Fréttablaðið - 12.04.2022, Side 36
Skeljungur hefur í áraraðir
boðið upp á smurolíur sem
hægt er að stóla á. Komin er
á markað nýjung í vörufram-
boði Shell sem er kolefnis-
hlutlaus smurolía og með
tímanum munu fleiri og
fleiri olíur bera þann mikil-
væga eiginleika.
Ingi Fannar Eiríksson er sviðsstjóri
sölu- og rekstrarsviðs: „Shell hefur
að markmiði að rekstur félagsins
verði kolefnishlutlaus árið 2050,
sem er að okkar mati mjög metn-
aðarfullt markmið og sjáum við
þessi skref í samskiptum okkar við
tengiliði okkar hjá félaginu.“
Shell hefur í gegnum tíðina
sannað sig sem gæðaframleiðandi;
félagið er leiðandi í nýjungum og
með gríðarlega breitt vöruúrval.
Ingi Fannar segir að fyrirtækið
heyri frá viðskiptavinum sínum,
sem þjónusta bíla alla daga, hversu
mikið rekstraröryggi fylgi því að
nota smurolíu frá viðurkenndum
aðila eins og Shell.
„Í dag þurfa bílar og tæki olíu
sem heldur í við breyttar kröfur og
til að bæta afköst og endingu vélar-
innar. Shell þróaði PurePlus-fram-
leiðsluferlið, alveg nýja leið sem
byrjar á jarðgasi til að framleiða
grunnolíur, aðalhluta mótorolíu.
Shell Helix Ultra – PurePlus er
fyrsta tilbúna mótorolían sem
er búin til úr jarðgasi. Við höfum
séð velgengni Shell í Formúlu 1
kappakstrinum í samstarfi þeirra
við Ferrari og Rolls Royce er einn-
ig traustur samstarfsaðili Shell.
Undir miklu álagi þarf að nota
gæðaolíu.
Í rauninni eru
tegundirnar af
smurolíu endalausar
og bætist við vöruúr-
valið okkar reglulega. Í
Helix-línunni frá Shell
bjóðum við upp á 64
vörutegundir og einar
25 í Rimula-línunni.
Við leggjum okkur
fram við að mæta
þörfum viðskiptavina
okkar með breiðri
línu, þar sem kröfur
framleiðenda um að
smurolíur uppfylli
ákveðna staðla verða
sífellt meiri. Rimula
og Helix eru tegund-
irnar sem seljast mest
hjá okkur og eru það
smurolíur sem hafa
sannað sig í gegnum
tíðina, viðskipta-
vinir okkar þekkja og
treysta á gæðin sem
Shell býður upp á í
sínum vörum.“
Aukið aðgengi
með netverslun
Vefverslun Skeljungs,
sem var hleypt
af stokkunum sumarið 2021,
verslun.skeljungur. is, er með
fjölbreytt úrval vara fyrir allar
atvinnugreinar. Hægt og rólega
hefur Skeljungur verið að bæta
vefverslunina og hvatt viðskipta-
vini til að nota þennan mögu-
leika. Hún er í stöðugri þróun og
er markmiðið að hafa hana eins
þægilega og aðgengilega og kostur
er fyrir viðskiptavini.
Nýtt félag byggt á 94 ára sögu
Að sögn Inga Fannars hóf félagið
Skeljungur ehf. starfsemi þann
1. desember 2021 sem sjálfstætt
dótturfélag, eftir endurskipu-
lagningu á samstæðunni.
„Áhersla okkar er á sölu og
þjónustu við fyrirtæki, dreifingu,
innkaup og heildsölu á eldsneyti,
smurolíum, hreinsi- og efna-
vörum, áburði sem og öðrum
vörum og þjónustu-
þáttum til fyrirtækja
og bænda.
Nýlega f luttum við
höfuðstöðvar okkar í
Skútuvog 1 í Reykja-
vík og munum við í
vor opna þar verslun.
Um áramót keyptum
við meirihluta í fyrir-
tækinu Ecomar sem
býður upp á gæða
bílahreinsivörur og
þvottakerfi fyrir ein-
staklinga og stærri
fyrirtæki. Við erum
virkilega spennt
fyrir því samstarfi og
mun Ecomar f lytja
starfsemi sína til
okkar í Skútuvoginn
og vörur Ecomar
verða aðgengilegar í
versluninni.
Við hlökkum til
að taka á móti við-
skiptavinum okkar
í versluninni og
geta aukið aðgengið að vörunum
okkar ásamt því að eiga gott kaffi-
spjall við þá.
Við leggjum okkur fram við
að afhenda vörur okkar, sem eru
aðallega smurolía og eldsneyti,
á eins umhverfisvænan hátt og
okkur er unnt. Einnig kolefnis-
jöfnum við allan rekstur okkar
í samstarfi við Votlendissjóð og
bjóðum viðskiptavinum okkar
upp á þann möguleika að kol-
efnisjafna eldsneytisnotkun sína
ásamt því að bjóða upp á kolefnis-
hlutlausar smurolíur.“
Stolt af samstarfsaðilunum
„Við hjá Skeljungi erum stolt
af samstarfsaðilum okkar sem
bjóða upp á Shell-smurolíur og
við mælum með því að fólk og
fyrirtæki leiti til þeirra þegar þau
þurfa á smurþjónustu að halda.
Við eigum samstarf við trausta
aðila eins og Klett – Sölu og
þjónustu, Smurstöðina Garðabæ,
Skógarhlíð, Laugavegi, Sleggjuna
Þjónustuverkstæði, Þrym á Ísa-
firði, Vélsmiðju Grindavíkur,
Toyota á Akureyri og Verkstæði
Svans á Austurlandi.
Skeljungur er með afgreiðslu-
lager á svæðisskrifstofum sínum
og hjá samstarfsaðilum um allt
land og er hægt að nálgast vörurn-
ar okkar þar ásamt því að okkar
góða starfsfólk og samstarfsaðilar
veita persónulega þjónustu.“ n
Fjölbreytt vöruúrval og kolefnishlutlausar smurolíur
Ingi Fannar Eiríksson, sviðsstjóri sölu- og rekstrarsviðs Skeljungs, segir að nýlega hafi félagið flutt höfuðstöðvar sínar í Skútuvog 1 í Reykjavík og muni í vor opna þar verslun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í Helix-línunni frá Shell eru 64 vöru-
tegundir og einar 25 í Rimula-
línunni.
Afgreiðslustaðir:
n Reykjavík – Skútuvogur 1
(opnar í maí 2022)
n Bílaaðstoð og Flutningar
í Ólafsvík
n Vélsmiðjan Þrymur
á Ísafirði
n Svæðisskrifstofa Skeljungs
á Akureyri
n Svæðisskrifstofa Skeljungs
á Eskifirði
n Svæðisskrifstofa Skeljungs í
Vestmannaeyjum
n Vélsmiðja Grindavíkur
12 kynningarblað 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURSUMARDEKK