við höfum líka komið með
ýmsar nýjungar síðustu ár sem við
köllum séregg. Þau eru með alls
kyns bragðtegundum og ótrúlega
skemmtileg viðbót fyrir þau sem
vilja meira en bara hreint súkku-
laði. Í ár erum við með nýtt egg,
Tromp egg með piparfylltum
lakkrísbitum, en við reynum að
koma með eitthvað nýtt og spenn-
andi í f lóruna á hverju ári.
Í séreggjunum er alls kyns auka
í súkkulaðiskelinni, eins og Nóa
kropp, Eitt sett lakkrísbitar, Tromp
bitar og margt fleira. Þau eru líka
breytileg milli ára og hafa vaxið
gríðarlega í vinsældum,“ segir
Alda. „Nú er til dæmis orðið vin-
sælt að hafa smakkhittinga bæði
í vinnum og saumaklúbbum og
bjóða upp á mismunandi páska-
egg. Svo eru líka mörg fyrirtæki
sem leita til okkar til að vera með
sérmerkt páskaegg, með kveðju frá
fyrirtækinu til starfsmanna eða
viðskiptavina.“
Samstarf við Tulipop og Storytel
„Við hófum samstarf við þær Helgu
og Signýju, sem eru með Tulipop.
Þær voru að koma með teikn-
myndaþætti með þessum krútt-
legu fígúrum en þær eru búnar
að gera bækur, bangsa, lampa
og ýmislegt annað með þessum
skemmtilegu fígúrum,“ segir Alda.
„Þetta er afskaplega skemmtileg
nýjung, þetta er svolítið svipað og
þegar við vorum með Strumpana
eða Gretti ofan á eggjunum og
erum við ótrúlega ánægð með að
geta boðið uppá íslenskar fígúrur.
Við erum líka í samstarfi við
Storytel með Eitt sett eggin, en það
fylgir mánaðaráskrift hjá Storytel
með hverju eggi,“ segir Alda.
Leggja sitt af mörkum
til samfélagsins
„Okkur í Nóa Síríus er mjög
umhugað um samfélagslega
ábyrgð og við erum sífellt að leita
leiða til að gera betur á sama tíma
og við leggjum áherslu á að gæði
vörunnar haldist. Við viljum
sífellt vera að taka skref í rétta
átt í umhverfismálum og til að
mynda eru páskaeggin núna með
skrauti sem er hægt að borða, bæði
blómin og kanínurnar á toppnum
á eggjunum, fyrir utan Tulipop
leikföngin sem fylgja sumum eggj-
unum,“ segir Alda. „Við hættum
líka með heftin á toppunum í fyrra
og höfum fækkað plastpokunum
sem eru utan um nammið sem er
inni í eggjunum og er allt sem ekki
smitast mikið í súkkulaðið nú laust
inni í eggjunum. Þetta tekur allt
sinn tíma, en við erum alltaf að
reyna að vinna í rétta átt.
Við erum líka hluti af Cocoa
Horizons-verkefninu, sem snýst
um að styðja við bændur með því
að gefa þeim sanngjarnt verð fyrir
kakóið sitt og stuðla að sjálfbærri
ræktun. Um leið hjálpar þetta
bændunum að fá aðgang að hreinu
vatni og menntun, þannig að
það er sannarlega hægt að borða
páskaeggin okkar með góðri sam-
visku,“ útskýrir Alda. „Við viljum
að uppruni hráefna sé augljós og
það sé vottað og teljum mikilvægt
að leggja okkar af mörkum.
Við erum stolt af því að vera í
samstarfi við ýmis góðgerðar- og
styrktarfélög,“ segir Alda. „En í
ár voru meðal annars framleidd
páskaegg sérmerkt til styrktar
Mottumars og Team Rynkeby sem
félögin seldu í fjáröflunum sínum.“
Salan er framar vonum
„Síðasta ár var metár í sölu hjá
okkur, enda voru mjög sérstakar
aðstæður og Íslendingar keyptu
óvenjulega mikið af páskaeggjum.
Við bjuggumst alls ekki við að ná
sömu sölu í ár en þetta ár verður
alla vega jafn stórt, ef ekki stærra!“
segir Alda. „Það er ótrúlega gaman
hvað gengur vel og það er greini-
legt að nýju tegundirnar eru að
hitta í mark.
Eitt af því sem hefur slegið í
gegn hjá okkur í ár eru Karamellu
Doré gulleggin okkar, sem eru
gerð úr silkimjúku hvítu súkku-
laði með ekta karamellu. Þetta
egg var framleitt í fyrsta sinn í ár
á fæti og er bara til í einni stærð
og framleitt í takmörkuðu magni,
því það er töluvert erfiðara að
vinna með þetta súkkulaði en það
hefðbundna,“ segir Alda. „Þetta er
einstaklega „gourmet“ egg fyrir þá
sem vilja gera vel við sig.
Við komum með Karamellu
Doré súkkulaðið á markað í 100
gramma súkkulaðiplötum í byrjun
árs en það sló algjörlega í gegn og
seldist upp langt á undan áætlun,“
segir Alda. „En þessu verður
bjargað strax eftir páskana og þá
verður farið á fullt í að framleiða
meira af þessu dásemdar súkku-
laði.“ ■
Alda segir að
vinsældir páska-
eggjanna frá
Nóa Síríus aukist
sífellt og að
þrátt fyrir metár
í sölu í fyrra
stefni í jafnvel
enn meiri sölu
í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Páskaeggin eru einstaklega fallegt borðskraut sem hentar vel fyrir páskaboð, eins og sést á þessum myndum af
veisluborðum sem Soffía hjá Skreytum hús skreytti fagurlega. MYNDIR/AÐSENDAR
Við bjóðum upp á
fjölbreytt úrval af
páskaeggjum af ýmsum
stærðum og gerðum og
henta þau öllum aldurs-
hópum. Við viljum
reyna að koma til móts
við sem flesta.
Alda Björk Larsen
2 kynningarblað A L LT 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR