Fréttablaðið - 12.04.2022, Qupperneq 20
Ég er mjög
hrifin af
Eggs Bene-
dict á góðu
súrdeigs-
brauði
með rist-
aðri pros-
ciutto-
skinku.
Ég elska að
elda góðan
mat og
oftast er ég
með fisk á
föstudag-
inn langa
og þá
kemur
humarinn
mjög
sterkur
inn.
Eva María Hallgrímsdóttir,
ástríðubakari, sælkeri og
eigandi Sætra synda, elskar
að dunda sér í eldhúsinu og
finnst fátt skemmtilegra
en að elda og borða góðan
mat. Þegar líður að páskum
sér hún fyrir sér að hún
fái fleiri stundir til að elda
heima við og njóta samveru-
stunda með fjölskyldunni og
hlakkar til.
sjofn@frettabladid.is
Evu finnst það vera ákveðin hug-
leiðsla að elda. „Ég fæ svo mikla
hugarró við að elda, það er svo
gaman að búa til eitthvað dásam-
legt úr einföldum hráefnum. Lífið
er einfaldlega of stutt til að borða
vondan mat – það er mitt mottó.“
Páskarnir skipa ákveðinn sess
hjá Evu og á hún sínar hefðir í
tengslum við þá. „Páskarnir eru í
miklu uppáhaldi hjá mér en það
er ekki oft sem ég get alveg kúplað
mig út úr vinnu þar sem útibú
Sætra synda eru opin alla daga
vikunnar og alltaf eitthvað sem
þarf að græja og gera eða svara
starfsmönnum með hina ýmsu
fyrirspurnir eða svara tölvupósti
viðskiptavina.
Það verður lokað í verslunum
Sætra synda á skírdag, föstudaginn
langa, páskadag og annan í pásk-
um, þannig að þarna fæ ég fjóra
heila daga í frí sem er algjörlega
dásamlegt. Opið verður hjá okkur á
laugardeginum, en minnsta mál að
taka einn vinnudag þarna á milli
og fara svo aftur heim í frí að njóta.“
Klassískt á páskadag
Þegar kemur að matargerð á
páskunum fer Eva á flug. „Ég elska
að elda góðan mat og oftast er ég
með fisk á föstudaginn langa og
þá kemur humarinn mjög sterkur
inn. Svo er auðvitað klassískt að
vera með lamb á páskadag en ég
rambaði á hægeldaða lambahrygg-
inn hennar Evu Laufeyjar Kjaran
fyrir nokkrum árum og eftir að ég
kynntist honum er engin leið til
baka, hann er eitt það besta sem
ég fæ.“
Eva segist skreyta heimilið
aðeins fyrir páskana en föndrar
þó ekki mikið, hún láti duga að
skreyta kökur. „Ég er með stóran
fallegan kringlóttan svartan
bakka á stofuborðinu hjá mér
sem ég aðlaga ávallt hverri hátíð
eða vertíð hverju sinni. Um páska
set ég pastelgul kerti í hann og
skreyti með fallegum fjöðrum,
litlum eggjum og öðru fallegu
páskaskrauti. Þennan sama disk
nota ég svo fyrir jólin með rauðum
kertum, könglum, jólakúlum og
öðru hlýlegu.“
Nammið í eggjunum best
Páskaegg verða líka borðuð á pásk-
unum á heimili Evu. „Það koma
nú ekki páskar nema maður opni
eitt páskaegg, ekki satt? Ég er ekki
mikil súkkulaðitýpa en ég er mikil
lakkrís-, núggat- og piparkona
þannig að ég vel mér oft svona
bragðmikil egg en best finnst mér
þó nammið inni í egginu, er meira
svona bland í poka kona. Svo er
ómissandi að fá málshátt en eftir-
minnilegasti málshátturinn minn
er: Þeir fiska sem róa. Ég trúi því að
ef maður er duglegur og vinnu-
samur, uppskeri maður samkvæmt
því.“
Þegar kemur að hefðum segir
Eva að fjölskyldan hafi eytt nokkr-
um páskum á Hólmavík. „Það eru
æskuslóðir mannsins míns, en þar
er hefð fyrir skemmtilegri páska-
eggjaleit með ungviðinu sem er svo
dásamleg samverustund.“
Í eldhúsinu með syninum
Góður páskabröns er líka í miklu
uppáhaldi hjá Evu og deilir hún
hér með lesendum sínum uppá-
haldsrétti sem er tilvalið að bjóða
upp á á páskunum. „Ég er mjög
hrifin af Eggs Benedict á góðu
súrdeigsbrauði með ristaðri pros-
ciutto-skinku. Best er að byrja
á því að rista prosciutto í ofni á
150°C í 10-15 mínútur eða þar til
skinkan er orðin stökk. Því næst
sker ég niður gott súrdeigsbrauð og
dreifi góðri ólífuolíu yfir sneið-
arnar og hita þær í ofni. Þegar
brauðið er að verða klárt geri ég
hleypt egg og toppa þetta svo með
heimagerðri hollandaise-sósu.
Hrikalega gott.“
Uppáhaldsgæðastundir Evu
eru þegar hún er með syni sínum í
eldhúsinu þar sem þau spreyta sig
saman á einföldum uppskriftum
sem litlir bakarar geta hermt eftir.
Hér deilir Eva með lesendum
Páskabollakökur og
páskahreiður fyrir
súkkulaðiunnendur
Eva María elskar
að dunda sér í
eldhúsinu og
nýtur þess að
elda í páska-
fríinu í faðmi
fjölskyldunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Rice Krispies-
páskahreiðrin
eru fullkomin
fyrir litla bakara
að kljást við og
bragðast ómót-
stæðilega vel.
Girnilegu og fallegu páskabollakökurnar hennar Evu.
tveimur uppskriftum með
páskaívafi sem gaman er fyrir fjöl-
skyldur að gera saman og njóta.
Páskalegar bollakökur
190 g smjör (við stofuhita)
410 g sykur
3 egg
375 g hveiti
5 msk. kakó
1,5 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
3 dl mjólk
2 tsk. vanilludropar
Hitið ofninn í 175°C. Hrærið
saman smjör og sykur þar til
blandan verður ljós og létt. Bætið
eggjunum út í, einu í einu. Blandið
þurrefnunum saman og hrærið
saman við eggin og sykurinn
ásamt mjólk og vanilludropum.
Setjið deigið í bollakökuform og
bakið í 14-16 mínútur eða þar til
bollakökurnar eru bakaðar í gegn.
Vanillusmjörkrem
500 g íslenskt smjör
500 g flórsykur
4 msk. vanilludropar
Grænn matarlitur
Hrærið smjörið í hrærivélinni þar
til það er mjúkt og létt. Bætið flór-
sykrinum við í litlum skömmtum
og hrærið vel á milli. Setjið því
næst vanilludropana saman við
og hrærið kremið þar til það er létt
og ljóst. Því næst á að lita kremið
með grænum matarlit. Þegar
smjörkremið er klárt er settur
sprautustútur (234 frá Ateco eða
233 frá Wilton (grasastútur)) í
sprautupoka.
Þegar smjörkremið og bolla-
kökurnar eru klárar byrjið þið að
skreyta. Haldið sprautupokanum
lóðrétt og nálægt bollakökunni og
sprautið rólega og lyftið upp þann-
ig að það myndast gras á bolla-
kökunni. Sprautið bollakökuna
alveg að ofan með smjörkremi og
skreytið svo með fallegum litlum
páskaeggjum eða litlum sætum
súkkulaðikanínum.
Rice Krispies-hreiður
4 bollar sykurpúðar
5 bollar Rice Crispies
½ bolli brætt íslenskt smjör
2 tsk. vanilludropar
Byrjið á að bræða sykurpúðana í
örbylgjuofni (30 sekúndur í senn).
Þegar sykurpúðarnir eru klárir
bætið þið við bráðnu smjöri og
vanilludropum, blandið vel saman
og bætið svo við Rice Krispies
við og blandið vel. Þegar þetta er
klárt búið þið til litlar skálar úr
blöndunni. Gott er að smjörspreyja
bollakökumót að innan og nota
þau til að byggja skálina upp. Þegar
skálin (hreiðrin) eru klár setjið þið
þau inn í ísskáp og kæli í 4-6 klst. að
lágmarki. Þegar hreiðrin eru klár er
tilvalið að skreyta þau með litlum
sætum súkkulaðieggjum. ■
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Sími 554 0400
www.grillbudin.isGrillbúðin
Nr. 12952 - Án gashellu - Svart
PÁSKATILBOÐ
PÁSKATILBOÐ
99.900
FULLT VERÐ 109.900Opið
Skírdag
12-16
Frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
• Afl 12 KW
Nánar á www.grillbudin.is
• 4 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• hitajöfnunarkerfi
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Rafkveikja fyrir alla brennara
• Tvöfalt einangrað lok
• Stór posulínshúðuð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Grillflötur 65 x 44 cm
4 kynningarblað A L LT 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR